Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994 57 KURT RUSSELL VAL KlLMER Einn aðsóknarmesti vestri fyrr og síðar í Bandaríkjunum. Vönduð og spennandi stórmynd, hlaðin stórleikurum. „Afþreyingarmynd sem ör- ugglega á eftir að ylja mörg- um vestraunnanda hér sem erlendis. Það er keyrsla í mikilúðlegum tökum undir stjórn snillingsins Williams Frankers, nánast aldrei dauður punktur.“ ★ ★★s .V., Mbl. ★ ★★ó .H.T., Rás 2. Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.20. Bönnuð innan 16 ára. BLEKKIIMG SVIK MORÐ Einnig fáan- leg sem Úrvalsbók. Sýnd kl. 5,7, 9 og11. Bönnuö innan 14 ára. DÓMSDAGUR Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. SÍMI: 19000 M.U. NK'.OU. KÍU. BALOWIN KIDMAN PUÍXMAN LÆVIS LEIKUR Spennumynd frá leikstjóranum sem gerdi „Sea of Love' MALICE Spennutryllir, sem fór beint á toppinn í Bandarikjunum. Handrit: Aaron Sorkin (A Few Good Men) og Scott Frank (Dead Again). Einnig sýnd í Borg- arbíói á Akureyri. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára. PIAIMO Þreföld Óskarsverðlaunamynd. Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05. KRYDDLEGIN HJÖRTU Aðsóknarmesta erlenda myndin í Bandaríkjunum frá upphafí. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Far vel frilla min Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda mynd árs- ins. Sýnd kL 5 og 9. Bönnuð i. 12 ára. Germinal Dýrasta kvikmynd sem framleldd hefur verið í Evrópu. Sýnd kl. 5 og 9. „Kátur galar haninn...“ Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin og Saga bíó: Rokna túli — Rock-a-Doodle Leikstjóri Don Bluth. íslensk talsetning, hljóð og endur- vinnsla Studio 1/Júlíus Agn- arsson. Leikraddir: Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson, Björgvin Halldórsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Felix Bergsson, Jóhann Sigurðarson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Stefán Jónsson, Eiríkur K. Júlíusson. Univer- sal 1992. „Kátur galar haninn alltaf rokk ...“, sönglaði Ómar Ragn- arsson við miklar vinsældir í eina tíð og þetta gætu hæglega verið einkunnarorð Rokna túla, ný- legrar teiknimyndar eftir Don Bluth. Hann stóð einnig fyrir þeirri ágætu Amerícan Tail og hinni mun slakari AII Dogs go to Heaven. Rokna túla má setja í gæðaflokk á milli þeirra. Það er reigður og söngelskur hani sem er þungamiðjan að þessu sinni. Hann rífur alla á fætur í sveitinni árla morguns og pútumar sjá ekki sólina fyrir honum. Eignast þvi sína óvini sem brugga honum vond ráð svo hann sér þann kostinn vænstan að halda til borgarinnar. Þar gerist hann rokkstjarna og tekur sér nátttúrlega upp listamanns- nafnið Kóngurinn. Heima í sveitinni er hans sárt saknað, sólin neitar að skína og í borginni leiðist stórsöngvaran- um ákaflega svo það verða fagn- aðarfundir er björgunarflokkur finnur Kónginn sem glaður flýr frægðina og malbikið fyrir bless- að dreifbýlið. Og sólin rís aftur. Söguþráðurinn er ekki ýkja beysinn enda er myndin fyrst og fremst ætluð ungum börnum. Sögupersónurnar, dýrin, hafa þó öll ákveðin einkenni, þetta er hinn litríkasti hópur. Og óneitanlega hressa uppá mynd- ina hin líflegustu rokklög sem haninn gólar með tilþrifum. Nýtur líka stuðnings Björgvins Halldórssonar sem skilar sínu verki vel, sem hans er von og vísa. Annars eru raddirnar og hljóðsetningin með miklum ágætum. Það kemur svo sem ekki á óvart, íslenskir leikarar, söngvarar og tæknimenn hafa fyrir löngu sannað sig sem mikl- ir kunnáttumenn á þessu sviði. Raddsetningin einkennist af fagmennsku í alla staði. Það er því fátt annað en gott að segja um Rokna túla. Hún er fjarri því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt og auðséð að að baki hennar stendur ekki sama hugvit né þau rúmu auraráð sem einkenna það besta sem gert er í teiknimyndageiranum. Hún er hins vegar gerð með þarfir yngstu áhorfendanna í huga og bætir því úr brýnni þörf. Morgunblaðið/Ingibjörg Jóhannesdóttir Atriði úr söngleiknum Láttu ekki deigan síga, Guðmundur. Leikklúbbur Kópaskers Láttu ekki deigan síga, Guðmundur Kópasken. SÖNGLEIKURINN Láttu ekki deigann síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Aguarsdóttur var frumsýndur af Lei- klúbbnum á Kópaskeri sl. föstudag við mikinn föguuð áhorfenda. Höfn Próflgörs- kosningar H8fn. SJÁLFSTÆÐISMENN á Höfn, Mýrum og Nesjum eru með prófkjör sitt fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar í vor þann 11.-16. apríl. Kjörstaðir verða í Sjálfstæðis- húsinu á Höfn dagana 11.-14. apríl frá kl. 19-21, 15. apríl frá kl. 19-22 og laugardaginn 16. apríl frá kl. 10-19 og einnig sama dag í Mánagarði frá kl. 14-17 og í Holti á Mýrum frá kl. 11-13. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er í Valhöll, Reykjavík, og hjá Sigþór Hermannssyni, Vigni Þorbjöms- syni og Hauk Sveinbjörnssyni frá og með 2. apríl. Eftirtaldir eru á prófkjörslistan- um: Elvar Unnsteinsson, sjómaður, Kristín Gísladóttir, bankamaður, Þrúðmar Þrúðmarsson, vörubíl- stjóri, Halldóra B. Jónsdóttir, út- gerðarmaður og húsmóðir, Svava Bjarnadóttir, húsmóðir, Magnús Jónsson, skrúðgarðameistari, Egill Jón Kristjánsson, starfsmaður Hrellis, Kári Sölmundarson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Horna- fjarðar, Óli Þ. Óskarsson, bóndi og fóðurframleiðandi, Einar Karls- son, sláturhússtjóri, Vignir Júlíus- son, hafnsögumaður, Magnús Kr. Friðfinnsson, rafvirki og Björn E. Traustason, verksmiðjustjóri og rafvirki. Úrslit í prófkjörinu verða í Sjálf- stæðishúsinu laugardaginn 16. apríl eftir talningu sem hefst kl. 20. - S.Sv. Leikstjóri leikverksins er G. Mar- grét Óskarsdóttir og eru leikarar 17 en alls taka þátt í uppfærslunni um 60 manns. Hljómsveitarstjóri er Hólmgeir Sturla Þórsteinsson. Alls verða sýningar á söngleikn- um 7 talsins. Næstu og síðustu sýningar verða föstudaginn 15. apríl, laugardaginn 16. og sunnu- daginn 17. apríl. - I.J. Ráðstefna um stöðu og horfur í heimahjúkrun LANDSSAMTÖK heilsugæslustöðva standa fyrir ráðstefnu um stöðu og horfur í heimahjúkrun 22. apríl nk. í Borgartúni 6, Reykjavík. Ráðstefnan stendur frá kl. 8 til 17 og er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald verður 4.000 kr. og er matur og kaffi innifalið. ■ FRAMBOÐSLISTI framsókn- armanna og stuðningsmanna þeirra á Hornafirði hefur verið ákveðinn. Að undangenginni skoð- anakönnun sem fram fór 25. tii 27. mars sl. lagði uppstillingarnefnd fram tillögur sínar á almennum fundi Framsóknarfélaganna og voru þær samþykktar samhljóða. I hinu nýja sveitarféiagi, sem myndað verður |úr Mýrahreppri, Nesjahreppi og Höfn mun verða 9 manna sveitar- stjórn í stað 7 manna á Höfn nú. Níu efstu sæti listans skipa eftirtald- ir: 1. Hermann Hansson, skrif- stofumaður, 2. Sigurlaug Gissurar- dóttir, bóndi, 3. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, skólastjóri, 4. Einar Sigurbergsson, bóndi, 5. Aðal- steinn Aðalsteinsson, skrifstofu- maður, 6. Ilalldóra Hreinsdóttir, hjúki'iúáMcí'slÍiól'i.íí. lngólfur Ás- grímsson, skipstjóri, 8. Gísli Már Vilhjálmsson, veitingamaður og 9. Björn Kristjánsson, stöðvarstjóri Pósts og síma. Fulltrúar fram- sóknarmanna í núverandi sveitar- stjórn á Höfn eru tveir. Þ.e. þeir Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson. Óhlut- bundin kosning var í Nesjahreppi og Mýrahreppi við síðustu sveitar- stjórnarkosningar. Fjallað verður um framkvæmd heimahjúkrunar, helstu breytingar á undanförnum misserum og horf- ur á næstunni á höfuðborgarsvæð- inu, í öðru þéttbýli og í strjábýli. Gerð verður grein fyrir fram- kvæmd heimilishjálpar á vegum sveitarfélaganna og tengslum við heimahjúkrun, samvinnu heilsu- gæslunnar og sjúkrahúsanna og hjúkrunar með samanburði við legukostnað. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið og landlæknisembættið fjallar um stefnumótun í mála- flokknum til framtíðar. Fyrir- spumir verða milli einstakra þátta og umræður í lokin. Ráðstefnan er ætluð starfsfólki í heilbrigðisþjónustu og öðru kostnaýi við framkvæmd heima-t^iáhpgaf^lki um .heijþrigðismál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.