Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 9
FRÉTTIR
Nýr bæjarsljórnarmeirihluti á Egilsstöðum
Yilja fá þyrlu
til Egilsstaða
Morgunblaðið/Júlíus
VEL gekk að ná froðunni upp með nýju dælunum, en þær skilja mengunina frá sjónum.
Mengunarvarnir með
nýjum búnaði æfðar
NÝR bæjarstjórnarmeirihluti hefur
verið myndaður á Egilsstöðum og
mynda hann tveir fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks og tveir fulltrúum Al-
þýðubandalags. Meðal mála sem
meirihlutinn leggur áherslu á er að
björgunarþyrla frá Landhelgisgæsl-
unni verði staðsett á Egilsstöðum.
Á Egilsstöðum mynduðu áður
meirihluta Framsóknarflokkur og
Óháðir. Sjálfstæðismenn bættu við
sig manni í kosningunum, Framsókn-
arflokkur tapaði einum, en Alþýðu-
bandalag og Óháðir héldu sínu. Bæj-
arstjórinn, Helgi Halldórsson, kemur
úr röðum sjálfstæðismanna, en hann
var forseti bæjarstjórnar 1986-
1990. Þuríður Bachmann verður for-
seti bæjarstjórnar, Einar Rafn Har-
aldsson, Sjálfstæðisflokki, formaður
, bæjarráðs fyrstu tvö ár kjörtímabils-
ins, en Sveinn Jónsson, Alþýðu-
bandalagi, seinni tvö árin.
Meirihluti myndaður í
Hor nafj ar ðar bæ
Gert hefur verið samkomulag um
myndun meirihluta í bæjarstjórn
Hornafjarðarbaíjar og mynda hann
3 fulltrúar af D-!ista og 3 fulltrúar
af H-lista Kríunnar. Þessi framboð
skipuðu meirihluta í bæjarstjórn
Hafnar sl. átta ár og fengu sex full-
trúa í bæjarstjórn hins nýja sveitar-
félags við Hornafjörð á móti þremur
fulltrúum Framsóknarflokks. Forseti
bæjarstjórnar verður Gísli Sverrir
Árnason af H-lista og formaður
bæjarráðs Albert Eymundsson af
D-lista. Sturlaugur Þorsteinsson
verður áfram bæjarstjóri.
Þriggja flokka stjórn í
Vesturbyggð
Mynduð hefur verið meirihluta-
stjórn A-lista, B-lista og F-lista
óháðra í Vesturbyggð, nýju samein-
uðu sveitarfélagi á sunnanverðum
Vestfjörðum. Samkomulag um þetta
tókst í fyrrakvöld, en daginn áður
höfðu átt sér stað viðræður D-lista,
sem hlaut fjóra bæjarfulltrúa af níu
í kosningunum, og F-lista, en upp
úr þeim slitnaði þegar í ljós kom að
F-listinn var samhliða í viðræðum
við_ hina flokkana.
í öðru nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi, Dalabyggð, hafa átt sér stað
óformlegar viðræður milli K-lista
samtíðar, L-lista samstöðu og S-
lista, Dalabyggðarlistans. Að sögn
Sigurðar Rúnars Friðjónssonar, sem
skipar fýrsta sæti S-lista, eru viðræð-
umar þó aðallega milli S-lista og
K-lista, og er samkomulag um sam-
starf þar í augsýn. Sagðist hann
gera ráð fyrir að línur tækju að skýr-
ast í kvöld.
Á Seyðisfirði hafa sjálfstæðismenn
fengið beiðnir um viðræður um
myndun meirihluta, bæði frá Tind-
um, félagi jafnaðar- og vinstri-
manna, og framsóknarmönnum.
Tindar fengu það svar að byijað yrði
á að ræða við Framsóknarflokkinn
og eru þær viðræður hafnar og stefnt
að því að ljúka þeim í þessari viku
eða næstu.
UM 60 manns víðs vegar af Suð-
vesturlandi tóku þátt í inengun-
arvarnaræfingu við Reykjavík-
urhöfn í gær. A æfingunni var í
fyrsta skipti prófaður nýr meng-
unarvarnarbúnaður sem hafnirn-
ar á Suðvesturlandi og Siglinga-
máiastofnun ríkisins eiga sameig-
inlega.
Starfsmenn hafna frá Þorláks-
höfn til Akraness voru á æfing-
unni, auk starfsmanna frá slökkvi-
liði, lögreglu, Landhelgisgæslu,
Slysavarnafélaginu og olíufélög-
unum. Á æfingunni var farið yfir
hvernig búnaðurinn virkar og
hvernig bregðast á við mismun-
andi aðstæðum sem upp koma.
Eftir hádegi var mengunar-
varnarbúnaðurinn prófaður í
Reykjavíkurhöfn. Froðu var dælt
í höfnina og henni siðan dælt upp
aftur með nýrri dælu sem fleytir
mengunina ofan af sjónum. Nýju
flotgirðingarnar, sem hægt er að
umkringja olíuflekkina með,
verða framvegis geymdar í tveim-
ur gámum í Reykjavík. Verði
mengunarslys utan Reykjavíkur
er hægt að aka með gámana með
stuttum fyrirvara út á land þar
sem þeirra er þörf. Nýju girðing-
arnar, olíudælurnar og mengunar-
varnarvagn Reykjavíkurhafnar
eru miklu öflugri mengunarvarn-
artæki en áður hafa verið til í
landinu. Með tilkomu þeirra má
segja að íslendingar séu þokka-
lega vel í stakk búnir til að takast
á við mengunarslys í höfnum
landsins.
Farsíminn
ódýrari í
frístimdnm
PÓSTUR og sími býður nú lægra
stofngjald og afnotagjald í farsíma-
kerfinu fyrir þá sem aðallega nota
farsíma á kvöldin og um helgar.
Farsímar i NMT-kerfínu eru mikið
notaðir í atvinnulífi og álag er mest
yfir daginn. Hinir svokölluðu frí-
stundafarsímar, eru hins vegar hugs-
aðir fyrir einkaaðila t.d. sumar-
bústaðaeigendur og eldra fólk sem
vill hafa farsíma sem öryggistæki.
Hægt verður að nota frístundafar-
síma allan sólarhringinn en tekið
verður þrefalt farsímagjald þegar
hringt er úr þeim á virkum dögum
milli kl. 8 og 18. Eftir kl. 18 og fram
til átta á morgnana og um helgar
kostar sama að hringja innanlands
úr frístundafarsíma og venjulegum
farsíma eða kr. 16,60 mínútan. Sá
sem hringir í frístundafarsímanúmer
greiðir alltaf venjulegt farsímagjald.
Stofngjald fyrir frístundafarsíma
er kr. 2.490 en ársfjórðungslegt af-
notagjald kr. 498. Fyrir aðra farsíma
í NMT-kerfinu er stofngald 11.691
kr. og ársfjórðungsgjald 1.519 kr.
Vilji sá sem hefur frístundafarsíma
breyta yfir í almenna notkun þarf
hann að greiða mismuninn á stofn-
gjaldi. Ef venjulegur farsímanotandi
vill breyta yfir í frístundanúmer kost-
ar það hann 2,328 ki'.
Kaþólskt messu-
hald í Viðey
Á sunnudagsmorgun kl. 11 verð-
ur sá sögulegi atburður í Viðeyjar-
kirkju að þar verður sungin fyrsta
almenna rómversk-kaþólska mess-
an frá því um siðbreytingu eða
nánar tiltekið árið 1550. Fyrir því
messuhaldi stendur St. Jósefssöfn-
uðurinn í Hafnarfirði, sr. Hjalti
Þorkelsson flytur _messuna en org-
anleikari verður Ágúst Ágústsson.
Kl. 15.15 á sunnudag verður svo
staðarskoðun. Hún hefst í kirkjunni
en síðan verður gengið um næsta
nágrenrii húsanna, hugað að ör-
nefnum og fleiru. Þá verður forn-
leifauppgröfturinn skoðaður og loks
útsýnið af Heljarkinn. Staðarskoð-
unin tekur innan við þijá stundar-
fjórðunga. Hún er öllum auðveld
og krefst ekki neins sérstaks búnað-
ar.
Að venju verður gönguferð á
laugardag kl. 14.15 og að þessu
sinni verður farið á Vestureyna.
Reynt verður að sameina náttúru-
skoðun og sögulegan fróðleik. Hug-
að verður að varpi og öðru fugla-
lífi, skoðaðir steinar með áletrunum
frá fyrri hluta 19. aldar, einnig
rústir gömlu Sauðahúsanna, ból
lundaveiðimanna o.fl. Ráðlegt er
að vera á góðum gönguskóm, ^n
gangan tekur um eina og hálfa
klukkustund.
Kaffiveitingar verða á boðstólum
í Viðeyjarstofu báða dagana. Báts-
ferðir verða úr Sundahöfn á heila
tímanum frá kl. 13.
Þriggja rétta
kvöldverður
kr. 990
W —Q i s t o r a n t c—
\s er r>i
Suðurlandsbraut 14,
sími 811844.
Ný sending
ólar,dragtir, jakkar
Opið
laugardag
10-16
Hverfisgötu 78,
sírni 28980.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunnh
47 milljónir
Dagana 26. maí til 1. júní voru
samtals 47.427.602 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
27. maí Ölver...................... 166.751
27. maí Sæluhúsiö, Dalvík............ 85.530
28. maí Pizza 67, Hafnarfiröi....... 130.796
29. maí Háspenna, Laugavegi....... 117.115
30. maí Mónakó....................... 60.261
30. maí Háspenna, Hafnarstræti.... 66.117
31. maí Ölver....................... 125.000
l.júní Háspenna, Laugavegi....... 212.330
1. júní Háspenna, Laugavegi....... 65.810
1. júní Ölver........................ 70.592
Staöa Gullpottsins 2. júní, kl. 12:00
var 5.830.000 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf f 50.000 kr. og Gullpottarnir f 2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.