Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLiAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 37 ----------------------------aT MIIMINIINGAR 22. ágúst síðastliðinn á yndislegu síðsumarkveldi eins og þau gerast fegurst, kvaddi afi minn þetta jarðlíf eftir erfið veikindi síðastlið- inna vikna. Með örfáum fátækleg- um orðum langar mig að minnast hans og þakka honum allt það sem hann gerði fyrir okkur börn sín og barnabörn. Hann var annar í röð 5 systk- ina. Árið 1922 flytjast foreldrar föður míns að Búiandsseli í Skaft- ártungu og þar bjuggu þau þar tii afi lést skyndilega 23. apríi 1932, en hann drukknaði í sjó- róðri frá Vík. Eftir lát hans flyst amma með börn sín að Hruna til bróður síns og mágkonu og með henni fer einnig Ragnhildur Jóns- dóttir sem verið hafði vinnukona hjá afa og ömmu öll árin í Bú- landsseli og var hún börnunum stoð og stytta því um þetta leyti veiktist Sigurður af berklum og dó. Amma veiktist einnig og þurfti hún að skilja við börn sín og dvelja á Vífilsstöðum um nokkurn tíma. Má nærri geta hvaða áhrif þessir atburðir hafa haft á viðkvæma barnssál á þeim aldri sem pabbi var. Minntist hann ætíð frænda síns á Hruna með sérstakri virð- ingu og fann maður glöggt hve honum þótti vænt um hann og hans börn. Pabbi var mjög dulur á tilfinningar sínar en jafnframt einkar næmur á líðan og tilfinn- ingar annarra. Hann var mikið náttúrubarn, enda alinn upp við magnaða náttúru á heiðunum sunnan Eldgjár og við hraunjaðar Skaftárelda. Við hjónin áttum því láni að fagna að fara með pabba og mömmu í Búlandssel fyrir réttu ári og heyra hann lýsa staðháttum og örnefnum og sjá lindina í gilinu þar sem álfkonan birtist og bjó. Þá ferð verðum við ævinlega þakk- lát fyrir. Pabbi hafði óvenjugott feg- urðarskyn, hagar hendur og næmt auga fyrir litum. Hann var eftir- sóttur bílamálari og vandvirkur svo af bar, og eftir að hann hætti að vinna við bílamálun, eftir veik- indi árið 1970, fór hann að sinna hugðarefnum sínum í' bílskúrnum eftir því sem heilsan leyfði. Hann hafði yndi af að handleika eðalvið og gera úr honum ýmiss konar dýrgripi. Einnig gerði hann við og endursmíðaði marga gamla hluti sem jafnvel komu til hans í mörg- um pörtum, eins og gamlir rokk- ar, klukkur og alls konar húsgögn, orgel og píanó. Var svo komið að hann annaði ekki því sem til hans var leitað með, en vandvirkni hans og listfengi var viðbrugðið og bera þessir gripir, sem dreifðir eru um allt Iand, honum svo einkar fagurt vitni. Við dyr verkstæðis síns reisti hann lítið gróðurhús, þar sem hann ræktaði rósir og ýmsar aðrar við- kvæmar jurtir sem blómstruðu og báru ávöxt hjá honum þrátt fyrir lakk og málningarloft frá verk- stæðinu. Það má því segja um pabba að hann hafi tjáð tilfinninar sínar og kærleika með höndum sínum, hvort sem hann var við smíðar, hlúði að gróðri eða hvað annað sem hann tók sér fyrir hend- ur.^ Á yngri árum stundaði pabbi veiðiskap, var góð skytta hvort sem um var að ræða sel, gæs eða ref. Kom þolinmæði hans og skap- lyndi vel í ljós í glímunni við ref- inn, og gaman var að heyra hann segja frá lifnaðarháttum hans og viðbrögðum. Þakka dætrasynir hans þær stundir sem hann gaf sér tíma frá skúrnum til að fara með þeim í veiði og kenna þeim að hnýta flugur og veiða fisk á stöng. Allt líf hans einkenndist af hóg- værð og vinnusemi, hann naut lít- illar skólagöngu, eins og var um marga af hans kynslóð, hafði gott innsæi, var ráðhollur og bóngóður svo það kom iðulega niður á frí- tíma hans og heilsu. Veikindum sínum tók hann af miklu æðru- leysi og vissi strax að hveiju dró. Við systur og nánustu aðstandend- ur viljum þakka mömmu fyrir hve frábærlega hún hefur staðið við hlið hans og hjúkrað honum á þessum erfiðu tímum, en á hana setti pabbi allt sitt traust á sinn ljúfa og hljóðláta hátt. Við munum aldrei gleyma því trausti og þeirri ástúð sem ríkti á milli þeirra þess- ar erfiðu vikur, það eru dýrmætar minningarperlur sem munu fylgja ; okkur út ævina. Hjartans þakkir ■“ fyrir allt, pabbi minn, hittumst . síðar á landi ljóssins og friðarins. j Bára Sólmundsdóttir. ; í dag er okkar ástkæri afi borinn til hinstu hvílu. Samskipti okkar systkina við afa voru mismikil, þar sem sum okkar bjuggu á heimili þeirra ömmu einhvern tíma en sum okkar komu aðeins í heimsókn þeg- ar leiðir lágu til Reykjavíkur. 011 minnumst við afa sem mikils athafna- og listamanns því hann var yfírleitt í skúrnum við smíðar eða aðra iðju, garðyrkju og fleira. Afi var mjög jákvæður maður, rólegur og yfirvegaður, og gott var að ræða við hann um ýmis mál því að hann talaði af mikilli rósemd og gerði aldrei veður út af neinu. Hann vildi alltaf hlusta á okkar skoðanir og hvað við höfð- um fram að færa og var afí því miklu meiri félagi en aldursmunur- inn, sem skildi að, gaf tilefni til. Hafði hann því ákaflega góða nærveru og alltaf hefur okkur þótt þægilegt að koma í Birki- hvamminn sem og ánægjulegt að fá þau austur, þó okkur finnist það hafa verið alltof sjaldan. Fyrir þessar stundir og það sem þær gáfu okkur erum við ævinlega þakklát og geymum þær í huga og hjarta allt okkar líf. Elsku afi, við vitum að þér líður vel þar sem þú ert nú, og að þú ert alltaf hjá okkur þar til við hitt- umst á ný. Afabörnin frá Sólheimum, Hvolsvelli. Kennsla kefst 8. septemLer Innritun hafm í síma 813730 og 813760 Fyrir dansarana og ungt fólk. Byrjenda og framhaldsflokkar sflokkar Fyrir unglingana. Byrjenda og framhaldsflokkar. 2-3svar í viku. Nýjung! Allir hressir krakkar, strákar og stelpur, í jassballett í vetur! Nú komast börn frá 4ra ára aldri í forskólann okk?r. A Vf vV UTSALA10-60% AFSLATTUR • Barnaúlpur - verí kr. 3.490 (átur kr. 6.490) • Fullarlinsdúnúlpur - verS kr. 4.990 (átur kr. 10.750) • Barnaíþrúttagallar - verl frá kr. 2.990 • FullorSinsfþróttagallar - verS frá kr. 3.990 jýj nU(DID6l • Leikfimiskúr - verl kr.1.990 (st.30-46) SPORTBÚÐ Opið laugardag kl. 10-16. I N Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.