Morgunblaðið - 17.06.1994, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 31
íslands er aðeins formlegs eðlis og
í reynd er löggjafarvaldið aðeins í
höndum Alþingis.“ Og ennfremur:
„Vald forseta Islands er oftast nær
harla lítið þó svo að í orði kveðnu
sé honum fengið mikið vald sam-
kvæmt stjórnarskránni. Forsetinn
getur lítt beitt valdi sínu til já-
kvæðra athafna og ákvarðana, nema
með atbeina ráðherra. Öðru máli
gegnir um synjanir forseta á stjóm-
arathöfnum eða lögum þar sem for-
seta er formlega heimilt að neita að
samþykkja þau og þarf ekki til þess
atbeina ráðherra, segir Ólafur Jó-
hannesson. Hann segir ennfremur
að forseti verði ekki þvingaður til
þessara athafna. „Hinsvegar gætu
slíkar synjanir hans leitt til árekstra
við ráðherra og orðið til þess að
ráðherra segði af sér. Gæti þá svo
farið, að forseti yrði í vandræðum
með myndun ríkisstjórnar, ef meiri-
hluti þings stæði með ráðherra, sem
gera mætti ráð fyrir.“
í stjórnarskránni frá 1874 sagði
að samþykki konungs þyrfti til að
nokkur ályktun Alþingis gæti fengið
lagagildi. Konungur hafði óskorað
neitunarvald og beitti því í 91 skipti
á tímabilinu 1874-1904 og síðast
1914.
Um þetta segir í ritgerð Harald-
ar: „í frumvarpi mþn. var kveðið á
um það í 26. gr., að ef Alþingi hefði
samþykkt lagafrumvarp skyldi það
lagt fyrir forseta lýðveldisins til stað-
festingar og veitti staðfestingin því
lagagildi.
Nú synjaði forseti lagafrumvarpi
staðfestingar og fengi það þá engu
að síður lagagildi, en leggja skyldi
það þó svo fljótt sem kostur væri
undir atkvæði allra kosningabærra
manna í landinu til samþykktar eða
synjunar með leynilegri atkvæða-
greiðslu. Lögin skyldu falla úr gildi
ef samþykkis væri synjað, en ella
héldu þau gildi sínu.“
Milliþinganefnd þótti ekki fært
að veita forseta íslands algert synj-
unarvald eins og konungur hafði
haft. Forseti tekur ákvörðun um
synjun án atbeina ráðherra, „en ef
mál er mikilvægt gæti daglega af
synjuninni leitt slíkt ósamkomulag
milli forseta og ráðherra, að til ráð-
herraskipta eða annarra aðgerða
Alþingis kæmi.“ Á þetta ákvæði úr
26. grein stjórnarskrárinnar hefur
aldrei reynt.
Síðar í þessum kafla ritgerðarinn-
ar segir svo: „Það er ótvírætt, að
forseti Islands hefur úrslitaorð um
það hverjum hann felur umboð til
stjórnarmyndunar og hvern frest
hann veitir til þeirra. Ólafur Jóhann-
esson telur að forseti hafi óefað
„allmikið svigrúm í sambandi við
starfsaðferðir sínar við stjórnar-
myndanir". Þegar um er að ræða
stjórnarmyndun, verður forseti hins
vegar að kynna sér vilja Alþingis.
Er honum nokkuð í sjálfsvald sett
með hveijum hætti hann gerir það.“
í ritgerð Haraldar Johannessen
er einnig vikið að hlutverki forseta
við útgáfu bráðabirgðalaga, niður-
fellingu saksóknar, náðun, almenna
uppgjöf saka og undanþágur frá lög-
um. Einnig um ýmiskonar forseta-
bréf og veitingu fálkaorðunnar. í
kafla um stöðu forseta Islands er
enn vitnað í Ólaf Jóhannesson, sem
álítur forsetann fyrst og fremst þjóð-
höfðingja, „en jafnframt sýnist rétt
að telja hann embættismann, enda
þótt mikilla afbrigða gæti um emb-
ættisstöðu hans“. Ólafur kemst einn-
ig að þeirri niðurstöðu, að forseti
geti sagt af sér forsetaembætti áður
en reglulegum kjörtíma hans sé lok-
ið þótt það sé ekki orðað í stjórnar-
skránni. Hann telur þetta vera sjálf-
sagða og eðlilega reglu því að ekki
eigi að vera hægt að neyða neinn
til að vera forseti.
Við sjáum stundum í fréttum, að
ambassadorar eða aðrir fulltrúar
erlendra ríkja ganga á fund forseta
íslands og afhenda embættisbréf
sín. Það er aðeins eitt af skyldustörf-
um forsetans að taka á móti sendi-
mönnum erlendra ríkja, svo og gest-
um sem koma af allskonar tilefnum.
Hin daglegu skyldustörf eru afar
margháttuð, en þau verða ekki rakin
hér. Greininni er öllu fremur ætlað
að varpa ljósi á þann ramma sem
löggjafinn og hefðin hafa skapað
utanum embætti forseta íslands.
Fimmtíu ára gretiilundur í Fossvogi.
kógrœktarfélag Reykjavíkur árnar félagsmönnum
sínum og öllum landsmönnum heilla á fimmtíu ára
afmœli íslenska lýðveldisins.
Við leggjum vonglöð upp í nýjan áfanga á vegi
rœktunar og landbóta ogfögnum sérhverjum
liðsmanni í þeirriför.
Skógrœktarfélagið -félagfyrir þig
Forsetar lýðveldisins
1944- 1994
Sveinn Björnsson
1944-1952
Fæddur í Kaupmannahöfn 27.
febrúar 1881, dáinn 25. jan-
úar 1952. Stúdent í Reykjavík
1900, lögfræðipróf frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1907. Yfir-
réttarmálflutningsmaður og rak
málflutningsstofu í Reykjavík
1907-20. Alþingismaður 1914-16
og 1919-20. Sendiherra íslands í
Danmörku 1920-24 og 1926-41.
Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík
1924-26. Ráðunautur ríkisstjórn-
arinnar í utanríkismálum
1940-41. Ríkisstjóri íslands
1941-44. Kjörinn fyrsti forseti
íslands 17. júní 1944. Sjálfkjörinn
1945 og 1949.
Ásgeir Ásgeirsson
1952-1968
Fæddur 13. maí 1894 að Kóra-
nesi, Mýrasýslu, dáinn 15.
september 1972. StúdentMR
1912, cand. theol. frá Háskóla
íslands 1915, framhaldsnám við
háskólana í Kaupmannahöfn og
Uppsala 1916-17. Biskupsritari
1915—16, bankaritari í Lands-
banka íslands 1917-18, kennari
í Kennaraskólanum 1918-27.
Fræðslumálastjóri 1926—31 og
1934-38. Bankastjóri Útvegs-
banka íslands 1938-52. Alþingis-
maður 1923-51, forseti samein-
aðs þings 1930-31, fjármálaráð-
herra 1931-34, forsætisráðherra
1932-34. Kjörinn forseti íslands
1952, sjálfkjörinn 1956,1960 og
1964.
Kristján Eldjárn
1968-1980
Fæddur 6. desember 1916 að
Tjörn í Svarfaðardai, dáinn
14. september 1982. Stúdent MA
1936, nam fomleifafræði í Kaup-
mannahafnarháskóla 1936-
1939, stundakennari við MA
1939-1941, mag. art. í íslenskum
fræðum frá Háskóla Islands
1944. Aðstoðarmaður við Þjóð-
minjasafn íslands 1945-47, skip-
aður þjóðminjavörður 1947. Dr.
phil. frá HÍ 1957. Kristján Eld-
jám skrifaði fjölda greina og
bóka, aðallega um fornleifafræði
og menningarsögu íslands. Kjör-
inn forseti Islands 1968, sjálfkjör-
inn 1972 og 1976 engafekki
kost á sér 1980.
Vigdís Finnbogadóttir
Frá 1980
Fædd 15. apríl 1930 í Reykja-
vík. Stúdent MR 1949, nam
frönsku og franskar bókmenntir
við háskólann í Grenoble og Sor-
bonne í París 1949-53. Nám í
leiklistarsögu við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1957-58, BA-próf
í frönsku og ensku og próf í upp-
eldis- og kennslufræðum við Há-
skóla íslands 1968. Leiðsögumað-
ur og umsjónarmaður námskeiða
fyrir leiðsögumenn hjá Ferða-
skrifstofu Islands. Blaðafulltrúi
Þjóðleikhússins og ritstjóri leik-
skrár 1954-57 og 1961-64. Leik-
hússtjóri hjá Leikfélagi Reykja-
víkur 1972-80. Kjörin forseti ís-
lands 1980, sjálfkjörin 1984 og
1992, endurkjörin 1988.