Morgunblaðið - 03.06.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Breskur togari landar 100 tonnum af þorski og ýsu hjá Vinnslustöðinni í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðid.
BRESKUR ísfisktogari landaði
100 tonna afla hjá Vinnslustöðinni
í Vestmannaeyjum í gær. Aflann
fékk togarinn sunnan við Bjarna-
rey og að sögn Sighvatar Bjarna-
sonar, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar, er fiskurinn
ágætur til vinnslu og fór í fryst-
ingu og söltun. Áratugir eru síðan
breskir togarar hafa landað afla
hérlendis og með löndun togarans
í Eyjum í gær má segja að búið
sé að snúa við blaðinu miðað við
undanfarin ár þegar fiskur frá
íslandi hefur streymt á markaði á
Humber-svæðinu.
Það er fyrirtækið Icebrit í Hull
sem hefur haft milligöngu um
komu togarans til Eyja. Páll
Sveinsson, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, segir að vegna lágs
verðs á Humber-svæðinu að undan-
förnu hafí opnast möguleiki á að
gera tilraun með að kaupa fisk af
breskum togurum hérlendis. Páll
sagði að annar togari með ísfisk
væri væntanlegur til Eyja næsta
sunnudag og væru þessar tvær
landanir tilraun sera ætti síðan að
skoða og meta hver útkoman væri.
Páll sagði að afli togarans sem
landaði í Eyjum í gær hafí verið
rúm 100 tonn, þorskur og ýsa til
helminga. Fiskurinn hafí verið
þokkalega góður enda elsti fiskur-
inn ekki nema átta daga gamall.
Verðið sem Bretarnir fá fyrir afl-
ann í Eyjum er svipað og á
Humber-svæðinu en siglingin frá
miðunum er um þremur sólarhring-
um styttri og það væru þeir að
horfa í. Aflinn sem landað var í
gær var allur laus í stíum en fiskur-
inn sem kemur á sunnudaginn er
í kössum.
Páll sagði að þetta væri spenn-
andi tilraun og ef hún kæmi vel
út fyrir báða aðila þá gæti orðið
framhald á og ljóst væri að mikið
væri í húfi fyrir Islendinga að þetta
gengi vel. Með þessu móti mætti
fá góða viðbót af þorski til vinnslu
og ekki veitti af miðað við þorsk-
kvóta landsmanna.
Fyrsta löndunin íáratugi
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
MEÐAN 100 tonnum af þorski og ýsu var landað úr breska togaranum í Vestmannaeyjahöfn í gær
virtu Páll Sveinsson, framkvæmdastjóri Icebrit, og Guðmundur Ingi Guðmundsson, útgerðarmaður
Hugins, fyrir sér aflann sem kom á land og virtust bærilega ánægðir með gæðin.
VINNSLUSTÖÐIN auglýsti í
gær eftir starfsfólki á kvöldvakt
hjá fyrirtækinu. Um er að ræða
vinnutíma frá kl. 17 til kl. 22.
Sighvatur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar, segir að með þessu sé verið
að kanna hvort lengja megi
vinnudaginn og fá þá nýtt fólk
inn til vinnu á þessum viðbótar-
tíma á hveijum degi. „Þetta er
tilraun okkar til að viðhalda at-
vinnu í fyrirtækinu,“ sagði Sig-
hvatur.
Vinnslustöðin stefnir að því
eftir breytinguna að vinna meira
hráefni en hingað til og afla hrá-
efnis til vinnslu með kaupum á
físki af rússneskum og breskum
Kvöldvakt-
ir í Vinnslu-
stöðinni
togurum. Sighvatur segir að um
tilraun verði að ræða og kannað
verði hvort hliðra megi til vinnu-
tímanum hjá starfsfólki sem fyrir
er. Hann segir að það sé ákveðið
vandamál að mun fleira fólk fæst
til vinnu fyrir hádegi en eftir.
Launakjör þess fólks sem vinnur
eftir kl. 17 verður hefðbundin
yfirvinna, samkvæmt samning-
um, en Vinnslustöðin hefur farið
fram á í viðræðum við verkalýðs-
félögin að koma á fót vaktavinnu
með 35% til 50% vaktaálagi.
Sighvatur sagði að það réðist
af undirtektum fólks hvort tækist
að manna kvöldvinnuna og þegar
það lægi fyrir yrði tekin ákvörðun
um framhaldið. Hann sagði að
þessi hugmynd um kvöldvinnu
væri í tengslum við landanir er-
lendra skipa í Eyjum og þeir
horfðu til bresku togaranna í því
sambandi. Hann sagði að eftir
að búið yrði að vinna aflann úr
þeim tveim förmum sem þegar
hafa verið keyptir af Bretum yrði
ákvörðun tekin um framhaldið.
Siglingin er
styttrien
verðið svipað
Rannveig Guðmundsdóttir hættir sem
varaf ormaður Alhýðuflokksins
Kýs að standa ut-
an við þessi átök
RANNVEIG Guðmundsdóttir hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér
áfram sem varaformaður Alþýðu-
flokksins á flokksþinginu um aðra
helgi. „Ég hef tjáð formanninum,
að ég gefi ekki kost á mér og kjósi
að standa utan við þessi átök,“ sagði
Rannveig í samtali við Morgunblað-
ið.
„Ég kom inn í varaformannsemb-
ættið við mjög einkennilegar að-
stæður i fyrra í kjölfar átaka og
ástæða þess að ég settist í stól vara-
formanns var gífurlegur þrýstingur
og sterkar óskir fólks í flokknum,
sem hefur staðið mér nærri, um að
leysa hnút sem virtist óleysanlegur,
þar sem ekki var flokksþing fram-
undan og ekkert útkljáð um for-
mannsmálin. Ég varð við þessari
sterku ósk þá. Nú er komið að þessu
uppgjöri og ég hef fyrir nokkru síð-
an gert það upp við mig að ef þessi
mál hafa ekki verið sett niður, þegar
komið er að flokksþingi og átök
verði áfram um formannssætið, þá
kjósi ég að skipa mér ekki í raðir.
Ég hef gert það upp við mig að ég
vilji ekki vera dregin inn í þessi átök
og það er í fullri sátt sem ég hef
fyrir nokkru ákveðið að taka ekki
þátt í kosningum til forystu við þess-
ar aðstæður," sagði Rannveig.
Aðspurð hvort hún styddi Jón
Baldvin eða Jóhönnu til formanns
sagðist Rannveig ekki ætla að fara
að blanda sér í þessi átök. Bkki
náðist í Jóhönnu Sigurðardóttur í
gær.
Þyrlan kemur eftir ár
SAMNINGAR milli íslenska
ríkisins og franska fyrirtækis-
ins Aerospatiale um kaup á
Super Puma þyrlu fyrir Land-
helgisgæsluna voru undirritaðir
í gær, en það gerðu þeir Frið-
rik Sophusson, fjármálaráð-
herra og Þorsteinn Pálsson,
dómsmálaráðherra, fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar. Hafsteinn
Hafsteinsson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að hann
væri afar ánægður með að mál-
ið væri í höfn. „Við fáum þyrl-
una afhenta eftir 12 mánuði,"
sagði hann. „Flugmenn okkar
fara í þjálfun á því tímabili og
við munum standa klárir þegar
þyrlan kemur.“
Alþingi 17. júní
Fundað um
stjórnar-
skrána og
hátíðarsjóð
ÁKVEÐIÐ hefur verið að á hátíðar-
fundi Alþingis á Þingvöllum þann
17. júní verði afgreiddar tvær tillög-
ur, annars vegar um endurskoðun á
mannréttindakafla stjómarskrárinn-
ar og hins vegar um stofnun sér-
staks hátíðarsjóðs.
Salome Þorkelsdóttir, forseti Al-
þingis, sagði að formenn allra þing-
flokka hefðu fundað í gær og verið
sammála um að þingfundurinn myndi
afgreiða þingsályktunartiilögu um
endurskoðun 7. kafla stjórnarskrár-
innar, sem geymir manréttinda-
ákvæði hennar.
Einnig samþykktu þingflokksfor-
menn að á fundinum yrði afgreidd
þingsályktunartillaga um stofnun
hátíðarsjóðs, sem í skulu renna 100
njillj. kr. árlega næstu fimm árin.
Helmingi fjárhæðarinnar skal varið
til átaks í vistfræðirannsóknum á líf-
ríki sjávar og afgangnum til eflingar
íslenskri tungu.
-----» ♦ ♦----
Ungfrú
heimur í
heimsókn
UNGFRÚ heimur, Lisa Hanna, kem-
ur hingað til lands mánudaginn 13.
júní nk. til að vera viðstödd stofnun
góðgerðarsamtaka fyrir langsjúk
börn á vegum líkams- og heilsurækt-
arinnar Baðhússins.
„Þetta kvöld bjóðum við allar kon-
ur velkomnar í Baðhúsið til að kynn-
ast Ungfrú heimi, en þó fyrst og
fremst til að leggja sitt af mörkum
í þágu langveikra barna sem þurfa
meðal annars fjárstuðning til að
komast í aðgerðir erlendis," segir
Linda Pétursdóttir, fyrrverandi
Ungfrú heimur og framkvæmdastjóri
Baðhússins sem býður Lisu Hanna
til landsins ásamt Eurocard.
Að sögn Lindu mun Bamaspítali
Hringsins taka saman lista með nöfn-
um bama sem á aðstoð þurfa að
halda.
-----» ♦ »----
Viðræðum
var frestað í
Hafnarfirði
VIÐRÆÐUM Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði um
myndun meirihluta í bæjarstjórn var
frestað í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir
öðrum fundi í kvöld.
Að sögn Magnúsar Jóns Árnason-
ar, fulltrúa Alþýðubandalagsins,
hafa fulltrúar flokkanna ræðst við
frá því á miðvikudag. Í lok fundar-
ins, sem haldinn var í gærkvöldi,
óskuðu sjálfstæðismenn eftir fresti
til að ræða við sitt fólk.
-----» ♦ »
Samið um sam-
starf á Selfossi
SAMKOMULAG hefur verið undir-
ritað milli D- og K-lista á Selfossi
um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
næsta kjörtímabil.
Sigríður Jendsóttir, K-lista, verður
forseti bæjarstjómar og Sigurður
Jónsson formaður bæjarráðs fyrsta
árið. Eftir það verða stólaskipti.
Karl Bjömsson hefur verið endurráð-
inn bæjarstjóri.
.
I
-