Morgunblaðið - 14.04.1994, Síða 40

Morgunblaðið - 14.04.1994, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994 BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI Tímabær þjónusta við sjúk böm í Reykjavík eftir Sigríði Snæbjörnsdóttur Málefni sem lúta að velferð flöl- skyldunnar hafa sem betur fer feng- ið meiri umfjöllun nú, en oft áður í íslenskum stjómmálum. I nýrri - stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjómarkosningamar er mikil áhersla lögð á að bæta hag bama. Ekki síst er vilji til að bæta aðstöðu sjúkra barna. Þó mjög vel hafi verið staðið að ýmsu er varðar þjónustu við sjúk böm í Reykjavík er ljóst að í nokkrum þáttum höfum við dregist aftur úr. Þjónusta á sjúkrahúsum við fullorðna í Reykjavík er með því besta sem gerist í heiminum bæði hvað varðar kostnað og gæði. Ef lit- ið er á þjónustu við börn á sjúkrahús- um er ljóst að gera má betur. Leggja þarf áherslu á bætta þjón- ustu við sjúk böm og_ fjölskyldur þeirra á tvennan hátt. Í fyrsta lagi SANYL- Þakrennur fyrir íslenska veðráttu §ÁLFABOmv KNARRARVOGI 4 • * 686755 „Leggja þarf áherslu á bætta þjónustu við sjúk börn og fjölskyldur þeirra á tvennan hátt. I fyrsta lagi með því að styðja við opnun barna- deildar á Borgarspítal- anum og í öðru lagi með stuðningi við nýja byggingu Barnaspítala hringsins." með því að styðja við opnun bama- deildar á Borgarspítaianum og í öðru lagi með stuðningi við nýja byggingu Bamaspítala hringsins. Á Borgarspítalanum liggja á hveijum tíma 10-12 böm á hinum ýmsu deildum spítalans. Ekki verður unnt að flytja þau börn annað vegna þeirrar sérhæfðu þjónustu sem ein- göngu er og verður þar. Þessi böm liggja þá gjarnan á stofum með full- orðnu fólki sem hefur gjörólíkar þarf- ir. Skipulag og vinnufyrirkomulag miðast við þarfir fullorðinna þar sem oft og tíðum fer fram afar sérhæfð meðferð og umönnun. Þó reynt hafi verið að sinna börnum eftir bestu getu við þessar erfiðu aðstæður em þær alls ekki nógu góðar. Ekki er gert ráð fyrir foreldrum á deildum nema að litlu leyti og að sjálfsögðu fylgir þeim meiri ókyrrð, grátur og gnístan tanna, sem veldur truflun á stofum fullorðinna. Ekki síður er þetta óþægilegt fyrir foreldra og aðra nána ættingja sjúkra barna. Starfsfólk Borgarspítalans, sem býr yfir mikilli þekkingu og þjálfun í þjónustu við fullorðna getur ekki yfirfært þá þekkingu beint yfír á böm. Börn eru ekki litlir fullorðnir einstaklingar. Það ríkir einhugur meðal starfsfólks Borgarspítalans um að fá þangað bamadeild og það skynjar mjög sterkt þörfina. Böm þurfa og eiga rétt á sérhæfðri með- ferð og umönnun alveg á sama hátt og fullorðnir, sem tekur sérstakt mið af þörfum þeirra bæði hvað varðar sjúkdóma og almennan þroska bg uppeldi. Nauðsynlegt er því að sam- eina krafta og þekkingu starfsfólks í þágu sjúkra bama með opnun bamadeildar á Borgarspítalanum. Margt bendir til að bamadeild Landakotsspítala verði flutt á Borg- arspítalann og hefur heilbrigðismála- ráðherra m.a. gefið vísbendingar um að svo muni verða. Starfsfólk beggja spítala hefur lýst eindregnum vilja um að sú ákvörðun megi ná fram Fylgstu með a fimmtudögum! Vibskipti/atvinnulíf kemui út á fimmtudögum. Þar birtast nýjustu fréttir úi viðskiptalífinu hér á landi og eilendis. Fylgst ei meðal annais með verðbréfamöikuðum, bilaviðskiptum, veislun, afkomu fyrirtækja og mannaráðningum. Viðtöl eru tekin við athafnasama einstaklinga og framkvæmdafólk. Einnig skrifa sérfióbii abilar um málefni sem tengjast tölvum og vibskiptum. - kjarnl málslns! Sigríður Snæbjörnsdóttir að ganga og fært fyrir þeim flutn- ingi margvísleg fagleg rök málinu til stuðnings. Verði af flutningi barnadeildar Landakotsspítala á Borgarspítalanum mun það leiða til enn meiri ávinnings fyrir sjúk börn og aðstandendur þeirra. Ljóst er að þó barnadeild verði opnuð á Borgarspítalanum verður Barnaspítali hringsins áfram miðstöð sérhæfðrar þjónustu vi sjúk börn á íslandi. Mikil nauðsyn er á því að aðstaða þar verði endurnýjuð, aukin og bætt með tilliti til aukinna krafa og breyttra tíma. Sjálfstæðismenn vilja styðja myndarlega við nýja byggingu Bam- aspítala hringsins og hafa lofað 100 milljóna króna fjárframlagi til upp- byggingar bamaspítalans á næsta kjörtímabili. Þannig vilja sjálfstæðis- menn leggja sitt af mörkum til að betur verði búið að sjúkum börnum í Reykjavík. Höfundur er hjúkrunarforstjóri Borgarspítalans og 10. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í borgárstjórnarkosningunum í vor. Ég vil breyta eftir Einar Gunnarsson Markús Örn Antonsson skrifar nú mikið í Moggann og það á borgar- stjóralaunum. Þær eru hálf nötur- legar þessar greinar hans, eins og skrifaðar af dmkknandi manni. Síð- asta greinin sem ég las birtist 9. apríl sl. og byijar hún á að lýsa því hvað öfund og metingur sé hættu- legur svo lítilli þjóð sem okkar og hvetur Markús til samstöðu meðal þegnanna. Greinin fjallar svo ekki um þetta mál heldur byijar Markús á að rífa niður, sundra og sýna því fólki skæting og kasta í það óþverra, sem býður sig fram til starfa fyrir borgarbúa í komandi kosningum. Þeir sem standa Markúsi næst og þykir eitthvað vænt um hann, ættu að tala um fyrir manninum og fá hann til að draga sig í hlé. Örvænting mannsins, sem hleyp- ur nú frá ábyrgðinni, segir af sér sem borgarstjóri, svíkur flokksmenn sýna með því að hoppa af sökkv- andi skipi sínu, virðist vera alger. Breytingar til batnaðar Ég og aðrir borgarbúar krefjumst þess nú að tekin verði upp önnur vinnubrögð en Markús Örn Antons- son og FLOKKURINN hans hafa viðhaft, að þau séu liðin tíð. Hverfa- stjórnir og umboðsmaður fólksins em liður í því. Það er ekkert skrítið að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu andsnúnir opnara stjórnkerfi. Spill- ingin sem þeir standa fyrir og em ábyrgir fyrir verður opinbemð og það sem meira er, ef þessir fulltrúar kæmust til valda á ný, verður það nær ókleift fyrir þá að bytja aftur Einar Gunnarsson. „Eg og aðrir borgarbú- ar krefjumst þess nú að tekin verði upp önnur vinnubrögð en Markús Orn Antonsson og FLOKKURINN hans hafa viðhaft, að þau séu liðin tíð.“ á prettunum eftir að stjórnkerfið hefur verið opnað. Guðrúnar þáttur Zoega Ung, velmenntuð kona, Guðrún Zoéga, frambjóðandi Flokksins, heldur því fram í sama blaði og Markús skrifar í, að allar ákvarðan- ir varðandi stjórn borgarinnar séu teknar á lýðræðislegan hátt. En sú firra. Ef þær ákvarðanir sem Flokk- urinn tók varðandi SVR eru að hennar áliti lýðræðislegar þá er hún hættuleg lýðræðinu. Sveinn Andri Sveinsson skildi ekki og skilur ekki hugtakið lýðræði og þvi höfnuðu flokksmenn honum í prófkjöri Flokksins. Fólkið vildi breytingar. Svo virðist vera að Guðrún hafi villt á sér heimildir og að hún ætli að halda áfram á sömu braut og aðrir skúmaskotastjórnendur Flokksins. Ég mun kjósa R listann vegna þess að ég veit að þar er fólk með lýðræðislega hugsun og það vill að ég fái tækifæri til að hafa áhrif oftar en á fjögurra ára fresti, hvern- ig borginni er stjómað og hvernig fjármunum borgarinnar er og verð- ur varið. I Höfundur er formaður Félags blikksmiða ogsatístjórn SVR áður en fyrirtækinu var breytt í hlutafclag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.