Morgunblaðið - 14.04.1994, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994
innar hefur ferill Alberts, bæði sem
knattspymumanns og einnig sem
leiðtoga, markað djúp spor og skilið
eftir sig merkan minnisvarða. Ein-
stakir hæfileikar Alberts sem knatt-
spymumanns komu fljótt í ljós og
þegar á unga aldri skaraði hann
fram úr í leikjum með knattspyrnu-
félaginu Val. Albert hélt síðan til
náms í Skotlandi og Englandi og
bauðst honum strax að spila þar
með tveimur frægum liðum,
Glasgow Rangers og Arsenal. Hróð-
ur Alberts spurðist fljótt um alla
Evrópu og fljótlega varð hann stór-
stjarna í Evrópuknattspyrnunni og
spilaði með mörgum stórliðum, til
dæmis A.C. Milan, Racing Club de
Paris, Nancy og Nice, auk þeirra
sem áður vom nefnd. Til að verða
fremstur meðal jafningja í atvinnu-
knattspyrnunni þarf annað og
meira en meðfædda knattspyrnu-
hæfíleika. Það sem þar skilur á
milli eru mannkostir, sem menn
hafa til að bera. Albert hafði slíka
hæfileika í ríkum mæli eins og kom
berlega í ljós í hans ævistarfí síðar
á lífsleiðinni.
Þeim, sem þessi orð skrifar, gafst
kostur á því að kynnast af eigin
raun við þijú mismunandi tækifæri
á undanfömum 10 árum, tvisvar í
Frakklandi og einu sinni á Spáni,
hversu gífurlega dáður og virtur
knattspymumaður Albert Guð-
mundsson var á sínum tíma, og
hversu vel og lengi sú minning lifir
meðal fólks. Það er hreint með ólík-
indum hversu virtur og dáður Al-
bert er enn þann dag í dag í Frakk-
landi og afrek hans þar munu seint
fyrnast.
Eftir að Albert sneri heim aftur
og fór að hasla sér völl á íslandi
fór hann fljótt að sinna leiðtoga-
störfum í knattspyrnu. Albert var
formaður Knattspyrnusambands
íslands á ámnum 1968-1973. í
hans formannstíð var mikil gróska
og uppsveifla í starfsemi KSÍ. Hann
innleiddi ýmsa nýja hluti sem þóttu
óhugsandi þá, eins og til dæmis
knattspymu að vetrarlagi, en hún
var óneitanlega framfaraspor í ís-
lenskri knattspyrnu. Einnig voru
spilaðir fleiri landsleikir en áður.
Þá stuðlaði Albert að því með sínum
alkunna dugnaði og framsýni að
keypt var stór skrifstofuhæð í
Laugardalnum, sem hýsir ennþá
alla starfsemi KSÍ og mun gera í
náinni framtíð.
Það gustaði um Albert Guð:
mundsson í formannstíð hans í KSÍ
eins og reyndar í fleiri störfum
hans á lífsleiðinni. En ástæða þess
var einmitt sú að Albert var fram-
sýnn framkvæmdamaður og hrinti
í framkvæmd ýmsum málum sem
voru á undan sinni samtíð, og marg-
ir hreinlega áttuðu sig ekki á mikil-
vægi þeirra fyrr en eftir á.
Albert Guðmundsson var mikill
drengskaparmaður, höfðingi heim
að sækja og reyndist vinum sínum
og samstarfsmönnum vel og taldi
ekki eftir sér viðvikin í því sam-
bandi.
Það rifjast nú upp fyrir mér at-
vik sem átti sér stað í fyrrasumar,
sem sýnir vel hversu trygglyndur
Albert var og mikill vinur vina
sinna. Ég var á stuttu ferðalagi í
Evrópu og þurfti skyndilega að
komast heim og eini möguleikinn
var að fara til Parísar og þaðan
með kvöldflugi til íslands. En ég
þurfti að skipta um flugvöll í París
og hafði til þess skamman tíma.
Ég hringdi í Albert vin minn og
spurði hann ráða hvernig ég ætti
að fara á milli flugvallanna. Albert
tók af mér orðið og sagði strax: „Ég
kem út á flugvöll og sé um þetta.“
Og hann var að sjálfsögðu mættur
þegar vélin mín lenti og ók mér á
milli flugvalla. En það sem ég ekki
vissi fyrr en ég sá Albert í París
var að hann var nýkominn af
sjúkrahúsi eftir erfiðan uppskurð
og átti að sjálfsögðu a<j fara sér
hægt. En slíkur maður var Albert
Guðmundsson, einstakur á margan
hátt og skilur eftir sig merk spor.
Knattspyrnuhreyfingin á íslandi
stendur í mikilli þakkarskuld við
Albert Guðmundsson og drúpir
höfði í einlægri sorg og virðingu
við fráfall hans.
Nafn Alberts Guðmundssonar
verður ávallt feitletrað í íslenskri
knattspymusögu. Vinir hans í evr-
ópskri knattspyrnuforystu hafa
beðið mig að koma á framfæri
kveðjum, virðingu og þakklæti í
minningu hans. Knattspyrnusam-
band íslands vottar einkonu hans,
börnum og allri fjölskyldu sína ein-
lægu samúð og virðingu við fráfall
Alberts Guðmundssonar. En minn-
ingin um mikinn höfðingja, ógleym-
anlegan afreksmann og mikinn
drengskaparmann lifir.
Eggert Magnússon,
formaður Knattspyrnu-
sambands íslands.
Ég ætla mér ekki að rekja
æviatriði Alberts Guðmundssonar
né afrek hans í íþróttum og stjórn-
málum, það gera aðrir sem betur
þekkja til, en mig langar til að
minnast mannsins Alberts Guð-
mundssonar, mannsins sem nú er
fallinn frá langt um aldur fram.
Kynni okkar Alberts Guðmunds-
Albert gantast við fiskvinnslukonur en hann lagði jafnan áherslu á
góð tengsl við alþýðu landsins.
Lengi lifir í gömlum glæðum. Albert bregður á leik með fótboltann
við einn skólann í Reykjavík á borgarsljórnarárum sínum.
sonar hófust árið 1987 þegar hann
var flæmdur úr Sjálfstæðisflokkn-
um. Eins og aðrir hafði ég fylgst
með ferli hans úr fjarlægð. Meðal
okkar strákanna var hann goðsögn
sem knattspyrnumaður — hann
fékk laun fyrir að spila fótbolta og
það í útlöndum! Eftir að hann kom
heim gustaði alltaf af honum, hvar
sem hann kom, enda maðurinn
mikill keppnismaður.
Er forysta Sjálfstæðisflokksins
hrakti Albert úr ráðherrastól og
af framboðslista flokksins fyrir al-
þingiskosningarnar 1987 var mér
ekki stætt á öðru en að veita Al-
bert það lið sem ég mátti. Slíka
aðför að mannorði sínu á enginn
maður að þurfa að þola og þjóðin
sýndi álit sitt á aðförinni með ótví-
ræðum hætti. Kynni okkar hófust
við undirbúning kosninganna og
maðurinn Albert kom mér á óvart.
Þessi maður — sem búið var að
útmála sem einn mesta frekju- og
skaphund sem ísland hafði alið og
átti að vera hin mesta meinvættur
— var með Ijúfari mönnum sem ég
hef kynnst. Auðvitað hafði hann
skap, annars hefði hann aldre i náð
svo langt, en það skap kunni hann
að hemja og ekkert aumt mátti
hann sjá. Maðurinn Albert Guð-
mundsson var ekki kallaður „vinur
litla mannsins“ að tilefnislausu,
hann var alltaf boðinn og búinn til
að leysa vanda allra sem til hans
leituðu, og Albert var drengskapar-
maður í bestu merkingu þess orðs.
Það var líklega þess vegna sem
hann átti ekki samleið 'með þeirri
kynslóð sem nú ræður í Sjálfstæðis-
flokknum, hann var of mannlegur
og of mikill tilfinningamaður til að
eiga samleið með þeirn sem gleyma
„manninum á strætinu“ nema á
fjögurra ára fresti. Samstarf okkar
Alberts var náið um tíma og ég
minnist þess tíma með þakklæti og
hlýju. Það var gott að vinna með
Albert, hann var alltaf reiðubúinn
til að hlusta á skoðanir annarra og
jafnvel að gera þær að sínum, ef
honum fundust þær þess virði. Al-
bert hvarf síðan af vettvangi stjórn-
málanna og gerðist sendiherra ís-
lands í París. Þar var hann verðug-
ur fulltrúi þjóðar sinnar.
Maðurinn Albert Guðmundsson
var mikill fjölskyldumaður og var
unun að sjá samband hans við konu
sína, börn og ekki síst barnabörn.
Samstaða og samheldni fjölskyld-
unnar var einstök. Hann var líka
mikill bamavinur og inn í kosninga-
baráttuna 1987 komu páskar. Á
kosningaskrifstofunni birtust far-
andsalar með páskaegg og af
minnsta kosti tveimur þeirra keypti
Albert fulla kassa af páskaeggjum,
sem barnabörnin og böm stuðn-
ingsmannanna nutu. Albert var
mikill trúmaður og ekki kom til
greina að unnið yrði á kosninga-
skrifstofunum hátíðisdagana þótt
þess hefði þurft, þar varð honum
ekki haggað.
Ég og fjölskylda mín viljum
senda frú Brynhildi, börnum,
tengdabörnum, barnabörnum og
öllum ættingjum Alberts okkar
innilegustu samúðarkveðjur, þau
hafa misst mikið. Við fjölskyldan
og aðrir vinir þeirra höfum líka
misst mikið, en minningarnar um
Albert Guðmundsson lifa, og það
em ljúfar minningar.
Þegar Magnús_„Stormur“ Magn-
ússon minntist Ólafs Thors sagði
hann: „Hann var hjartahlýr höfð-
ingi.“ Þegar að kveðjustund Al-
berts er komið langar mig til að
gera þessi orð Magnúsar að mínum.
Albert Guðmundsson var hjartahlýr
höfðingi og hans er gott að minn-
ast. Það er enginn fátækur sem á
minningar um slíkan mann í hug-
skoti sínu.
Garðar Jóhann.
Albert Guðmundsson er látinn
ástsæll stjórnmálamaður, íþrótta-
frömuður og fræknasti knatt-
spyrnumaður sem ísland hefur alið.
En umfram allt maður með hlýtt
hjarta. Maður fólksins.
Leiðir okkar Alberts lágu saman
fyrir tæpum tuttugu árum, ég þá
ungur maður, — Albert með vindil-
inn sinn, stór í sniðum. Þau kynni
voru ánægjuleg og gefandi, og eins
og ávallt fann ég vináttu geisla frá
honum.
Mörgum árum síðar, þegar ég
starfaði á Sjónvarpinu, hafði ég það
hlutverk að fjalla um eitt umdeild-
asta mál seinni tíma, Hafskipsmál-
ið. Þá var Albert ráðherra í ríkis-
stjóm íslands. Hann hafði verið
stjómarformaður Hafskips og for-
maður bankaráðs Útvegsbankans.
Kastljós fjölmiðla beindist að hon-
um. I þeim gjörningum fór svo, að
Albert var þvingaður til þess að
segja af sér embætti. En þrátt fyr-
ir ágjöf, þá breyttist viðmót hans
aldrei í minn garð, — ávallt kurteis
og hlýr, þó á stundum væri hann
ósáttur við umfjöllun Sjónvarps.
Það fylgir starfinu og það vissi
Albert.
En ég vil kveðja Albert fyrir
hönd Knattspymufélagsins Vík-
ings. Jú, Albert var Víkingum
ávallt haukur í horni og mikill vin-
ur. Um miðja öldina sigldi Víkingur
krappan sjó og framtíðin tvísýn.
Og þá var ekki hægt að fá rönd-
ótta búninginn. Þá voru góð ráð
dýr og Víkingar kepptu í búningi
Haukanna úr Hafnarfirði. í hugum
sumra var þetta nánast eins og
leggja niður félagið. Þá hug-
kvæmdist mönnum að skrifa Al-
berti suður til Ítalíu. Albert lék þá
með AC Milan í Víkingsbúningnum!
Nokkru síðar barst tilkynning um
sendingu í pósti. Búningarnir voru
á leiðinni til landsins. í bók Ágústs
Inga Jónssonar, Áfram Víkingur,
segir Þorlákur Þórðarson, heiðurs-
félagi í Víkingi: „Félagið var hins
vegar svo blankt að ekki voru til
peningar til að leysa sendinguna
út. Við mönnuðum okkur þó upp í
að fara niður á póststofu til að kíkja
á böggulinn. Er þangað kom og
við höfðum sýnt tilkynninguna
sagði starfsmaðurinn. „Víkingur,
já, gjörið þið svo vel.“ Albert hafði
sent búningana á eigin reikning og
fært Víkingi að gjöf. Slíkt vinar-
bragð gleymist aldrei.“
Já, slíkt gleymist aldrei. Og líka
1977 þegar belgískt félag kom
hingað á miðju keppnistímabili til
þess að næla sér í einn efnilegasta
leikmann landsins. Arnór Guðjohn-
sen. Hið erlenda félag braut lög
og reglur Knattspyrnusambands
Evrópu með því að falast eftir leik-
manni á miðju keppnistímabili án
þess að ræða við Víking og hugðist
vaða yfir íslendingana á skítugum
skónum. Þetta var erfið staða,
varða þurfti nýja leið og forustu-
menn Víkings í vanda. Þá höfðu
þeir samband við Albert Guð-
mundsson.
Og eins og ávallt brást hann vel
við. Viðmót Belganna breyttist
þegar Albert gekk í salinn, með
vindilinn og setti hnefann i borðið.
Þeir urðu næsta litlir við hlið Al-
berts, sem kom fram eins og sá
er valdið hafði, — sannur heims-
borgari. Arnór fór utan, enda aldr-
ei ætlan Víkings að setja honum
stólinn fyrir dyrnar. Þvert á móti.
Raunar batnaði samningur Arnórs
fyrir tilstilli Alberts.
Albert sýndi Víkingi þarna mikið
vinarbragð, eins og alltaf þegar til
hans var leitað. Fyrir það segjum
við; kærar þakkir. Við vottum Qöl-
skyldu Alberts okkar dýpstu sam-
úð. Með Alberti Guðmundssyni er
genginn drengur góður.
Hallur Hallsson,
formaður Víkings.
Albert Guðmundsson man ég
ungan, þar fór hann fremstur, átti
sér ekki jafnoka, var almennt dáður
fyrir atgervi sitt, hlýja framkomu
og drengskap í leik.
Þegar ég kom til Frakklands
fyrsta sinni, fyrir tæpum 40 árum,
þá hafði Albert þegar gert garðinn
frægan á Bretlandi og á Ítalíu og
frændi minn með aðsetur í sendi-
ráði okkar í París hafði sagt mér
frá upphefð hans, frægð og fremd
í Frakklandi. Samt sem áður var
ég alveg óviðbúinn því, sem ég átti
eftir að heyra frá frönsku fólki, um
þá aðdáun, væntumþykju og virð-
ingu, sem hann naut þar í landi.
Andlegt og líkamlegt atgervi hans
kallaði þetta fram. Hann hafði ein-
stakt jafnvægi til að bera, fótleik-
inn, afbragðs fimleikamaður, vel
sterkur og hafði, allan sinn feril,
heillandi framkomu, sem einkennd-
ist af drengskap og prúðmennsku.
Heimkominn, að loknum sínum
glæsta íþróttaferli, hóf hann at-
vinnurekstur og farnaðist vel. Hann
tók brátt þátt í stjórnmálum, varð
borgarfulltrúi, forseti borgarstjórn-
ar, alþingismaður og ráðherra.
Einnig var hann driffjöðrin í bygg-
ingu Valhallar, uppbyggingu Toll-
vörugeymslunnar og sem formaður
bankaráðs Útvegsbanka íslands
afrekaði hann að rétta bankann við
gagnvart Seðlabankanum, eftir
langvarandi óverðskuldaða niður-
lægjngu. Hvar sem hann fór kom
hann hlutunum í lag og skilaði af
sér með sæmd. Albert Guðmunds-
son skartaði í skaphöfn sinni mörg-
um snjöllum þáttum og þar var
kærleikurinn áberandi. Honum var
það sem köllun að greiða götu ann-
arra og þá ekki sízt þeirra sem
minna máttu sín. Svo segir mér
hugur að þeir muni ófáir nú, sem
minnast hans fyrir velvild hans og
örlæti við lausn vandamála, sem
annars staðar höfðu mætt tómlæti.
Á vettvangi stjórnmála næða
gjaman naprir vindar. Þar kom að
hann varð fyrir aðkasti, sem hann,
með sinn flekklausa feril, átti engan
veginn skilið. Olli það honum þá
að sjálfsögðu sárindum. Síðar hefur
það valdið þeim, sem að því stóðu,
leiðindum og nú örlar orðið á iðrun
og eftirsjá.
Albert var vel kvæntur og vissi
vel af því. Að loknu dagsins amstri
átti hann sér góða heimkomu. Hann
var gæfumaður. Eins og að líkum
lætur hlotnaðist Albert margvísleg
sæmd og viðurkenning um sína
daga. Eftirminnilegt er, þegar
Pompidou Frakklandsforseti kom
til fundar við Nixon Bandaríkjafor-
seta í Reykjavík árið 1973 og heim-
ili Brynhildar og Alberts varð að
búsetað forseta Frakklands.
Meðan Albert gegndi starfi
sendiherra í París, þá bauð hann
mér að heimsækja sig. Af því varð
ekki, en við höfðum símasamband.
Þegar hann var heimkominn að
utan kom hann til mín í kvöldverð
og við sátum síðan vel og lengi við
arineld og létum hugann reika um
liðna daga. Kynni okkar, upphaf
ævilangrar vináttu, urðu með þeim
hætti á kreppuárunum rétt fyrir
heimsstyijöldina síðari, að við hlut-
um ráðningu í eftirsóknarverðar
stöður þingsveina Alþingis. Ég
minnti hann á markið ógleyman-
lega, sem hann skoraði gegn úr-
valsliði Rússa á gamla Melavellin-
um, úr aukaspyrnu af eigin vallar-
helmingi. Við rifjuðum upp þegar
við fyrir aldarfjórðungi höfðum
mælt okkur mót í London. Hann
var einum degi fyrr á ferðinni og
fann mig ekki á hótelinu mínu og
fór þá að sjálfsögðu út að leita
mín. Auðvitað fann hann mig. Það
sem hann ætlaði sér, hann Albert
Guðmundsson, það varð.
Við vorum báðir fæddir sjálf-
stæðismenn og töluðum saman sem
slíkir. Ég úr innviðum flokksins I
báðar mínar ættir og hann sem
unnið hafði flokknum svo vel og
lengi með eftirminnilegum hætti að
hugur hans var þar og gat hvergi
annars staðar verið.