Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 44

Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ I NAFNl FOÐURINS' ★ ★★★ HH. PRESSAN ★ ★★★ Al. MBL ★ ★★★ JK. EINTAK Allra siðustu sýningar á þessari stórkostlegu mynd sem yfir 21.000 manns hafa séð. FÓLK í FRÉTTUM Tíska Frumkvöðlar tískunnar NÝ TÍSKA haslar sér gjarnan völl fyrir tilstuðlan frægs fólks. Það er víst fræga fólkið sem allir vilja líkjast. Þegar tískufrömuðir ganga á lagið og klæða stórstjörn- ur upp fyrir meiriháttar viðburði stelur klæðnaður þeirra oft senunni. Frægt fólk hefur vald til að hneyksla, vegna þess að í huga margra er það hin fullkomna fyrirmynd. Það þykir sæta tíðindum ef það breytir út af venjunni. Þá rjúka allir upp til handa og fóta og apa það eftir því. Þróun tískunnar í heiminum hefur verið ör og hér má greina ýmislegt sem stendur upp úr þegar litið er til baka. Árið 1967 gaf John Lennon vissa yfirlýsingu með því að mála RoIIs Royce bifreið sína. Peningar skipta engu máli. Árið 1953 þótti svalt að ganga um í svört- um leðurjakka eins og Marlon Brando. Árið 1963 fengu Bítlarnir sér sveppakoll og söngvar þeirra báru ferskt yfirbragð: „Er ég stúlka? Er ég drengur? Hef ekki hug- mynd. Yeah! Yeah! Yeah!“ FOLK Johnny Depp gerir stuttmynd til höfuðs eiturlyfjum Árið 1955 komust hvítir stuttermabolir í tísku fyr- ir tilstuðlan James Dean. Árið 1975þóttu konur vera í lagi og karlar líka. Bæði kynin gengu því í eins fatnaði. Abba kom fyrst fram í samfestingum. FOLK Gæfan er fallvölt ►LEIKARINN Leslie Nielsen hefur slegið í gegn fyrir frammistöðu sína í kvikmynd- unum Beint á ská og er mjög virtur gamanleikari. Hann seg- ir sjálfur: „Framkoma mín gef- ur það líklega til kynna að ég viti hvað ég tali um. Samt hef ég alltaf vit- að ég er ekki frá- brugðinn öðru fólki og ógæfa getur beðið mín handan við hom- ið.“ Leslie Nielsen, Anna Nicole Smith og Prisc- illa Presley í hlutverk- um sínum í kvikmynd- inni Beint á ská 33 1/3. Johnny Depp setti nafn unn- ustu sinnar og fyrirsætunnar Kate Moss á þakkariista stuttmyndarinnar. Snarar hann með kynlífí ►„ÞÆR eru erótísk- ar,“ segir Mádchen Amick um ástarsen- ur sínar og James Spader í kvik- myndinni „Dream Lover“. „En þær eru ekki óþarfar. Þær eru mikil- vægar söguþræð- inum.“ Auðvitað eru þær það — draumastúlkan nær honum til sínum með kyn- lífi áður en hún breytir lífi hans í helvíti á jörðu. Forsýningar- gestir brugðust svo sterkt við persónu hennar að endir kvik- myndarinnar var unninn upp á nýtt. „Hún er ekki ill. Hún er dálítið trufluð — það er allt og sumt. Hún er að hefna sín fyrir þá þjáningu sem menn hafa valdið henni.“ ►KVIKMYNDALEIKARINN Johnny Depp sýndi nýja stutt- mynd eftir sig á fjáröflunar- kvöldi sem haldið var til styrktar forvarnarstarfi og fræðslu í fíkniefnamálum. Boðskapur stuttmyndarinnar var í anda kvöldsins og varaði við eiturlyfjum á krassandi hátt. I henni er tónlist eftir margar frægar hljómsveitir og má þar nefna Nine Inch Nails, Iggy Pop og einhverra hluta vegna Janes Addiction. Stuttmyndin dró upp dökka mynd af eiturlyfjamisnotkun, jafnvel svo að mörgum frum- sýningargesta þótti nóg um. Kelly Lynch sagði um mynd- ina: „Mér fannst Johnny draga upp myndir af persónum sem koma fólki til að forðast vímu- efni. Honum tókst afar vel upp, tónlistin var yndisleg og persónusköpunin mjög sterk. Eg þurfti oft að líta undan.“ Cher tók sér frí frá skriftum en hún vinnur að sjálfsævi- sögu sinni um þessar mundir. Hér sést hún ásamt yósmynd- aranum Herb Ritts. Courtney Love, ekkja söngvarans Kurts Coba- in, hefur bitra reynslu af eiturlyfjum. Hún lét sig ekki vanta á fjáröflunar- kvöldið. HASKOLABIO SfMl 22140 Háskólabíó U ndirbúningiir í fullum gangi STÚLKURNAR sem taka þátt í fegurðarsamkeppninni um titilinn „Ungfrú Oroblu“ og „Ungfrú American Dream“ undirbúa sig af kappi þessa dagana. Þær hitt- ust sl. þriðjudagskvöld á veitinga- staðnum Marhaba og slökuðu að- eins á, ekki veitir af. Keppnin fer síðan fram í kvöld, föstudaginn 3. júní kl. 20.30, á Hótel íslandi. Heiðar Jónsson verður kynnir og boðið er upp á tískusýningar, danssýningar og skemmtiatriði. Stúlkurnar sem keppa um titilinn heita: Erla E. Gunnarsdóttir, Elín Knudsen, Guðrún Rut Hreiðars- dóttir, Ingunn Svala Leifsdóttir, Harpa Sigmarsdóttir, Sara Guð- mundsdóttir, Kristborg Magnús- dóttir, Sigrún Þorgilsdóttir, Katla Einarsdóttir, Hrafnhildur Sigurð- ardóttir, Oddný M. Arnbjörnsdótt- ir og Edda M, Hilmarsdóttir. Magadansmær skemmti stúlkunum á Marhaba. ALLAR fegurðardísirnar saman komnar ásamt Ara Singh frá íslensk-austurlenska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.