Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.09.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 23 LISTIR Fjórða starfsár Kórskóla Langholts- kirkju FJÓRÐA starfsár Kórskóla Lang- holtskirkju hefst hinn 15. septem- ber. Aldurstakmark er átta ár. Kenn- arar við skólann eru Signý Sæ- mundsdóttir óperusöngkona, Helga Björg Svansdóttir tónmenntakennari og Jón Stefánsson kantor við Lang- holtskirkju. Kennsiugreinar eru tón- fræði, tónheyrn og nótnalestur, raddþjálfur og samsöngur. Kennsla fer fram á þriðjudögum og fimmtu- dögum klukkan 18-18:20 og 17:50- 19:10. Nemendum er skipt í tvo hópa eftir tónlistarþekkingu, en báðir hóp- ar vinna sameiginlega með kór Kór- skólans hálfa klukkustund hvorn dag í samsöng þar sem ungir nemendur fá strax þjálfun í ijölradda söng. Markmiðið með skólanum er að veita börnum og unglingum stað- góða tónlistarmenntun með mark- vissri þjálfun raddar og heyrnar sem miðar að þátttöku í kórstarfi. Kór Kórskóla Langholtskirkju starfar í tengslum við skólann með úi-valsnemendum hans og börnum og unglingum sem hlotið hafa næga tónlistarþjálfun annars staðar. Sl. vetur hélt kórinn tónleika fyrir jól ásamt Skólakór Kársness þar sem kynnt var heil bók með jólalögum. Eftir áramót var æfð og flutt ásamt Unglingakór Selfosskirkju og Kammersveit Langholtskirkju Gloria eftir Vivaldi. í maí var hijóðritað efni á geisiaplötu sem kemur út í haust. Fyrsta verkefni kórsins í vet- ur verður að ljúka við upptöku á efni geislaplötunnar. Kórinn tekur þátt í jólasöngvum Kórs Langholts- kirkju og stefnt er að frekara tón- leikahaldi og æfingabúðum á vetrin- um. Auk þess syngur kórinn við messu sjötta hvern sunnudag í Lang- holtskirkju. Innritun og nánari upplýsingar eru í Langholtskirkju á skrifstofu- tíma. -----♦------- Nýtt gallerí opnar í mið- bænum NÝTT gallerí opnar í miðbæ Reykjavíkur föstudaginn 2. septem- ber nk. kl. 22. Galleríið ber nafniö Gallerí Bláskjár/The Blue Window og stendur við Ingólfsstræti 8. Eigandi að gaileríinu er Jón Sæmundur Auðarson. Sýningin sem opnar á föstudag er á verki eftir Moniku Larsen-Dennis. Hún hefur verið hérlendis við nám og störf sl. tvö ár, en er á leið til Stokkhólms í Konunglega listaháskólann. Sýn- ingar í Gallerí Bláskjá eru opnar allan sólarhringinn. -----♦ ♦ ♦--- Jón Hermann sýnir í Eden NÚ STENDUR yfir sýning Jóns Hermanns Sveinssonar múrara og sjómanns frá Hnífsdai, í Eden í Hveragerði. Jón Hermann sýnir þar rúmlega tuttugu myndir, allar unn- ar með olíu og blandaðri tækni og tengjast þær lífi og starfi til lands og sjávar. Sýningin stendur til 4. september. ITAPTTATTP nAvrMU lr DR. Jean Lancri Fyrirlestur 1 máli og myndum DR. JEAN Lancri prófessor og deild- arforseti við Myndlistardeild Sor- bonne í París, mun halda fyrirlestur í stofu 101 í Odda, laugardaginn 3. september kl. 16. Fyrirlesturinn nefnist „When painting questions lit- erature" og verður hann haldinn á ensku. Fyrirlesturinn er í máli og myndum og mun dr. Lancri fylgja eftir máli sínu með litskyggnum. í stuttu máli skiptist fyrirlesturinn í tvo hluta: 1. Athugun á fresco-mynd flór- entínska miðaldamálarans Giottos „Samfundurinn við gullna hliðið“ í Arena-kapellunni (Cappella 'Scro- vegni), í Padúu. Veggmálverkið er málað frá u.þ.b. 1303 til 1309, og sýnir Jóakim og Önnu, foreidra Mar- íu Guðsmóður, faðmast fyrir framan Himnaríki. 2. Athugunin á verki Giottos flétt- ast saman við K, eða Umbreytingar- klefann, samstillingu eða installasjón eftir dr. Lancri sjálfan, sem sett var upp í Pompidou-listamiðstöðinni í París, 1984. Eins og nafnið bendir til byggir samstillingin á verkum tékknesk-austurríska rithöfundarins Franz Kafka. Það vakti mikia athygli á sínum tíma þegar Jean Lancri flutti dokt- orsvörn sína við Sorbonne-háskóla, í maí 1985, með því að fara bil beggja; háskólanáms og listsköpun- ar. Með því að siíta allt í einu orð- ræðu sína líkt og hann hefði tapað þræðinum, en draga í staðinn djúpt andann, kom hann viðstöddum í opna skjöldu um leið og hann minntist athugasemdar Marcels Duchamps: „Listamaðurinn er meir í ætt við ryksugu en doktor." Samstillingin Y og K var sýnd með ýmsum tilbrigðum í Gulbenkian-stofnuninni í París og Lissabon, og víðsvegar um Frakk- land á árunum 1980 til 1984. Árið 1989 kom verkið út í bókar- formi undir heitinu Y og K. Það var um 400 síður og prýtt fjölda mynda. Undirtitill var Ritgerð um málverkið sem bókstaflegt háskaspil. Það sem vakti fyrir dr. Lancri var að einangra tjáningartæknina í hinu hefðbundna myndrými. í því augnamiði setti hann nokkur fræg listaverk á vogarskálar sálkönnunar og formgerðarfræði. Herraskyrta m/bindi kr. 789,- Herrahanskar og trefill saman í pakka kr. 789,- 6 stk. hnífasett kr. 989,- Töskur 3 stærðir kr. 489,- kr. 589,- og kr. 689,- I HAGKAUP SKKIFIWI. AKUREYRI, NJARDVÍK Tilboðið gildir aðeins í viku, eða á meðan birgðir endast. Grænt núnter pústverslunar er 996680. Skólataska kr. 2.990,- Skólataska kr. 1.990,- Reiknivélar-tölvur frá kr. 589,-til 1.495,- Töskur 3 stærðir kr. 489,- kr. 589,- og kr. 689,- Freyðibað kr. 99,- stk. Stepper æfingatæki kr. 4.995,- ^ Vaskhugi íslenskt bókahaldsforrit! Fjárhags-, sölu-, launa-, birgða-, viðskiptamannakerfi og margt fleira er í Vaskhuga. Einfalt og öruggt í notkun. Vaskhugihf. Sími682680
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.