Morgunblaðið - 01.09.1994, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Sinf óníuhlj óms veitin
Starfsáríð að hefjast
OPNUNARTÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands verða 15., 16. og 17. september.
ÁSKRIFTARTÓNLEIKUM starfs-
ársins sem nú fer í hönd hjá Sinfón-
íuhljómsveit íslands verður skipt í
fjórar raðir; gula, rauða, græna og
bláa. I gulu tónleikaröðinni verða sex
tónleikar þar sem lögð er áhersla á
stór hljómsveitarverk og íslenska
einleikara og einsöngvara. Tönleika-
dagar verða að öll jöfnu fyrsti
fimmtudagur í hvetjum mánuði. í
rauðu tónleikaröðinni verða sex tón-
leikar þar sem áhersla er lögð á ein-
leikara og einsöngvara sem hafa
unnið sér alþjóðlega hylli. Tónleika-
dagar verða að öllu jöfnu þriðji
fimmtudagur hvers mánaðar. í
grænu tónleikaröðinni verða fernir
tónleikar þar sem lögð er áhersla á
vinsæla og aðgengilega tónlist. Þar
má m.a. nefna Gershwin kvöld, Vín-
artónleikana, óperutónlist og klass-
íska tónlist. í bláu tónieikaröðinni
verða tvennir tónleikar í Hallgríms-
kirkju. Þar má m.a. fínna verk eftir
Tippett, fiðlukonsert eftir Mozart og
Sögusinfóníu Jóns Leifs. í vetur
verður einnig talsvert um aukatón-
leika og geta má um opnunartónleik-
ana 15., 16. og 17. september, þar
sem Þorsteinn Gauti Sigurðsson
verður einleikari með hljómsveitinni.
Hljómsveitarstjóri verður Rico Sacc-
ani og er áskrifendum boðið að
kaupa miða á þá tónleika með 25%
afslætti. Kvöldtónleikarnir hefjast
að öllu jöfnu kl. 20
Opnunartónleikar starfsársins
verða 15. september eins og fyrr
segir en þá verður Hátíðarforleikur
eftir Shostakovitch fluttur, Paganini
tilbrigði fyrir píanó og hljómsveit
eftir Rakhmanínov, Karneval for-
leikur eftir Borodin, Espagna eftir
Chabrier og Eldfulginn eftir Stravin-
sky. Einleikari Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson. Hljómsveitarstjóri Rico
Saccani.
Gul tónleikaröð
22. september. Mitt fólk eftir
Oliver Kentish, Fiðlukonsert eftir
Sibelius. Sinfónía nr. 5 eftir
Tsjajkovskíj. Einleikari Sigrún Eð-
valdsdóttir. Einsöngvari Michael J.
Clarke. Hljómsveitarstjóri Osmo
Vanská. Þess má geta að tónverk
Oliver Kentish, Mitt fólk, er gjöf
bresku ríkisstjórnarinnar til íslend-
inga á 50 ára lýðveldisafmæli 1994.
1. desember. Efnisskrá óákveðin.
Hljómsveitarstjóri Petri Sakari.
5. janúar. Árcana eftir Varese,
Flautukonsert eftir Atla Heimi
Sveinsson. Symphonie Fantastique
eftir Berlioz. Einleikari Kolbeinn
Bjarnason. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar. Hljómsveitarstjóri Osmo Vánská.
2. febrúar. Fiðlukonsert eftir
Beethoven. Vorblót eftir Stravinsky.
Einleikari Elmar Oliveira. Hljóm-
sveitarstjóri Osmo Vánská.
6. apríl. Russlan & Ludmilla, forl.
eftir Glinka, Píanókonsert eftir Gri-
eg. Sinfónía nr. 10 eftir Shos-
takovich. Einleikari Steinunn Birna
Ragnarsdóttir. Hljómsveitarstjóri
Stefan Sanderling.
4. maí. Prelúdía og fúga fyrir
strengjasveit eftir Britten, Píanó-
konsert eftir Khatsjatúrjan. Sinfónía
nr. 4 eftir Beethoven. Einleikari Iz-
umi Tateno. Hljómsveitarstjóri Jerzy
Maksymiuk.
Rauð tónleikaröð
27. október. Sinfónía nr. 35
„Haffner" eftir Mozart. Formgerð
II eftir Herbert H. Ágústsson. Sin-
fónía nr. 1 e'ftir Mahler. Einleikari
Guðný Guðmunmdsdóttir. Hljóm-
sveitarstjóri Richard Bernas.
17. nóvember. Haflög eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson. Konsert fyrir
klarinett og hljómsv. eftir Mozart.
Sinfónía nr. 3 eftir Rakhmanínov.
Einleikari Hans Rudolf Stalder.
Hljómsveitarstjóri Takuo Yasa.
19. janúar. Sinfónía nr. 4 eftir
Kokkonen. Le Baiser de la Fee eft-
ir Stravinsky. Cellokonsert eftir
Elgar. Einleikari Gary Hoffman.
Hljómsveitarstjóri Osmo Vánská.
16. febrúar. Four sea interludes
from Peter Grimes eftir Britten.
Sjávarmyndir eftir Elgar. Sinfónía
nr. 6 eftir Tsjajkovskíj. Einsöngvari
Rannveig Bragadóttir. Hljómsveit-
arstjóri Petri Sakari.
16. mars. Adagio eftir Magnús
Bl. Jóhannesson. Píanókonsert nr.
2 eftir Chopin. Sinfónía nr. 4 eftir
Lutoslawski. Einleikari Grygory
Sokolov. Hljómsveitarstjóri Osmo
Vánská.
18. maí. Marea eftir M. Lind-
berg. Konsert fyrir Marimba &
hljómsv. eftir Áskel Másson. La
Mer eftir Debussy. Einleikari Eve-
lyn Glennie. Hljómsveitarstjóri
Osmo Vánská.
Græn tónleikaröð
10. nóvember. Jónsmessunætur-
draumur, forl. eftir Mendelsohn. sel-
lókonsert í H dúr eftir Boccerhini.
Sinfónía nr. 41 „Jupiter" eftir Moz-
art. Einleikari Gunnar Kvaran.
Hijómsveitarstjóri Guillermo Figu-
eroa.
12. janúar. Vínartónleikar. Vín-
artónlist. Hljómsveitarstjóri Páll P.
Pálsson.
9. mars. Strike up the band eftir
Gershwin. Píanókonsert í F dúr eftir
Gershwin. Söngvar fyrir jasshljóm-
sveit eftir D. Ellington. Sinfónískar
myndir úr Porgy & Bess eftir Gers-
hwin.
27. apríl. Óperutónlist. Einsöngv-
ari Ingibjörg Guðjónsdóttir. Hljóm-
sveitarstjóri Orwain Arwell Hughes.
Blá tónleikaröð
20. október. Requiem in our time
eftir Rautavaara. A Child of our
Time eftir M. Tippett. Einsöngvarar:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Björk Jóns-
dóttir, Garðar Cortes, Tómas Tómas-
son og kór íslensku óperunnar.
Hljómsveitarstjóri Osmo Vánská.
2. mars. Fiðlukonsert í A dúr eftir
Mozart. Sögusinfónía eftir Jón Leifs.
Einleikari Isabelle van Keuluen.
Hljómsveitarstjóri Osmo Vánská.
Aukatónleikar
3. og 5. nóvember kl. 14.30.
Blökkumannatónlist. Opera Ebony.
Hljómsveitarstjóri Everett Lee.
17. desember kl. 14.30. Jólatónleik-
ar. Tónlist helguð jólunum. Hljóm-
sveitarstjóri Gerrit Schuil.
26. janúar kl. 20. Útskriftartónleikar
Tónlistarskólans í Reykjavík. Fiðlu-
konsert nr. 1 eftir Shostakovich.
Sellókonsert eftir Schumann.
Flautukonsert nr. 1 eftir Mozart.
Sellókonsert eftir Dvorak. Einleikar-
ar Una Sveinbjarnardóttir, Sigurgeir
Arnarson, Sigurður Bjarki Gunnars-
son og Stefán Ragnar Höskuldsson.
Hljómsveitarstjóri Bernharður Wilk-
inson.
4. febrúar kl. 17. Tónleikar fyrir
ungt fólk. Efniskrá óákveðin. Ein-
leikari Harri Lidsle, túba. Hljóm-
sveitarstjóri Osmo Vánská.
23. febrúar. kl. 20. Myrkir músík-
dagar. Langnætti eftir Jón Nordal.
Konsert fyrir sax-kvartett og
hljómsv. Nýtt verk eftir Snorra S.
Birgisson. Geysir eftir Jón Leifs.
Einleikarar Rascher kvartettinn
(sax-kvartett). Hljómsveitarstjóri
Ánn Manson.
Almenn sala áskriftarskírteina
hefst mánudaginn 12. september og
fer salan fram á skrifstofu hljóm-
sveitarinnar í Háskólabíói. Skrifstof-
an er opin alla virka daga frá kl.
9-17 og laugardaginn 10. september
verður skrifstofan opin frá kl. 10-14.
Verð áskriftarskírteina er óbreytt
frá því í fyrra og sem fyrr fá áskrif-
endur 15-25% afslátt eftir flölda
keyptra tónleikaraða.