Morgunblaðið - 23.04.1994, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
FASTEIGNAMIÐLUN.
Síðumúla 33
S: 679490 OG 679499
Símatími í dag kl. 11-13
Einbýli/raðhús
Stuðlasel. Nýkomið í sölu fallegt
og vandað einb. á einni haeð, 162 fm
m. innb. bílsk. ásamt ca 18 fm sól-
stofu. Húsið stendur á besta stað við
opið svæði. Verð 13,9 millj.
Mánabraut — Kóp. Fallegt
170 fm einb. neðan götu ásamt 40 fm
á neðri hæð svo og 30 fm bílsk. Arinn,
parket, nýl. eldh. og bað. Húsið mikið
endurn. Áhv. ca 7,0 millj. (húsbr.).
Lækkað verð.
Tunguvegur. í einkasölu mjög
góð eign ca 110 fm raðh. á tveimur
hæðum og hl. kj. Verð 7,5 millj.
4ra-7 herb.
Fornhagi. Nýkomin í sölu sérl.
falleg 125 fm efri hæð ásamt góðum
bílsk. Útsýni. Áhv. hagst. ca 5 millj.
Verð 11,9 millj.
Smáíbúðahverfi. Nýkomin í
sölu sérl. vönduð rishæð í nýl. húsi við
Skálagerði. 3 svefnherb., vinnuherb.
Bílsk. Áhv. 5,6 millj. Verð 10,5 millj.
Háaleitisbraut. Nýkomin í sölu
falleg 5 herb. íb. á 2. hæð. 4 stór svefn-
herb. Parket. Áhv. byggsj. ca 3,3 millj.
Verð aðeins 7,8 millj.
Maríubakki. Nýkomin í sölu ca
90 fm íb. ásamt aukaherb. í kj. Áhv.
ca 4,3 millj. hagst. lán. Verð 7,5 millj.
Hraunbær. Nýkomin í sölu mjög
góð 95 fm íb. á 2. hæð. 10 rása kapal-
kerfi f. sjónvarp. Áhv. ca 4,0 millj. Verð
7,2 millj.
3ja herb.
Vesturberg. Nýkomin t söiu 78
fm falleg íb. á efstu hæö. Parket á allri
fb. Útsýni. Áhv. Byggsj. ca 3,9 millj.
Verð 6,3 millj.
Dvergabakki. Gullfalleg fb. á 1.
hæð. Parket. Tvennar svalir. Nýtt eldh.
2 rúmg. svefnherb. Áhv. Byggsj. 3,3
m. Verð 6,7 millj. Laus strax.
Miðleiti. í sölu glæsil. 121 fm íb.
á efstu hæð. Mjög vönduð eign. Stæði
í bílgeymslu. Áhv. ca 1,3 millj. Byggsj.
Verð 10,1 millj. Ath. mögul. eigna-
skipti nýl. einbhúsi eöa minni eign.
Hraunteigur. Nýkominísölugóð
risíb. Áhv. ca 1.300 þús. V. 4,9 m.
2ja herb.
Kóngsbakki. Nýkomin ísölu sérl.
falleg ca 67 fm íb. á 3. hæð. Parket.
Verð 5,7 millj.
Ásvallagata. Falleg 2ja herb. íb.
á 1. hæð ásamt herb. í kj. Áhv. ca 2,0
m. Laus strax. Verð 4,8 millj.
Kaupendur athugið
Fjöldí fastelgna á söluskrá.
Ármann H. Benediktss., sölustj., lögg.
fasteigna- og skipasali.
Geír Sigurðsson, lögg. fasteigna- og
skipasali.
Málþing um
textatengsl
og viðtöku-
rannsóknir
STOFNUN Sigurðar Nordals
gengst fyrir málþingi um texta-
tengsl og viðtökurannsóknir laug-
ardaginn 23. april kl. 13.15 í stofu
101 í Odda, hugvísindahúsi Há-
skóla íslands. Ráðstefnustjóri verð-
ur Ulfar Bragason, forstöðumaður
Stofnunar Sigurðar Nordals.
Erindi flytja Soffía Auður Birgis-
dóttir um textatengsl, tvítyngi og
tvíburatexta, Jón Helgason um hetj-
ur íslands og innflytjendur í Banda-
ríkjunum. Um þýðingar og texta-
tengsl. Torfi Tulinius um textatengsl
og túlkun Egils sögu, Matthew J.
Driscoll: Sólun sagna á 19. öld,
Sveinn Yngvi Egilsson: Hulduljóð
sem pastoral elegía og Margrét Eg-
gertsdóttir flytur erindið Hefðin og
hlutverk skálds á 17. öld.
Að erindum loknum verða umræð-
ur og þingslit um kl. 17.30.
-----» ♦ 4-----
Listakosn-
ingar í Laug-
ardalshreppi í
fyrsta skipti
Laugarvatni.
í FYRSTA skipti í sögu sveitar-
stjórnarkosninga í Laugardals-
hreppi verður nú kosið um mis-
munandi lista.
Það nýmæli blasir nú við íbúum
Laugardalshrepps að boðnir verða
fram a.m.k. tveir listar til næstu
sveitarstjórnarkosninga. Mikil um-
ræða hefur verið um sveitarstjórn-
armál í hreppnum í vor eftir að fram
kom beiðni frá kjósendum um að
kosningar yrðu hlutbundnar. Nú hafa
komið fram tveir listar, L-listi áhuga-
fólks um „mannvænt og vistvænt"
samfélag og K-listi sitjandi hrepps-
nefndar sem setið hefur óbreytt sl.
tvö kjörtímabil. Þessir tveir listar
verða með opið prófkjör nú um helg-
ina, L-listinn á sunnudagskvöld en
K-listinn á sunnudag og mánudags-
kvöld. Endanleg röð framboðslist-
anna verður gerð kunnug í næstu
HOacgfeft ŒEgD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 741. þáttur
Björn Arnórsson í Reykjavík
sendir þættinum ágætt bréf, og
birtir umsjónarmaður það óstytt:
„Kæri Gísli!
Þakka þér alla þættina þína,
sem svo sannarlega eru bæði
áhugaverðir og gagnlegir.
Það er orðið ansi tímabært
að fj'alla aðeins um landafræði-
þekkingu þá, er ræður ferðinni
á fjölmiðlum. Þannig heyrist
ráðherra, sem vígir nýja flug-
braut á Egilsstöðum, tala um
að hún muni auka og auðvelda
flutninga á vörum og fólki til
og frá Evrópu. Mun hann ekki
hafa átt við flutninga til og frá
meginlandi Evrópu, eða til og
frá öðrum löndum Evrópu? En
mér finnst þetta langt frá því
að vera einsdæmi, að talað er
eins og ísland sé utan Evrópu.
Sömu sögu er að segja um
Norðurlöndin. Það líður nánast
ekki fréttatími án þess að við
séum upplýst um eitt-eða annað
á hinum Nogðurlöndunum. í
minni landafræði fundust ekki
nema ein Norðurlönd. Hins veg-
ar voru margar þjóðir á Norður-
löndum. Því geta atburðir átt sér
stað meðal annarra þjóða á
Norðurlöndum eða einfaldlega
annars staðar á Norðurlöndum.
I krossgátu var skýringin „til
útlanda“ og svarið tveggja stafa.
Á ég að hætta að láta fara í
taugarnar á mér að svarið var
„út“ í stað „utan“? Ég hef lent
í því að panta farmiða til út-
landa og allt gekk vel uns kom
að því að ég vildi panta miða
út aftur. Viðmælandi minn taldi
umhugsunarlaust að ég væri
farinn að tala um aðra ferð til
útlanda. Hvað hefur þú um þetta
að segja? Merkir „út“ nú orðið
það sama og „utan“?
Með bestu kveðjum.“
Umsjónarmaðuiy víkur fyrst
að hinu síðasta. Ut merkir að
vísu í sumra manna máli „til
útlanda", það sem áður var tíð-
ast sagt utan. Ekki held ég þó
að sömu menn tali um *útlands-
ferðir, heldur utanlandsferðir.
Skýring á þessu er sú, að út
getur táknað vestur, og þegar
menn fóru frá Noregi til ís-
lands, var stefnan út. „Út vil
eg“, sagði Snorri. Frá Islandi,
gagnstætt út, var þá utan, og
enn langar margan íslending til
þess að fara utan, fara í utan-
landsferðir.
Um Norðurlöndin fer um-
sjónarmaður enn í smiðju Ara
Páls Kristinssonar og tekur upp
úr Tungutaki, nr. 67 í sl. jan-
úar, máli bréfritara til enn frek-
ari styrktar:
„Rétt er að vekja á því at-
hygli, og ekki í fyrsta sinn, að
það eru bara til ein Norðurlönd
í heiminum. Þess vegna telst
ekki gott að segja sem svo: „það
þrengir nokkuð stöðuna fyrir
þau Norðurlönd sem sótt hafa
um inngöngu" eins og heyrðist
í Útvarpinu í nóvember, rétt eins
og einhvers staðar annars staðar
í heiminum væru Norðurlönd
sem ekki hefðu sótt um inn-
göngu. Þama hefði frekar átt
að segja eitthvað á þessa leið:
fyrir þau ríki á Norðurlöndum
sem sótt hafa um inngöngu.“
Mér þykir vænt um að bréfrit-
ari skuli minnast á, hversu menn
taka stundum til orða um Evr-
ópu, rétt eins og Island sé ekki
í henni. Kannski eru menn að
stytta mál sitt og sleppa orðinu
meginland. En auðvitað er firra
að stilla upp Evrópu og íslandi,
rétt eins og andstæður væru.
ísland er í Evrópu, eins og Kúba
er í Ameríku, þó hún sé ekki á
meginlandi þeirrar miklu álfu.
Mig langar svo til þess að nota
tækifærið og andæfa enn hinum
enska framburði „júró“. Við tök-
um þátt í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, evró-
vísjón, ekki „júróvísjón“, og
margir nota evrókort. Burt með
ómyndina „júrókard“!
★
Hlymrekur handan kvað:
Jóngeir og Geirjón grétu,
því Geiijón og Jóngeir létu
meina sér náðir
að þeir máttu ekki báðir,
Geiijón og Jóngeir, fá Grétu.
★
Margir kunna eftirfarandi
vísupart:
Örkin sat á Ararat,
út um gat leit Nói.
Ungur þykist ég hafa lært
fyrri hlutann þannig:
Stilltist hvata strauma at,
styggðarhrat svo grói.
Ekki skal fullyrt að rétt hafi
verið numið, enda ber þessi fyrri
partur ljós merki þess að vera
hortittshnoð til þess að koma
saman oddhendu. Og má með
góðum vilja skýra fyrri hlutann.
Hvata er þarná vafalítið lýsing-
arorð í veikri beygingu = hið
hvata, og á við straumaatið
= straumflóðið. Styggðarhrat
er væntanlega nafnorðsauki
= styggð, en styggð getur þýtt
sundurlyndi eða óþægð. Hall-
grímur Pétursson tók börnum
vara fyrir því, að veita foreldrum
sínum styggð. Hér er um að
ræða guð föður og börn hans
mennina, og skyldi nú gróa um
heilt á milli. Reiði guðs var þorr-
in, straumurinn stilltist, flóðið
sjatnaði, og sátt varð. Þá gat
Nói farið að skima út um arkar-
gluggann,
svo hann mátti um síðir hugga
sólarljóma birtan þekk.
Og var þarna aftur vitnað í
blessaðan Hallgrím.
★
Anonymus sendir frá Strass-
borg:
„Megi hefjast á himin upp lofský,“
mælti Helena röddinni sposk í,
berandi bakkana,
þegar bíaði út Frakkana
sá svíngalni Zírínovskíj.
911 RA 91 97A L^RUS Þ' VALDIMAR8S0N framkvæmdastjóri
L I \j\JmL\OI\J KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Skammt frá Fossvogsskóla
Glæsilegt steinhús, ein hæð, 153,8 fm auk bílskúrs 46 fm. Byggt um
1980. Innréttingar og tæki af bestu gerð. Glæsileg lóð. Úrvalsstaður.
Góð eign á góðu verði
Mjög gott timburhús, ein hæð, um 150 fm á vinsælum stað í Skerja-
firði. Húsi er nýlega endurbyggt og stækkað. Ný sólstofa. Eignarlóð
816 fm. Tilboð óskast.
Góð íbúð á góðu verði
3ja herb. íbúð á 1. hæð 85,3 fm við Álfheima. Sólrík með suðursv.
Sérþvaðstaða. Húsið nýmálað og sprunguþétt að utan. Geymsla í kjall-
ara. Verð aðeins kr. 6,3 millj.
3ja herb. íbúð á 3. hæð í suðurenda við Dvergabakka. Parket. Stórar
svalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 3,3 millj. Verð aðeins
kr. 5,8 millj.
Úrvaisíbúð við Rekagranda
2ja herb. ibúð á 1, hæð. Öll eins og ný. Rúmg. sérlóð. Skipti mögul. á
3ja herb. góðri íbúð í nágr.
Góð íbúð á góðu verði
3ja-4ra herb. góð rishæð í Smáíbúðahverfi. Nokkuð endurbætt. Sér-
hiti. Svalir á suðurhlið. Þríbýli. Verð aðeins kr. 4,9 millj.
Á söluskrá óskast
Suðuríbúð með útsýni í lyftuhúsi við Austurbrún. Skipti mögul. á 3ja
herb. úrvalsíb. í nýja miðbænum.
Ennfremur óskast góð húseign meö tveimur 120-140 fm sérhæðum.
Traustir kaupendur.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Teikn. á skrifstofunni.
Almenna fasteignasalan sf. ____________________________
var stofnuð 12. júlí 1944. LAliGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
m lnrguwM
Metsölubloð á hverjum degi!
AIMENNA
FASTEIGNtStUH
DAGBOK
ÁRNAÐ HEILLA
ára afmæli. Mánudaginn
25. apríl nk. verður sjö-
tugur Þorgrímur Jónsson,
málmsteypumeistari, Rauða-
læk 19. Eiginkona hans er Guðný
Árnadóttir. Þau hjónin .taka á
móti gestum í dag, laugardaginn
23. apríl, frá kl. 20 í Veislurisinu,
Hverfisgötu 105, Reykjavík.
fræðingur, Vesturási 51,
Reykjavík, bifreiðasfjóri hjá
Osta- og smjörsölunni, verður
sextugur í dag, laugardag. Eigin-
kona hans er Guðrún Guð-
mundsdóttir. Þau hjónin verða
með heitt á könnunni og taka á
móti gestum á heimili sínu eftir
kl. 15 á afmælisdaginn.
MINNINGARSPJÖLD
MINNINGARKORT Safn-
aðarfélags Áskirkju eru seld
hjá eftirtöldum: Kirkjuhúsinu,
Kirkjubergi 4, Holtsapóteki,
Langholtsvegi 84, Þjónustu-
íbúðum aldraðra, Dalbraut
27, Pélags- og þjónustumið-
stöð, Norðurbrún 1, Guðrúnu
Jónsdóttur, Kleifarvegi 5, s.
681984, Rögnu Jónsdóttur,
Kambsvegi 5, s. 812775,
Áskrkju, Vesturbrún 30, s.
814035.
Þá gefst þeim, sem ekki
eiga heimangengt, kostur á
að hringja í Áskirkju, sími
84035 milli kl. 17.00 og
19.00.
/?/~kára afmæli. í dag, 23.
UU apríl, er sextugur Karl
Jóhannsson, Jöklafold 8, Reykja-
vík. Eiginkona hans er Unnur
Óskarsdóttir. Þau eru að heiman.
/\ára afmæli. í dag, 23. apríl,
O \/ er fimmtug Ólöf Magnús-
dóttir, Holtsbúð 48, Garðabæ.
Hún tekur á móti gestum milli kl.
16-19 á afmælisdaginn.