Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 59
Rlál og menning iára
I dag eru sjö ár liðin frá stofnun Máls og menningar. Félagið Kefur gefið út
á þessum tíma 25 bækur, sem kostað hafa alls aðeins 1 00 kr. Félagsmannatalan er
nú Kátt á sjöunda þúsund, og er gætilega áætlað, að lesendur að bókum Máls og
menningar séu 25—30 þúsundir, eða allt að fjórði hluti þjóðarinnar.
MÁL OG MENNING
gefur út úrvals-skáldsögur eftir erlenda höfunda. Þarf ekki annað en minna á
Móðurina eftir Gorki, og Þrúgur reiðinnar eftir Steinbeck.
Utgáfa á úrvalsritum íslenzkra bókmennta er eitt af verkefnum Máls og menning-
ar. Andvökur, eftir Stephan G. Stephansson og Rit Jóhanns Sigurjónssonar eru
bækur, sem aldrei falla í gildi.
Glæsilegasta viðfangsefni Máls og menninar er útgáfan á Arfi íslendinga, ritinu
um ísland og Islendinga, menningu og bókmenntir þjóðarinnar. Fyrsta bindi
þessa rits, íslenzk menning I, eftir Sigurð Nordal, er þegar í tölu sígildra verka.
MÁL OG MENNING
vinnur að útgáfu mannkynssögu, sem verður í sex til átta bindum. Er fyrsta bind-,
ið komið út og annað væntanlegt á þessu ári. Tímarit Máls og menningar er víð-
lesnasta tímarit landsins.
MÁL OG MENNING
hefur í undirbúningi útgáfu á yfirlitsritium nútíma vísindi og þróunarsögu þeirra,
úrval hina bezta, sem ritað hefur verið af frægustu vísindamönnum. Ritið heitir
Undur veraidar, yfir I 000 bls. verk, sem félagsmönnum gefst kostur á að eignast
fyrir aðeina 50 krónur.
MÁL OG MENNING
hefur einnig ákveðið útgáfu á hinu forkunnar fagra skáldverki eftir Rolland,
Jean Christophe, sem er 1 0 binda rit.
Auk félagsbókanna gefur Mál og menning út bækur til sölu á frjálsum markaði.
Fagrar heyrði eg raddirnar, Charcot við Suðurpól og Fjallið og draumurinn eru
komnar, en væntanlegar eru í haust, Leit ég suður til landa, Pabbi og mamma, eft-
ir Eyjólf Guðmundsson, Ævintýri Ásbjörrnssonar o. fl.
MÁL OG MENNING
hefur bókabúð á Laugavegi 1 9 og Vesturgötu 21. Allur ágóði af verzluninni renn-
ur til útgáfustarfsemi félagsins og gerir bækur þess ódýrari.
Mál og menning Laugavegi 19 Pósthólf 392 Sími 5055
»1 rW
Þessi auglýsing birtist þann 17. júní 1944.
Mál og menning - stofnuð 17. júní 1937: Úrvalsbækur handa íslendingum - í 57 ár.