Morgunblaðið - 01.09.1994, Side 19

Morgunblaðið - 01.09.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEBMT FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 19 Brundtland um ESB- aðild Noregs Brýnt fyr- ir öryggið Ósló. Heuter. GRO Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, sagði í fyrrakvöld að gengju Norðmenn ekki í Evrópu- sambandið, ESB, gæti það ógnað öryggishagsmunum landsins. Johan Jakobsen, þingflokksfor- maður Miðflokksips, sagði að um gamlan áróður, sem hafnað var i þjóðaratkvæði 1972, væri að ræða. Leiðtogi Miðflokksins, Anne Eng- er Lahnstein, segir að aðild Noregs að NATO sé nægileg trygging fyrir öryggi Norðmanna. Brundtland er á öðru máli, segir að nú, þegar kalda stríðinu sé lokið og ljóst að Vestur- Evrópusambandið, VES, verði varn- arsamtök Evrópu, sé mikilvægt fyrir Norðmenn að ganga í ESB. Jorgen Kosmo varnarmálaráð- herra sagði í síðustu viku að gengju Norðmenn ekki í ESB myndu Rússar eiga hægara með að beita þá pólitísk- um þrýstingi þar sem Noregur yrði þá ekki með óyggjandi hætti þátttak- andi í málefnum Vestur-Evrópu. Skýrsla um mannréttindabrot í Kína Líffæri dauða- dæmdra notuð til ígræðslu ALGENGT er í Kína, að nýru úr dauðadæmdum föngum séu notuð til ígræðslu, segir í skýrslu frá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch-Asia. Hvorki fangamir rié fjölskyldur þeirra eru spurðir leyfís. í skýrslunni segir, að flest líffæri sem notuð era til ígræðslu í landinu séu úr líflátnum fongurn. Slíkt sé brot á bæði mannréttindum og siðareglum lækna. í skýrslunni, sem greint er frá í Berlingske Tidende í vikunni, kemur fram, að líffærin séu yfirleitt tekin úr föngunum skömmu áður en þeir eru líflátnir. Þótt kveðið sé á í lögum um að leita skuli samþykkis fólks fyrir notkun á líffærum þess að því látnu, sé ógerningur að fylgja þeim ákvæðum eftir og fá samþykki á þeim stutta tíma sem líður frá því dauðadómur er kveðinn upp og til þess er aftaka fer fram. Fjölskyldur fanganna fá annað hvort engar upplýsingar um líffæra- notkunina, eða að þeim er gert að greiða háar upphæðir fyrir mat fang- ans, kúluna sem notuð er við aftök- una og annan kostnað, ef þær neita að gefa samþykki fyrir líffæraflutn- ingi. Mannréttindasamtökin vísa í opin- berar skýrslur, ritgerðir í læknatíma- ritum og yfirlýsingar lækna og ann- arra aðila því til sönnunar að líffæri sem notuð era við ígræðslu í Kína komi í langflestum tilvikum úr dauðadæmdum föngum. Fjórtán til sautján hundruð nýru úr föngum voru notuð til ígræðslu árið 1992, segir í skýrslu samtakanna. Quayle ekki ákveðinn Washington. Rcutcr. DAN Quayle, fyrrum vara- forseti Bandaríkj- anna, bar í gær til baka fregnir þess efnis, að hann hefði ákveðið að fara í for- setafrainboð 1996, en sagðist vera að „hugsa málið.“ Greint hafði verið frá því, að Quayle, sem gegndi emb- ætti varaforseta í tíð George Bush 1989 - 1993, hefði ákveðið að fara fram í ljósi þess hve bók hans, Standing Firm, hefði hlotið góðar við- tökur. Kúba og Bandaríkin PHILIPShlaut hin eftirsóttu verölaun frá „European Imaging and Sound Association“. Vegna hagstæðra innkaupa getum við nú boðið fullkomið PHILIPS sjónvarpstæki með Blackline S myndlatupa á einstöku verði. 109.900.» Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO Umboðsmenn um land allt. EUAOPIAN IMAOINO AHO SOUND AfSOCIAHON Þing- forseti til viðræðna Havana. Reuter. KÚBVERJAR hafa tilnefnt hátt- settan embættismann til þess að fara fyrir sendinefnd sinni í væntan- legum viðræðum við Bandaríkja-' menn um vandann sem stafar af stöðugum straumi flóttafólks frá Kúbu til Bandaríkjanna. Það er til marks um hve alvarlega Kúbvetjar taka viðræðunum, að oddviti nefnd- ar þeirra verður reyndur sendimað- ur, Ricardo Alarcon, forseti þingsins og fyrrum utanríkisráðherra. Alarcon var um árabil sendiherra Kúbu hjá Sameinuðu þjóðunum og tók þátt í viðræðum sem leiddu til flóttamannasáttmála Kúbu og Bandaríkjanna 1984, sem Kúbveij- ar segja Bandaríkjamenn aldrei hafa staðið við. I yfirlýsingu frá Kúbustjórn á mánudagskvöld segir að Alarcon sé manna hæfastur til þess að tak- ast á við það seni nefnt er „við- kvæmt mál“ flóttafólksins, og því bætt við, að hann hafi þekkingu á „grundvallarforsendum“ flótta- mannastraumsins undanfarið. Segja fréttaskýrendur það vera vís- un til þeirrar afstöðu Kúbustjórnar, að flótti þúsunda Kúbverja á und- anförnum mánuði stafi ekki ein- vörðungu af því sem stjórnin álítur óveijandi stefnu Bandaríkjanna í málefnum flóttafólks, heldur einnig af öðrum orsökum, svo sem lang- varandi viðskiptabanni Bandaríkj- anna á Kúbu. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að einungis komi til greina að aflétta banninu ef Fídel Kastró, forseti Kúbu, leggur í miklar um- bætur á stjórn landsins, og að væntanlegar viðræður muni ein- göngu snúast um flóttamanna- vandann. Kynlífsamb- áttir krefj- ast bóta SUÐUR-kóresk kona rífst við Iög- reglumenn við scndiráð Japans í Seoul í gær. Konurnar voru flestar kynlífsambáttir japanskra her- manna í heimsstyijöldinni síðari. Þær mótmæltu stofnun sjóðs upp á jafnvirði 70 milljarða króna sem styrkja á verkefni á sviði menn- ingar- og atvinnumála i nágranna- ríkjunum í Asíu til að bæta þeim upp skaða sem þau urðu fyrir af völdum Japana í stríðinu. Konurn- ar kröfðust þess að kynlífsambátt- irnar fengju sjálfar skaðabætur. Reuter

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.