Morgunblaðið - 14.04.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994
23
A
Arni Sig-fússon borgarstjóri um rekstrarathugnn fyrir borgarstjóra
Afköstin verða ekki mæld
eftir þykkt skýrslunnar
GREINARGERÐ um rekstrarathugun sem Inga Jóna Þórðardóttir við-
skiptafræðingur vann á árinu 1992 fyrir Markús Orn Antonsson þáver-
andi borgarstjóra hefur verið lög fram í borgarráði. Fram kemur að
heildarkostnaður er rúmar 2,7 inilljónir og þar af er greiðsla til Ingu
Jónu rúmar 1,9 milljónir. I greinargerðinni er bent á tuttugu viðfangs-
efni sem unnin hafi verið. I bókun Sigrúnar Magnúsdóttur, Framsóknar-
flokki, segir, að borgarsjóður hafi greitt fyrir minnispunkta í hug-
myndabanka sjálfstæðismanna án samþykkis borgarráðs. I bókun Arna
Sigfússonar borgarstjóra segir að það séu algeng vinnubrögð sljórn-
enda að leita ráðgjafar og úrelt vinnubrögð að mæla afköst þeirra
eftir þykkt skýrslunnar sem þeir skili.
Minnisblað Markúsar Arnar Ant-
onssonar er ritað í tilefni umræðna
í borgarstjórn og borgarráði. Þar
kemur fram að Inga Jóna hafi verið
fengin til að vinna athugun á ýmsum
þáttum í rekstri borgarinnar,
Markmiði hafi verið að kanna hvern-
ig borgin þyrfti að bregðast við nýj-
um utanaðkomandi aðstæðum og
hvar unnt væri að ná fram aukinni
hagkvæmni í rekstri, almennum
sparnaði, auknum útboðum eða
breyttu rekstrarfyrirkomulagi. Þá
segir að Inga Jóna hafi kynnt sér
flestar hliðar á rekstri borgarinnar,
stofnana og fyrirtækja með viðtölum
við yfirmenn einstakra stofnana og
stjórnendur deilda og aflað upplýs-
inga meðal annars úr bókhaldsgögn-
um.
Á reglulegum fundum með borg-
arstjóra hafi hún lagt fram minnis-
blöð og greinargerðir sem vinnu-
plögg fyrir borgarstjóra að vinna
frekar úr í samráði við embættis-
menn borgarinnar og forstöðumenn
viðkomandi rekstrarsviða. Fjallað var
um ýrhiss konar þjónustu, sem teng-
ist starfsemi borgarinnar, svo sem
akstur eigin bifreiða, leiguakstur,
ræstingu, öryggisvörslu, ræktun,
þvotta, viðhald fasteigna, lóða og
gatna. Ennfremur þjónustu við borg-
arbúa, svo sem sorphirðu, rekstur
þjónustumiðstöðvar, sundstaða,
íþróttamál, auk þjónustu við einstaka
hópa borgarbúa, svo sem dagvist og
skólamál. Loks var fjallað um skipu-
lag og rekstur einstakra stofnana.
Engin skýrsla
í bókun Sigrúna Magnúsdóttur
segir að í ljós hafi komið að engin
skýrsla eða greinargerð hafi verið
unnin heldur leggi núverandi borg-
arstjóri fram minnisblað Markúsar.
Það séu allt aðrir minnispunktar en
hann hafi kynnt í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi árið 1992, þegar hann
hafi kynnt hugmyndir um víðtæka
einkavæðingu meðal annars Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og SVR.
Hún efist ekki um að einkavæðing
borgarfyrirtækja hafí átt að vera
skrautfjöður meirihluta borgar-
stjórnar þó svo reynt sé að breiða
yfir þá stefnu núna. Þá segir: „Eftir
stendur að borgarsjóður var látinn
greiða stórar íjárhæðir fyrir minnis-
punkta í hugmyndabanka sjálfstæð-
ismanna, fjárútlát sem aldrei voru
borin upp til samþykktar í borgar-
ráði. Þeir skirrast ekki við að nota
fé þorgarbúa í eigin þágu.“
í bókun Árna Sigfússonar borg-
arstjóra segir að hugtakið skýrsla
sé greinilega bundið við þykka doðr-
anta í huga borgarfulltrúans. Það séu
algeng vinnubrögð stjórnenda að
leita ráðgjafar en afköst eigi ekki
að mæla eftir þykkt skýrslunnar.
Ráðleggingarnar sjálfar séu aðalat-
riðið. Ljóst sé að ráðgjafi borgar-
stjóra hafi unnið viðamikið starf og
eins og yfirlitið sýni hafi ijölmörgum
verkefnum verið þokað áfram og
ýmsum breytingum sé þegar lokið.
Aðallega aukinn útboðsrekstur,
breytingar á nokkrum fyrirtækjum í
hlutafélög og almenn hagræðing.
I síðari bókun Sigrúnar segir að
athygli veki að ekkert sé til á borg-
arskrifstofunum um vinnu sérfræð-
ingsins. Vinnan sé unnin fyrir al-
mannafé og ætti að vera opinbert
plagg, sem allir ættu að geta sótt í
hugmyndir. Otækt sé að fyrrverandi
borgarstjóri þurfi tveimur árum síðar
að setja fram punkta eftir minni.
Mjólkurfræðingar
Boða yfir-
vinnubann
YFIRVINNUBANN hefur
verið boðað hjá Mjólkur-
fræðingafélagi íslands frá
og með miðnætti 20. apríl
næstkomandi.
Yfirvinnubannið tekur til
allra mjólkurbúa á landinu og
segir Geir Jónsson formaður
Mjólkurfræðingafélags ís-
lands að deilan virðist illleys-
anleg.
Síðustu samningaviðræður
hjá ríkissáttasemjara fóru út
um þúfur og segir hann að
ekki hafi verið boðað til ann-
ars sáttafundar í deilu aðil-
anna.
Lögfræðingur Mjólkurfræð-
ingafélagsins lagði greinar-
gerð fyrir Félagsdóm í gær en
farið verður fram á frávísun
málsins.
Inga Jóna Þórðardóttir um fyrirspurn Sigrúnar Magnúsdóttur
Amiarleg, pólitísk sjónarmið
INGA JÓNA Þórðardóttlr, segir að annarleg sjónarmið búi að baki
fyrirspurnar Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, í borgarsljórn og borgarráði um þá rekstrarathugun og
ráðgjöf er hún vann fyrir Markús Orn Antonsson fyrrverandi borgar-
stjóra. Ljóst sé að verið sé að stilla upp faglegri ráðgjöf hennar, sem
unnin var fyrir tveimur árum, í pólitískum tilgangi.
„Með hliðsjón af því að þarna er
um nútímaviðhorf til stjórnunar að
ræða fyrir stjórnanda í stóru fyrir-
tæki er ég þeirrar skoðunar að fyrir
fyrirspytjanda hljóti að vaka eitthvað
annað heldur en efnisatriði málsins
eða málið sjálft,“ sagði Inga Jóna.
„Fyrirspyijandi á sjálfur að hafa
þekkingu á rekstri og ég get ekki
túlkað hennar framgöngu í málinu
með öðrum hætti heldur en að hún
sé að gera það pólitískt. Hún hefur
uppi villandi upplýsingar um greiðsl-
ur til mín og hún blanda því inni í að
í dag er ég frambjóðandi. Fyrir
tveimur árum var ég það ekki og var
ekki borgarfulltrúi eða á framboðs-
lista. Það eru því að sjálfsögðu ein-
hver annarleg viðhorf sem að baki
búa.“
Inga Jóna sagði að þann tíma sem
hún hafi unnið með Markúsi þá hafi
hún starfað samfellt með honum og
ekki sinnt öðrum verkefnum á með-
an. „Þetta var ferlivinna, þar sem
farið var yfir hvert mál fyrir sig.
Ég vann að ýmsum þáttum svo sem
fyrirkomulagi á rekstri, almennri
hagræðingu og sparnaði svo fátt eitt
sé nefnt. Sumt fékkst samþykkt en
öðru var hafnað eins og gengur,“
sagði hún.
B O R G A R
ÞOKPH)
Helmingi ódýrara en I London.
Vegna mjög hagkvæmra innkaupa bjóöum
viö 250 Churchill 6 manna, 30 stk.
matarstell á kr. 3.390. Fjórar geröir.
Ath! Takmarkaö magn.
'Á ^,1 ToLl* ö
<ti£ &
1886
50% afsláttur
af öllum Taylors kaffi- og tevörum.
Viö bjóðum einnig gestum og
gangandi aö bragöa á bragöbættu
kaffi frá Whittard.
10
ici
20% afsláttur
af öllum rauövínsglösum.
GOTMRILLIÐ
L
AMERÍkTJmADUR i RARÍS
RESTAURANT
unglegur
staöur
Grillborgarinn okkar meö fjórum áleggs-
tegundum, frönskum og (&£$?%
36% afsláttur á Borgardögum.
Þú greiðir aöeins kr. 400.
\fi'
vfix
r<vór\'
BORGARKRINGLUNNI
Glæsileg tilboð - frábær verð
UNO
DANMARK
Okkar afsláttur á Borgardögum.
Afabolir, börn og fullorðnir 20% afláttur.
Barnakjólar 30% afsláttur.
Veríð velkomin.
£t&PP
vy v r / sh
SKOVERSLUN
Boots, 2 geröir með 40% afsláttur.
Dömuboots kr. 3.590. Herraboots kr. 4.190
ANDREA moda dömuskór með 30% afslætti,
aöeins kr. 3.850
KRINGLUNNI 4
Réttur dagsins á Borgardögum meö
30% afslætti, aðeins kr. 510.
BLÓM, UNDIR STIGANUM
20% afsláttur
af öllum pottaplöntum.
HÚT:..
íipryði
V / Sérvcrsl
25% afsláttur
af öllu blússum.
PIJ
7\l ... „ „
BORGARKRINGLUNNI
20% afsláttur
af öllum fatnaði.
VERSLUN Í BORGARKRINGIUNNI. SÍMI677340
20% afsláttur
af öllum peysum.
Stórglæsilegt úrval.
Borgarkringlan er fallegt verslunarhús í þægilegu umhverfi,
býður fjölbreytt vöruval og ánægjulegt starfsfólk.
Börnin í umferðinni
IUMFERÐAR [ samvinnu við Umferðarráð, Reiðhjólaskóla íslands og fleiri aðila
RAÐ verður sérstakt kynningarátak um öryggisbúnað fyrir börnin.
Andlitsnýjung, algjör nýjung
25% afsláttur af 10 tíma korti.
Meöferö meö vöövaþjálfunartæki, laser á
hrukkur og acupunkts og hljóöbylgjur.
Sogæða/sellónuddtæki sem eykur
blóöstreymi um líkamann, bætt heilsa, betra
útlit. Fitubrennsla/vöövaþjálfunartæki.
NORÐURLJÓSIN
HEILSUSTUDIO
4. hæð, Norðurturni,
sími 36677.