Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ1994 41 Stærsti atburðurinn á mínum stjórnmálaferli Gísli Signrðsson ræðir við Sigurð Bjamason frá Vigur, sem var yngstur þingmanna 1944. egar fundum okkar Sig- urðar Bjamasonar bar saman var hann ný- kominn frá æskuslóð- um sínum vestur í Vigur þar sem hann hafði átt góða daga; upplif- að vorkomu og eggtíð. Sigurður og Lúðvík Jósefsson eru einir eftirlifandi þeirra sem sæti áttu á Alþingi 1944. í þeim hópi var Sigurður yngstur; hann var að- eins 26 ára þegar hann var kjör- inn þingmaður Norður-ísfírð- inga í vorkosningunum 1942 og 28 ára við lýðveldisstofnunina. Raunar bar fundum þeirra Sigurðar og Lúðvíks saman á enn yngri árum norður á Akur- eyri þar sem þeir voru þá sam- tímis í skóla. Sigurður hélt hins- vegar lengur áfram á þeirri braut. Hann tók stúdentspróf frá Akureyri 1936 og fór síðan beint í lögfræðinám í Háskóla íslands. Eg spurði Sigurð hvenær póli- tískur áhugi hans hefði kviknað og það kom í ljós að á því sviði hafði hann haft hægt um sig þangað til hann kom í Háskól- ann. Þar varð hann formaður stúdentaráðs fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, vet- urinn 1938. „Það var töluverð harka í póli- tíkinni í Háskólanum þá, og nokkrir stjórnmálamenn komu síðan úr röðum þeirra sem þá voru þar við nám,“ segir Sigurð- ur. „Vinstri- sinnar, eða rót- tækir eins og þeir kölluðu sig, höfðu verið í meirihluta áður. Hugsanlegur skilnaður við Dani var þó ekki hitamál í Há- skólanum; flestir voru sammála þar. En þó langt væri liðið á fjórða áratuginn var enn kreppu- ástand, viðvarandi atvinnuleysi og stúdentar áttu erfítt með að fá atvinnu á sumrin. Eg var svo heppinn að komast á sjó tvö sumrin á háskólaárunum; var þá á einum af „Árnapungunum" sem svo voru nefndir og Ásgeirs- verzlun á ísafírði hafði látið smíða. Þessi bátur hét Bolli. Til dæmis um afraksturinn má geta þess að ég hafði 300 krónur nettó eftir fjögurra mánaða út- hald. Síðar var ég svo á Kveld- úlfstogara á síld og komst í upp- grip, hafði 1400 krónureftir sumarið. Þá kostaði uppihaldið á Garði 65 krónur á mánuði, fæðið 25 og fyrir þjónustu greiddum við 8 krónur, eða sam- tals 98 krónur á mánuði." Ég fór beint í blaðamennsku á Morgunblaðinu eftir að hafa lokið lögfræðiprófí vorið 1941. í fyrstu skrifaði ég aðallega frétt- ir, en fljótlega veittist mér sá heiður að fá að skrifa einn og einn leiðara og Reykjavíkur- bréf.“ - Og svo ertu kominn inn á þing strax ári síðar. Hvernig atvikaðist það? „Norður-ísfírðingar höfðu skorað á mig að gefa kost á mér til þingmennsku áður en ég lauk prófi 1941. Égþakkaði þeim traustið og lofaði að verða í kjöri, en hvenær sú stund rynni upp vissum við ekki þá. Að því kom þó fyrr en varði, eða strax vorið 1942. Andstæðingar mínir í kosn- ingabaráttunni vestra þetta vor voru Barði Guðmundsson fyrir Alþýðuflokkinn; gáfaður og skemmtilegur maður, en heldur latur í baráttunni. Fyrir Fram- sókn var Kristján Jónsson á Garðsstöðum, kunnur maður og gamall sveitungi minn úr Ögur- hreppi. Hann komst aldrei á þing, en Barði komst inn sem uppbótarþingmaður. Ég var aft- ur á móti kjörinn með góðum yfírburðum, þótt á brattann væri að sækja, því Alþýðu- flokkurinn var sterkur fyrir vestan; hafði áður fengið 3 af 5 þingmönnum Vestfjarða. Alþingi kom saman strax eft- ir vorkosningamar 1942. Þá voru margir merkir stjórnmála- menn á þingi, en mér var strax vel tekið, yngsta þingmanninum. Mér fannst merkilegt að eiga sæti á Alþingi þar sem afí minn, séra Sigurður Stefánsson, hafði setið nær samfellt frá 1886- 1923. Á þessu fyrsta þingi mínu var mest rætt um kjördæmabreyt- inguna sem þá var á döfinni. Það setti svip sinn á Alþingi eins og allt annað, að umhverfíð var ótryggt; það var heimsstyrjöld sem enginn sá þá fyrir endann á. En það var líka verið að ræða hugsanlegan skiln- að við Dani. Alþingi brást skyldu sinni eftir haustkosningarnar 1942 þegar ekki tókst að mynda stjórn. í mínum flokki var talið að Sveinn Björnsson, þá ríkisstjóri, hafi verið of fljótur á sér með skipan utan- þingsstjórnar. Mönnum þótti súrt í broti að samkomu- lag tókst ekki og við sjálfstæðismenn töldum að ekki hefði verið full- reynt. Aðrir töldu rikisstjórann ekki hafa átt á öðru kost. Ekki man ég eftir því að utanþingsráðherrunum væri sýnd nein óvild, enda voru þetta hinir mætustu menn og einn þeirra, Einar Arnórsson, var reyndur stjórnmálamaður. Þeir áttu erfítt með að koma málum áfram í þinginu, en auð- vitað vissu þingmenn að ekki væri hægt að gera þessari ríkis- stjórn lífið óbærilegt, fyrst þing- ið hafði orðið að gefa frá sér stjórnarmyndun. Eins og aðrir í mínum þing- flokki var ég hraðskilnaðarmað- ur. Danmörk var hernumin og engir vissu hverjar lyktirnar yrðu. Við vorum á einu máli um að fresta ekki aðskilnaði og lýð- veldisstofnun. Allir vita hvernig þjóðarat- kvæðagreiðslan fór og allt í einu er runnin upp þessi stóra stund í slagviðrinu á Þingvöllum. Það var tvímælalaust stærsti atburður- inn á mínum stjórnmálaferli." Eins og Lúðvík Jósefsson minntist Sigurður þess þegar alþingismenn gengu til sæta sinna á pallinum og pollur var á hverri stólsetu. Þessir ungu þingmenn létu sig hafa það að ná vatninu af svo sem verða mátti, en Sigurður sagði að sum- ir þingmenn hefðu verið svo uppteknir af hátíðleika stundar- innar að þeir settust bara í poll- inn. „Mér er í rauninni minnis- stæðastur fögnuður fólksins," sagði Sigurður þegar ég spurði hann hvort eitthvað einstakt við lýðveldisstofnunina væri honum ofar í huga en annað. „Já, fögnuður fólksins og virðuleg framkoma. Við Finnur heitinn Jónsson, alþingis- maður, gengum inn á Velli eftir athöfn- ina og þá fann mað- ur vel hvað þessi fögnuður var al- mennur. Og þá varð mér hugsað til for- feðra okkar sem höfðu háð langa baráttu fyrir sjálf- stæði íslands og hvað þeir hefðu þráð að geta staðið í þessum sporum. Mikill fögnuður varð og seinni hluta dagsins þegar heillaóskaskeyti barst frá Kristjáni konungi X. Það var svohljóðandi: „Þótt mér þyki leitt að skilnaðurinn milli mín og ís- lensku þjóðarinnar hafi verið framkvæmdur á meðan svo stendur á sem nú er, vil ég láta íljós bestu óskirmínar um fram- tíð íslensku þjóðarinnar og von um, að þau bönd sem tengja Island viðhin norrænu lönd megi styrkjast.“ Á eftir lét lúðrasveitin kon- ungssöng Dana, „Kong Christ- ian stod ved höjen mast“ og rík- isstjómin sendi frá Þingvöllum skeyti til konungs, sem hljóðaði svo: „Ríkisstjórnin færirhans há- tign, Kristjáni X, hjartanlegar þakkir fyrir þær heillaóskir til íslensku þjóðarinnar sem bárust frá konungi 17. júní. “ Um áfram- haldandi setu mína á Al- þingi í langan tíma þar á eft- ir vil ég segja, að þar breyttist ýmislegt; þar var þróun eins og annars stað- ar. Sumar breytingar á Alþingi hafa orðið til bóta, aðrar kannski síður. Menn segja stundum að Alþingi hafi farið aftur og að meiri skörungar hafí setið þar fyrr á öldinni. Ég er ekki viss um að svo sé og alls ekki viss um að meiri skörangar hafí ver- ið áþingi 1944 en nú. Munurinn er sá að þá var verið að ræða þetta stórmál, aðskilnað við Dani og stofnun lýðveldis, en ekki bara um hallann á íjárlögunum. Minnisstæðastur fögnuður fólksins Sigurður Bjarna- son frá Vigur. Myndin er tekin 1942, sama ár og Sigurður var kjör- inn alþmgismaður N orður-í sfir ðinga. Alþingi brást skyldu sinni ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND lagði ríka áherslu á að fullkom- inni reglu yrði haldið uppi á Þingvöllum. „Nefndin og lög- reglustjóri voru sammála um að gæta þess, að nokkurir siðleys- ingjar gætu ekki spillt hátíðleg- ustu stund í lífi íslenzku þjóðar- innar með drykkjulátum," eins og segir í bókinni um lýðveldis- hátíðina. Útbúnir voru nokkrir fangaklefar í því skyni að taka rusta úr umferð og Íögreglubílar hafðir til taks. Til frekari varúð- ar var áfengisversluninni í " Reykjavík lokað án nokkurs fyr- irvara, nokkrum dögum fyrir 17. júní. Ákveðið var að meðal dag- skráratriða yrði klukknahring- ing. Til þess að gera þetta atriði áhrifamikið var klukknahljómur allra kirkjuklukkna í Reykjavík og nokkurra annarra kirkna á landinu tekinn upp á plötur, og hringingarnar síðan sameinaðar á eina plötu til að ná fram sem fegurstum samhljómi. Platan var síðan leikin um leið og forseti sameinaðs Alþingis hafði lýst því yfir að stjórnarskrá lýðveldisins Islands væri gengin í gildi, klukkan 2 eftir hádegi. Þegar hringingarnar þögnuðu var al- ger þögn í eina mínútu og um- ferðarstöðvun um land allt. Sam- komugestir á Þingvöllum drúptu höfði meðan þetta fór fram. ► EIN mótmæli bárust vegna hátíðarhalda á Þingvöllum 17. júní, er „einn grandvar og góður maður bar fram“, segir í bók- innni um lýðveldishátíðina. „Hann hélt því fram, að það væri óvarlegt og ábyrgðarleysi hið mesta að stofna til fjölmennr- ar samkomu á Þingvöllum þann 17. júní, því að flugvélar gætu gert árásir á mannfjöldann á Þingvöllum, ef vitneskja bærist um slík hátíðarhöld. Honum var bent á, að slík árás hefði svo litla hernaðarlega þýðingu, að óþarft myndi vera að hætta við hátíðar- höld á Þingvöllum af þeim ástæð- um.“ Er talið að þessi maður hafi verið „einn af fáum íslend- ingum, sem glaðzt hefur yfir veðrinu, er hann leit til lofts um morguninn þann 17. júní, því að ekki var veður þannig, að líklegt væri til um loftárásir þann dag“. "'TTvm-m'1 AGLEGA IISLENSK IMATVÆLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.