Morgunblaðið - 14.04.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
11
hafa svo auðvitað virkað sem vít-
amínsprautur til frekari fram-
kvæmda. Allt safnið sem og hin
viðamikla sýning leiðir enn betur
í ljós hve norræn menning á sér
langa og merka sögu, og hvílíkir
snillingar og yfirburðamenn t.d.
víkingarnir voru á allan hátt og
tæknileg afrek þeirra um margt
einstök. Án hugvits þeirra og
handverkslegs metnaðar hefðu
þeir aldrei náð jafn langt og þeir
gerðu, voru einfaldlega yfirburða-
menn á tímunum. Þetta var öðru
fremur undirstaða veldis þeirra og
tækni- og verkvæðingu fylgir að
sjálfsögðu aukin herkænska, og
tímarnir buðu ekki upp á neitt
annað en að menn héldu hér vöku
sinni. Þeir léku margar stærri
þjóðir grátt og frá þeim mun jafn-
vel hin afbakaða mynd af rudda-
fengnum og grimmum víkingum
komin, og vel að merkja eru her-
leiðangrar síður farnir með góð-
semina og mannúðina að leiðar-
ljósi. Eitt sem á að hafa einkennt
víkingana og er jafnvel tákn þeirra
í dag eru hornin upp af hjálmun-
um, en slík höfuðprýði fyrirfannst
ekki á tímabilinu!
Það sem vekur óskipta athygli
á sjálfu safninu og mest mun hafa
verið ritað um varðandi fornminjar
í Evrópu, burtséð frá Stonehenge
á Englandi, er hinn frægi kelt-
neski Gundestrup silfurketill.
Hann 'fannst í mýri er nefnist
Rævemosen við Gundestrup í Him-
merland 28. maí 1891. I tilefni
þess að hundrað ár voru frá fund-
inum voru gefnar út bækur um
niðurstöður eldri og nýrri rann-
sókna og ýmsar tilgátur honum
viðvíkjandi, og komu þær af stað
miklum umræðum um hinn mikla
og dularfulla ketil og sjálft ríki
Kelta í Evrópu. Það er heillandi
rannsóknarefni og nær óleysanleg
gáta hvernig þessi dýrgripur rat-
aði einmitt á þennan stað og þann-
ig er líkast því að lesa spennandi
neðanmálssögu að fylgja atburða-
rásinni. Maðurinn, sem stjórnaði
uppgreftrinum fyrir hönd Þjóð-
minjasafnsins var enginn annar
en sá Daníel Bruun, sem áður
hafði komið við sögu við merkar
rannsóknir á hér á landi. Ketillinn
er úr silfri að hluta 970/1000,
vegur samtals 8.885 grömm, er
43 sm hár, 72 að breidd og um-
mál hans er 216 sm. Silfrið inni-
heldur örlítið af gulli eða 3/1000.
Plötur ketilsins hafa verið soðnar
saman og þar er efnið 97,6 % pját-
ur og 2,4 % silfur.
Ketillinn tengist trúarbrögðum
og er fórnargjöf til guðanna og
fyrir meira en tvö þúsund árum
mun hann hafa verið settur á
þennan stað og seinna sokkið í
framvaxandi mýrina, hvar hann
lá óhreyfður þar til hann fannst
við torf og mótekju á staðnum.
Sumir hafa bent á að Kimbrar
(germanskur þjóðflokkur), sem á
síðustu öld fyrir Krists burð ferð-
uðust niður Evrópu, kunni að hafa
tekið hann með sér sem herfang
frá Balkánskaga og seinna sett
hann á þennan stað sem fórnarg-
jöf. Og hvað skyldi svo ritlistin
(myndtáknin) á katlinum tákna,
og hvar er hann búinn til og hve-
nær? Myndtáknin verða kannski
alltaf óráðin gáta, í öllu falli mun
aldrei verða hægt að skýra þau
að fullu, en hins vegar bendir
margt til að gátan um uppruna
hans sé að leysast. Tvær tilgátur
hafa verið uppi og hin fyrri, að
hann komi frá Norðurgallíu, eða
þáverandi Þrakíu, þ.e. frá norð-
vestur Búlgaríu/suðvestur Rúm-
eníu. Menn hallast nú að seinni
tilgátunni vegna þess að röð
uppgreftra á áttunda áratugnum
í Búlgaríu hafa rennt stoðum und-
ir þá tilgátu. En Gundestrup ketill-
inn er þó ekki eini fórnargripurinn
sem fundist hefur í Danmörku frá
tíjuum Kelta, þó hann teljist sá
merkasti. Auk þess hefur fundist
bátur við Hjortespring á Als, frá
þriðju eða fjórðu öld f.Kr. sem
innhélt viðamikið stríðsgóss af
keltneskum uppruna, svo sem
skildi, spjót, sverð og hringbrynj-
ur. Aldirnar fyrir timatal okkar
settu Keltar svip sinn á á Evrópu,
en á sama tíma var rómverska
þjóðfélagið í örum vexti og eftir
því sem það festi rætur ásamt stig-
magnandi útþenslu urðu árekstar
við Kelta/Galla óhjákvæmilegir.
Þessir árekstrar náðu hámarki
á síðustu öld fyrir tímatal okkar,
er Sesar hernam Gallíu eftir marg-
ar orustur við gallíska þjóðflokka.
Úrslit réðust árið 53 f.Kr., er
Gallahöfðinginn Vercingetorix,
hafði náð að fylkja saman hinum
sundurleitu gallísku þjóðflokkum
á móti Rómverjum. í upphafi virt-
ist hann hafa undirtökin en stríðs-
gæfan snerist andstæðingunum í
vil og sjálfur var hann tekinn til
fanga og fluttur til Rómar, hvar
hann var í neðanjarðarfangelsi í 6
ár. Svo rann upp sú stund er Ses-
ar skyldi hylltur með sigurgöngu
um götur Rómarborgar eftir að
hafa skákað hinum volduga
Pompejusi. Þá var Vercingetorix
sóttur í fangelsið og sýndur sem
herfang, því að sigurinn yfir Göll-
um var mikilvæg viðbót hátíða-
haldanna. Er göngunni lauk var
hinn mikli höfðingi líflátinn.
Ríki Kelta eða Galla eins og
þeir voru líka nefndir var mikið
og víðfeðmt og kjarni þess mark-
aði upprunalega landsvæði hvar
nú er Suður-Þýskaland, Austur-
Frakkland og vesturhorn Sviss, en
seinna þandist það út um alla
Evrópu og náði loks til litlu Asíu,
þar sem þeir stofnuðu þá Gallíu
sem getur um í Nýja Testament-
inu. Margt er dularfullt við þjóð-
flokk Kelta, og þeir létu ekkert
eftir sig í rituðu máli, og menn
þekkja þannig einungis til þeirra
í ljósi fornleifafunda og úr sígild-
um skráðum heimildum og ritum.
Fyrst var þeirra minnst á fimmtu
öld f.Kr. m.a. af gríska sagnfræð-
inginum Herodot, og svo Ephorus
nokkrum, er herma frá Ijórum
miklum skrælingjaþjóðflokkum í
hinni þekktu heimsmynd, Lýbíu-
mönnum í Afríku, Persum í austri,
og í Evrópu væru það Skýþar og
Keltar. Hinn klassíski skrásetjari
Diodorus Siculus, sem lifði á síð-
ustu öld f.Kr. lýsir Keltum þannig:
„í útliti eru þeir ógnvænlegir, róm-
ur þeirra er djúpur og kaldranaleg-
ur. í samræðum eru þeir fáorðir
og tala í gátum, þeir tæpa aðeins
á hlutunum og svo verður maður
að geta sér til um afganginn. Þeir
ýkja gjarnan til þess að guma af
sjálfum sér og lítillækka aðra.
Þeir eru sjálfumglaðir gortarar,
er gjarnt að koma með hótanir og
snjallir að koma sjálfum sér í sviðs-
ljósið, en þeir eru líka fljótir að
átta sig og hafa gott upplag til
lærdóms." Og fleira um útlit þeirra
og framkomu finnst í ritum gríska
heimspekingsins Strabo, sem uppi
var á árunum kringum fæðingu
Krists: „Hérumbil allir Gallar eru
mjög hávaxnir og rauðbirknir.
Augnaráð þeirra er kuldalegt, og
þeir eru þrætugjarnir, óskamm-
feilnir og stoltir. Þá eru þeir svo
sterkir að þeir geta varist heilum
hóp árásarmanna, og einkum ef
þeir kalla á konur sínar því þær
eru mjög sterkar og bláeygðar.
Ekki síst þegar hnakki hennar
tútnar út í þann mund er hún
sveiflar sínum voldugu hvítu hand-
leggjum, lemur og sparkar.“
Menning Kelta telst hafa verið
víðtæk, umfangsmikil og frumleg,
en þeir höfðu t.d. ekki til að bera
hina köldu rökhyggju og djúpu
stjórnvizku Rómveija. Þróuðu
þannig aldrei eiginlegt ríki í róm-
verzkum skilningi með markviss-
um lögum og skipulagi. Voru því
dæmdir til að hverfa inn í myrkur
sögunnar. Rómveijar réðu niður-
lögum þeirra og ríki Rómverja
markaði mestan hluta Evrópu, en
náði þó aldrei til írlands, en þar
þróuðust sérstök keltnezk sér-
kenni. Árið 1991 var haldin mikil
sýning á menningararfleifð hinna
dularfullu Kelta í Palazzo Grassi
í Feneyjum er bar titilinn. „Keltar
- Hin upprunalega Evrópa“ og
vakti hún heimsathygli. Sýndir
voru munir víðs vegar að úr Evr-
ópu og í síðasta sýningarrýminu
stóð einungis einn hlutur, hinn
fyrirferðarmikli Gundestrup ketill!
Lesandi sér trúlega sitthvað
sameiginlegt við lýsinguna á Kelt-
um og íslendingum til forna, jafn-
vel nú á dögum. Sennilega undr-
ast hann sem fleiri, að þetta djásn
hins mikla keltnezka menningar-
ríkis skyldi finnast úti í mýri í
Danmörku, og vera til sýnis á
Þjóðminjasafninu í Kóngsins
Kaupmannahöfn.
Láti hann þá síður tækifæri til
að sækja staðinn heim sér úr
greipum ganga, því þar er unaður
að svala forvitninni.
B O R G A R
SNYRTIST0FAN
NN
Noröurturni, 4. hæö,
sími 685535
25% afsláttur
af vöru og þjónustu sem veitt er
eða pöntuð á Borgardögum.
Andlitsböð, húöhreinsun, litgreining, hand- og fótsnyrting.
h
fir
m0/-
4ra rétta tilboð á Borgardögum.
Kjúklinga Chow Mein, Saigon rækjur,
nautakjöt Mongolian og súrsæt svínarif
Kanton með Coke og kaffi á eftir.
Verð aðeins kr. 550
20% afsláttur
af Fischer Price leikföngum.
30% afsláttur
af öllum módelum
og aukahlutum fyrir módel.
1ÖLVULAND
Frábær tilboð á Borgardögum.
Alladin 20% afsláttur.
Sonic Spinball 20% afsláttur.
Super kick off 20% afsláttur.
Eternal Champions 20% afsláttur.
Stýripinni Speed king 25% afsláttur.
CD diskar á tilboösveröi meö
20% afslætti og PC leikir á tilboösvegg.
BORGARKRINGLUNNI
S>'v
Glæsileg tilboð -frábær verð
Borgarkringlan er fallegt verslunarhús í þægilegu umhverfi,
býöur fjölbreytt vöruval og ánægjulegt starfsfólk.
Eymundsson */STOFNSBTT 1872 20% af öllum erlendum bókum. Rauði vagninn 2. hæð 50% afsláttur af öllum perlufestum. Perlueyrnalokkar frá kr. 290 Perluarmbönd frá kr. 390
Græni söluvagninn 1. hæð 20% afsláttur af High-Desert blómafrjókornum, Jasön-Aloe Vera: Henna sjampó og næring. Andlits- krem, púður, olía, svitalyktaeyðir. 20% afsláttur
20% afsláttur Crépes Florida aðeins kr. 335 Allar tertusneiðar aðeins kr. 250
Börnin í umferðinni
| UMFERÐAR j samvinnu við Umferðarráð, Reiðhjólaskóla íslands og fleiri aðila
verður sérstakt kynningarátak um öryggisbúnað fyrir börnin.
gev. ísioi, , IfrwM) msnla k mlo AUIU eíiaimM vo iaggpg k
>RAÐ
SOLBAÐSSTOFAN
SÓLIN
BORGARKRINGLUNNI
500 kr. afsláttur
af 3ja mánaöa korti.
^IGGI
BORGARKRIHGLAN
©6 8 7 2 6 6
20%
afsláttur
af nýju CAT línunni frá Redken.
.þegar þér hentar
Ný glæsileg verslun.
Otrúleg tilboð
í tilefni opnunar.
Borgardagar
í Betra líf
14., 15.
og 16. apríl
becRÍ
Borgarkringlan,
KRFNGLUNNi 4 - sími 811380
..og viö bjóöum 20% afslátt
af sérvöldum vörum m.a. af:
EARTH SCIENCE snyrtivörum fyrir dömur og herra.
EARTH SCIENCE snyrtivörurnar eru unnar úr
lífrænt ræktuðum og náttúrulegum jurtum, og
innihallda engin efni sem eru skaðleg húöinni.
nýtt grelöslukortatímabil