Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 ERLENT MORGONBLAÐIÐ Afstýrði Bossi upp- reisn? SAKSÓKNARAR á Norður- Ítalíu sögðust í gær hafa hafið rannsókn á því hvað hæft væri í staðhæfingum Umbert- os Bossis, leiðtoga Norður- sambandsins, um að hann hefði afstýrt vopnaðri uppreisn á meðal fylgismanna sinna í bænum Bergamo 1986-87. Lögreglan kvaðst ekki vita til þess að legið hefði við uppreisn og nokkrir félagar í Norður- sambandinu vefengdu ummæli leiðtogans, töldu þau ýkjur. Lík Sómala í N-Rússlandi FIMM Sómalir hafa fundist frosnir í hel í Norður-Rúss- landi, um 100 km austan við norsku landamærin. Flótta- menn hafa stundum reynt að ganga yfir óbyggðirnar til Noregs. Stofnar Ham- as flokk? HAMAS, hreyfing herskárra múslima, íhugar nú að stofna stjórnmálaflokk fyrir kosning- arnar á sjálfstjómarsvæðum Palestínumanna, sem stefnt er að í desember. Forystumenn í hreyfingunni hafa viðurkennt að áhrif hennar hafi minnkað á svæðunum eftir að Yasser Arafat, leiðtogi helsta keppi- nautarins, Frelsissamtaka Pal- estínumanna (PLO), sneri aft- ur á Gaza-svæðið. Hamas er andvígt _ friðarsamkomulagi PLO og ísraela. Japönsk skip flæmd í burtu RÚSSNESKA strandgæslan skaut í gær viðvörunarskotum upp í loftið til að flæma í burtu japönsk fiskiskip sem stefndu inn í landhelgi Rússlands. 50 skip höfðu siglt í átt að Kúril- eyjum, sem Rússar og Japanir deila um. Þijú þeirra stefndu inn í lögsöguna en sneru við eftir viðvörunarskotin. Alsírskir fangar á brott YFIRVÖLD í Frakklandi fluttu 20 af 26 Alsírbúum, sem hafa verið þar í haldi eftir dráp á fimm Frökkum í Algeirsborg í ágúst, úr landí í gær, en ekki var skýrt frá því hvert þeir fóru. Þeir voru ekki send- ir heim, þar sem það hefði stefnt þeim í hættu. Misnotaði síma forsetans ALBANI nokkur hefur verið handtekinn fyrir að hafa tengt síma sinn inn á símalínu Salis Berisha, forseta Albaníu, í sumarbústað hans til að tala við ættmenni sín í Grikklandi. Maðurinn greip til þessa ráðs þar sem hann hafði áhyggjur af brottvísun ólöglegra alb- anskra innflytjenda frá Grikk- landi. Berisha hafði gefið út sérstaka tilskipun til að stemma stigu við slíkri mis- notkun, sem er orðin landlæg í Albaníu. Leiðtogar Eystrasaltsríkjanna fagna brottflutningi rússneskra hersveita: & Getum loks ráðið örlögum okkar sjálf Riga, Palanga. Reuter. LEIÐTOGAR Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháen, sögðu í gær í tilefni þess að síðustu hersveitir Rauða hers- ins voru fluttar brott, að í fyrsta sinn frá árinu 1940 gætu þjóðirnar ráðið örlögum sínum sjálfar. Loks væri hægt að segja að áratuga hersetu væri lokið. „Þetta er stórmikilvægur dagur fyrir löndin okk- ar þijú, nágrannaríkin og Evrópu alirar. Endurómun seinna stríðsins hefur loks dáið út,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna. Reuter Pakkar saman NÍKOLAJ Savoushkín yfirflotaforingi rússneska flotans í Eist- landi tekur einkennisföt sín áður en hann yfirgefur höfuðstöðv- ar flotans í Tallinn í síðasta sinn. „Ég hef enga trú á því að við höfum leyst allan öryggisvanda Eystrasaltsríkjanna," sagði Juri Luik utanríkisráðherra Eistlands á blaðamannafundi eftir fund utan- ríkisráðherra Eystrasaltsríkjanna þriggja með starfsbræðrum sínum frá Norðurlöndunum fimm í Pa- langa í Litháen í gærmorgun. „Ljóst er að það eru pólitísk öfl í Rússlandi sém vilja endurreisa Sovétríkin og það út af fyrir sig skapar vissa ógn,“ sagði Luik. Algirdas Brazauskas forseti Lit- háen bauð ráðherrunum til há- degisverðar og sagði brottflutning rússnesku heijanna „mikilsháttar áfanga“ sem Norðurlöndin hefðu átt mikinn þátt í að ná fram. Væri nú búið að ryðja úr vegi ákveðinni uppsprettu tortryggni og spennu á Éystrasaltssvæðinu. Umhverfisspjöll Talsmaður rússneska varnar- málaráðuneytisins sagði að gert væri ráð fyrir að síðustu hersveit- irnar í Lettlandi og Eistlandi færu yfir rússnesku landamærin klukk- an 21 að íslenskum tíma í gær- kvöldi. Brottflutningi herja frá Lit- háen lauk fyrir ári. Reyndar verða um 800 hermenn og óbreyttir Rússar eftir í ratsjárstöðinni í Skrunda í Lettlandi næstu fjögur árin í samræmi við samninga um heimkvaðningu rússnesku her- sveitanna. Girts Lukins umhverfisráðherra Lettlands sagði að gífurleg um- hverfisspjöll hefðu hlotist af veru Rauða hersins. Ástandið hefði ekki verið kannað til hlítar en kostnaður yrði vart undir 10-15 milljörðum dollara, jafnvirði 700 tii 1.050 milljai'ða íslenskra króna. Neita að borga „Rússar segja að þetta sé okkar vandi og að við verðum sjálfir að bera kostnaðinn," sagði Lukins. Alls fóru 100.000 hektarar lands undir stöðvar hersins í Lettlandi og er talið að bijóta þurfi tvo þriðju þess og endurrækta frá grunni vegna jarðvegsmengunar. Sums staðar er óttast að mengun af völd- um olíu og þungmálma ógni drykkjarvatnsforða. Hafa Lettar sett fram kröfur um skaðabætur en á móti hafa Rússar krafist borg- unar fyrir hernaðarmannvirki sem þeir skildu eftir. Skipum sökkt Einna verst er ástandið í fyrrum flotastöð í Liepaja sem Rússar yf- irgáfu í algerri óreiðu fyrir mán- uði. Þar er ekki eingungis óbærileg jarðvatnsmengun heldur er höfnin full af skipsflökum. „Þetta eru fyrst og fremst gömul og gagnslít- il skip. Þeir tóku úr þeim vélarnar og sökktu þeim svo af hreinum ásetningi," sagði Lukins. I gær fóru síðustu rússnesku hersveitirnar frá Þýskalandi en umhverfisverndarsinnar segja að þær hafi skilið eftir sig vistfræði- legar hörmungar sem kosta muni stjarnfræðilegar fjárupphæðir að uppræta. 0 I Bílar að smekk hvers og eins ÍMYNDAÐU þér að þú getir geng- ið inn á bílasölu, valið þér lit, lögun og aukahluti á bíl og komið þremur dögum seinna til að ná í hann. Þetta kann að virðast fjarlægur draumur en „sveigjanleg framleiðsla" kann að gera hann að veruleika að fáum árum liðnum. Bílaframleiðendur hafa vopnast öflugum tölvum sem gera þeim kleift að koma skilaboð- um frá sölustöðum beint inn í framleiðslusalinn. Telja þeir að brátt muni það því teljast sjálfsagt að sölumenn geti slegið inn óskir kaupenda sinna og þær verði uppfylltar nokkrum mínútum síðar. „Sveigjanlega framleiðslan kallar einfaldlega á það að bílar og bíla- framleiðslan verði skilgreind að nýju,“ segir Kenneth Baker, yfir- maður rannsóknar- og þróunar- deildar General Motors. Hann telur að tími stórra bíla, þar sem sama tegund er framleidd óbreytt ár eftir ár, sé liðinn. Við taki minni bílar og að útlit þeirra og eiginleikar verði að nokkru leyti háð óskum kaupenda. Þeim munu reyndar ekki standa óendalegir möguleikar til boða, valkostimir munu miðast við hvaða óskir er hægt að uppfylla án þess að hægja á framleiðsluferlinu. Að sögn Bakers munu bíleigend- ur fljótlega geta valið um áklæði á sætum, breytt mælaborði og boðið upp á nær endalaust úrval lita. Kaupendur geta jafnvel látið sér- hanna áklæði, með mynd af rokk- kónginum EIvis, Mikka mús, börn- unum, nú eða þeim sjálfum. Þá segir Baker að þegar fram líði stundir muni menn geta keypt sér bíl þar sem þeir velja sér fjaðrabún- að og höggdeyfa, stýris- og hemla- búnað, geta tekið mið af ökulagi og við hvaða aðstæður á að aka bíln- um. Efasemdarmenn segja böggul fylgja skammrifi. Erfiðlega geti t.d. reynst að selja bíl, sem beri merki um smekk og áhugamál fyrrum eig- anda síns. Þá eiga marg- ir bílaframleiðendur bágt með að trúa því að hægt sé að samstilla alla þætti bílaframleiðslunnar, sem ekki fer fram á sama stað, svo að allir hlutirnir sem sérpantaðir eru í einn og sama bílinn, berist á sama tíma. Framleiðendurnir eru þó sam- mála um að fyrr eða síðar mun einkabíllinn bera nafn með rentu, menn greinir í raun aðeins um hve- nær það verðui og í hversu ríkum mæli. Þó mun ljóst vera að bíll Leðurblökumannsins, knúinn kjarn- orku, verður seint framleiddur fyrir almenning. Bíllinn sem notaður var í kvikmyndinni um Leðurblöku- manninn var hins vegar seldur fyr- ir skömmu á rúmar 100 milljónir ísl. kr. Bílaframleið- endur telja að brátt muni bíleigendur geta valið lit, lögun og eig- inleika bílsins Reuter GARRI Kasparov í öngum sínum eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir skáktölvunni. Kasparov tapaði fyrir skáktölvu London. Morgunblaðið. ÞÁTTASKIL urðu í skáksög- unni í London í gær þegar tölvuforrit sló Garrí Kasparov heimsmeistara atvinnumanna- sambandsins út í fyrstu umferð atskákmóts í London. Karpov varð þar með óvænt fyrstur 16 skákmanna til að falla úr keppni. Forritið sem sigraði hann heitir Chess Genius 2 og var keyrt á tölvu með Pentium ör- gjörva frá Intel sem fjármagn- ar mótið. Kasparov og tölvan tefldu tvær 25 mínútna skákir og vann tölvan þá fyrri en hélt jafntefli í þeirri síðari. Kasparov tók ósigrinum illa. Þegar ljóst var að jafntefli í seinni skákinni var óumflýjan- legt hristi hann fyrst höfuðið, gróf það síðan í höndum sér og barði sig í ennið. Raymont Keene stórmeistari kom á svið- ið þegar skákinni lauk og sagði þetta stórt augnablik í skáksög- unni - en einnig sorglcgt. Hann bað þrumu lostna áhorfendur að klappa Kasparov lof í lófa og óskaði jafnframt tölvuforrit- unum til hamingju. I næstu umferð mætir tölvan Predrag Nicolic sem vann Nig- el Short í fyrstu umferð. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.