Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994 í stórum dráttum fáum við kryddjurtir úr fjórum plöntuættum: vara- blómaætt, sveipjurtaætt, körfublómaætt og liljuætt. Kryddjurtir má rækta á svölunum eða í eldhúsglugganum KRYDD er kjarni fæðunnar, segir einhvers staðar, og víst er að fátt getur verið eins skemmtilegt og ræktun kryddjurta, segir Haf- steinn Hafliðason garðyrkjumaður. Kryddjurtir þurfa ekki mikið rými í garðinum. Það er jafnvel hægt að hafa fullgildan kryddgarð á svölunum eða í eldhúsglugganum. í stórum dráttum fáum við kryddjurtir úr fjórum plöntuættum: varablómaætt, sveipjurtaætt, körfublómaætt og liljuætt. Úr vara- blómaætt koma tímían, órígan, majoram, basilíka, rósmarín, salvía, sar, ísópur, sítrónmelissa og mynt- ur. Allar þessar plöntur getum við ræktað hér á landi. Bragðefnin, sem við sækjumst eftir í þeim, stafa af rokgjömum olíum, sem finnast í blöðum jurtanna. Rokgjörnu olíurn- ar eru frá náttúrunnar hendi varúð- arráðstöfun gegn nagi og ágangi smádýra, en okkur finnast þær t.d. ómissandi í pizzu- og pastaréttum, farsi og í hrásalöt. Kryddjurtum af varablómaætt er sáð inni í mars/apríl. Best er að sá nokkrum fræjum í hvern 10 sm pott og sá í nokkra potta af hverri tegund. Sáðpottarnir eru hafðir í góðri birtu, sólskin er ekkert vanda- mál, og plastpoki er settur yfir meðan fræin spíra til að halda jöfn- um raka á moldinni. Plastpokinn er tekinn þegar komin eru þijú til fjögur blöð á plönturnar ofan við kímblöðin. Sé sáð í potta er óþarfi að grisja, heldur er litið á það sem vex í hveijum potti sem eina plöntu. Þegar veður leyfir má gróðursetja plönturnar úti í garði, í svalakassa eða einfaldlega halda áfram að rækta þær í glugganum. Þess ber þó að geta að plöntur undir berum himni verða bragðsterkari en þær sem vaxa inni í glugga, segir Haf- steinn. Úr sveipjurtaætt kemur dill, steinselja, skessujurt, kerfill, kúm- en, anís, fennil og kóríander. Þess- um tegundum, að þeim tveim síð- asttöldu undanskildum, er best að sá beint í garðinn þegar búið er að undirbúa beðin snemma á vorin. Fennil og kóríander er sáð í sáð- bakka innanhúss í apríl og síðan plantað út upp úr miðjum maí. Skessujurt, sem er stórvaxin fjöl- ær jurt, er oftast best að kaupa í groðrastöðvum eða fá bút úr hnaus hjá kunningjum. Körfublómaættin leggur til mal- urt, estragon, ömbru, reinfang, morgunfrú og kamillu. Hinar fyrstu eru rammar og gefa sérstakan keim í snafsa, farsrétti og sósur. Morg- unfrú og kamillu er gott að blanda í hrásalöt, bæði blöðum og blómum. Þær eru hreinsandi og græðandi fyrir ýmsa kvilla og innanmein. Þessum plöntum er sáð inni eða úti, í reit á vorin. Einnig er hægt að kaupa þær í gróðrastöð. Af liljuætt má telja alla lauka, sem notaðir eru til matargerðar. Graslaukur og pípulaukur henta þar best til ræktunar í pottum á svölun- um eða sem hnausar úti í garði. Þeim er sáð í potta á björtum stað innivið í febrúar til maí og koma mjög auðveldlega til. Af pípulauk er nokkur hvítlaukskeimur, segir Hafsteinn Hafliðason. ■ Mexíkósk matargerð eins og hún gerist best í Grillinu MEXÍKÓSKIR veisludagar standa nú sem hæst á Hótel Sögu. Mexíkó er íslendingum ekki með öllu ókunnugt, en nú gefst almenningi kostur á að kynnast enn frekar þessu forvitnilega landi, sérstaklega þó þeirri hlið sem hvað mesta at- hygli hefur vakið, matargerðarlistinni. Það verða þó ekki kryddlegin hjörtu á borðum í Grillinu, en ýmsir forvitnilegir réttir kitla bragð- laukana. Ferðamálaráð Mexíkó í London, Sendi- ráð Mexíkó í Noregi og Ræðismannsskrifstofa Mexíkó á íslandi standa að mexíkósku dögunum. Meginmarkmiðið er að kynna mexíkóska matargerð eins og hún gerist best og fá gestir Grillsins að njóta rétta, sem boðið er upp á á fínustu veitingahúsum í Mexíkó. Alejandro Caloca, yfirmatreiðslu- meistari á lúxushótelinu Krystal Vallarta, sem er staðsett í einum af vinsælustu sumarleyfisbæjum Mexíkó, Puerto Vallarta við Kyrrahafsströndina, starfar þessa dagana í Grillinu sem gestakokkur við hlið íslenskra matreiðslumeist- ara. Hjá honum fengum við upp- skrift vikunnar að þessu sinni sem hann kýs að nefna „Carne Asada a la Tampiquena" og útleggst á íslensku sem „Glóðarsteikt krydd- lögð nautalund að hætti Tampiqu- enabúa“. Uppskriftin er fyrir sex manns. Mexíkóskir dagar standa fram á sunnudag og er mexíkóskur matur framreiddur í Grillinu á kvöldin kl. 19.00 til 22.30. Hægt er að velja um fjóra forrétti, fimm aðalrétti og fjóra eftirrétti. Auk þess er mexíkóskur bjór og vín á boðstólum sem Hótel Saga hefur sérstaklega flutt inn vegna hátíðarinnar og ekki má gleyma Tequila, þeim „fjöruga" mexíkóska drykk. Þá skemmtir Mariachi þjóðlaga- sveitin matargestum sem skipuð er 10 valinkunnum hljóðfæraleik- urum, söngvurum og dönsurum. Mexíkóski gestakokkur- inn Alejandro Caloca ásamt matreiðslu- meisturunum Karli Ásgeirs- syni og Ragn- ari Wessman. Krydd nautalund að" hætti Mexí- kóbúa 1 V2 kg nautalundir eðo noutafile 700 g nýrnabaunir (frijoles) 3 kg lórperur (avókadó) 200 g ferskir tómatar 100 g ferskur chili-pipar 2-3laukar 70 g salt 2 sítrónur 40 g ferskt kóríander '/t iceberg salat 2 dl ólífuolia Taco-flögur Hluti af chili-piparnum skorin smátt og látin liggja í olíu í þijá klukkutíma. Notað til að pensla kjötið fyrir steikingu. Nautakjötið snyrt og skorið í sneiðar og skal miða við um það bil 170 grömm á mann. Kjötið er kryddað eftir smekk með salti og pipar og glóð- arsteikt eða steikt á pönnu í olíu. Baunastappa l'A laukur saxaður og steiktur í olíu í potti þar til hann fer að mýkjast. Baunirnar stappaðar og settar saman við. Látið malla í fimm mínútur og hrært í á með- an. Kryddað með helmingnum af saltinu. Nýrnabaunir eru til niður- soðnar, en ef þær eru ferskar þarf að leggja þær í bleyti yfir nótt og síðan eru þær soðnar í um 10 mínútur og látnar krauma í aðrar 40 mín. Guacamolesósa Avókadó er skorið í tvennt og kjötið skafið innan úr. Tómatar, laukur og chile-pipar fínt saxað og avókadó bætt út í. Kóríander smátt skorið og sett saman við ásamt afganginum af saltinu. Safa úr tveimur sítrónum er síðan hellt saman við blönduna og hrært vel. Réttinum er raðað á diskinn þannig að ofan á iceberg salatið fer guacamolesósan. Við hliðina er baunastappan sett og síðan kjötið. Taco-flögum er stungið í maukið. ■ JI Hreinsun bletta úr fatnaði HREINSA skal bletti úr fatnaði eins fljótt og unnt er, þar sem hætt er við að þeir festist í efninu ef dregst að taka þá til meðferðar. Flestir blettir fara úr í þvotti en gæta þarf að ýmsu áður en fatnað- urinn er þveginn. Að sögn Steinunnar Ingimundardóttir hjá Leiðbein- ingarstöð heimilanna er töluvert um það að fólk leiti ráða við bletta- hreinsun. Algengast er að fyrir fólki vefjist hvernig bregðast eigi við þegar um er að ræða spurningu, blek, fitu og blóð í fatnaði. Til að ná biki, olíum, olíumáln- ingu og majonesi svo dæmi séu tekin má væta lítinn og mjúkan klút úr gljúpu efni í bensíni eða tríklóretylen. Vætið fyrst í kringum blettinn með klútnum og síðar inn að miðju og nuddið léttilega yfir hann svo að öruggt sé að engin greinileg mörk myndist þar sem efnið er rakt af hreinsiefninu og þar sem það er þurrt, ella er hætt við að rákir komi á flíkina eftir Ókeypis básar fyrir unglinga og börn í Kolaportinu UM næstu helgi ætla forráða- menn Kolaportsins að gefa 280 börnum og unglingum tækifæri á að koma og selja það sem þau vilja og aðstöðuna fá þau ókeypis. Auk þess sem þau fá ókeypis sölubás þá fá þau líka endurgjalds- laust að nota borð og fataslár. Unga fólkinu er leyft að selja nánast, hvað sem er 0g veitt verða bókaverðlaun fyrir frumlegustu tekjuöflunaraðferðina. ■ hreinsivökvann. Nuddið blettinn þar til allt hreinsiefnið hefur gufað upp. Leggið flíkina á stöðugt borð við hreinsunina og hafíð gljúpt efni undir blettinum. Tríklóretylen gefur frá sér eitraðar gufur. Hafið því glugga opinn á meðan hreinsað er og var- ist að láta börn ná í hreinsivök- vann. Bensín er mjög eldfimt. Ver- ið ekki nálægt opnum eldi og hafið ekki logandi vindlinga í nánd við vinnustaðinn. Olíumálningu og bik þarf ef til vill að nudda fyrst með terpentínu til að mýkja blettinn og fjarlægja hann síðan með bensíni eða tríkl- óretylen. Blek Blekbletti skal skola með vatni helst áður en blekið hefur náð að þorna í efninu. Leggið blettinn í sítrónusafa eða sítrónusýruupp- lausn (1 tsk. í l dl af vatni). Skol- ið og leggið hann síðan í salmíak- vatn (1 tsk. salmíakspíritus í 1 dl af vatni). Blóð Blóðblett skal leggja í kalt salt- vatn (‘/2 tsk. salt í 1 dl af vatni). Leggið þvott með blóðblettum í bleyti í ylvolgt sóda- eða sápuvatn. Gott er að nota þvottaefni með efnakljúfum. Kertavax Skafið kertavax af með hnífi, látið mjög heitt vatn renna á blett- inn eða leggið þerripappír yfir og undir hann og stijúkið með volgu straujárni. Leifum af vaxi má ná burt með tríklóretylen eða hreins- uðu bensíni. Lakk Lakk og naglalakk má nudda úr fatnaði með acetón eða þynni. Reynið ætíð acetón og þynni á pjötlu af efninu þar sem þau gjö- reyðileggja öll acetatefni. Mygla Nuddið myglubletti með vínsýru- upplausn (1 msk. í 1 dl af vatni). Skolið og nuddið þá síðan með salmíakvatni (1 tsk. salmíakspírit- us í 1 dl af vatni) eða látið efnið liggja í súrmjólk með einni tsk. af salti í hvern lítra. Tyggigímmi Kælið blettinn með ísmolum í plastpoka. Síðan er unnt að mylja allt tyggigúmmíið úr eða skafa það burt með hnífi. Afganginum má ná burt með tríklóretylen eða bens- íni. Að lokum má nefna að ryð næst úr fötum með ryðblettaeyði og eft- ir það er skolað með vatni. ■ Hagkaup í Hólagarði selur rjómaís úr vél f DAG verður hafin sala á rjómaís úr vél í Hagkaup í Hóla- garði en það hefur verið í undir- búningi um hríð. Ef viðtökur verða góðar og ísinn mælist vel fyrir hjá neytendum stendur til að að bjóða upp á ijómaísinn í öðrum Hagkaups- verslunum áður en langt um líður. Hálfur lítri verður seldur á 139 krónur en einn lítri á 249 krónur. 10-11 verslun opnar í dag í Borgarkringlunni VERSLUNIN 10-11 opnaði í dag í Borgarkringlunni í 500 fermetra húsnæði. Eiríkur Sigurðsson framkvæmdasljóri Vöruveltunnar hf., sem rekur 10-11 verslanirnar, segir verslunina byggjast á því að viðskiptavinurinn geti gert innkaup sín á sem skemmstum tíma. Viðskiptavinurinn þarf t.d. ekki að bíða í biðröð eftir að grænmeti verði vigtað, því það er gert við afgreiðslukassann, auk þess sem allt kjöt er tilbúið í umbúðum. I tilefni opnunarinnar verða ýmis tilboð og má nefna Goða pylsur á 499 krónur kílóið, nautaveislu á 599 krónur kílóið og brauðskinku á 798 krónur kílóið. Þá verður tilboðsverð á 500 g af Merrild kaffi 103 sem kostar 248 krónur, Ritzkex pakki er á 55 krón- ur, Jacobs tekex á 39 krónur og Pampers bleyjur á 898 krónur. Pripps kostar 48 krónur, tvö kíló af Ariel Ultra og Color kosta 598 krónur og Brazzi er seldur á 59 krónur. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.