Morgunblaðið - 14.04.1994, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
LÍF MITT
Ert þú Bobby Fischer?
Krakkar, verið með i hraðskákmótinu Leitinni að Bobby Fischer í
Háskólabiói á laugardaginn. Allir þátttakendur fá ókeypis inn á
kvikmyndina Leitin að Bobby Fischer.
Bónusverðlaun eru fyrir hverja unna skák og sigurvegararnir í
hverjum flokki fá glæsileg verðlaun.
Skráning í síma 611212.
hreyfimynda-
lagið
BEAUTIFUL DREAMERS
LEIKSTJÓRI JOHN HARRISON
Hreyfimyndafélagið heldur áfram að bjóða uppá
ferskar myndir sem eru kærkomin viðbót í kvikmyndaflóruna. Þessi
magnaða verðlaunamynd fjallar um kynferðislegt samband skáldsins Walts
Whitmans við geðlækninn Maurice Bucke og eiginkonu hans.
Miðaverð sem fyrr aðeins 350 kr. Sýnd kl. 7.
„Tílfinningasöm og fyndin til
skiptis, mörg atriðin bráðgóð og
vel leikin... Tæknin er óvenjuleg
og gengur upp" Ó.H.T. Rás 2.
Sýnd kl. 9.
B LÁ Ft
★★★ ★★★★
SV.Mbl. ÓHT. Rás 2
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
FRÁ HÖFUNDUM GHOST
LÍ/MITT
★★★
★★★
Ó.H.T
Ó.H.T.
RÁS 2
RÁS 2
sérfivert andartaH^í
zfiðSót ereiííft...
Ný mynd frá Kieslowski (Tvöfalt líf Veróniku). „Glæsilegt verk,
Kieslowski hefur kvikmyndalistina fullkomlega á valdi sínu..."
**** ÓHT Rás 2.
„Þetta einstaka listafólk hefur skilað afar tregafullri en engu að
síður einni bestu mynd ársins" *** SV Mbl.
Sýnd kl. 5, 9 og 11
/ NAFNI FÖÐURINS
★★★★ A.l. MBL
**** Ó.H.T. RÁS 2
**** Ö.M. TÍMINN
****,J.k. EINTAK
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð innan 14 ára.
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Newton fjölskyldan er
hundana!
Hver man ekki eftir einni vinsælustu
fjölskyldumynd seinni ára,
Beethoven? Nú er framhaldið komið
og fjölskyldan hefur stækkað.
Beethoven er frábær grínmynd sem
öll fjölskyldan hefur gaman af.
Aöalhlutverk Charles Grodin
cg Bonnie Hunt.
Sýnd kl. 5 og 7.
IN THE NAME OF THE FATHER
GULLNA L.IONID
* >
Besta myjuliri 4 kvikmyn-
dáliátiöiinii í Fcneyjimi.
Juiiette Binoche
bcsta lcikkonan
■ ÁRLEGU Combi-Camp vor-
dagarnir hjá Titan hf. verða
haldnir dagana 15.-25. apríl. Að
þessu sinni eru 1994 árgerðirnar
af Combi Camp tjaldvögnunum
kynntar undir kjörorðinu Frjáls
ferðamáti um Island. Starfsfólk
Titan hf. býður alla sem áhuga
hafa á ferðum innanlands vel-
komna til að kynna sér Combi
Camp tjaldvagnana, viðleguútbún-
að og nýjustu kortin frá Landmæl-
ingum íslands fyrir ferðasumarið
1994. Opið er virka daga frá kl.
9-12, 13—18, laugardaga, sunnu-
daga og sumardaginn fyrsta frá kl.
13-17.
■ FRAMBJÓÐEND UR Reykja-
víkurlistans verða til viðtals í
kosningamiðstöðinni á Laugavegi
31 alla virka daga frá kl. 16 til 18.
I dag, fimmtudaginn 14. apríl,
Birna K. Svavarsdóttir og Pétur
Jónsson, 15. apríl Helgi Hjörvar
og Kristín Blöndal, 18. apríl Art-
húr Mortens og Kristín Dýrfjörð,
19. apríl Árni Þór Sigurðsson og
Guðrún Ágústsdóttir, 20. apríl
Sigþrúður Gunnarsdóttir og
Oskar Bergsson, 21. apríl, sumar-
dagurinn fyrsti, allir frambjóð-
endur og 22. apríl Sigrún Magn-
úsdóttir og Gunnar Levy Gissur-
arson.
■ 25. ÞING Sambands ungra
framsóknarmanna var haidið að
Nesjavöllum í Grafningi um síðustu
helgi. Á þinginu var kosinn nýr
formaður sambandsins, Guðjón
Ólafur Jónasson, lögfræðingur í
Reykjavík. Hann bar sigurorð af
G. Valdimar Valdemarssyni úr
Kópavogi. Aðrir í stjórn sambands-
ins eru: Finnur Þór Birgisson,
Reykjavik, Þorlákur Traustason,
, Reykjavík, Þórhildur Hallgríms-
dóttir, Reykjavík, Páll Magnús-
90», Kópavogi, Birta Jóhannes-
dóttir, Mosfelisbæ, Hákon Hákon-
arson, Kópavogi, Ingibjörg Dav-
iðsdóttir, Borgarfjarðarsýslu, Haf-
dís Sturlaugsdóttir, Hólmavík,
Gunnar Bragi Svéinsson, Sauðár-
króki, Stefán Erlingsson, Akur-
eyri, Aðalsteinn Ingólfsson, Höfn
í Hornafirði og Jón Ingi Jónsson,
Olúisi. _
Sérstæður boðskapur
Bandaríska rokksveitin God is My Co-Pilot leikur hér á landi
EKKI er um auðugan garð að
gresja i heimsóknum erlendra
rokksveita hingað til lands og
harðnar á dalnum ef telja á
þær hljómsveitir sem eitthvað
er í spunnið og telja má merki-
legar. Það ber því vel í veiði
að hér á landi er nú stödd
bandaríska rokksveitin God is
My Co-Pilot og leikur tvívegis
hér á landi að þessu sinni; í
Tveimur vinum í kvöld og MH
annað kvöld.
God is My Co-Pilot er sex
manna sveit frá New York og
hefur vakið allmikla athygli und-
anfarin misseri fyrir sérkenni-
lega kraftmikla tónlist með eftir-
tektarverðum textum og sér-
stæðum boðskap. Þó sveitar-
skipan sé nokkuð laus í reipun-
um, er kjami hennar söngkonan
Sharon Topper og gítarleikarinn
og lagasmiðurinn Craig Flanag-
in. í símaspjalli segist Sharon
stundum eiga erfítt með að
gera sér grein fyrir því hvenær
hljómsveitin fór af stað, en lík-
lega séu fjögur eða fimm ár síð-
an. Hún segir að í raun hafi
enginn beinlínis ákveðið að
stofna hljómsveit. „Craig [Fla-
nagin] keypti gítar af bróður
mínum því hann langað að prófa
að spila. Hann fór svo að fá vini
og kunningja til að spila með
sér og gera tilraunir. Smám
saman fór að vanta bassaleik-
ara og síðan trommara og hann
bað hina og þessa um að koma
og spila með sér. Hann vann í
plötubúð og spurði oft þá sem
inn í þúðina komu hvort þeir
væru ekki til í að koma og prófa
spila með. Hann reyndi að fá
mig til að spila á trommur, en
mér fannst ég ekkert fá útúr
því, en seinna fór ég að fikta
við að syngja og fannst það
mjög gaman og var því orðin
söngkona í hljómsveitinni.
Þannig má segja að þetta hafi
allt verið; hljómsveitin hefur eig-
inlega þróast upp í það að vera
hljómsveit frekar en að við höf-
um öll tekið ákvörðun um að
stofna hljómsveit.11
Sharon segir að tónlist
sveitarirvnar hafi alla tíð byggst
á því að spila það sem þau vildu
helst heyra sjálf og þau hræri
saman fjölda tónlistarstefna.
Craig semur flest lög sveitarinn-
ar, en hún segir að þó hann
komi textunum í sönghæft
ástand þá ræði þau oft um efni
textanna og þoðskap áður en
hann setur þá saman, en einnig
komi það iðulega fyrir að hún
biðji hann að setja saman fyrir
sig lag um eitthvað ákveðið efni.
Þegar hér er komið sögu vill
Craig fá að vera með í viðtalinu.
Hann segist hafa samið flest
laga sveitarinnar í upphafi, en
í dag komi hugmyndir frá öllum.
„Þar sem við búum í New York
er grúi óh'kra tónlistarstefna á
kreiki í kringum okkur sem gefur
okkur svigrúm til meiri ævin-
týramennsku í tónlist. Það má
segja að textasmíðin sé eins,
því þá raða ég saman ólíkum
hugmyndum, stundum eftir fyr-
irfram ákveðnu mynstri, eins og
Sharon nefndi áðan, en einnig
finn ég búta hér og þar. Til að
mynda lánaði vinkona mín Anne
mér tveggja ára dagbók sína
og í þeirri bók fann ég mikinn
efnivið í textasmíðar."
God is My Co-Pilot hefur
verið vel afkastamikil í útgáfu-
málum og sent'frá sér tvær
breiðskífur og grúa af smáskíf-
um og ýmsum útgáfum öðrum,
en Craig segir að hann hafi
samið allnokkru fleiri lög en
hljómsveitin hafi gefið út. „Við
leggjum mikla vinnu í þau lög
sem við gefum út og hvert lag
er samið af kostgæfni. Mér
hefur alltaf fundist rangt að
grípa fyrstu hugmynd; það verð-
ur að leggja mikla vinnu í það
sem maður er að gera til að það
haldi áfram að vera áhugavert
og spennandi. Annars á ég létt
með að semja og ég setti mér
það sem markmið að semja eitt
lag á dag þetta ár og hef haldið
því hingað til, þó stundum eigi
kannski eitt lag á viku betur
við.“
Craig segir að í upphafi hafi
hann ekki ætlað sér að leggja
fyrir sig tónlist, en þegar hann
var byrjaður að spila hafi hann
fundið það að þetta væri það
sem hann helst vildi gera fram-
vegis og það sé því draumi lík-
ast að nú sé hljómsveitin farin
að bera sig svo vel að þau geti
lifað af því sem þau eru að gera.
„Við erum þó alls ekki að spila
til að fá peninga eða aðdáun
áheyrenda, og ég er sannfærð-
ur um það að þó engir tónleika-
staðir vildu okkur myndum við
enn hittast einhvers staðar bara
til að spila," segir hann að lok-
um.
God is My Co-Pilot leikur í
Tveimur vinum í kvöld og annað
kvöld leikur hljómsveitin í MH.
Viðtal Árni Matthíasson