Morgunblaðið - 03.06.1994, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
HL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
HtK STBNPUK /)£> f>A^>
DKAGl ÚR ATHV6LIS6AF-
OHH! AE> HOKFA 'A S7ÖNUAKP
Ferdinand
Ranglega
þýtt úr ensku
Frá Árna Finnssyni:
ÁGÆTU fréttastjórar.
í Morgunblaðinu sl. sunnudag
birtist grein um nýafstaðinn árs-
fund Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þar
er vitnað er til orða Clifs Curtis,
talsmanns Greenpeace-samtak-
anna, um samþykkt ráðsins að
setja á stofn verndarsvæði fyrir
hvali í Suðurhöfum. Heimildin er
fréttaskeyti Reuters frá 28. maí.
I fréttaskeyti Reuters er orðrétt
haft eftir Clif Curtis: ... að sú
samþykkt benti til þess að hval-
veiðiráðið hefði breyst úr hvalveið-
iráði í hvalverndunarráð [letur-
breyting mín]“. („What this decisi-
on reflects is an indication that
this forum has been converted
fram á whaling convention to a
whale-protection convention.")
I grein Morgunblaðsins segir
hins vegar ..... að sú samþykkt
benti til þess að hvalveiðiráðið
hefði breyst úr hvalveiðiráði íhval-
friðunarráð [leturbreyting mín]“.
Hér er ranglega þýtt úr ensku.
Enska orðið „protection" útleggst
á íslensku verndun. Því ber að
þýða „whale-protection conventi-
on“ sem hvalvemdunarráð eða
(orðrétt) hvalverndunarsáttmála.
Ekki „hvalfriðunarráð" eins og
segir í grein Morgunblaðsins.
Þetta kann að virðast vera smá-
vægilegur munur, en er þó mikil-
vægur til að hægt sé að gera rétt-
an greinarmun. Greenpeace-sam-
tökin hafa ekki barist fyrir algjörri
friðun hvala. T.d. hafa samtökin
ekki lagst gegn veiðum Grænlend-
inga í sjálfsþurftarskyni. Samtökin
telja ekki að hvalveiðar í sjálfs-
þurftarskyni hafi ógnað hvala-
stofnum. Hvalir eru mikilvæg auð-
lind fyrir grænlenska veiðimenn.
Greenpeaee eru andsnúin hval-
veiðum í ábataskyni þar eð sam-
tökin telja að slíkum veiðum verði
ekki stjórnað með ábyrgum hætti
og hafi leitt til gífurlegrar ofveiði.
Ofveiði sem hefur nær útrýmt
nokkrum hvalategundum og leitt
til útrýmingar annarra. Saþykkt
griðasvæðis fyrir hvali í Suðurhöf-
um var því mikilvægur áfangi í
starfi samtakanna fyrir vernd
hvala. Orð Clifs Curtis ber að skoða
í þvi ljósi.
Hvalfriðunarráð hefur um árabil
verið skammaryrði íslenskra
stjórnvalda yfir Alþjóðahvalveiðir-
áðið. Að starf þess snúist fyrst og
fremst um friðun hvala. Víst er
að mörgum þeim er láta sér annt
um hvali geta vel hugsað sér al-
gjöra friðun hvala, en að sama
skapi er víst að það er ekki stefna
Greenpeace. Þess vegna er mikil-
vægt að gera greinarmun milli
hvalfriðunar og verndunar hvala.
Að sama skapi er rangt að setja
alla þá sem vilja tryggja vernd
hvala undir einn hatt og kalla þá
hvalfriðunarsinna. Friðun dýra fel-
ur í sér algjört bann við nýtingu
eða aflífun á dýrum. Þannig eru
hafernir og hvítabirnir friðaðir.
Hrefnur við Grænland eru hins
vegar ekki friðaðar. Takmarkaðar
veiðar í sjálfsþurftarskyni eru
leyfðar af Alþjóðahvalveiðiráðinu
og veiðikvótar veittir undir vísinda-
legu eftirliti. Greenpeace telja það
hvort tveggja sjálfsagt og eðlilegt.
ÁRNI FINNSSON,
starfsmaður hjá
Greenpeace Svíþjóð.
Yfirlýsing frá Kvenna-
listanum á Isafirði
Frá Guðrúnu Stefánsdóttur:
KVENNALISTINN jók fylgi sitt á
ísafirði um 52% frá síðustu bæjar-
stjórnarkosningum og fékk kjörinn
bæjarfulltrúa í fyrsta sinn. Það var
því mikil stemmning ríkjandi hjá
frambjóðendum listans á kosn-
inganótt. Ekki virtist vera alveg
sama gleði hjá sjálfstæðismönnum
sem höfðu ætlað að reyna að ná
hreinum meirihluta í bæjarstjórn
en fengu 4 fulltrúa.
Fulltrúi Kvennalistans lýsti því
yfir í kosningaútvarpi um nóttina,
að við héldum öllum leiðum opnum
og vildum ræða alla möguleika um
meirihlutasamstarf. Sjálfstæðis-
menn óskuðu eftir viðræðufundi
með okkur kl. 9 næsta morgun.
Okkur kvennalistakonum fannst
ekki liggja á að taka ákvörðun kl.
3 á kosninganótt um viðræður um
hugsanlegt meirihlutasamstarf
milli flokka og réttara að bíða til
næsta dags svo við gætum rætt
málið okkar á milli. Það höfum
við nú gert á fundi þann 19. maí
og sent skriflegt svar til bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem
tekið er jákvætt í málaleitan sjálf-
stæðismanna.
Þar sem fréttamiðlar hafá ekki
komið fram með sjónarmið
kvennalistakvenna í þessu máli sé
ég mig tilknúna að mótmæla harð-
lega öllum ásökunum bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins um vilja-
leysi eða ábyrgðarleysi til að tak-
ast á við stjórn bæjarmála.
Að okkar mati ber það. ekki
vott um ábyrgð að ætla að ræða
stofnun bæjarmálasamstarfs í
mannfagnaði eftir kosningasigur
og þannig vinnur Kvennalistinn
ekki. Kvennalistinn mun sýna
ábyrgð í störfum bæjarstjórnar og
fylgja þeim málum fast eftir sem
eru baráttumál Kvennalistans og
horfa til heilla fyrir ísafjörð.
Kvennalsitinn mun Ieita samstarfs
við alla bæjarfulltrúa um að koma
þeim málum fram.
Við viljum nota þetta tækifæri
og koma á framfæri þakklæti til
allra ísfirðinga sem studdu okkur
í þessum kosningum.
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
bæjarfulltrúi Kvennalistans
á Ísafirði.