Morgunblaðið - 14.04.1994, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
Gospelsveifla o g ballöður
Iris Guðmunds-
dóttir heldur sína
fyrstu tónleika í
Fíladelfíukirkj-
unni
ÞAÐ þarf áræði til að hrinda úr
vör einsöngvaraferli og það ger-
ir íris Guðmundsdóttir í Fíladelf-
íukirkjunni í kvöld. íris hyggst
þá syngja gospellög, helst með
píanóundirleik, en einnig koma
bassi og gítar við sögu í einhverj-
um iaganna.
Íris Guðmundsdóttir segist ætla
að syngja gospeltónlist eingöngu,
„ég er bæði með gamla sálma sem
ég endurútset aðeins, flesta í gosp-
elsveiflu, og svo er ég með yngri
lög, sem þá eru ballöður". Þetta eru
fyrstu sólótónleikar írisar, þó hún
hafi sungið gospeltónlist frá unga
aldri, en hún segist ekki kvíðin.
íris er komin af tónlistarfólki,
segir hún og það hafi verið mikið
um tónlist á heimilinu og þá nánast
eingöngu gospeltónlist. Hún segist
þó hafa nasasjón af ýmiskonar ann-
arri tónlist; hún byijaði söngnám í
FÍH og hefur meðal annars sungið
íris Guðmundsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn
jass, „en gospelstón-
listina þekki ég best
og hún stendur
hjarta mínu næst.
Það blasti því við
þegar ég var að fara
að halda fyrstu sóló-
tónleikana að halda
mig við eitthvað sem
ég þekkti," segir
Íris, „ég hugsaði
mikið um það hvað
ég ætti að syngja,
en það má segja að
það hafi ekkert ann-
að komið til greina
en að syngja gospel-
tónlist, lög sem ég
hef sungið í gegnum
árin og sem hafa
verið í kringum mig
alla tíð.“ Iris segir
að öll lögin séu henni
sérstaklega kær og þvertekur fyrir
að tína til einhver sem hún haldi
uppá öðrum fremur, en textar lag-
anna eru ýmist á ensku en ís-
lensku, þó lögin séu öll erlend.
íris segir að þetta verði fyrstu
tónleikarnir en ekki þeir síðustu og
hún hafi hug á að halda fleiri tón-
leika á næstunni og þá í kirkjum
einnig.
Píanóleikari á tónleikunum, sem
verða í Fíladelfíukirkjunni eins og
áður er rakið, kl. 20.30, verður
Aðalheiður Þorsteinsdóttir og
megnið af tímanum verða þær bara
tvær íris og Aðalheiður, en í nokkr-
um lögum koma við sögu bassaleik-
ari og gítarleikari; Þórður Högna-
son og Órn Árnason.
Viðtal Árni Matthíasson
*
Sinfóníuhljómsveit Islands
Guðríður Sigurðardóttir leik-
ur verk eftir Saint-Saens
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur
tónleika í Gulri áskriftarröð í
kvöld, klukkan 20. Hljómsveitar-
stjóri á tónleikunum er Petri Sak-
ari, fyrrverandi aðalstjórnandi
hljómsveitarinnar og einleikari
verður Guðríður Sigurðardóttir,
píanóleikari.
Á efnisskrá tónleikanna eru: Sinfónía
nr. 93 eftir Josef Haydn, Píanókon-
sert nr. 5 op. 103 eftir C. Saint Sa-
éns og Tónlist fyrir strengi, slagverk
og celesta eftir Béla Bartok.
Sinfónía Haydns er sú fyrsta af
tólf Lundúnasinfóníum hans, en Ha-
ydn átti ævinlega mikilli velgengni
að fagna í Englandi.
Einleiksverkið á tónleikunum,
Píanókonsert nr. 5, eftir Saint-
Saéns. Hann var undrabam á tónlist-
arsviðinu og hélt sína fyrstu opinberu
píanótónleika í París aðeins 11 ára
gamall. Brátt hafði hann skapað sér
nafn sem afburða orgel- og píanó-
leikari. Píanókonsert nr. 5 „Hinn
egypski" er saminn 1896. Saint-
Saéns var þá á ferðalagi í Egypta-
landi og notaði hann egypsk og arab-
ísk stef í konsertinn, meðal annars
má heyra í honum tilvitnun í þekkt-
ustu aríu óperunnar Samson og Dal-
ila. Er þetta frumflutningur kon-
sertsins hér á landi.
Síðasta verkið á efnisskrá tónleik-
Guðríður Steinunn
anna, eftir Bartok, er skrifað fyrir
Kammersveitina í Basel í Sviss en
stjómandi hennar Paul Sacher var
mikill baráttumáður fyrir samtíma-
tónlist og pantaði hann gjarnan ný
verk hjá tónskáldum til flutnings
fyrir hljómsveit sína. Bartok samdi
fleiri verk fyrir þessa hljómsveit, þar
á meðal hið gullfallega Divertimento
fyrir strengi.
Einleikarinn, Guðríður Steinunn
Sigurðardóttir, kemur nú fram í
fyrsta sinn sem einleikari með Sin-
Hafnarfjörður
Vönduð vel staðs. 117 fm sérh. í þríbhúsi. Mikið end-
urn. m.a. nýtt eldhús. Bíiskúr. Útsýni. Áhv. 6,0 m. kr.
húsbr. Verð 9,8 millj.
Fasteignaþjónustan
Skúlagötu 30, sími 26600.
Góáur skemmtistaáur til sölu!
Af óviárááanlegum ástæáum er einn vinsælasti og
Lest rekni skemmtistaáurinn í Reykjavík til sölu.
Góáir tekjumögfuleikar fyrir samkenta ogf
kugmynJaríka aáila.
Upplýsingar ekki veiltar í gegnum síma,
FYRIRTÆKI OG FJÁRMÁL
F YBIRT ÆKJASALA, LEIGUIVIIOLUIM , IININHEIMTUR
Borgarkringlan 3 - k rc ð • Símar 88775 0 og 887751
SímUði 984-60088 • Fax 88775 1
Petri Sakari
fóníuhljómsveit íslands. Hún lauk
einleikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík 1978 og meistara-
prófi frá University of Michigan
1980. Það ár hlaut hún fyrstu verð-
laun í píanókeppni á vegum Ann
Arbor Society for Musical Arts. Guð-
ríður hefur komið fram á tónleikum
í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Sviss
og á flestum Norðurlandanna. Hún
starfar nú sem kennari við Tónskóla
Sigursveins og Tónlistarskólann í
Reykjavík.
DAGBÓK
NESKIRKJA: Hádegissam-
vera í dag kl. 12.10 í safnað-
arheimilinu. Umræður um
safnaðarstarfið, málsverður
og íhugun Orðsins.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Mömmumorgunn föstudag
kl. 10-12. Friðrik R. Guð-
mundsson heymar- og tal-
meinafræðingur kemur í
heimsókn.
FELLA- og Ilólakirkja:
Æskulýðsfundur 10-12 ára
kl. 17 í dag.
KÁRSNESSÓKN: Starf
með eldri borgurum í safn-
aðarheimilinu Borgum í dag
kl. 14-16.30.
SELJAKIRKJA: Frímerkja-
klúbbur í dag kl. 17.
Gítarsnillingur
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Þegar hljóðfæraleikari nær því
marki, að leikur hans er óað-
finnanlegur, bæði hvað snertir
yfirburðatækni og músíkalska
mótun, öðlast hann rétt til að
vera útnefndur snillingur. David
Russell er gítarsnillingur og hann
leiddi hlustendur um lendur feg-
urðarinnar, á tónleikum í Ás-
kirkju, sl. þriðjudag, en hingað til
lands er hann kominn til að halda
námskeið á vegum Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar.
Það er mikill vorhugur í íslensk-
um gítarleikurum og víst má telja,
að heimsókn Russells mun verða
þeim dijúg, til að þeir megi
blómfegra komandi sumargróður
í görðum sínum.
Fyrsta verkið á efnisskránni
var Polonesa í e-moll eftir Dion-
isio Aguado y Garcia, spánskan
gítarleikara og tónskáld, sem var
uppi frá 1784 til 1849. Auk tón-
smíða, ritaði hann kennslubók og
æfingar í gítarleik. Polonesan er
háklassísk að gerð, skemmtilegt
verk, sem Russell lék af glæsi-
brag.
Garuda eftir Oliver Hunt var
eina nútímaverkið á tónleikunum,
heldur svona einlitt safn af gítar-
effektum, sem auðvitað voru frá-
bærlega vel útfærðir af flytjand-
anum.
Besta verk tónleikanna var
sembalsvíta nr. 7, í g-moll eftir
Hándel. Svítan er talin samin
1720 og sérstæð fyrir það, að
gigue og passacaille kaflinn, eru
sjálfstæðar tónsmíðar og báðar
samdar nokkru fyrr en sjálf svít-
an. Síðasti kaflinn er í chaconne-
formi en hjá Englendingum rugl-
uðust menn gjarnan á passkaglíu
og ground, sem er eins konar
chaconne. I músíkorðabók Groves
er verkið kallað Passacaille (Choc-
onne). Það var hreint ævintýri að
heyra suma kafla svítunnar í út-
færslu Russells. Sjálf passakagl-
ían leið nokkuð fyrir það, að vera
í upprunagerðinni, einkum undir
lokin, of mikil hljómborðstónlist,
til að hún fengi virkilega að notið
sín í umrituninni fyrir gítarinn.
Seinni hluti tónleikanna var
helgaður gítarsnillingnum Aug-
ustin Barrios-Mangore en mörg
verka hans hafa ekki enn verið
gefin út og hefur Russell grafið
upp nokkur og flutti þau á tónleik-
unum í Áskirkju. Alls lék Russell
um tíu verk eftir Barrios og eru
þau öll rómantísk og raddferli og
hljómskipan öll mjög skrautfeng-
in. Þessi glæsilegu verk lék Russ-
ell af ótrúlegri leikni og sterkri
tilfinningu fyrir blæ og tónrænu
innihaldi þeirra. Það er í engu
oflátið í mal þessa snillings, þó
ofan á allt hólið sé bætt við orðinu
snillingur.
Art-Hún 5 ára
Afmælissýning- í
Listhúsinu í Laug-
ardal 16. apríl til
1. maí 1994
LAUGARDAGINN 16. apríl nk.
kl. 15 opnar Art-Hún-hópurinn
sýningu á í Listhúsinu í Laugar-
dal.
Sýningin er haldin í tilefni
af 5 ára afmælis Art-Hún en
það var stofnað 15. apríl 1989.
í fréttatilkynningu segir: „Hug-
myndafræðin sem liggur til grund-
vallar Art-Hún er einföld: Að hver
og ein geti unnið að list sinni í
næði en þó notið félagsskapar og
hvatningar hinna. „Þetta form —
vinnustofa fimm listakvenna
ásamt galleríi — var óþekkt hér á
landi þegar þær Elínborg Guð-
mundóttir, Sigrún Gunnarsdóttir
og Margrét Gunnarsdóttir leirlist,
Helga Armanns grafík og Erla
B. Axelsdóttir málun komu Art-
Hún á laggirnar“. í Art-Hún er
gestum sem koma í galleríið boðið
inn á vinnustofurnar og hefur það
mælst mjög vel fyrir, en galleríið
er opið alla virka daga frá kl. 12
til 18.
í þessi fimm ár sem Art-Hún-
hópurinn hefur starfað hafa lista-
konumar sýnt fimm sinnum sam-
eiginlega en síðast var það í Pom-
peii museum, Saratoga Springs,
NY í júní sl. skúlptúra; kol og
krítarteiknignar; málverk og pa-
stelmyndir. Öll þessi verk eru unn-
in á undanfömum teim árum.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-18 en henni lýkur sunnu-
daginn 1. maí.
1
ú
Q
i
i
<
i
(
(
(
(
m
h
i
i
i
i
\