Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994
MINNINGAR
SÓLMUNDUR M. EINARSSON
4- Sólmundur
* Maríus Einars-
son fæddist á
Hruna í Hörg-
landshreppi 24.
nóvember 1921.
Hann lést á Vífils-
staðaspítala 22.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Sól-
mundar voru Ein-
ar Gísli Sigurðs-
son, fæddur 2.
september 1887 á
Orustustöðum í
Hörgslands-
hreppi, síðast
bóndi í Búlandsseli í Skaftár-
tungu um tíu ára skeið eða til
æviloka, en hann drukknaði í
sjóróðri í Vík í Mýrdal 23.
apríl 1932, og Þuríður Anes-
dóttir, eiginkona hans, fædd
27. júlí 1892 á Hruna í sama
hreppi, dáin 1. febrúar 1970
að Breiðabólstað á Síðu. Sól-
mundur var næstelstur fjög-
urra systkina, elstur var Sig-
urður Anes, fæddur 1919, dó
á barnsaldri, en yngri voru
Elín Magnea, fædd 1923, hús-
freyja á Breiðabólsstað á Síðu,
dáin 1980. Eiginmaður hennar
var Matthías Olafsson, fæddur
12. mars 1915, bóndi þar. Börn
þeirra eru fimm. Karl, húsa-
smíðameistari í Kópavogi,
fæddur 1928, eiginkona hans
var Hulda Krisljánsdóttir.
Börn þeirra eru fjögur. Yngst-
ur systkinanna er
Andrés Sigurður til
heimilis að Hruna,
fæddur 1930, húsa-
smíðameistari og
organisti við Prest-
bakkakirkju á Síðu.
Eiginkona hans er
Svava Ólafsdóttir,
fædd 10. febrúar
1932. Börn þeirra
eru sex. Eftirlifandi
eiginkona Sólmund-
ar er Rannveig
Kristjana Jónsdótt-
ir, húsfreyja og
áður saumakona
o.fl., Birkihvammi 10, Kópa-
vogi, fædd 20. desember 1924
í Hörgsdal á Síðu, V.-Skaft.
Foreldrar hennar voru Jón
Bjarnason, bóndi, síðast á
Mosum í landi Geirlands í
Kirkjubæjarhreppi, fæddur
14. apríl 1887, dáinn 10.
desember 1977, og eiginkona
hans, Anna Kristófersdóttir,
fædd 15. apríl 1891, dáin 27.
janúar 1967. Börn Sólmundar
og Rannveigar eru fjögur:
Þuríður Bára, fædd 4. júní
1945 á Mosum á Síðu, nú
læknafulitrúi og húsfreyja til
heimilis að Sólheimum, Hvols-
hreppi, Rangárvallasýslu. Eig-
inmaður hennar er Helgi Ing-
varsson, bifreiðastjóri og land-
póstur, fæddur 26. nóvember
1938. Þau eiga sjö börn og
barnabörnin eru fimm; Elín
Anna, fædd 5. apríl 1947 á
Mosum á Síðu, húsfreyja og
bókari í Reykjavík. Eiginmað-
ur hennar er Geir Geirsson,
vélstjóri í Búrfellsvirkjun,
fæddur 4. júlí 1946. Þau eiga
þijá syni; Einar Sigurður,
fæddur 27. ágúst 1948 í Hvera-
gerði, offsetprentari, búsettur
í Svíþjóð. Eiginkona hans er
Svanhvít Kristín Einarsdóttir,
fædd 22. september 1954, rit-
ari og húsfreyja. Börn þeirra
eru tvö. Aður átti Einar stúlku,
Rannveigu, fædda 15. nóvem-
ber 1967 með þáverandi sam-
býliskonu sinni, Þórdísi Eygló
Sigurðardóttur. Rannveig á
tvö börn með sambýlismanni
sínum, Jóni Þorbergssyni,
fæddum 13. febrúar 1966;
Jóna, fædd 13. september 1955
á Breiðabólsstað á Síðu, V-
Skaft., húsfreyja og aðstoðar-
kona á leikskóla, búsett í
Kópavogi. Eiginmaður hennar
er Einar Baldvin Einarsson,
tannsmiður, fæddur 29. októ-
ber 1950. Börn þeirra eru þijú.
Afkomendur Sólmundar heit-
ins og Rannveigar eru alls 27.
Útför Sólmundar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag.
EFTIR HIÐ sviplega fráfall Einars
Gísla 1932, föður Sólmundar, varð
eigi um frekari búskap að ræða í
Búlandsseli. Varð það að ráði að
ekkjan, Þuríður Anesdóttir, flutti
búferlum að Hruna með fjögur
Heimilistæki
í fullri breidd
ÞVOTTAVÉL
AV 637 TX
Tekur 5 kg.
16 þvbttakerfi
Stiglaus hitastillir
Tromla og belgur
úr ryðfríu stáli.
KR. 47.300,
KÆLISKÁPUR
RF 270 B
Kælir: 1$0 lítrar
Frystír: 80 Iftrar
Hæð: 149 cm
Breidd: 55 cm
Dýpt: 60 cm
KR. 58.800,-
mnm
I verslunum BYKO og
Byggt og búið bjóðast stór og smá
heimilistæki á hagstæðu verði.
kæliskApur
DF 230 S
Kælir: 185 lítrar
Frystir: 45 lítrar
Hæð: 139 cm
Breidd: 55 cm
Dýpt: 59 cm
KR. 46.600,-
Skiptiboró 41000, 641919
ÞURRKARI
S 54 K
Tekur 4,5 kg af
þvotti.
Tvö hitastig:
^0 C fyrir viðkvæmai
bvott.
*o0 C fyrir venju-
legan þvott
Tromla úr ryöfríu stáli.
Tromla snýst í báðar áttir.
Hólf og gólf, afgreíösla 641919
Almenn afgreiðsla 54411, 52870
iTmrniifimTOttidJiLsumiM
Almenn afgrelðsla 629400
Almenn afgreiðsla 689400, 689403
ARISTON
Falleg, sterk og vönduö
ítölsk heimilistæki
KR. 39.500,-
Graent símanúmer BYKO
Grænt númer 996410
börn sín, en það elsta, Sigurður,
var þá látinn. Þá bjuggu í Hruna
Einar bróðir Þuríðar og eiginkona
hans, Eiín. Með ijölskyldunni á
Búlandsseli flutti að Hruna Ragn-
hildur Jónsdóttir, fædd 17. septem-
ber 1881, en hún hafði verið vinnu-
kona á Búlandsselsheimilinu alla
tíð. Hún var föðursystir Sigfúsar
á Geirlandi. Ragnhildur var áfram
á Hruna með Þuríði og börnum
hennar til þjónustu og aðstoðar við
bömin, en Þuríður var oft heilsulít-
il. Ragnhildur var á Hruna til 1941
að einu ári undanskildu og síðar
var hún í vist á Breiðabólsstað á
Síðu frá 1950 er Elín og Sólmund-
ur bjuggu þar eins og síðar grein-
ir og dvaldi Ragnhildur þar til
æviloka. Tel ég mig hafa heimildir
fyrir því að Ragnhildur hafi ávallt
verið Þuríði og börnum hennar til
frábærrar hjálpar í erfiðleikum
fjölskyldunnar.
Eftir venjulega skólagöngu var
Sólmundur heitinn enn heimilis-
fastur og dvaldi á Hruna. Vann
hann þá ýmsa vinnu er til féll á
Síðunni en skjótt mun hugur hans
hafa staðið til smíða og bygginga-
vinnu. Hann hafði og hneigð og
næmi fyrir tónlist og það hafa
sagt mér félagar hans frá þessum
tíma, að hann hafi oft spilað á
harmonikku á dansleikjum á Síð-
unni.
Á árunum 1944 til 1945 liggur
leið Sólmundar til Reykjavíkur
enda hafði hann þá kynnst konu-
efni sínu, Rannveigu Jónsdóttur
frá Mosum á Síðu. Vann hann þar
ýmis störf um tíma en 1947 flutt-
ust þau til Hveragerðis og hugðust
setjast þar að. Byggði Sólmundur
þar einbýlishús og vann ýmsa
vinnu. En þar kom að Sólmundur
veiktist af skæðri bijósthimnu-
bólgu og varð óvinnufær um lang-
an tíma. Leiddi það til þess að þau
seldu húsið í Hveragerði og fluttu
búferlum að Breiðabólsstað á Síðu
1950 og bjuggu þar í sambýli við
Elínu og Matthías er þar voru bú-
endur sem fyrr segir. Dvöldu Sól-
mundur og Rannveig þar til ársins
1957.
Sólmundur vann ýmsa vinnu á
Síðunni á þessum árum önnur en
bústörf, svo sem við brúarsmíði og
við virkjun heimarafstöðva, m.a.
með Sigfúsi Vigfússyni á Geirlandi
og margt fleira. Meðal annars var
hann við grenjaleit og var afburða
skotmaður. Var ljóst að Sólmundur
lifði sig mjög sterkt inn í náttúru-
líf á Síðunni og skynjaði af næmni
landið og náttúruna og eðli dýra-
lífsins.
Árið 1957 fluttu þau hjónin síð-
an til Kópavogs. Byggðu þau sér
einbýlishús að Birkihvammi 10 og
bjuggu þar ávallt síðan.
Eftir að þau hjónin fluttu til
Kópavogs vann Sólmundur í mörg
IIUIDHYkkJI K
ár einkum við bílamálun og spraut-
un. Kom þá glöggt í ljós frábær
handlagni hans og iistfengi, enda
hlaut hann meistararéttindi í þeirri
grein. Var hann mjög umsetinn
og eftirsóttur ef þurfti að sprauta
og lagfæra bíla eftir óhöpp vegna
þess hvað glöggur hann var á liti,
hjálpsamur og bóngóður. Mun Sól-
mundur hafa unnið þessi störf sem
aðalvinnu í um 13 ár. En um 1970
veiktist hann og tók sig aftur upp
sjúkdómurinn frá því í Hveragerði.
Varð hann óvinnufær um tíma og
eftir 1970 varð Sólmundur ætíð
að búa við skerta starfsorku.
Segja má að þá hefjist nýtt tíma-
bil í lífi hans. Hann var í eðli sínu
mjög vinnusamur og brá því á það
ráð að skapa sér vinnuaðstöðu í
bílskúr sínum þar sem hann gæti
unnið að ýmsum verkefnum er
hann veldi sér sjálfur og aðstæður
væru til að vinna þar. Fyrst mun
hann hafa smíðað sjálfur og sett
saman þær vélar og tæki og annan
útbúnað er til þurfti til að vinna
að ýmiss konar fín- og nákvæmnis-
vinnu, einkum í trésmíði. Sýnir
þetta eitt sér hvað frábær smiður
Sólmundur var. En síðan hafa í
gegnum árin mörg og frábær hag-
leiksverk verið unnin á þessari litlu
verkstofu Sólmundar. Hann hafði
raunar unun af því að vinna að
endurbótum á fögrum eldri munum
sem farnir voru að láta á sjá. Er
hann hafði farið um þá sínum lista-
höndum voru þeir sem nýir. Var
hér einkum um að ræða eldri píanó,
harmonium, klukkur og margs
konar aðra eldri húsmuni og hluti.
Spurðust verk hans víða og hafði
hann ætíð næg viðfangsefni. Sól-
mundur heitinn vann ætíð einn að
þessum verkefnum sínum. Ef til
vill hefur það ekki verið áreynslu-
laust að vera svo mikið einn að
störfum og fannst vinum hans
hann vera á stundum dulur og
nokkuð einmana. En að lundarfari
var Sólmundur fremur hlédrægur
en þó tilfinninganæmur.
Sólmundur veiktist í maímánuði
sl. og fór strax á sjúkrahús þar
sem hann dvaldi þar til yfir lauk.
Sýndi hann þá mikla hugprýði,
þrautseigju og þolinmæði, þó að
ljóst mætti vera að drægi að leiðar-
lokum. Átti hann í þeirri baráttu
mikið að þakka Rannveigu eigin-
konu sinni, dætrum þeirra og öðr-
um vinum fyrir frábæra aðstoð og
umhyggju.
Við vinir Sólmundar heitins,
mágar, mágkonur og félagar í
Mosafélaginu, sem við köllum svo,
um rekstur sumarhúss á Mosum á
Síðu, færum honum að leiðarlokum
alúðarþakkir fyrir þau fjölmörgu
verkefni sem hann innti af hendi
við húsið okkar til fegrunar, við-
halds og endurbóta. Við þökkum
Sólmundi fyrir vináttu og hjálp-
semi og samfylgdina í lífinu og
óskum honum velfarnaðar á nýjum
leiðum. Að lokum færum við vinir
og félagar eiginkonu hans, börnum
og öðrum aðstandendum Sólmund-
ar heitins hugheilar samúðarkveðj-
ur við fráfall og missi þessa frá-
bæra og hógværa heiðursmanns.
Hermann G. Jónsson.
Innhvenf íhugun (TMhugleiðsla)
Umfangsmikil samanburðarrannsókn* á áhrifum velflestra
þekktra hugleiðslu- og slökunaraðterða á lífsfyllingu fór nýlega
fram I Bandaríkjunum. Rannsóknin leiddi I Ijós að Innhverf
íhugun sýndi um þrisvar sinnum meiri áhrif (0.78) heldur en
aðrar hugleiðslu- (0.26) og slökunaraðferðir (0.27). Önnur
samanburðarrannsókn**, sem gerð var I Stanford háskólanum,
rannsakaði áhrif mismunandi þroskaaðferða á kvíða. Flestar
aðferðirnar sýndu svipuð áhrif, en Innhverf fhugun sýndi áber-
andi mestan árangur við minnkun kvíða. Innhverf íhugun er ein-
föld og auðlærð huglæg tækni sem stunduð er (20 mín. kvölds
og morgna. Um 350 rannsóknir hafa verið birtar í vísindatfma-
ritum um áhrif tækninnar á huglægt og líkamlegt atgervi iðkenda.
Ljóst er að iðkun tækninnar hefur afgerandi jákvæð áhrif á alla þætti mannlegs lífs.
Kynningarfyrirlestur um tæknina verour haldinn i kvöld kl. 20.00 og á laugaroaginn
3. sept. kl. 14.00. í TM-kennslu- og þjónustumiðstöðinni, Vitastíg 10. Nánari upplýsingará
staðnum milli kl. 10-18 virka daga, 10-14 laugardaga eða (síma 91-628485.
Geymið auglýsinguna.
'Journal of Social Behaviourand Personality, 1991, Vol. 6, No. 5,189—247.
"Journal of Clinical Psychology, nóv. 1989, Vol. 45, No. 6.