Morgunblaðið - 03.06.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.1994, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 123. TBL. 82.ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Berlusconi fullvissar Clinton BILL Clinton Bandaríkjaforseti (t.h.) sagði að Silvio Berlusconi forsætisráðherra Italíu (t.v.) hefði fullvissað hann um að ít- alska ríkisstjórnin myndi hafa lýðræðislegar leikreglur í heiðri. Sagðist Clinton engar áhyggjur hafa af setu þriggja nýfasista í sljórninni og sagði fjölda stjórnmálaflokka víða um heim eiga rætur í enn ólýðræðis- legri fortíð. Myndin var tekin á blaðamannfundi eftir viðræður leiðtoganna í gær. Milli þeirra situr ítalska forsætisráðherr- afrúin Veronica Berlusconi. ■ Ósammála um fóstureyðingar og getnaðarvarnir/15 -----» ♦ ♦--- Kína lokar fyrir CNN Peking. Reuter. SPENNA hefur vaxið í Kína að undanförnu vegna ótta yfirvalda um að lýðræðissinnar freisti þess að minnast mótmælanna á Torgi hins himneska friðar. í dag og á morgun eru fimm ár liðin frá því kínverski alþýðuherinn braut mót- mælin á bak aftur með hervaldi og myrti þúsundir óbreyttra borg- ara. Lögreglan í Peking er við öllu búin, hefur stóraukið viðbúnað að undanförnu, bæði á Torgi hins himneska friðar og í háskólahverf- inu. Til þess að koma í veg fyrir mótmæli skipaði lögreglan hótel- um í Peking í gær að slökkva á gervihnattamótttöku frá CNN- sjónvarpsstöðinni og taka sjónvarp á hótelherbergjum úr sambandi til 6. júní. Talið er að með þessu vilji leiðtogar kínverska kommúnista- flokksins hindra að til landsins berist myndir frá því er hernum var sigað á lýðræðissinna þegar erlendar gervihnattasjónvarps- stöðvar minnast fímm ára afmælis atburðarins. Býr í Túnis og vill ekki heim Bettino Craxi á flótta undan rétt- vísinni vegna spillingarmála Róm. The Daily Telegraph. BETTINO Craxi, fyrrverandi forsæt- isráðherra og leiðtogi ítalska sósíal- istaflokksins, virðist sestur að í Túnis pg ætlar ekki að mæta fyrir rétti á Italíu. Hann er einna kunnastur þeirra stjórnmálamanna, sem koma við sögu í spillingarmálunum í landinu. Craxi á fjöldamargar ákærur yfir höfði sér og er meðal annars sakaður um að hafa tekið við næstum 12 milljörðum ísl. króna í mútur fyrir flokkinn og sjálfan sig í þau 16 ár, sem hann var formaður hans. Hann dvelst nú í sumarhúsi sínu í Túnis og í níu blaðsíðna yfirlýsingu, sem af- hent var fréttamönnum, kallar hann það „pólitískt óréttlæti" og „ofbeldi" að dómarar í Mílanó skyldu hafa ætlað að leggja hald á vegabréf hans. Hann minntist hing vegar ekki á heilsufar sitt en áður hefur hann nefnt það sem ástæðu þess, að hann hefur ekki snúið heim. Craxi er ekki aðeins sakaður um mútuþægni, heldur einnig um að hafa átt þátt í gjaldþroti ítalska bankans Banco Ambrosiano fyrir 12 árum en skömmu áður hafði banka- stjórinn, Roberto Calvi, fundist hengdur undir brú í London. Síðar tókst að rekja sjö milljóna dollara- greiðslu frá Calvi inn á svissneskan bankareikning, sem gekk undir dul- nefninu „vernd“ og er talinn hafa verið á vegum ítalskra sósíalista. Craxi og Anna, kona hans, búa vel í Túnis og hann og Ben Ali, for- seti landsins, eru góðir vinir. Búist er hins vegar við, að ítölsk stjórn- völd fari fram á, að hann verði fram- seldur samkvæmt gildandi samning- um milli landanna. Reuter Rússar endurnýja ekki vináttusamninga við Pyongyang Jeltsín segir hættu stafa af N-Kóreu Jeltsín átti viðræður í gær við Kim Young-sam forsætisráðherra Suður-Kóreu í Moskvu. Að sögn It- ar-Tass fréttastofunnar lýsti Jeltsín þar yfir að Rússar myndu að öllum líkindum ekki endumýja friðar- og vináttusamning við Norður-Kóreu frá 1961 er rennur út eftir tvö ár. Rússar eru skuldbundnir samkvæmt samningnum að tryggja norðan- mönnum sjáifkrafa hernaðaraðstoð kæmi til hernaðar á Kóreuskaga. Jeltsín sagði að neituðu Norður- Kóreumenn áfram eftirlitsmönnum Alþjóða kjarnorkumálastofnunar- innar (IAEA) að skoða kjarnorkum- iðstöðvar myndu Rússar styðja refsiaðgerðir gegn þeim. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagðist í gær myndu knýja á um þvingunaraðgerðir gegn Norður- Kóreu ef það væri niðurstaða sér- fræðinga IAEA að þeir hefðu gerst brotlegir við sáttmála um takmörk- un kjarnorkuvopna. Japanir freista þess nú að fá stað- festan grun um að Norður-Kóreu- menn hafi lagt tundurdufl á Japans- hafi. Fregnin um tundurduflin kem- ur í kjölfar frétta af nýjum tilraun- um norðanmanna með eldflaugar í þessari viku. London. Moskvu. Róm. Tókíó. Daily Telegraph. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti fordæmdi í gær kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu og sagði Rússum stafa hætta af henni. Lýsti hann stuðningi við refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna deilunnar um eftirlit með kjarnorkuverum þar í landi ef þær reyndust nauð- synlegar, eins og hann komst að orði. Fagna samstarfi BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti (t.h.) skálar við Kim Young-sam forsætisráðherra Suður-Kóreu eftir að hafa undirritað samn- inga um gagnkvæmt samstarf og viðskipti í Moskvu í gær. Bærinn fluttur New York. Daily Telegraph. ÍBÚAR bæjarins Chelsea í Iowa-ríki hafa ákveðið að flytja bæinn eins og hann legg- ur sig upp á hærra land til þess að draga úr hættu á að hann einangrist af völdum flóða eins og í flóðunum miklu í Mississippi, Missouri og Iowa í fyrra. Chelsea stendur á bökkum árinnar Otter Creek og þegar hún og áin Iowa sem rennur þar skammt frá flæða yfir bakkana fer bærinn undir vatn. Gerðist það fjórum sinnum í fyrra og á tímabili var ástandið í bænum það slæmt að flytja varð matvæli og önnur aðföng á bátum 37 daga í röð. Verða öll hús bæjarins, 132 íbúðarhús og 20 verslanir og smáfyrirtæki við Aðalstræti, flutt i heilu lagi upp á ása í um eins kílómetra fjarlægð frá árbakkanum. Hús sem þar standa fyrir sakaði ekki í flóð- unum í fyrra. Bæjarstjórnin, sem skipuð er fjórum mönnum, samþykkti flutninginn með þremur at- kvæðum gegn einu og flestir íbúar Chelsea voru viðstaddur fundinn sem haldinn var á slökkvistöð bæjarins. íbúar Chelsea eru 330, flestir þeirra bændur og aldrað eftirlauna- fólk. Sviss Bannað að tala á ferð Ztírich. Morgunbladið. HÆSTIRETTUR í Sviss hefur komist að þeirri niðurstöðu að öku- menn megi ekki halda á símtóli eða hafa það klemmt á milli axlar og eyra þegar þeir aka bíl. Símtal hef- ur ekki truflandi áhrif á ökuhæfi- leika þeirra, samkvæmt úrskurðin- um, en símtæki sem þeir þurfa að halda á kemur í veg fyrir að þeir geti ekið eins og umferðarlög gera ráð fyrir. Þeir hafa ekki báðar hend- ur til að stýra og stjórna tækjabún- aði bílsins ef þeir halda á símtóli í annarri hendi og þeir geta ekki hreýft höfuðið til að líta í bakspegil- inn eða til hliðanna ef þeir hafa tólið klemmt á milli axlar og eyra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.