Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ1994 49 Molar Sala forsetamöppunnar hefst I í dag RSETAMAPPAN ;t verður til sölu ? - í pósthúsinu á Þingvöllum 944 1994 ISIAND 50 SLAND 50 SLAND 50:ÍSLAND 50: málinu annan farveg á öðrum tíma. Niðurstaðan lá hins vegar fyrir og líkt og Kristján konungur X. hélt virðingu sinni og vinsældum á ís- landi með því að þýðast þjóðarvilj- ann þá var það háttur dönsku blað- anna að sætta sig við orðinn hlut án þess að erfa framgangsmátann við íslendinga. Á yfirborðinu að minnsta kosti. Þau virtust taka lykt- um málsins með jafnaðargeði þó vonbrigðin hafi vissulega verið mik- il. Að vísu leituðu þau huggunar hjá sænska blaðinu Dagens Nyheter og finnska blaðinu Vestre Nyland sem sögðu að æskilegra hefði verið að íslendingar hefðu beðið með sambandsslitin þar til Danmörk hefði orðið frjáls á ný, en bæði blöð sýndu ákvörðun íslendinga skiln- ing. (Jyllands Posten og Berlingske Tidende 2. júní.) Hægt er að draga afstöðu dönsku blaðanna til sambandsslitanna sam- an með tilvitnun í grein sem ijall- aði um Þingvelli og sögu þeirra og birtist í Berlingske Aftenavis á fyrsta þjóðhátíðardegi íslendinga. í henni kristallast sú gagnrýni sem konungur hafði uppi og opinberað- ist á síðum blaðanna en það var tímanna tákn að nú var tónninn vinsamlegri en mánuði fyrr. Það er með blendnum hug sem við [Danir] horfum til hinna sögu- legu Þingvalla þar sem Sveinn Björnsson ríkisstjóri lýsir ísland lýðveldi í dag. Við getum vel skilið hve stór stund það verður íslensku þjóðinni en við hefðum kosið að þetta stóra skref hefði verið stigið í góðu samkomulagi við Danmörku og eftir fórmlegar viðræður þar sem báðar þjóðir hefðu getað mæst sem frjálsir jafningjar. (Berlingske Aft- enavis 17. júní.) Höfundur er sagnfræðingur og fréttaritari í Kaupmannahöfn. Heimildir: Björn Þorsteinsson, Bergsteinn Jónsson: íslandssaga til okkar daga. Rv. 1991. Bis. 360-362 og 409-419. Aftenbladet maí og júní 1944. Berlingske Tidende maí og júní 1944. Jyllands Posten mai og júní 1944. Politiken maí og júní 1944. hörð viðbrögð dönsku blaðanna. Má með sanni segja að umræða um sambandsmálið í Danmörku hafi risið hæst dagana eftir að svar ís- lensku ríkisstjórnarinnar barst. Dönum sárnaði að íslendingar skyldu setja ofaní við konung og hunsa beiðni hans um að málinu skyldi frestað þar til viðræður hefðu farið fram. Það sýna eftirfarandi upphafsorð frétt- ar í Aftenbladet þar sem svar rík- isstjórnar íslands var tíundað. „Með undrun - og harmi - hafa menn hér á landi eins og á hinum Norðurlöndunum veitt svari íslend- inga athygli...“ Aftenbladet benti á að undirskrift konungs þyrfti til að lög tækju gildi og þegar konung- ur neiti að veita samþykki sitt þá sé gildistaka nýs stjórnskipulags ólögleg og ekki gildandi. Og út af þessu lagði blaðið: Hið nýja lýðveldi verður því eina ríkið á Norðurlöndunum þar sem allt þjóðlífið grundvallast á lög- broti... Maður er bæði hissa og vonsvikinn að horfa upp á hina ís- lensku þjóð, sem annars alltaf - oft með þrætum - hefur haldið á lofti kröfunni um að lög og réttur skuli höfð í heiðri, ætla að gera til- raun til stjórnarskrárbreytingar með því að hafa að engu reglur um slíkar grundvallarbreytingar, eins og lög landsins segja til um. (Aften- bladet 8. maí.) Alvara þessara skrifa opinberar þær tilfinningar sem bærst hafa með Dönum til málsins. Politiken dró ekki í efa rétt íslensku þjóðar- innar til að velja sitt stjórnarform, „en það sem kemur á óvart og hægt er að vefengja er að ekki skuli hirt um samkomulag og sam- skiptareglur sem hafa verið háttur norrænna þjóða.“ (Politiken 7. maí.) Næstu daga var sambandsmálið enn til umræðu á síðum dönsku blaðanna. í þetta skipti voru við- brögð íslenskra stjórnmálaforingja og blaða við konungsboðskapnum birt og þau sýndu að einingin var alger á hinu pólitíska sviði á ís- landi. Berlingske Tidende gaf ekki mikið fyrir rök íslensku blaðanna fyrir réttmæti sambandsslita og virtist tæplega treysta íslendingum til að fara að bókstaf sambandslag- anna um að 75% kosningaþátttöku og 2/a atkvæða þyrfti til að sam- bandslitin væru lögleg og velti blað- ið fyrir sér hvort íslendingar myndu aðeins láta meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu ráða. Var sú skoðun byggð á þeim orðum Björns Þórðarsonar forsætisráðherra að nýtt stjórnarform yrði tekið upp á íslandi, „svo fremi nauðsynlegur meirihluti atkvæða verði fyrir því“. (Berlingske Tidende 16. maí.) Tor- tryggnin var alger. Leiðarahöfund- ur ól þá von að meirihluti lands- manna myndi greiða atkvæði gegn sambandsslitum í þjóðaratkvæða- greiðslu og opinberaði þar með glámskyggni sína á óskir íslend- inga. „Það er kannski veik von, en það væri til heilla, ekki bara fyrir Island heldur Norðurlöndin öll, að sleppa við slíka skömm.“ (Berl- ingske Aftenavis 16. maí.) Þjóðarviljinn ótvíræður - öldurnar lægir Eftir þessa sennu má ^segja að fjari undan umfjöllun um ísland og sambandsmálið í dönskum fjölmiðl- um. Málefni sem var forsíðuefni fram til þessa urðu að stuttum frétt- um á innsíðum blaðanna. Þjóðar- atkvæðagreiðslan sýndi með afger- andi hætti vilja íslendinga og það hefði komið konungi illa að ætla að mæla á mót vilja 97% þjóðarinn- ar sem greiddi atkvæði með sam- bandsslitum. Kristján konungur sá sæng sína uppreidda og þýddist þann þjóðarvilja sem ótvírætt hafði verið látinn í ljós. Dönsku blöðin tóku línuna beint frá konungi og gerðu slíkt hið sama, mest þó með þögninni. Politiken var þó eftir sem áður það blað sem hélt mestri yfir- vegun þegar ljóst var að tæplega 600 ára sambandi landanna var að ljúka og í leiðara eftir að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar lágu fýrir var íslendingum óskað til ham- ingju með ákvörðun sína: „Það er hinu íslenska lýðveldi til sæmdar, að þjóðin skyldi koma fram af slíkum einhug þegar ákvörðun var tekin um sambandið við Danmörku og framtíðar- stjórnarform landsins. Sú mikla samstaða er ótví- ------------ ræð sönnun þess Konunenirtaldi lve. málÞ# ° . hefur legið Is- tímasetnmguna lendingum þungt á sinnu. Og það ranga er mikilvægt fyr- mm^m^^mmam ir framtíðar sam- band Danmerkur og íslands sem norrænna þjóða að ákvörðunin skyldi nást með svo ótvíræðum hætti...“ (Politiken 27. maí.) Sá sem stýrði penna á ritstjórn Politiken beitti honum af karl- mennsku þegar hann setti þessi orð á blað, því engum dylst af því sem áður var sagt að Danir hefðu kosið ► RÚLLU- og hleragerð Reykja- víkur pantaði fyrir tilmæli Þjóðhá- tíðarnefndar um 20 þúsund flagg- stangir frá Bandaríkjunum. Vegna flóða á framleiðslusvæði stanganna komust þær ekki í skip sem átti að flytja þær til landsins. Óttuðust menn að þær bærust of seint og varð raunin sú að stang- irnar náðu ekki til landsins fyrr en örfáum dögum fyrir hátíðina. Illa gekk að fá fána þrátt fyrir margar tilraunir og ekki komu til Iandsins nema rúmlega þriðjung- ur þeirra fána sem pantaðir voru frá Bretlandi og Bandaríkjunum. í dag verður starfrækt pósthús á Þingvöllum og þar verður Forsetamappan seld í fyrsta sinn, enda er 17. júní útgáfu- dagur á frímerkjaörkinni sem ber myndir forseta lýðveldisins. í möppunni eru m.a. tvö eintök arkarinnar - annað óstimplað, hitt stimplað á Þingvöllum f dag. FRIMERKJASALAN p^pnL Frímerkjasalan, Ármúla 25, Pósthólf 8445, 128 Reykjavík. Pöntunarsímar: 636051 og 636052 Fax: 636059. PÓSTUR OG SÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.