Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 12

Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Fjármála- sjónvarp Reuters London. Reuter. EIGNARHALDSFÉLAG Re- uter-fréttastofunnar hefur hleypt af stokkunum fjármála- sjónvarpi, Reuters Financial Television (RFTV), sem mun flytja beinar fréttasendingar frá fjármálamörkuðum og um- sagnir sérfræðinga um það markverðasta sem er að gerast hvetju sinni. Mark Wood, aðalritstjóri og framkvæmdastjóri, sagði af þessu tilefni að þetta væri „fyrsta raunverulega alhliða fjölmiðlaþjónusta Reuters" og að viðbrögð viðskiptavina væru mjög jákvæð. Búnaði til tilraunasendinga hefur verið komið fyrir á 35 stöðum í Bretlandi og 10 lönd- um á meginlandi Evrópu. Fjármálasjónvarpið hefst á hverjum morgni með 15 mín- útna yfírliti frá nýrri aðalbæki- stöð Reuters í London. Viðskipta- o g hagfræðingar í golfi FÉLAG viðskipta- og hagfræð- inga heldur sitt árlega golfmót föstudaginn 10. júní á Strand- velli við Hellu. Keppt verður í A og B flokki karla og í fyrsta skipti í kvennaflokki. Miðað er við að keppendur í bytjenda- flokki hafí forgjöf 24 og hærra. Keppt verður m.a. um far- andgripi sem viðskiptablað Morgunblaðsins og Hard Rock Café gefa. Mótið hefst kl. 13 og verða leiknar 18 holur. Far- ið verður með rútu frá Hótel Holiday Inn kl. 11. Eftir að mótinu lýkur verður snæddur kvöldverður í golfskála Strand- vallar þar sem mótinu verður slitið og verðlaun afhent. Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráðherra heimsækir Akranes Lausnir á vanda skipasmíðaiðn- aðar efst á baugi Akranesi - Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráðherra var á Akra- nesi fyrr nokkru og heimsótti ýmis fyrirtæki á staðnum og kynnti sér starfrækslu þeirra. Einnig átti ráðherrann fund með bæjarfulltrúum og hélt síðan almennan fund þar sem hann ræddi stöðu iðnaðarins og gang þjóðmála. Meðal þeirra fyr- irtækja sem ráð- herrann heimsótti var skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf., en fyrirtækið hefur átt í miklum fjárhagslegum erf- iðleikum frá 1989 og m.a. gengið í gegnum tvær greiðslustöðvanir. Starfsmenn skipasmíðastöðvar- innar hittu ráðherr- ann að máli og af- hentu honum álykt- un og spumingar tengdar störfum þeirra. Þar var m.a. atvinnuleysi sé um 10% á Akra- nesi og mikið í húfí að vel takist til með fjárhagslega endurskipu- lagningu fyrirtækisins. Ljóst sé að margfeldisáhrif af skipaiðnaði séu mikil og nái þau störf út fyrir fyrirtækið. Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu stjórnvalda um að einungis verði gripið til almennra aðgerða til að bjarga skipaiðnaðinum, eru sértækar aðgerðir í gangi af hálfu hins opinbera. Það er krafa okkar, segja starfs- mennirnir, að við séum ekki settir skör lægra. Þá er_ einnig spurt hvort stjórnvöld séu tilbúin til þess að beita ákveðnum stjórnvaldsað- gerðum til að örva viðhald og ný- Sighvatur Björgvinsson bent á að smíðaverkefni á vegum íslenskra útgerðarmanna eða munum við standa aðgerða- laus og horfa upp á áframhaldandi útflutning á at- vinnutækifæram í skipaiðnaðin- um. Margvíslegar aðgerðir Á almennum fundi á Akranesi síðar sama dag sagði ráðherrann í svari sínu til starfsmannanna, að það skipti miklu meira máli að tryggja rekstrarumhverfí skipasmíðaiðn- aðarins heldur en að fara út í ein- hveijar skuldbreytingar fyrirtækj- anna á tveggja ára fresti. Megin verkefni iðnaðarráðherra er að reyna að tryggja það að skipa- smíðastöðvarnar á Islandi fái þau verkefni sem geri þeim tryggt að starfa. Þetta hefur verið gert með margvíslegum aðgerðum, sagði ráðherrann. Sighvatur minntist einnig á umræður um hugsanlega samein- ingu fyrirtækja í skipasmíðaiðnaði á Faxaflóasvæðinu og sagði þá umræðu ekki snúa að öðra en könnun á hagkvæmni þess. RÁÐHERRAHEIMSÓKIM “ Sighvatur Björgvinsson, iðnað- arráðherra, var á Akranesi fyrir nokkra þar sem hann heimsótti m.a. skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf. Islenska útvarpsfélagið Hluthafafundur haldinn innan þriggja vikna HINN nýi meirihluti stjórnar íslenska útvarpsfélagsins gerir ráð fyrir að núverandi stjórn félagsins boði til hluthafafundar innan viku frá því að beiðni þess efnis var lögð fram sl. miðvikudag, svo sem kveðið er á í sam- þykktum félagsins. Að sögn Jóns Ólafssonar, stjórnarmanns, sem er einn þeirra sem myndað hafa nýjan meirihluta í félaginu, verður fráfarandi stjórn síðan að halda fund innan tveggja vikna, þannig hún hefur hámark þijár vikur til að halda hlutahafafundinn. Jón Ólafsson segir einnig að ekki séu nein áform uppi um breytingar á yfirstjórn fyrirtækisins, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, og ekkert slíkt standi til af hálfu þeirra sem nú eru að taka við stjórnartaumunum innan íslenska útvarpsfélagsins. Stjórnarmenn í Islenska útvarps- félagsins sem fram að þessu hafa verið í meirihluta í félaginu, munu Seglum [löndum um sundin blá á hinu glœ&ilega seglskipi, STS Kher&one$. % Nú gefst einstakt tækifæri til að sigla með alvöru seglskipi eins og |iau voru í gamla claga. Siglt verður frá Reykjavíkurliöfn á morgun, laugarclaginn 4. júní kl. 11. Komið verður til kaka kl. 17. Lágmarksaldur er 15 ára. Verðið er 2.900 kr. á mann. FERÐASKRIFST0E4 ÍSLANDS Skógarhlíð 18 ' Sími 62 33 00 101 Reykjavík • Fax 62 58 95 ekki ætla að taka sæti í nýrri stjórn. Að sögn Ingimundar Sigfússonar hefur ákvörðun ekki enn verið tekin um hvenær boðað verði til næsta stjórnarfundar en það verði bráðlega. Jóhann Óli Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann treysti sér ekki til þess á þessu and- artaki til að taka sæti í nýrri stjórn eftir allt sem á undan væri gengið. Þó að ljóst væri að hann ætti vel fyrir stjórnarsæti með hlut sínum í fyrirtækinu, þá blöskraði honum svo aðferðirnar sem Ingimundur Sigfús- son, Óskar Magnússon, lögmaður og umboðsmaður Siguijóns Sighvats- sonar hér á landi, og fleiri hefðu verið beittir að hann kysi miklu frem- ur að víkja heldur en sitja í þeim hópi sem þarna tæki við. Þorgeir Baldursson segist ekki með nokkru móti geta hugsað sér að starfa undir þessum kringum- stæðum þegar búið verði að gera þá breytingu sem fyrirhuguð sé. Hann kvaðst telja líklegt að valdir yrðu nýir menn til að setjast í stjórnina fyrir hönd minnihlutans. Töluvert væri í húfi og ekki hægt að láta félag- ið afskiptalaust. Ekki náðist í stjórnarmennina Stefán Gunnarsson og Ásgeir Bolla Kristinsson til að fá staðfestingu þeirra á því að þeir ætluðu ekki að taka sæti í nýrri stjórn íslenska út- varpsfélagsins. KLM skilar arði á ný Amsterdam. Reutcr. HOLLENZKA flugfélagið KLM skilaði aftur hagnaði í fyrra vegna mikils niðurskurðar og aukins far- þegafjölda. Félagið skilaði meiri nettó hagn- aði en við var búizt, eða sem svarar 55,7 milljónum dollara á tólf mán- aða tímabili til marzloka sl. Tapið 1992/93 var 303,8 milljónir dollara. Félagið segir að batinn hafi verið greinilegastur á síðari árshelmingi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.