Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 38
^8 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ TILBOÐ Píta m/buffi, franskar og sósa kr. 490 Hamborgari m/frönskum og sósu kr. 400 Fjöldi góðra rétta á matseðlinum afsláttarkort gilda ekki í sambandi við tilboð. Opnur> MIINININGAR EINAR FARESTVEIT + Einar Farestveit fæddist 9. apríl 1911 á jörðinni Farest- veit í Modalen á Hörðalandi í Noregi. Hann lést 14. ágúst síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni miðvikudag- inn 24. ágúst sl. SMÁTt og smátt fjölgar vinum manns og kunningjum sem náð hafa háum aldri og eiga að baki langan og farsælan feril, sjálfum sér og sínum til hagsbóta og þá um leið samfélaginu öllu til heilla. Menn gera sér ekki alltaf grein fyrir því, að í hvert sinn sem ein- hver lætur gott af sér leiða, að því að mörgum finnst í sína eigin þágu, er sá hinn sami ýmist meðvitað eða Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur, sem enn hafa ekki staðið skil á gjöldum sem á voru lögð 1994 með gjalddaga til og með 15. ágúst 1994, álagningum eldri ára sem í eindaga eru fallnar og gjaldföllnum hækkunum sem féllu í gjalddaga til og með 15. ágúst s.l. og eru til inn- heimtu hjá neðangreindum innheimtumönnum, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsemingu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekanda skv. 36. gr., atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launaskattur, bifreiðagjald, slysatryggingagjald öku- manna, fast árgjald þungaskatts, þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðisaukaskattur af skemmtunum, tryggingagjald af skipshöfnum ásamt skráningagjöldum, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af inn- lendri framleiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, skilagjald á umbúðir, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar, skipulagsgjald, skipagjald, fisksjúkdómagjald, jarðaafgjald, virðisaukaskattur, staðgreiðsla og tryggingagjald. Gjaldendum skal bent á að gera skil nú þegar eða í síðasta Iagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda, að þeim tíma liðnum. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hverja fjámámsgerð. Þinglýsingargjald er 1.000 kr. og stimpilgjald er 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjald- endur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Jafnframt mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Reykjavík, 1. september 1994 Gjaldheimtan í Reykjavík Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Gjaldheimtan Seltjamamesi Gjaldheimtan í Garðabæ Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Gjaldheimtan í Mosfellsbæ Sýslumaðurinn í Keflavík Gjaldheimta Suðumesja Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Neskaupstað Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austfjarða Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum ómeðvitað að gera hluti sem jafn- framt koma öðrum til góða. Þannig er framkvæmdasemi og atorka hvers einstaklings nánast á hvaða sviði sem er, öðrum til heilla með margvíslegum hætti. Það koma ekki allir auga á þessa einföldu staðreynd. Þetta kemur mér m.a. í hug við fráfall svila míns, Einars Farest- veit, sem lést að heimili sínu 14. þ.m. eftir alllöng og erfið veikindi sem hann bar af karlmennsku og rósemi, fyllilega meðvitaður að hverju stefndi og með öll sín mál á hreinu. Það duldist víst enguni þegar Einar Farestveit kom til íslands, 22 ára að aldri árið 1933, að þar var á ferð óvenjulega myndarlegur og glæsilegur ungur maður, sem hafði til að bera sérstaka reisn, er eftir var tekið hvar sem hann fór. Þessi reisn sem hann bar til hinstu stundar var ekkert sem hann þurfti að byggja upp eða búa til, þetta var honum einfaldlega meðfætt og eðlislægt. Leiðir okkar Einars lágu fyrst saman 15 árum eftir að hann kom til landsins. Árið 1947, þegar ég kynntist honum, bjó hann og Guð- rún ásamt börnum sínum að Hraun- teigi 30. Þar var oft glatt á hjalla. En næstu árin á eftir vorum við Sigrún, systir Guðrúnar, tíðir gestir á Hraunteignum og eyddum þar m.a. aðfangadagskvöldi jóla úm árabil. Vera okkar með þeim hjónunum og glaðværum barnahópi er okkur mjög minnisstæð og viljum við þakka þeim alla velvild í okkar garð. Börnin þeirra eru vel af Guði gerð og hafa komið sér og sínum vel og smekklega fyrir. Mér er kunnugt um að Einar mat þetta mikils. Umhyggja barnanna og maka þeirra í veikindum Einars og nú á efri árum Guðrúnar er þeim til mikils sóma og með þeim hætti, sem maður gæti helst óskað öllu öldruðu fólki. Einar Farestveit, sem kom til íslands í þeim tilgangi að kenna og leiðbeina á sviði loðdýraræktar, markaði einnig áberandi spor í ís- lensku viðskiptalífi. Árið 1941 réðst hann til starfa hjá G. Helgason & Melsted hf., og vann þar við vax- andi traust í 24 ár. Þeim þætti munu gerð skil af öðrum sem þekk- ir betur til á þeim vettvangi. Sjálfur minntist hann áranna hjá G. Helga- son & Melsted af miklum hlýhug og kvað Pál Melsted og fjölskyldu hans hafa reynst sér mjög vel. En 1964 ákveður Einar að stofna sitt eigið fyrirtæki, Einar Farest- veit & Co. Grunnurinn að þeim rekstri voru viðskipti með heims- þekktar norskar vörur eins og Rad- ionette, útvarps-, sjónvarps- og Stangir og plötur. Suðuþráður o.fl. Vandað efni. Gott verð. SIMONA' Kunststoffe PtaBtÍca • PÍastlques Leitið upplýsinga. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 16 SlMI 672444 • FAX 672580
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.