Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI BAR OPIÐ: miövikudaga: 20:00 - 01:00 fimmtudaga: 20:00 - 01:00 föstudaga: 20:00 - 03:00 laugardaga: 20:00 - 03:00 sunnudaga: 20:00 - 01:00 College block 5 í pakka Faxpappír 30 m Mappa m/glærri forsíðu Pegar viö spörum - sparar þú Opiðallavirkadaga 11.30-18.30 í Skeifunni 11. Sími: 882888. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Meiri tekjur og verk- efni til sveitarfélaga EITT stærsta hagsmunamál sveitar- félaga er að þau fái fleiri verkefni og auknar tekjur, sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, í setningar- ræðu á landsþingi sambandsins sem haldið er á Akureyri. „Það er ein heista forsenda þess, að árangur náist í byggðamálum, að treysta byggð í landinu og koma í veg fyrir byggðaröskun." Vilhjálmur minnti á að til að efla sveitarfélögin, styrkja sjálfsforræði þeirra og færa til þeirra fleiri verk- efni væri nauðsynlegt að gott sam- starf væri milli ríkis og sveitarfé- laga, byggt á gagnkvæmu trausti. „Bæði ríkisstjórnir og sveitarstjómir eru fulltrúar fólksins," sagði hann. „Þessi stjómvöld eiga miklu fremur að vera samheijar en andstæðingar, samheijar sem þurfa að ná samstöðu um eðlilega skiptingu verkefna og tekjustofna. Ég get fullyrt, að þetta er almennur vilji fulltrúa ríkis og sveitarfélaga og þegar litið er til lengri tíma, þá hefur samvinna og samstarf þessara stjórnsýslustiga oftast verið með ágætum." Álögur á sveitarfélög Því væri þó ekki að leyna, sagði hann, að við undirbúning og gerð fjárlaga ríkisins hveiju sinni komi nánast alltaf fram tillögur um álögur á sveitarfélögin eða hugmyndir um að skerða þurfí Iögbundna tekju- stofna þeirra. „Ríkisvaldið virðist stundum líta þannig á, að undir viss- um kringumstæðum geti það snið- gengið samkomulag, sem það hefur gert við sveitarfélögin," sagði hann. „Slík vinnubrögð leiða til alvarlegs trúnaðarbrests milli sveitarfélaganna og ríkisvaldsins." Sagði hann að tillögur þar að lút- andi hafi þó ekki náð fram að ganga, en hlutdeild sveitarfélaga í löggæslu- kostnaði ríkisins sé dæmi um þving- unaraðgerð löggjafarvaldsins í garð sveitarfélaga og í raun bein fjárhags- aðstoð við ríkissjóð. Næstu skref til sameiningar Viljálmur sagði það hlutverk lands- þingsins að ákveða næstu skref í sam- einingu sveitarfélaga og flutning verkefna og tekjustofna til þeirra. I því starfi væri nauðsynlegt að sveit- arstjómarmenn væru samstíga til þess að ekki yrðu tvær tegundir sveit- arfélaga í landinu með mismunandi verkefni. Ljóst væri að framvinda í sameiningarmálum réðist fyrst og fremst af vilja sveitarstjómarmanna og annarra íbúa sveitarfélaganna. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson flytur setningarræðu þings Sam- bands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri i gær. Við háborðið silja Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra og Þórður Skúla- son, framkvæmdastjóri sambandsins. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason HELGI Vilberg sýnir 14 akrilverk á sýningu sem opnuð verður í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn, en sjö ár eru síðan hann sýndi síðast í heimabæ sínum. I vestursal safnsins sýnir Jón Sigurpálsson gólf- og veggmyndir. Tvær sýningar opnaðar í Listasafninu Helgi Vilberg og Jón Sigurpálsson sýna TVÆR myndlistasýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akur- eyri laugardaginn 3. september. í vestursal sýnir Isfirðingurinn Jón Sigurpálsson, en í tveimur sölum, austur- og miðsal, sýnir heimamaðurinn Helgi Vilberg verk sín. Sjö ár eru síðan Helgi efndi Morgunblaðið/Björn Gíslason Þórsarar Akureyrarmeistarar ÞÓRSARAR urðu Akureyrarmeistarar árið 1994, en þeir sigr- uðu KA-menn í leik í fyrrakvöld með þremur mörkum gegn tveimur. Þórir Áskelsson, Júlíus Tryggvason og Bjarni Svein- björnsson skoruðu mörk Þórs, en Höskuldur Þórhallsson og Þorvaldur Sigurbjömsson skomðu fyrir KA. Að vonum ríkti mikill fögnuður í herbúðum Þórsara eftir leikinn og bikamum var að sjálfsögðu hampað eins og vera ber við þetta tækifæri. síðast til einkasýningar á Akur- eyri. Helgi, sem er fæddur árið 1951, hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, en sýningin í Lista- safni Akureyrar er fimmta einkasýning hans. Hann hefur unnið að myndlist og gefið sig að málefnum myndlistarinnar í bænum um langt árabil, en frá árinu 1977 hefur hann gegnt starfi skólastjóra Myndlistar- skólans á Akureyri. Staðið í ströngu „Ég hef staðið í ströngu í mínu starfi siðustu ár, uppbyggingin í Grófargili hefur tekið mikinn tíma, en á þeim vettvangi hefur verið í mörgu að snúast. Nú er ég kominn á beinu brautina aftur og hyggst sinna þessu hugaðar- efni mínu sem er eigin listsköpun og því kann ég ákaflega vel,“ sagði Helgi Vilberg í samtali við Morgunblaðið. I vestursal Listasafnsins á Akureyri sýnir Jón Sigurpálsson gólf- og veggmyndir sem allar eru frá þessu ári. Hann er fædd- ur árið 1954 og nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og í Amsterdam í Hollandi á árunum 1974 til 1984. Jón hef- ur tekið þátt í fjölmörgum sam- sýningum heima og erlendis. Jón er búsettur á ísafirði þar sem hann ásamt öðrum hefur staðið að hinu þekkta galleríi, Slunka- ríki. Sýningin stendur til 28. september næstkomandi og er Listasafnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18. Forráðamenn POB um bótakröfu útgefenda Árbókar Akureyrar Ásakanir vísað { FRAMHALDI af frétt í Morgun- blaðinu í gær um bótakröfu útgef- enda Árbókar Akureyrar á hendur prentsmiðjunni POB óskuðu for- ráðamenn hennar að eftirfarandi kæmi fram: „Þegar við upphaf prentvinnslu bókarinnar bentum við útgefendum á ófullkomna skönnun mynda í bók- inni og vísum algerlega á bug öllum ásökunum um gallaða prentvinnslu af okkar hálfu. Tekið var við verk- inu frágengnu af þeirra hálfu og það vita útgefendurnir. Prentsmiðj- an getur ekki tekið ábyrgð á göllum sem rekja má til vinnu utan hennar og teljum við að þarna hljóti að um galla ábug ligga að baki aðrar ástæður, seni við ekki þekkjum. Háar fjárkröfur útgefenda á hendur prentsmiðjunni eru órök studdar og óskiljanlegar. Starfsfólk POB leggur metnað sinn í að verk séu faglega unnin eins og fjöldi ánægðra viðskiptavina getur vitnað um. í þessu leiðinda'- máli er því aðeins vegið að starfs- heiðri prentsmiðjunnar og starfs'- fólks hennar. Við skiljum ekki hvað útgefend- um gengur til með slíkum málflutn1 ingi og fjárkröfum á hendur okkar og erum á móti Qölmiðlaleik sem þessum." ptargmiMafrife - kjarni málvinv! Leður skrilborðsstóll 19.90 Sláturtíð hefst í næstu viku Mikil ásókn í störf SLÁTURTÍÐ hjá sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga á Akur- eyri hefst í næstu viku, 8. sept- ember, og stendur hún fram í miðjan október. Slátrað verður rúmlega 35 þúsund fjár, sem er svipaður fjöldi og var í fyrra, en þó ívíð meira, að sögn Óla Valdi- marssonar sláturhússtjóra. Mikil ásókn var í störf við slát- urhúsið, en reiknað er með að um 110 manns muni starfa þar í sláturtíðinni. „Við þurfum ekk- ert að auglýsa eftir fólki, það skilar sér og í raun hafa miklu fleiri sótt um störf hér en við getum ráðið,“ sagði Óli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.