Morgunblaðið - 01.09.1994, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 1. SEFfEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Vorsöngnr að haustnóttum
TONLIST
Listasafn Sigurjóns
Óiafssonar
SAMLEIKUR Á FIÐLU OG
PÍANÓ
Nicholas Milton og Nína Margrét
Grímsdóttir léku verk eftir Beet-
hoven, Debussy og Bartók. Þriðju-
dagur 30. ágúst 1994.
STJÓRNENDUR Listasafns Sig-
uijóns Ólafssonar hafa helgað sér
sumarþriðjudagana með tónleika-
haldi og hefur aðsókn að þessum
tónleikum verið góð, enda margt
áhugavert í boði, góðir flytjendur og
góð tónlist. Síðustu tónleikar sum-
arsins voru í höndum ungra og mjög
efnilegra tónlistarmanna, ástralsk-
franska fiðiuleikarans Nicholas Mil-
ton og Nínu Margrétar Grímsdóttur
píanóleikara. Bæði eru þessir lista-
menn í doktorsnámi, auk þess að
starfa sem „konserterandi" tónlistar-
menn og eru gott sýnishom þess hve
tónlistariíf á Isiandi er sífellt að fá á
sig alþjóðlegri svip, enda hafa ungir
tónlistarmenn sótt sér menntun víða
um heim og hafa þessir alþjóðlegu
aðdrættir þein-a blómstrað með ýms-
um hætti, ísiensku tónlistarlífí til góðs.
Nína Margrét hefur þegar getið
sér gott orð sem píanóleikari og var
samleikur hennar og Miltons oft
mjög góður, t.d. í fyrsta verki tón-
leikanna, Vorsónötunni, einhveiju
fallegasta fiðiuskáldverki Beethov-
ens, sem þrátt fyrir að vera oft
hranalegur og óþjáll til umgengnis
við fólk, átti í hugskoti sínu undur-
þýð blæbrigði og viðkvæmni, fléttaða
saman við sterka tilfinningu fyrir
formskipan og rökrænu samhengi
tónanna, svo að enn undrast menn
tónskáldskap þessa mikla lista-
manns. Fyrsti kaflinn var mjög vel
leikinn en í hæga þættinum vantaði
Milton þá tónmýkt, sem prýðir þenn-
an þátt, sérstaklega á lágsviðinu, þar
sem tónninn varð á stundum hás og
án undirhljóms. Á efra sviðinu réð
/r/r/sy.y/ .)///. kynnir á
tónleikar t
5. og 6. sept. kl. 20:30
Kr. 2000
david
byrne
ásamt
paul socolow bassi
todd turkisher tromitiur
mauro refosco slagverk
nýja platan ▼
í RúRek ‘94
‘//,V, á Hótel Sögu,
4/9 Tríó Níels
//.'/ Hennings, 9/9
Jazz of CHORS
og Stórsveit
Reykjavíkur, 10/9
Kvartett Archie Shepp.
Auk þess jazz á
Fógetanum, Horninu,
Kringlukrá og Tunglinu.
david9mvd
O
Mlðasala: Háskólabíó, Japís/Brautarholti, Sklfan/Kringlunni, Músik&myndir/Austurstræti & Hljómalind.
Háskólabíó
rTÝNDI HLEKKURINN
EIMSKIP
\m GátiouM eÉ* líio
það, sem einkennir bandarískan
fiðluleik, skarpur og þéttur Hayfetz-
tónninn, tóntak sem heftir marga í
túlkun en er glæsilegur og nýtur sín
best í leiktækniverkum. Það kom
fram skemmtileg hryntregða í þriðja
þættinum en lokaþátturinn var ein-
um of laus í formi, leikinn beint af
augum og ekki þrunginn af þeirri
sumarást Beethovens, sem oft hættir
til að birtast sem áhyggjulaus leikur
hjá ungum tónlistarmönnum, er
vantar þá eðlilegan vetrarótta og
langnætti ellinnar.
Stílsnillingurinn Debussy átti
næsta verk, fiðlusónötuna, sem er í
raun svanasöngur þessa meistara í
tónblæbrigðum. Milton og Nína léku
fyrsta kaflann mjög vel en eins og
í Beethoven, var lokakaflinn eilítið
tættur og á köflum óf hraður, til
þess að flytjendurnir ungu næðu að
skálda í blæbrigði verksins nægilega
vel. Lokaverk tónleikanna var fyrri
fiðlu-rapsódían eftir Bartók. Tii að
skilja þessa tónlist þurfa flytjendur
að hafa upplifað ungverskan dans,
því þar er leikið með alls konar hljóð-
fall, seinkun og hröðun tónferlis og
eins og t.d. í upphafi verksins, hæg-
an, þungan og spennuþrunginn
gönguhraða. Því var fyrsti kaflinn
of hraður og leikurinn með hrað-
breytingamar oft merkingarlaus.
Samt var margt glæsilega gert og
er engum vafa undirorpið, að hér eru
á ferðinni stórefnilegir tónlistar-
menn. Sem annað aukalag, á eftir
leiktæniverki eftir De Falla, léku
listamennirnir Humoreskuna eftir
Þórarin Jónsson, og fluttu þau þetta
einfalda en fallega verk mjög vel og
þar með lauk þessum vorsöng að
haustnóttum, í regnklæddu sólarlagi
hverfandi dags.
Jón Ásgeirsson
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju.
Laugarneskirkja
Vetrarstarf drengja-
kórsins hefst í dag
VETRARSTARF Laug-
arneskirkju hefst hinn 1.
september nk. Kórstarfið
hefur verið þróttmikið og
vaxandi hin síðustu ár,
þar sem metnaðarfullt
starf hefur verið í fyrir-
rúmi. Stofnandi og
stjórnandi kórsins frá
upphafi, Ronald Turner,
hefur nú hætt störfum
hér á landi og haldið til
baka til heimalands síns
og eru honum þökkuð vel
unnin störf. Friðrik S. Kristinsson
hefur verið ráðinn stjórnandi kórs-
ins og hefur hann þegar tekið til
starfa. Friðrik stundaði nám í söng
við Söngskólann í Reykjavík og
voru kennarar hans Magnús Jóns-
son og Garðar Cortes. Árið 1987
lauk Friðrik söngkennaraprófi
LRSM (The Associated Board of
the Royal School of Music). Hann
hefur komið fram sem söngvari
við ýmis tækifæri. Friðrik er aðal-
Friðrik S.
Kristiusson
stjórnandi Karlakórs
Reykjavíkur síðan 1990.
Drengjakórinn telur sér
mikinn feng í að fá að
njóta starfskrafta Frið-
riks og væntir góðs af
samstarfinu.
Á næstu vikum verður
auglýst eftir nýjum
drengjum í kórinn og
mun raddprófun fara
fram fljótlega eftir það.
Nokkrir drengir úr kórn-
um hafa verið valdir til
að syngja í uppfærslu Þjóðleik-
hússins á óperunni „Á valdi örlag-
anna“ í vetur þar sem Kristján
Jóhannsson mun syngja aðalhlut-
verkið. Starfsemin í vetur verður
með hefðbundnu sniði, en nú í lok
október kemur út fyrsti geisladisk-
ur kórsins. Á disknum eru verk
sem kórinn söng á kóramóti í
Bandaríkjunum sl. vor þar sem
hann bar sigur úr býtum í alþjóð-
legu kórakeppninni.
Sýning' á myndum úr
ljósmyndamaraþoni
NÚ STENDUR yfir sýning á vegum
Félagsstofnunar stúdenta í anddyri
Stúdentaheimilisins við Hringbraut á
myndum sem unnu til verðlauna í
ljósmyndamaraþoni Stúdentaráðs
Háskóla íslands. Maraþonið var hald-
ið laugardaginn 26. mars sl. og var
þetta í annað sinn sem það er haldið.
í fyrra tóku rétt ríflega eitt hund-
rað hugmyndaríkir háskólastúdentar
þátt og í ár voru 163 þátttakendur
skráðir til keppni, sem er mesti fjöldi
sem verið hefur í keppni af þessu
tagi hérlendis. Þátttaka í ár var
ókeypis og öllum opin og var hún
styrkt af Morgunblaðinu, Hans Pet-
ersen, Búnaðarbankanum og Félags-
stofnun stúdenta.
Keppnin hófst að morgni laugar-
dagsins 26. mars er keppendur fengu
tólf mynda filmu í hendurnar ásamt
lista með tólf verkefnum/efnisflokk-
um. Filmunum átti að skila áteknum
tólf tímum síðar en eins og gengur
og gerist í maraþoni komust ekki
allir í mark. Ríflega 100 manns skil-
uðu inn filmum.
Hugmyndaauðgi keppenda réð
mestu um úrslitin en alls komu um
60 keppendur til álita er sigurvegar-
anna var leitað og því var keppnin
jöfn og spennandi.
Sýningin mun standa yfir til 1.
október og er húsið opið alla virka
daga frá kl. 8-18.