Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 34
'34 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Eðlisfræðin á Dealey Plaza EFTIR morðið á Kennedy for- seta 1963 hafa birst mörg rit, kvik- myndir og yfirlýsingar þar sem fullyrt er að fleiri en einn hafi átt aðild að morðinu, að skotið hafi verið úr minnst tveim byssum og að önnur þeira hafi verið á stað fyrir framan og til hægri við for- setabifreiðina. Trjálauf og himinn á ljósmynd af þeim stað er sagt að sé púðurreykur og maður með byssu. „Sjónarvottar“ segjast hafa spð stórt sár á hnakka forsetans og að andlitið hafi verið óskaddað, því hljóti kúlan að hafa komið framan frá. Sú „skýring“ heyrist að byssukúlan hafi kastað honum afturá- bak og til vinstri og að kúlan hljóti þess vegna að hafa komið að frarn- an og frá hægri. Vitnað er í myndramma nr. 314 og 315 í kvikmynd Zapruders sem sönnun þess. Talið er að sú kvik- mynd sé ekta og óföls- uð og að allir sem um þetta ijalla séu sam- mála um það. Tólf myndrammar, Carl J. Eiríksson frá nr. 310 til 321 voru athugaðir og mælingar gerðar á þeim. Númer- in eru skv. kerfi Warr- en-nefndarinnar. Fyrsti ramminn eftir að kúlan hitti er nr. 313. Eftirfarandi tafla sýnir ca fjarlægðina í cm frá afturbrún sætis- ins beint fyrir aftan forsetann að hnakka hans efst (A) og neðst (B) og að brúninni á hatti frú Kennedy (C), eftir leiðréttingu skv. Sér? stakir kynningar- básar frá Módelsamtökunum,| sem kynna nám- skeið í vetur og verða með sýningu daglega;Tómstundaskólanum sem kynnir fjölbreytt úrval námskeiða fyrir alla aldurshópa; Danssmiðjunni, sem kynnir nýjustu dansana og sýnir þá daglega; Make up for ever búðinni sem verður með sýnikennslu daglega, Blómum undir stiganum heldur sýnikennslu daglega; Betra lífi sem les í Víkingaspilin fyrir gesti og gangandi. Það er árátta sumra að þykjast vita ýmislegt um morðið á Kennedy, segir Carl J. Eiríksson, jafnvel þótt sú „vitn- eskja“ stangist á við þekktar staðreyndir. stærðarhlutföllum. Tímabilin milli ramma eru 54,6 millísekúndur: til baka. Þetta túlka „hálfvitar“ á þanr. veg að kúlan ýti forsetanum til baka. Þeir skilja ekki að riffilk- úla hefur fremur lítinn kraft til að ýta hlutum (lítið hreyfimoment, ca 7 Newton-sek.). Þeir hafa e.t.v. séð of margar kúrekamyndir þar sem ein skammbyssukúla hendir manni í loft upp og út um glugga. Það er árátta sumra að þykjast vita ýmislegt um morðið á Kennedy, jafnvei þótt sú „vitn- eskja“ stangist á við þekktar stað- reyndir. Sjónarvottar ljúga. Stað- reyndum sem Zapruder-kvik- myndin sýnir er snúið við og hún sögð sanna það sem hún alls ekki sannar. Þetta fólk fæst ekki til að viðurkenna að kannski var að- eins skotið úr einni byssu. Fullyrð- ingar þess sýna að þetta fólk trú- Rammi nr. C (cm): A (cm): B (cm): 310 92 50 45 311 90 50 45 312 90 50 45 Höfuð beggja eru kyrr miðað við bílinn. Kúlan hittir á undan ramma nr. 313. 313 90 53 47 Hann hefur færst fram. Hnakkinn sýnist heill. 314 90 57 49 Hann hefur færst fram. Ennið er farið af. 315 90 50 46 Hann hefur færst afturábak. 316 48 43 Hnakkinn sýnist heill. 317 46 37 -II- 318 43 30 -II- 319 39 28 -II- 320 35 28 -II- 321 35 27 -II- nth. o/tið sunnudaginn 4. septemher frá M. 13-17 í þessu sambandi er mikilvæg- ast að engin breyting er á stærð- unum A, B eða C frá ramma 311 til 312, en hreyfing fram á við sést greinilega á stærðunum A og B en engin á C þegar rammar 312 og 313 eru bornir saman. Það sama sést við samanburð á römm- um 313 og 314. Þar er líka hreyf- ing fram á við, en bara á A og B. Þetta sannar að hröðun á sér stað á höfði forsetans fram á við milli ramma 312 og 313, en á því tímabili lenti kúlan. Auk þess er hröðunin sýn(Jega miklu meiri og einnig fram á við því efni sem sést á römmum 313 og 314 að kastast eingöngu fram frá höfð- inu. Framangreint sannar að kúlan kom aftanfrá. Eftirverkunin vegna taugavið- bragðs eða krampa sem sést eftir ramma 314 og er afturábak stafar af taugalostinu en ekki af því að kúlan ýti höfðinu afturábak. Hin mikla hröðun afturábak hefst ná- lægt ramma 314 en það er minnst 50 til 100 millísekúndum eftir að kúlan hitti. Kúlan gat ekki ýtt eða framkallað hröðun eftir að hún var hætt að snerta eða hætt að hreyf- ast. Hröðun vegna kúlunnar gat því ekki átt sér stað eftir ramma 313. Bæði höfuðið og efri hluti líkamans rykkjast afturábak ná- lægt ramma 314. Krampi af taugaskemmdum leitast við að fetta líkamann en ekki öfugt skv. áliti manna sem þekkja til krampa. Þegar myndin er skoðuð venju- lega án þess að stöðva rammana sést vel hvernig höfuðið og efri hluti líkamans fettist og rykkist ir ekki eðlisfræðilögmálum Newt- ons þegar þetta mál er til um- ræðu. Það heldur að hlutur sem verður fyrir höggi af öðrum hlut hreyfist ekki strax heldur fari af stað nokkru seinna. Hann hljóti sem sagt að bíða kyrr nokkra stund en fari svo af stað af sjálfsd- áðum og geti jafnvel átt það til að taka smásprett fyrst, í gagn- stæða átt! Samkvæmt rökum þeirra verða eðlisfræðilögmálin um massa, hröðun og hreyfimo- ment ógild þegar forsetinn á í hlut eða þegar hlutirnir gerast á Dea- ley Plaza. Slík „rök“ heyrast jafn- vel í dómsmálum. Ef sárið á framanverðum hálsi forsetans var eftir kúlu sem kom framanfrá, hvernig stóð þá á því að engin kúla fannst í líkamanum þegar hann var allur röntgen- myndaður í leit að kúlum? Engin kúla hafði farið út aftan á hálsin- um eða líkamanum. Hljóðfrá kúla gefur frá sér snarpan hvell sem kemur frá öllum hljóðfráa ferli hennar og frá skot- markinu sem hún hittir. Því er eðlilegt að mörgum hafi fundist skotin koma frá stað nálægt bíln- um. Hafi skot komið frá grashóln- um þá hefur það engan hitt því að öll skot sem hittu einhvern komu aftanfrá að forsetabílnum. Dealey Plaza-kenningarnar í eðlisfræði munu halda áfram að birtast í kvikmyndum og bókum á meðan útgefendurnir geta hagn- ast á þeim. Höfundur er verkfræðingur. FjArfesting í tölvunámi veitir þér forskot á VINNUMARKAÐINUM! 82 klst. starfsmenntunarnámskeið með áherslu á undirbúning fyrir störf á nútíma skrifstofum. Verð aðeins 58.600.- kr. stgr. Afb.verð kr. 61.700.- eða 3.943 kr. á mánuði! Skuldabréf í 19 mánuði, allt innifalið. oc KENNSLUGREINAR: - Almenn tölvufræði - MS-DOS og Windows - Ritvinnsla - Töflureiknir og áætlanagerð - Glærugerð og auglýsingar - Tölvufjarskipti - Umbrotstækni Innritun fyrir haustönn er hafin. Hringdu og fáðu sendan bækling eða kíktu til okkar í kaffi. Tölvuskóli Reykíavíkur BORGftRTÚNI 28. 105 REVKJAUÍK. sími 616699. fax 616696 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.