Morgunblaðið - 03.06.1994, Page 30

Morgunblaðið - 03.06.1994, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 MIIMIMIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ ARNÞÓR ÓSKARSSON + Arnþór Óskars- son var fæddur í Reykjavík 19. febrúar 1947. Hann lést á heimili sinu í Reykjavík 26. maí síðastliðinn. Arn- þór var fyrsta barn foreldra sinna, Svanfríðar Orn- ólfsdóttur frá Súg- andafirði og Ósk- ars Þórðarsonar úr Borgarfirði. Yngri eru Svandís, f. 1954, og Ársæll, f. 1960. Arnþór gift- ist Hrönn Pálsdóttur 8. febrúar 1969. Þau eignuðust þrjú börn, Dagnýju, f. 1970, Berglindi, f. 1973, og Arnþór, f. 1979. Einn- ig eignaðst Arnþór dæturnar Lilju Dögg og Kristínu sem lést aðeins nokkurra mánaða gömul. Barnabörnin eru tvö, Sara Sif og Sveinn Aron, börn Dagnýjar og sambýlismanns hennar, Sveins Stefánssonar. Arnþór og Hrönn bjuggu lengst af í Reykjavík, en skam- . man tíma í grundarfirði og Stykkishólmi. Að loknu barna- og unglingaskólanámi lærði Arnþór skriftvélavirkjun og fékk meistararéttindi í þeirri grein. Rak hann viðgerð- arverkstæði í nokkur ár, en hætti þeim rekstri vegna van- lieilsu. Vann hann síðan ýmis störf, m.a. hjá Kirkjugörðum Hafnarfjarðar. Útför Arnþórs fer fram frá Fossvogskirkju í dag. ÞEGAR við minnumst Arnþórs bróður okkar, Addó eins og hann var ævinlega kallaður af fjölmörg- um vinum og skyldmennum, kemur okkur kannski fyrst í hug hetjuleg barátta hans síðustu árin við óvæg- inn sjúkdóm. Svo er um það er nær stendur í samtímanum. Fjær mun- um við hann kraftmikinn eldri bróð- ur, liðtækan til verka, óbilandi áhuga hans á boltaleikjum og þá sérstaklega knattspyrnunni. Öllum góðu minningunum verða ekki gerð skil í fáum orðum en því dýrmæt- ari að eiga og geyma. Öll sumur frá fjögurra ára aldri var Addó í sveit í Haga í Skorrad- «w>al hjá Halldóru og Þórði ömmu okkar og afa. Þegar honum óx ald- ur og geta til lagði hann þar drjúga hönd að verki til aðstoðar við sveitastörfin og reyndar alla tíð síðan meðan heilsan entist. Við þökkum honum þá margvíslegu aðstoð sem hann veitti ömmu okk- ar og afa, ekki síst þegar aldur þeirra knúði æ fastar að. Við systk- ini hans erum þakklát fyrir bjart- sýnina á vegferðinni, hjálpsemi hans hvenær sem með þurfti og allar gleðistundirnar. Foreldrum okkar var hann góður sonur. Árið 1949 fluttist hann með for- eldrunum í Blesugróf og átti þar ^heima sín skóla- og uppvaxtarár. Á þessum árum var Blesugrófín nokkuð úr leið og samgöngur við höfuðkjarna borgarinnar erfiðar. Á móti kom frelsi hinna ungu til bol- taleikja og útivistar. Þarna átti Addó góðar stundir með félögum á líku reki og tengdist mörgum þeirra vinaböndum sem aldrei rofn- uðu. Öll sín unglingsár stundaði hann íþróttir af kappi. Áhuginn og eljan var óbilandi. Við nutum þess að hann var eldri og veitti okkur leiðsögn og hvatningu þegar við sjálf fórum að taka þátt í bolta- íþróttum. Fyrir tvítugsaldur var Addó kominn á fulla ferð í íþróttunum. Hann spilaði handbolta með Knatt- spyrnufélaginu Fram og Glímufé- laginu Ármanni og á árunum fyrir 1970 var hann í hópi félaga sinna sem stofnuðu knattspyrnudeild Ármanns og var þar í fyrstu stjórn. Þar lék hann í marki um árabil. Síðar sneri hann sér að dómara- störfum í knattspyrnu og fékk til þess réttindi og dæmdi fjölda leikja í yngri flokkum og eldri. Addó átti fleiri áhugamál svo sem vísnagerð og harmonikuleik en fyrst og síðast var það knattspyrnan sem heillaði hann. í landi afa síns í Haga eignaðist Arnþór með íjölskyldunni sumarbústað og við þann stað var hugur hans bundinn. Þar átti hann nokkrar ánægju- legar stundir sér til lífsfyllingar. Árið 1981 greindist hann með höfuðmein og gekkst undir geisla- lækningu sem tók verulegan toll af þreki hans. En þrátt fyrir það vildi hann aldrei telja hvorki sjálf- um sér né öðrum trú um að hann gæti ekki sjnnt verkefnum sem áður fyrr. Á sumardögum 1993 varð þess vart að meinið sem tek- ist hafði að hefta 12 árum fyrr var enn til staðar. Baráttan var hörð, stundum vaknaði von sem ekki reyndist traust og smám saman voru séð fyrir þau endalok sem nú eru orðin. Við erum þakklát fyrir að hann bróðir okkar fékk þá ósk sína upp- fyllta að fá að vera heima þar til yfír lauk. Heimahjúkrun krabba- meinssjúkra á þakkir skilið fyrir að gera slíkt mögulegt og þökkum við því ágæta fólki fyrir frábæra umönnun, einnig læknum og þó fremst og öllu framar eiginkonu og börnum. Og ekki má gleyma litlu gleðigjöfunum, afabörnunum sem voru honum svo kær. Allt þetta létti þá baráttu sem nú er lokið. Við kveðjum kæran bróður á dögum sumarkomunnar þegar skammt er í blóma- og birkiangan í Skorradal og íslandsmótið í knatt- spyrnu er nýbyijað. Því hvarflar hugur okkar þangað sem áhugamál hans voru, en samúð okkar er hjá fjölskyldu hans sem svo mikið hef- ur misst. Við systkini hans þökkum öllum þeim mörgu sem sýnt hafa eigin- konu hans, börnum og bamabörn- um, okkur svo og foreldrum okkar vináttu og hluttekningu á erfiðum stundum. Blessun okkar sé með ykkur öllum. Svandís og Ársæll. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tár- um. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykk- ar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót tíl ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur. Og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífínu. Elsku pabbi minn. Nú er baráttunni við sjúkdóminn hræðilega lokið. Þú stóðst þig eins og hetja og barðist allt fram á síð- asta dag, þú vildir aldrei íþyngja neinum með veikindum þínum. Þegar þú varst spurður þá hafðir þú það alltaf gott en við vissum betur. Þú varst alltaf svo bjart- sýnn. Þegar við vissum hvert stefndi þá varst það þú sem hug- hreystir okkur. Þú varst svo ánægður með að Svenni hafði sömu áhugamál og þú, þið gátuð setið tímunum saman fyrir framan sjón- varpið og horft á fótbolta og enda- laust talað um hann. Ef okkur vantaði aðstoð þá varst þú fyrstur manna á staðinn því við vorum svo lík, við vildum alltaf gera alla hluti strax, en ekki bíða með þá. Og litlu afabörnin þín sem þú hélt svo mikið upp á eiga eftir að sakna þín mikið. Það var ekki vandamál fyrir þau að fá þig á fjórar fætur til að leika við sig, svo þegar þú varst orðinn veikur komu þau svo oft til þín og vildu kúra hjá þér. Þú fékkst þá ósk þína uppfyllta að deyja heima, en eins og þú sagðir svo oft og allir vita þá hefðir þú ekki getað verið svona lengi heima nema af því að mamma hugsaði svo vel um þig. Að lokum vil ég þakka heima- hjúkrun Karítas fyrir ómetanlega aðstoð og stuðning. Ég fínn, hve sárt ég sakna hve sorgin hjartað sker, af sætum svefni að vakna, ,. en sjá þig ekki hér, því svipur þinn á sveimi í svefni birtist mér. í drauma dularheimi ég dvaldi í nótt hjá þér. Elsku pabbi minn, ég kveð þig með söknuði. Þín dóttir Dagný. í örfáum orðum langar mig að minnast vinar míns og æskufélaga, Arnþórs Óskarssonar. Kynni mín af Árnþóri eða Addó eins og hann var venjulega nefndur hófust fyrir um 35 árum. Báðir áttum við heima í Blesugrófinni, í hverfi sem stóð fyrir utan hina venjulegu byggð í þá daga, í hverfi sem gott var að búa í og alast upp. Á þessum árum snerist lífíð um fótbolta og leiki frá morgni til kvölds. Addó var foring- inn i okkar hópi. Hann var sá eini í hverfinu sem átti fótbolta og fót- boltaskó. Það var stór stund hjá okkur strákunum að fá að spila í skónum hans Addó. Hverjum manni var úthlutað nokkrum mín- útur í skónum. Allir fengu að prófa. Unglingsárin líða. Á hverju sumri fór Addó í sveit til afa síns, Þórðar í Haga, en síðar á lífsleið- inni átti hann eftir að reynast afa sínum mikil hjálparhella við sveita- störfín. Addó lærir skriftvélavirkj- un og stofnar sitt heimili og síðar sitt eigið skriftvélaverkstæði. En áhuginn á íþróttum var alltaf sá sami. Það var spilaður hand- bolti á veturna og fótbolti á sumrin með Ármanni, en Addó var einn af stofnendum knattspyrnudeilar Ármanns. Það var ekki ónýtt að eiga hann að á þessum tíma. Það fóru mörg kvöld og helgar í vinnu þegar frumheijar knattspyrnu- deildarinnar voru að búa til bún- ings- og baðaðstöðu ásamt knatt- spyrnuvelli fyrir hina ungu knatt- spyrnudeild. Ármannsvöllurinn var eins og malarvellir eru oft eftir mikla notk- un, ósléttur og útsparkaður, og erfitt að leika knattspyrnu við þær aðstæður. En Ármenningar höfðu Addó. Hvort sem var um að ræða æfíngar eða leiki var Addó iðulega mættur á jeppanum til að slóða- draga völlinn og slétta áður en hann „skellti" sér í markið við æf- ingar eða leiki. Segja má að á skriftvélaverk- stæðinu hjá Addó hafi verið stjórn- stöð knattspyrnudeildarinnar. Þar komu menn saman til að spjalla, leggja línumar fyrir næstu leiki eða ferðalög er tilheyrðu knattspyrn- unni. Sá tími var mikill er hann lagði til frá sinni vinnu í snúninga fyrir Ármenninga, enda var það svo að vinnudagurinn hjá honum var oft langt fram eftir kvöldi. I knattspyrnunni lék Addó í stöðu markvarðar. Þar kom yfir- vegun og útsjónarsemi honum að góðum notum og þeir voru ófáir leikirnir er hann hélt liðinu á floti eins og sagt er á máli knattspyrnu- manna. Eftir að Addó hætti sinni knattspyrnuiðkun sneri hann sér að dómgæslu með mikum ágætum. í tímanna rás fara menn hver sína leið, sambönd takmarkast oft við einhvern einstakan þátt í lífi manna. Áfram varð knattspyrnu- völlurinn sá vettvangur er við hitt- umst oftast á. En lífið hjá Addó var ekki ein- tómur leikur. Fyrir um 10 árum kom í ljós að hann gekk ekki heill til skógar. Sjúkdómur sá er á hann heijaði átti eftir að setja mark sitt verulega á hann í seinni tíð. Kom geðprýði og æðruleysi hans þá vel í ljós hvernig hann tók örlögum sínum og oftar en ekki sá hann björtu hliðarnar á lífinu, þó sjúk- dómurinn heijaði á hann. Addó stóð ekki einn í þessari baráttu, því fjöl- skyldan hans, með eiginkonuna Hrönn Pálsdóttur í broddi fylking- ar, umvafði hann hlýju og kærleika. Með Arnþóri Oskarssyni er genginn góður drengur, einstakt ljúfmenni, er öllum vildi vel. Ég votta fjölskyldu hans og ást- vinum mínar dýpstu samúð. Jón S. Hermannsson. Það var á fimmtudagskvöldi, fallegu vorkvöldi að það var hringt til mín og mér sagt að hann Addó væri dáinn. Ég fylltist sorg og söknuði en ég trúi að honum líði vel þar sem hann er núna, laus við allt veikindastríð og líkamlegar kvalir. Minningarnar helltust yfir mig, það voru bjartar og ánægjulegar minningar því að það var alltaf bjart í kringum Addó og af honum geislaði gamansemin. Eg var tíður gestur á heimili hans frá því að ég og Begga dóttir hans urðum bestu vinkonur í Vesturberginu fyrir þrettán árum. Þegar ég kom í mín- ar tíðu heimsóknir og hitti hann var alltaf stutt í brosið og gaman- semina. Mér leið vel í návist hans eins og örugglega svo mörgum öðrum því að hann var alveg ein- stakur maður. Elsku Hrönn, Begga, Dagný og Addó, ykkur votta ég mína dýpstu samúð, svo og öðrum aðstandend- um. Marta. Arnþór Óskarsson vinur okkar og félagi, eða Addó, eins og hann jafnan kjallaði sig, er látinn eftir langvarandi vanheilsu, langt fyrir aldur fram. Addó var einstakt ljúfmenni og góðmenni, og greiðvikinn með af- brigðum. Glettinn var hann og gam- ansamur og sá jafnan spaugilegu hliðar mála, þegar við átti. Var hann fjölskyldumaður dyggur og góður, en þar fyrir utan átti knatt- spyman hug hans allan. Addó var einn alfróðasti maður um knatt- spyrnudómgæslu og knattspyrnu almennt, sem undirritaður hefur kynnst. Hann var óbilandi eldhugi og mikill fræðari að eðlisfari. Átti hann auðvelt með að leiðbeina öllum þeim, sem þiggja vildu tilsögn hans og ráð, einkum að því er varðar dómgæslu. Var hann jafnan bein- skeyttur og tæpitungulaus í orða- vali og framsögn, og alltaf skein í gegn hjálpfýsi, glettni og vilji til að veita öðrum hjálp og hollráð. Snyrtimenni var Addó og þoldi illa að menn væru ekki vel og rétt til hafðir utan vallar sem innan. Þrátt fyrir mikið heilsuleysi síðustu tólf til þrettán árin og oft á tíðum mikl- ar þjáningar, var hann alltaf skap- góður og jákvæður, og hélt þeim góða eiginleika sínum ti! hinstu stundar. Fram yfir tvítugt lék Addó knatt- spymu með Ármanni og handbolta með Fylki. Árið 1970 tók hann knattspyrnudómarapróf og einbeitti sér að dómgæslu eftir það. Var frami hans sem dómari skjótur og varð Addó landsdómari árið 1974 og 1. deildardómari árið eftir. Milli- ríkjadómari varð Addó 1978. Síð- ustu deildarleiki sína dæmdi Addó árið 1982. Dæmdi hann allan þenn- an tíma fyrir sitt gamla félag, Ár- mann. Þegar heilsan brást honum síðla árs 1981, hafði hann verið einn fremsti knattspyrnudómari landsins um árabil, þótt aðeins væri hann 34 ára að aldri. Síðustu ár ævi sinnar sinnti Addó áhuga,- máli sínu sem eftirlitsmaður KSÍ, og var þar meðal fremstu manna, og naut viðtæk knattspyrnukunn- átta hans sín vel í þeim störfum. Því miður kynntist undirritaður Addó ekki persónulega fyrr en fyr- ir um fimm árum, og þá í gegnum sameiginlegt áhugamál okkar, knattspyrnuna. Á þeim tíma sat undirritaður í stjórn knattspyrnu- deildar Stjömunnar. Addó var á sama tíma að rétta örlítið við eftir margra ára erfiða sjúkdómslegu. Vinnufélagi minn og vinur Addós, Jón Reynir Hilmarsson dómari, ámálgaði við mig hvort not kynnu að vera fyrir krafta gamalreynds knattspyrnudómara, sem reyndar væri ekki lengur ýkja sterkur líkam- lega, en óbilandi áhugamaður um knattspyrnu og boðinn og búinn að miðla af reynslu sinni og starfa fyrir félagið eftir því sem heilsan leyfði. Er skemmst frá því að segja, að með okkur Addó tókst góð vinátta, sem entist til hinstu stundar. Starf- aði hann bæði mikið og vel fyrir Stjörnuna meðan kraftar leyfðu. Þegar undirritaður tók síðan við formennsku í dómaranefnd KSÍ í upphafi síðasta árs hélt samvinna okkar áfram á þeim vettvangi. Knattspyrnuhreyfingin á Addó mikið að þakka. Það eru menn eins og hann, sem bera uppi starfið í fjöldahreyfingum áhugamanna. Áhugasamur, dugmikill, skapgóður og bóngóður, og umfram allt sann- ur vinur og félagi. Þannig reyndist Addó mér, og þannig veit ég að hann reyndist öðrum, sem með hon- um lifðu og störfuðu. Við, vinir hans og félagar, höfum misst mikils. Mest hafa þó misst eiginkona hans, foreldrar, afi, börn, tengdasonur og barnabörn. Að þeim er kveðinn mikill harmur, en ég er þess fullviss, að minningin um ást- kæran eiginmann, son, föður, son- arson og afa mun veita þeim styrk í sorg sinni. Hann gaf mikið, og minning um góðan dreng mun lengi lifa. Fyrir hönd stjórnar KSÍ og dóm- aranefndar votta ég fjölskyldu Add- ós innilega hluttekningu okkar allra. Blessuð sé minning hans. Páll Bragason, formaður dómaranefndar KSÍ. Hann Addó er dáinn. Þessi frétt kom engum á óvart sem til þekkti, en hann var búinn að vera veikur undanfarin ár, en eftir áramót fór að halla undan fæti. Engu að síður kom hann fársjúkur upp á Akranes hinn 13. maí til að taka þátt í undir- búningi eftirlitsmanna KSÍ fyrir sumarið. Addó var landsdómari, milliríkja- dómari og eftirlitsmaður KSI í fjöldamörg ár og ávallt reiðubúinn að miðla af reynslu sinni sem knatt- spyrnudómari til yngri og reynslu- minni dómara. Þessi fátæklegu orð eru kveðja frá stjórn Knattspyrnudómarasam- bands íslands um leið og við vottum eiginkonu, börnum og öðrum að- standendum okkar innilegustu sam- úð. F.h. KDSÍ, Friðgeir Hallgrímsson. Kveðja frá knattspyrnudeild Sljörnunnar Það hefur fækkað um einn í stuðningsmannahópi Stjörnunnar. Einn af okkar dyggustu stuðnings- mönnum er fallinn í valinn. Arnþór Óskarsson knattspyrnudómari, sem við vinir hans í knattspyrnudeild Stjörnunnar kölluðum aldrei annað en Addó, er látinn langt um aldur fram eftir langvinn veikindi. Addós er minnst í okkar röðum sem óþreytandi áhugamanns um knattspyrnu og var hann tíður gest- ur á Stjörnuvelli. Gilti þá einu hvort í hlut áttu meistaraflokkar eða yngri flokkar félagsins. Aldrei var dómarinn í Addó langt undan þó hann stæði utan vallar og alltaf var hann boðinn og búinn að leiðbeina hvort heldur var reynsluminni dómurum eða leik- mönnum. í dag drúpa Stjörnumenn höfði og minnast góðs vinar og félaga með þakklæti fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning Arnþórs Ósk- arssonar. Páll Grétarsson. Með nokkrum orðum langar mig til að minnast Arnþórs Óskarsson-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.