Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 53 AUÐUR Auðuns, ráðherra 1970-71, borg-arsljóri 1959-60. RAGNHILDUR Helgadóttir, ráðherra 1984-1987. JÓHANNA Sigurðar- dóttir, ráðherra frá 1989. launaljóð Huldu, Unnar Benedikts- dóttur Bjarklind, „Hver á sér fegra föðurland", á allra vörum. Á glæsi- legum landsfundi Kvenréttindafé- lags Islands á Þingvöllum voru sett- ar fram kröfur um að konur hefðu sama rétt og karlar til allrar vinnu, sömu laun fyrir sams konar vinnu og sömu hækkunarmöguleika og þeir. Gifting eða barneign skyldi engin hindrun vera fyrir atvinnu né ástæða til uppsagnar. Þarna kom í fyrsta sinn fram krafan um fæð- ingarorlof sem verið hefur baráttu- mál kvenna fram á þennan dag. Árangur þeirrar baráttu er að sam- kvæmt núgildandi lögum um fæð- ingarorlof er öllum verðandi mæðr- um tryggður réttur til allt að sex mánaða orlofs frá störfum vegna meðgöngu og fæðingar barns. Það var engu líkara en að konur vöknuðu af dvala því að blaða- og tímaritaútgáfa íslenskra kvenna í kringum lýðveldisstofnun er hin merkasta og ruddi braut nýjum hugmyndum. Vorið 1944 hóf göngu sína Melkorka, tímarit kvenna. Skeleggar greinar í blaðinu hristu upp í konum sem fram að þeim tíma höfðu lítið hugsað út í margt sem þar kom fram. Melkorka kom út til 1962. Árið 1945 kom fyrst út ársritið Embla og flutti ritsmíðar kvenna. Á aldarfjórðungsafmæli kosningaréttar íslenkra kvenna, 19. júní 1940, hóf göngu sína Nýtt kvennablað sem kom út til 1967. Tímarit Kvenfélagasambands ís- lands, Húsfreyjan, hefur komið út frá 1950 og ársrit Kvenréttindafé- lags íslands, 19. júní, frá 1951. Á Akureyri ritstýrði Halldóra Bjarna- dóttir (1873-1981) ársritinu Hlín til 1967. Jafnréttisbaráttunni var haldið áfram á mörgum sviðum. Bar þar hæst kröfuna um launajafnrétti sem jafnan var eitt af höfuðviðfangsefn- um þeirra kvenna sem fremstar stóðu í kvenréttindabaráttunni. Hins vegar einkenndust „þöglu ár- in“ af starfi að velferðarmálum. Konur voru teknar til við að búa til velferðarríkið ef svo má að orði komast. Ekki var einungis stefnt að launajafnrétti kynjanna heldur einnig rétti kvenna til vinnu. Fram yfir síðari heimsstyrjöld var það nánast viðtekin regla að konur hættu vinnu við giftingu. Þá hafði um nokkurt skeið orðið vart við áróður gegn útivinnandi konum og kom sú stefna greinilega fram í launatöxtum. Fyrir kom að vinnu- veitendur sögðu konum upp starfi ef þær giftust og þær raddir gerð- ust æ háværari að svipta bæri kon- ur starfí við giftingu. Á vinnumark- aðinum ríkti sú stefna að skipta störfum í kvenna- eða karlastörf og starfsmat byggðist á að meta til launa eftir því hvort kynið sinnti verkinu. Hefur sú stefna reynst líf- seig. IV Óþarft ætti að vera að minna á að fram undir lýðveldisstofnun voru vinnukonur Iangfjölmennasta stétt launavinnandi kvenna á íslandi. Þegar sú stétt leið undir lok og fram í sótti fjölgaði konum mest í hand- verki og iðnaði og þær hópuðust í verslanir og skrifstofur. Jafnframt varð sá siður almennur að greiða konum lægri laun en körlum. Und- antekning voru kennarar sem fengu launajafnrétti í lög 1919. Áfangasigrar í launamálum unn- ust hægt og sígandi. Árin 1945 og 1954 komst inn í launalög opin- berra starfsmanna ákvæði um sömu laun fyrir sömu störf, fyrir atbeina kvenna og kvennasamtaka. Reynd- in varð hins vegar sú að lögin voru þverbrotin og lögskipað launajafn- rétti dugði skammt. Árið 1957 var samþykkt Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 100 frá 1951 um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf lögfest hér á landi. Hefur þessi samþykkt reynst heilladijúg og orðalagið ,jafnverð- mæt störf“ enn við lýði í síðari endurskoðun jafnréttislaganna frá 1991. Þar með hafði ríkisstjórnin skuldbundið sig til að vinna að því að koma á launajafnrétti. Þrátt fyr- ir það var allan 6. áratug lagt fram á þingi hvert frumvarpið á fætur öðru um launajafnrétti sem ekki voru útrædd eða dagaði uppi. Sam- kvæmt lögum um launajöfnuð, sem tóku gildi 1961, áttu laun kvenna að hækka á árunum 1962-1967 til jafns við karla í mörgum starfs- greinum og sértaxtar, sem víða giltu fyrir konur, voru afnumdir. Þrátt fyrir lögin vantaði mikið á að konur og karlar fengju sömu laun fyrir sömu störf. Meðal ríkis- starfsmanna voru til að mynda 90% kvenná í lægri launaflokkum en aðeins um helmingur karla og í efstu launaflokkum voru nær ein- göngu karlar. Meðal mikilvægustu orsaka launamisréttis kynjanna voru gerð launaflokkanna og skipan karlastarfa og kvennastarfa í ákveðna flokka. Árið 1973 var Jafn- launaráði komið á fót en það má telja undanfara jafnréttislaganna. Á hinn bóginn þarf ekki að draga í efa að skýringuna á því hve árang- urslítil baráttan fyrir launajafnrétti var er að finna í viðhorfum til launa- vinnu kvenna. Rótgróin viðhorf voru þau að giftar konur ættu ekki að vinna utan heimilis nema brýna nauðsyn bæri til, heimilin og börnin liðu fyrir þá ráðabreytni og karlar voru taldir fyrirvinnur heimilanna. Þeim fannst sér meira að segja stór- lega misboðið ef þeir gátu ekki séð fjölskyldu sinni farborða. Tekjur einnar manneskju áttu að duga til framfærslu fjölskyldunnar og konur höfðu því ekkert að gera við kaup á við karla. Þessi viðhorf voru við lýði alls staðar, jafnt í verkalýðs- stéttum sem öðrum stéttum og ekki síst meðal kvenna sjálfra. Þegar ísland fullgilti, 1962, samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 111 um misrétti með tilliti til atvinnu eða starfs frá 1958 var um þriðjungur kvenna á íslandi á vinnumarkaði. Og þegar ísland fullgilti, sumarið 1985, samning Sameinuðu þjóðanna frá 1979 um afnám allrar mismununar gagnvart konum voru yfir 80% kvenna launa- vinnandi. V Á fáum sviðum hefur önnur eins breyting orðið og á menntun kvenna. Ef litið er á nemendafjölda og fjölda útskrifaðra úr mennta- skólum og Háskóla íslands eru kon- ur orðnar fjölmennari en karlar. Konur með háskólapróf eða aðra sambærilega menntun hafa undan- farin ár verið á hraðri leið inn í embættismannastéttina. Hins vegar er það ljóst að aukin menntun hef- ur, enn sem komið er, ekki reynst þeim það frelsisafl sem þær höfðu vonað. Nægir í því sambandi að nefna hlutfall þeirra í valdastöðuni og laun. Enda þótt íslenskar konur hafi haft rétt til prestsembætta frá 1911 var það ekki fýrr en 1974 að fyrsta konan, Auður Eir Vilhjálmsdóttir, var vígð. Með vígslu hennar urðu þáttaskil. Hún gekk síðan í gegnum þá eldraun að bíða þrisvar lægri hlut í prestskosningum. Mátti hún þola slíkt umtal og róg að varla eru dæmi um slíkt. Nú, tveimur áratug- um síðar, er svo komið að fleiri stúlkur innritast í guðfræðideild en piltar og kvenguðfræðingar eru orðnir yfir þijátíu talsins. Stór hópur kvenna hefur verið í fremstu víglínu skálda og rithöf- unda á síðustu árum og blómatími kvenna í listgreinum er hér og nú. Þegar komið var fram um 1970 fengu mörg af þeim málum, sem lengi hafði verið barist fyrir, nýjan byr í kjölfar þeirrar bylgju frelsis og uppreisnar gegn ríkjandi ástandi sem gekk yfír Vesturlönd á sjöunda áratug. Konur urðu meðvitaðri um stöðu sína og misræmið milli veru- leikans og þess sem þær óskuðu sér. Nýja kvennahreyfingin hóf göngu sína hér á landi á sjöunda áratug. Nýjar hugmyndir voru þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.