Morgunblaðið - 17.06.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 29
FULLVELDINU fagnað fyrir framan Stjórnarráðið 1. desember 1918. Frekar dauft var yfir
höfuðborginni þennan frostavetur, enda hafði spánska veikin lagt fjölda fólks að velli.
Sveinn Björnsson, síðar forseti, var
einn atkvæðamesti talsmaður sam-
bandslaganna á þeim vettvangi. Dr.
Guðmundur Finnbogason var stutt-
orður: „Ég tel það helga skyldu mína
að gjalda sambandslögunum já-
kvæði. Og yrðu þau nú felld með
þjóðaratkvæði, eftir allt sem á undan
er gengið, þá mundi ég til æviloka
standa orðlaus, hvenær sem Islend-
ingar væru kallaðir asnar.“
Umræður á síðara aukaþinginu
voru til mikillar fyrirmyndar og allur
málatilbúnaður þar. Fyrirfram var
vitað að aðeins tveir þingmenn væru
á móti, sinn í hvorri deild. En þeirri
andstöðu var sýndur fullur sómi og
vekur ekki síst athygli gagnvandað-
ur málflutningur sumra stjórnarand-
stæðinga úr Sjálfstæðisflokknum
langsum.
Andstaðan var best og eftirminni-
legust í þingræðum Benedikts
Sveinssonar og blaðaskrifum sr.
Guðmundar í Gufudal. Kjarninn í
málflutningi þeirra var þessi: Ríkin
verða að vísu tvö, en bæði dönsk.
Benedikt var fullkomlega sannfærð-
ur um að ákvæðin um ríkisborgara-
réttinn væru stórskaðleg og eins
þótti honum hvergi nærri nógu vel
búið um uppsagnarákvæði. Og
margt fleira mislíkaði Benedikt og
skoðanabræðrum hans stórlega.
Á Ríkisþinginu voru allir helstu
flokkar með samningnum nema
Ihaldsflokkurinn. Hann taldi að með
honum væri heild danska ríkisins
rofin.
Þjóðaratkvæði um sambandslögin
fór fram á íslandi 19. október. Kjör-
sókn var heldur dræm, einkum með-
al kvenna, enda voru þær enn óvan-
ar að ganga að kjörborði. Niðurstað-
an varð hins vegar skýr. Um það
bil 91% voru með, en 7,3% á móti.
Allmikið var um ógilda seðla í sum-
um sýslum og má vera að auðir seðl-
ar hafi sumstaðar verið flokkaðir
þannig.
III
Tæpri viku fyrir kosningarnar
ræddi sr. Haraldur Níelsson opin-
skátt um þær af predikunarstóli.
Texti hans var Lúkas 22, vers
32-34: „Vertu ekki hrædd, litla
hjörð, því að föður yðar hefur þókn-
ast að gefa yður ríkið.“
Hin litla hjörð á íslandi var að
nálgast 92 þúsund sálir og þótti
sumum tiltækið djarft, að vilja hafa
hér fullgilt ríki, enda veltist veröldin
um fast, og flest á hverfandi hveli.
Og ekki fjölgaði hjörðinni, þegar út
leið á árið. Kötlugosið mikla, sem
hófst rétt í þann mund sem sr. Har-
aldur bað menn að hræðast ekki,
varð að vísu ekki mannsbani, þó litlu
munaði, og kallaðist guðs mildi. En
svo er skrifað að guði þyki hentast
að blanda hið blíða stríðu. Sama
daginn og Islendingar ákváðu með
atkvæði sínu að stofna fullvalda ríki
barst hingað drepsótt með skipum
af hafi. Eftir upptökum sínum á
Spáni hefur hún verið kölluð
Spanska veikin. Hún fór hægt af
stað og menn uggðu ekki að sér.
Þetta var inflúensa sem löngum
snerist upp í lungnabólgu. Reyndar
má segja að margir hafi dáið úr
kulda, því snöggt kuldakast suðvest-
anlands magnaði pestina mjög. Eða
hvemig áttu menn í lélegum húsa-
kynnum, snauðir að eldiviði og skjól-
fötum, að geta farið að þeim ráðum
„að fara vel með sig og láta sér
ekki verða kalt“?
Drepsóttin olli því að Reykjavík
varð eins og dauðs manns bær og
víða komst veikin um land sunnan
og vestan. Ætla má að framt af
hálfu þúsundi manna hafí dáið af
völdum pestarinnar, meira en helm-
ingurinn í Reykjavík. Manndauðinn
á íslandi 1918 varð 16,6 af þús-
undi, svo stórt var höggvið, þótt
ekki rynni hér blóð eftir slóð sem
víða erlendis.
Best þykir að láta Tryggva Þór-
hallsson, guðfræðing og ritstjóra,
lýsa ósköpunum, er blöð tóku að
nýju að koma út. Hann skorti hvorki
tilfínningu né orðsnilld:
„Þau tíðindi eru nú orðin vor á
meðal, sem svo eru mikil, að þá er
sú frétt barst um haf, að samið
væri vopnahlé eftir meir en fjögra
ára heimsstyijöld, þá munu þeir
hafa verið næsta fáir, sem um þau
tíðindi fjölyrtu, svo voru hin tíðindin
hveijum manni miklu nær. Skelfing
og dauði hafa dvalið með oss langar
stundir. Stærri drepsótt hefur geisað
en nokkur man núlifandi kynslóðar.
Og er þess að vænta, að ekki lifí
þessi kynslóð aðra slíka né komandi
kynslóðir hér á landi, því að svo er
gert ráð fyrir, að meiri forsjár verði
gætt í framtíðinni um varnir við slíku
en nú hefur raun á orðið. Má hik-
laust svo að orði kveða, að hér í bæ
séu þeir nú miklu færri, sem ekki
hafa stórum afhroð goldið í missi
vina og vandamanna ..."
En ekki skyldum við gleyma af-
rekum lækna og sjálfboðaliða sem
af ótrúlegu þreki og fórnarlund unnu
nætur og daga til hjálpar bágstödd-
um og hafa vafalaust bjargað hundr-
uðum mannslífa.
IV
Þeir sem eftir lifðu og rólfærir
voru héldu daginn hátíðlegan eftir
mætti, þegar sambandslögin tóku
gildi. Fyrsti desemberer okkur síðan
hjartfólginn dagur. Mörgum mun
hafa vöknað auga, þegar tjúgufáni
íslenska ríkisins var dreginn að húni
á Stjórnarráðshúsinu sem Danir
höfðu byggt tugthús yfír íslendinga.
Frelsisþráin deyr ekki, jafnvel í hall-
æri og farsóttum. Og enn í dag höf-
um við séð hana reisa fána, þar sem
það þótti ólíklegt til skamms tíma.
Bjarni frá Vogi hafði ort:
Höfin lengi horfðu og spurðu:
Hvar er, Island, fáni þinn?
Matrósar af Islands Falk gátu nú
siglt úr höfín og svarað þessari
spurningu. Fáni Islands var á ís-
landi og á hveiju því skipi sem ís-
lendingar gerðu út.
Jón Magnússon var yfírlætislaus
maður. Hann eftirlét Sigurði Eggerz
að tala af hálfu stjórnar hins nýja
ríkis. Sigurður minntist fagurlega
íslenskrar alþýðu og mælti síðan:
„Vér biðjum alföður að styrkja oss
til að lyfta fánanum til frægðar og
fra_ma.“
I Dómkirkjunni steig Jón Helga-
son biskup í stólinn. Hann minntist
þeirra manna sem lifðu, vöktu, störf-
uðu og börðust. Og ekki gleymdi
hann hinum látnu né þeim kynstrum
sem skömmu áður höfðu yfir dunið.
Þótti við hæfí er hann fór með dýr-
kveðið bænavers föður síns, Helga
Hálfdanarsonar:
Nauðabárum bæg þú, herra,
burtu fári skæðu hrind,
harmatárin heitu þerra,
hjartasárin mæddra bind.
Drottinn hár, á hverri tíð
hagstæð árin gefðu lýð;
banaljár er beittur slær oss,
bættu þrár og himni fær oss.
V
Bak við Stjórnarráðshúsið stóðu
tvær fánastengur auðar þennan dag,
sem á þeim stöngum höfðu áður
verið dregnir að húni staðarfáni
íslands og Dannebrog.
pnny
yLGUPi
Til hamingju
með daginn
og takk fyrir
móttökurnar