Morgunblaðið - 03.06.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ1994 25
Orökstuddur söguburður
um atvinnulaust fólk
OPINBERLEGA
hefur verið fullyrt
með tilheyrandi
hneykslan að allt að
þriðjungur atvinnu-
lausra þiggi ekki
vinnu þó að í boði sé.
Enginn rökstuðningur
hefur fylgt þessari
fullyrðingu enda er
hún vægast sagt ótrú-
leg ef tekið er mið af
eftirfarandi. Sam-
kvæmt upplýsingum
um norrænan vinnu-
markað (Yearbook of
Nordic Sta. 1993) er
vinnuþátttaka okkar
og annarra Norðurlandaþjóða
þessi:(sjá töflu)
Vinnuþátttaka eldra fólks er
óvenju mikil á Islandi í saman-
burði við jafnaldra annars staðar
á Norðurlöndunum. Af þessu má
sjá að íslendingar sækja vinnuna
fast.
Á það skal bent að upplýsingar
frá árinu 1980, þ.e. fyrir atvinnu-
leýsistímabilið, gefa svipaðar
niðurstöður.
Annað veigamikið atriði sem
gefur til kynna vinnusemi okkar
er að þó að skammtímaljarvistir
frá vinnu séu nokkrar þá eru lang-
tíma- og heildarfjarvistir frá vinnu
til muna minni hér á landi en
meðal nágrannaþjóða. (Ó. Ólafs-
son: Hóprannsókn Hjartavemdar
1993.)
Á ferðum mínum um landið
hefí ég leitað upplýs-
inga hjá fólki er sinnir
sk. átaksverkefnum
og atvinnuskapandi
aðgerðum. Undan-
tekningarlaust telja
menn að atvinnumiss-
ir sér gríðarlegt áfall
og að fólk þiggi vinnu
ef svo ber undir.
Vissulega eru til und-
antekningar, en varða
oftast sk. „íhlaupa-
eða átaksvinnu“ í
skamman tíma og oft
við gerólík störf en
menn eru vanir, og
skal ég nefna nokkur
dæmi:
* Auglýst var eftir tveimur
iðnaðarmönnum. Fleiri tugir iðn-
íslendingar sækja fast
eftir vinnu, segir Olafur
Olafsson, og vinnufælni
er þeim ekki í blóð borin.
aðarmanna sóttu um störfín en
þar eð störfin reyndust mjög sér-
hæfð var enginn ráðinn.
* Hringt var í tvo iðnaðarmenn
og þeim boðin átaksvinna í
nokkrar vikur sem átti að hefjast
daginn eftir. Þessir iðnaðarmenn
höfðu aðlagað lífsmynstur sitt
að lífí atvinnulausra, þ.e. þeir
sinntu heimili og gættu barna. Á
svo stuttum tíma gátu þeir ekki
komið börnunum í fóstur svo að
þeir urðu að neita boðinu.
* Hringt var í atvinnulausa
skrifstofukonu, sem hafði verið
atvinnulaus í eitt og hálft ár og
hafði fimm sinnum sótt um vinnu
áður, en verið hafnað. Höfnunin
hafði haft þau áhrif að hún missti
kjarkinn og dró sig í hlé. Þessi
viðbrögð eru algengustu fýlgik-
villar atvinnuleysis, er hefur
djúpstæðari áhrif en flesta grun-
ar. Hún afþakkaði starfið. Eftir
góða aðstoð og uppörvun fólks
sem sinnti atvinnuskapandi að-
gerðum virðist sem hún hafi aft-
ur öðlast trúa sjálfa sig og hefur
nú fengið starf.
Margt bendir til þess að við
þolum illa atvinnuleysi. T.d. er
það vel þekkt að fólk sem missir
atvinnu í litlum kaupstöðum úti
á landi forðar sér fljótlega til
margbýlisins á höfuðborgar-
svæðinu en þar hverfa menn
frekar í fjöldann.
* Konu sem misst hafði lág-
launastarf og fékk atvinnuleysis-
bætur og barnabætur að upphæð
50.000 kr. á mánuði var boðið
starf, er launað var með um
50.000 kr. á mánuði. Hún af-
þakkaði. Lái henni hver sem vill!
Flest þessara dæma urðu tilefni
til mjög ýktra sögusagna um
starfstregðu atvinnulausra. En við
skulum hinkra við og skoða áhrif
Ólafur Ólafsson
þess að svo er komið að lágmarks-
laun sem ætluð eru til lágmarks-
framfærslu ná vart atvinnuleysis-
bótum í þessu landi. ísland er í
sérflokki hvað þetta varðar miðað
við nágrannalönd. Lág laun og
lágar atvinnuleysisbætur.
Tilangur þessa greinarkorns er
að benda á að íslendingar sækja
vinnumarkaðinn fast og að vinnu-
fælni er þeim ekki í blóð borin.
Órökstuddar fullyrðingar um hið
gagnstæða fá því ekki staðist.
I annan stað er trúlega gagn-
legt að sumir forystumenn vinnu-
markaðarins kynni sér betur áhrif
og afleiðingar atvinnuleysis. Ef til
vill er besta ráðið gegn rógi að
þegja og gera skyldu sína en ég
deili aldrei við menn ef ég tel
einskis vert hvaða skoðun þeir
hafa.
Höfundur er íandlæknir.
(W^ FLISAJ *
I
J %
\lt Hti r
V f r
1 M
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44
VINKLAR A TRÉ
HVERGI UEGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
^ EINKAUMBOÐ
^Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
VIRKA
AUGLÝSIR
Verslun okkar á Klapparstíg, sem var lokað 1. júní, hefur
sameinast Virku, Mörkinni 3 við Suðurlandsbraut.
Nú er allt á einum stað, tískufataefni, útsöluefni,
bútasaumsefni, saumavörur o.fl. o.fl.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18.
Lokað á laugardögum til 1. september
VIRKA
Mörkinni 3,
sími687477
I vlnnu af heildarmannfjölda 1991
Aldur 16-74 ára
ísland Danmörk Flnnland Noregur Svíþjóð
°/o % % % »/o
Karlar .................... 84,6 73,0 65,1 70,2 83,5
Konur ..................... 72,5 62,2 59,2 59,2 79,8
Alls ...................... 78,6 67,6 62,2 64,7 - 81,7'
1 Marglr f atvlnnuskapandi vinnu.
Vinnuþátttaka íslendinga er einna mest á Norðurlöndunum.
í vinnu af heildarmannfjölda 1991
Aldur 60-64 ára og 65-74 ára
ísland Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð
60-64 ára allir ..... 83,3 34,8 23,5 53,8 58,0
65-74 ára allir ..... 53,8 11,0 4,4 14,2 9,6
Mig langar aðeins
að vekja hér athygli,
segir Jón Aðalsteinn
Jónsson, á þessu
skemmtilegá og um leið
merka framtaki þeirra
hjóna á Skeiðflöt.
ast við og við myndir af löngu látnu
fólki, þar sem fyrnzt hefur yfir nöfn
þeirra. Lesendur Fb hafa svo á stund-
um borið kennsl á þetta fólk, og
koma nöfnin þá fram í næstu blöð-
um. Að sjálfsögðu er hið þarfasta
verk að freista þess að ráða í nöfn
þessa fólks, áður en það verður með
öllu um seinan.
Snemma tóku þau Eyþór og Sæ-
unn að birta í blaðinu minningarorð
um látna Skaftfeliinga, hvort sem
þeir áttu heima í sýslunni eða voru
burtfluttir. Þetta efni hefur aukizt
mjög og það svo, að t.d. með 1. og
2. tbl. þessa árgangs, sem er 40 bls.
að stærð fylgir sérstakt blað, Skaft-
fellingaþættir Fréttabúa, sem er 24
bls_.
í seinni tíð hafa svo birzt viðtöl
við fjölda búenda þar eystra. Þessi
viðtöl eru áhugaverð, enda felst jafn-
framt í þeim saga sveitanna og saga
þeirrar þróunar, sem átt hefur sér
stað á liðnum áratugim. Þessi viðtöl
hafa þess vegna heimildagildi fyrir
ókomnar kynslóðir.
Eg get fullyrt af reynslu minni
af Fb., að hann kafnar ekkj undir
nafni, síður en svo. En mig furðar
einungis á því, hvernig þau geta
haldið blaðinu gangandi og það í
hjáverkum frá mikilli vinnu við
myndarlegt bú sitt. Það sýnir svo
mikla fórnarlund, að ekki má láta
liggja alveg í láginni að geta um
þetta mikla og óeigingjarna starf,
sem þau inna af hendi í þágu sýsl-
unga sinna og um leið allra þeirra,
sem gaman hafa af að fylgjast með
daglegu lífi Skaftfellinga.
Af framansögðu þykir mér þess
vegna undarlegt og reyndar óskilj-
anlegt, hvernig á því stendur, að allt
of margir lesendur trassa að greiða
það hóflega áskriftargjald, sem upp
er sett. Hefurþað verið 1.500 krónur
á ári, en verður því miður að hækka
upp í 2.000 kr., þar sem nú leggst
á þessa útgáfu eins og annað lesefni
í landi okkar hinn mjög svo vafasami
virðisaukaskattur. Er svo komið,
samkvæmt umsögn í síðasta tbl., að
þau Skeiðflatarhjón neyðast til að
strika út nöfn nokkurra tuga áskrif-
enda. Er mikil skammsýni að láta
sig muna um þessar krónur, því að
hér er á ferð óvenjumerkilegt átak,
sem sjálfsagt er að styrkja með ráð-
um og dáð, meðan þau Eyþór og
Sæunn treysta sér til að fórna nær
öllum tómstundum sínum fyrir þetta
áhugamál sitt. Þetta bið ég þá les-
endur Fb, sem kunna að lesa þessar
línur, að íhuga vandlega. Jafnframt
hvet ég Skaftfellinga, bæði heima-
menn og burtflutta, sem og aðra þá,
sem vilja fylgjast ineð því, sem ger-
ist úti á landsbyggðinni, eindregið
til þess að gerast áskrifendur
Fréttabúa.
Höfundur er orðabókarritsjóri.
3J XjJ-jJJjij
Ingvar og Óskar,
gríllmeistaramir á
Argentínu steikhúsi,
gefa ráð sem
svínvirka á gríllið f altt sumar.
lilílverður grísaveisla í allt sumar.
Þú gríllar með elskunni, vinunum,
í brúðkaupinu, með fótbottaliðinu
og þegar sólin skín.
Hefur þú haldið grísaveislu nýlega?
að kjötia
feslíst Bkki
á grillinu er nauösyntegt að
hafa grindumar hrelnar.
þena allan vökva af kjötinu
I og pensla það með olíu.