Morgunblaðið - 03.06.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 41
BRÉF TIL BLAÐSIiMS_
>*
Nuddskóli Islands
Fólk er að uppgötva, í hinum mikla
hraða þjóðfélagsins og sífelldu vinnu-
álagi, að nudd og sú snertíng sem því
fylgir losar um spennu og eykur vellíðan
og létttír lund.
Frá Sigurósk H. Svanhólm:
NUDD ER líklega jafngamalt
sögunni og fyrirfinnst í öllum
samfélögum heims, í einu formi
eða öðru. Ef horft er til Austur-
landa er nudd eðlilegur þáttur
í daglegu lífi fólks. Það er því
hulin ráðgáta hvers vegna
nudd glataði svo miklu fylgi á
Yesturlöndum á miðöldum.
Ástæðan gæti verið sú að
framfarir læknavísindanna
voru mjög miklar á þeim tíma
og þessar framfarir hafi orðið
til þess að nudd varð útundan.
Hins vegar má benda á að síð-
ustu áratugi hefur viðhorf til
nudds breyst. Fólk er að upp-
götva í hinum mikla hraða
þjóðfélagsins og sífelldu vinnu-
álagi að nudd og sú snerting
sem því fylgir losar um spennu
og eykur vellíðan.
Menntun
Síðastliðið haust, nánar til-
tekið í ágúst 1993, gerðu
Menntamálaráðuneytið, Félag
íslenskra nuddara og Fjöl-
brautaskóinn í Ármúla með sér
samning um að setja á stofn
nuddbraut við Ármúlaskóla. Öll
bókleg kennsla fer fram í Ármúla-
skóla, en að því loknu fara nudd-
nemar í verklega kennslu á vegum
Nuddskóla íslands, sem rekinn er
af Félagi íslenskra nuddara. Nem-
endur útskrifast síðan sem nuddar-
ar frá Ármúlaskóla í samvinnu við
Nuddskóla íslands. Meðal þess
kennt er við nuddskólann er klass-
ískt og heildrænt nudd, vöðva- og
hreyfifræði (kiesologi), íþrótta-
nudd, ilmolíu- og sogæðanudd,
svæðanudd og vöðvateygjur (sér-
hæfðar).
í klassísku og heildrænu nuddi
er líkaminn allur nuddaður, en at-
hyglinni ekki eingöngu beint að
stökum þáttum. Gott nudd verkar
á öllum sviðum. Nudd verkar slak-
andi á líkamann, styrkir vöðva og
greiðir fyrir blóðstreymi um æðar,
það hefur líka áhrif á andlega líðan
og dregur úr streitu. Strokur eru
yfirleitt notaðar, einnig má nota
Hr. ritstjóri.
VÍSAÐ er til bréfs fyrrum aðal-
ræðismanns íslands í Mexíkóborg
sem birt er í Morgunblaðinu þann
1. júní sl. þar sem látið er að því
liggja að lausn hans frá störfum
hafi ekki borið að á eðlilegan hátt.
Aðalræðismanninum var veitt
lausn frá störfum þegar hann var
á 84. aldursári. Lögbundinn há-
marksaldur opinberra starfs-
manna eru 70 ár, en kjörræðis-
mönnum íslands erlendis hefur
verið heimilað að starfa nokkrum
árum lengur ef að sérstaklega
stendur á.
Ekki er vitað til þess að aðrir
kjörræðismenn Islands erlendis
hafi náð svo háum aldri í starfi.
Þetta var áréttað við David Wies-
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
=FÚl**&[£>
aðra tækni. Kröftugt nudd, nokk-
urs konar hnoð, má nota á hold-
mestu hluta líkamans, til skiptis
er beitt þrýstingi og mýkt. Sárs-
auki getur gefið gagnlegar vís-
bendingar um hvar vöðvaherping-
ur leynist og þó komið geti sárs-
aukafull augnablik, þá mun léttir-
inn sekúndubroti síðar þegar slak-
ar á vöðvaherpingnum verða til
þess að viðkomandi finnst hann
næstum hafa notið sársaukans
þegar hann lítur til baka.
Vöðva- og hreyfifræði (kinesio-
logi) er unnin út frá sömu lögmál-
um og kínverska nálastungukerfið
byggir á, þ.e.a.s. heildrænni sýn á
manneskjuna. Þessi fræði byggja
á því að líkaminn sé orkuflæði, þar
ley á vinsamlegan hátt. Við það
tækifæri voru aðalræðismanninum
sérstaklega þökkuð störf hans í
hátt á fjórða áratug.
Því fer víðs fjarri að gefið hafi
.verið í skyn að ástæða lausnar
hans frá störfum hafi verið fjár-
málamisferli eða trúnaðarbrestur,
enda ekki um slíkt að ræða.
David Wiesley á þakkir skildar
fyrir störf sín og var honum skýrt
frá því eins og að framan greinir.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ,
1. júní 1994.
sem ójafnvægi geti myndast.
Tveir bandarískir hnykkjarar,
George Goodheart og John F.
Thie, komust að því fyrir tæp-
um 30 árum að hægt væri að
tengja vöðvakerfi líkamans
þessu flæði og vinna þannig
með jafnvægi viðkomandi með
punktanuddi m.a. inn á nálar-
stungupunkta. Vöðva- og
hreyfifræði hefur verið í örri
þróun síðan og er mjög mikið
notuð í dag víðsvega með góð-
um árangri. í þessum fræðum
er leitast við að ná góðu sam-
spili á milli vöðva líkamans
með vöðvaprófunum. Einnig
er unnið með mismunandi
punkta og svæði á líkama,
höfði og fótum, sem tilheyra
orkubrautum líkamans.
íþróttanudd felst í að beita
aðferðum sem henta íþrótta-
iðkendum bæði fyrir og eftir
þjálfun eða keppni. Einnig er
kennt hvernig vöðvar eru bún-
ir undir álag til þess að minnka
líkur á tognun og meiðslum
og hvernig flýta má fyrir losun
úrgangsefna úr vöðvum eftir
mikið álag.
í ilmolíu- og sogæðanuddi fær
hver sína sérhæfðu ilmolíublöndu
sem fundin er út með ákveðinni
greiningu áður en nuddað er. Við
það verður virkni nuddsins marg-
þætt, þ.e.a.s. hreyft er við sogæða-
kerfi líkamans og ilmolíurnar
ganga inn í gegnum húðina og
berast þannig inn í sogæða- og
blóðrásarkerfi líkamans. Einnig
berst ilmur olíanna um þefskyn og
öndunarfæri, en olíurnar örva
þannig hin ýmsu líffærakerfi lík-
amans til sjálfshjálpar.
Svæðanudd byggist á þeirri
kenningu að á fætinum séu svæði
sem svara til sérhvers líffæris og
allrar starfsemi líkamans. Með því
að nudda og/eða þrýsta á þessi
viðbragðssvæði getur nuddari
dregið verulega úr spennu í líkama
þess sem hann nuddar. Þannig
stuðlar svæðanudd að endurnýjun
líkamsþróttar og eflir sjálfshjálpar-
hæfni líkamans. Svæðanudd er að
mestu nudd á fætur og undir iljum.
Þar er þumlum og öðrum fingrum
þrýst á tiltekna punkta og svo-
nefnd viðbragðssvæði, við það
næst svörun um allan líkamann.
Vöðvateygjur (sérhæfðar) er
nafn á aðferð til að auka hreyfivídd
liðamóta. Grundvallaratriði er að
teygja vöðva hægt og varleg eins
langt og hægt er og halda þeirri
stöðu í 10—30^ sek.
Nuddskóla íslands rekur Félag
íslenskra nuddara. Það er von fé-
lagsmanna að skólinn styrkist og
eflist og mæti þeim auknu kröfum
sem gerðar eru til menntunar í
dag. Einnig að í framtíðinni verði
hægt að nema sem flest viðkom-
andi nuddi á íslandi í viðurkenndu
námi innan menntakerfisins.
SIGURÓSK H. SVANHÓLM,
félagi í Félagi íslenskra nuddara.
míh
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVIK, SIMI 685090
Gömlu og nýju dansarnir
íkvöld kl. 22-03
Keflavíkurbandið
leikurfyrir dansi
Miðaverð kr. 800
| ^ Miða-og borðapantanir Ly
LTy ísímum 685090 og 670051. Kfcil
Athugasemd frá
utanríkisráðuneytinu
Hljómsveit
Ragga Bjarna
leikur fyrir dansi
Annað kvöld:
Sjómannaball
Þriggja rétta kvöldverður
og dansleikur með Ragga Bjarna
aðeins kr. 2.100
Þorvaldur Halldórsson
Gunnar \ryggvason
ná upp góðri stemrrmingu
$
\
■
Þœgilegt umhverfi
- ögrandi vinningar!
OPIÐ FRÁ KLUKKAN 1 9:00 - 03:00
______vm U-l
Sjábu hlutina í víbara samhengi!