Morgunblaðið - 01.09.1994, Side 60
HEWLETT
PACKARD
---------UMBOÐIÐ
HP Á ÍSLANDI HF
Höfdabakka 9, fíeykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Osóttur
7,6 millj.
vinningiir
LOTTÓVINNINGUR að upp-
hæð 7.658.527 kr. tiggur ósótt-
ur hjá Islenskri getspá. Þetta
er annar tveggja vinninga sem
komu fram þegar fyrsti vinn-
ingur var fjórfaldur í laugar-
daginn 13. ágúst.
Miðinn var seldur á Patreks-
firði föstudaginn 12. ágúst kl.
10.49. Um er að ræða 10 raða
miða sem seldur var í sjálfvali.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar, framkvæmdastjóra ís-
lenskrar getspár, kemur það
öðru hveiju fyrir að nokkrir
dagar líða frá drætti þar til stór-
ir vinningar eru sóttir. Allar lík-
ur séu á að vinningshafinn gefi
sig fram en ástæða sé fyrir
Patreksfirðinga og þá sem leið
hafa átt um Patreksfjörð að
skoða miða sína vel.
Að jafnaði er 1% vinninga
ekki sótt til íslenskrar getspár
eða 5-6 millj. króna. Vilhjálmur
sagði að þetta væru allt smá-
vinningar. Á sínum tíma óskaði
Islensk getspá eftir heimild til
að bæta ósóttum vinningum við
vinningspottinn, en dómsmála-
ráðherra hafnaði því.
Minna er um ósótta vinninga
hjá íslenskum getraunum
vegna þess að um 60% af sölu
miða fara í gegnum tölvukerfi
íþróttafélaga eða einstaklinga,
en þar með eru miðarnir skráð-
ir á nafn.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Þorkell
Verðmætasti farmur
Grandatogara
ÞERNEY RE, frystitogari Granda
hf., kom í gærmorgun til Reykja-
víkur með verðmætasta farm sem
skip frá Granda hefur komið með
að landi; 241 tonn af hausuðum
og slógdregnum djúpkarfa, sem
þegar hefur verið seldur til Japans
fyrir að meðaitali 129 krónur kíló-
ið. Heildarverðmæti aflans er 54,5
milljónir króna og hásetahluturinn
eftir 24 daga veiðiferð um 570
þúsund krónur.
Að sögn Sigurbjörns Svavars-
sonar, útgerðarsljóra hjá Granda,
var Þerney við veiðar á Hampiðj-
utorgi, 80-120 mílur vestur af
Látrabjargi, og á Reykjaneshrygg
og fer aftur á sömu slóðir að lok-
inni löndun. Alls fékk skipið 425
tonn upp úr sjó og úr því unnu
skipverjarnir 25 eins og fyrr sagði
241 tonn af hausuðum og slóg-
dregnum karfa sem við komu td
hafnar var skipað nánast beint út
til Japans, þangað sem hann hefur
verið seldur.
Undanfarið hafa fengist um 100
krónur fyrir karfakilóið á fersk-
fiskmarkaði í Þýskalandi, að sögn
Sigurbjörns. Fyrir karfann úr
Þerney borguðu Japanir hæsta
verð þar sem mestan part var um
mjög stóran og góðan fisk að ræða
sem stóðst ströngustu kröfur á
þeim markaði hvað varðar lit og
gæði.
Þrátt fyrir að um verðmætasta
farm nokkurs Grandatogara fyrr
og síðar sé að ræða voru frysti-
geymslur skipsins ekki fullar. Þar
er pláss fyrir um 400 tonn af afurð-
um, að sögn Sigurbjörns.
Skipstjóri Þerneyjar er Þórður
Maguússon.
Kennarar vili a
fresta færslu
grunnskólans
EIRÍKUR Jónsson, formaður Kennarafélags íslands, telur útilokað að hægt
verði að flytja rekstur grunnskólans frá ríkinu til sveitarfélaganna 1. ág-
úst 1995 eins og ríkisstjórnin áformar. Hann sagði á landsþingi Sambands
íslenskra sveitarfélaga í gær að of margt væri enn óljóst í sambandi við
tilflutninginn til að þetta væri hægt. Landsþingið mun á morgun taka af-
stöðu tii þess hvort það er tilbúið til að styðja að rekstur grunnskólans
verði fluttur 1. ágúst á næsta ári.
Guðmundur Árni Stefánsson, fé-
lagsmálaráðherra, varaði sveitar-
stjórnarmenn á þinginu við að leggja
eyrun við röddum sem vilja fresta
tilfærslunni. Hann lagði áherslu á
að ágreiningur um tilfærslu fjár-
muna verði leystur og sagði nauð-
synlegt að gefa sveitarfélögunum
Kanna
hverjir
mega sín
minnst
RAUÐI kross íslands gerir í
haust könnun á því hveijir
megi sín minnst í íslensku sam-
félagi og hvernig aðstæðum
þeirra sé háttað.
Að sögn Guðjóns Magnús-
sonar, formanns RKÍ, er aðstoð
við þá sem minnst mega sín að
verða miðpunktur starfsemi fé-
lagsins. Áf því tilefni verði
könnunin gerð. Nú er verið að
leita fyrirmynda hjá erlendum
Rauða kross-félögum sem hafi
gert sambærilegar kannanir og
leggja lokahönd á undirbúning
hennar.
Niðurstöður könnunarinnar
verða notaðar til að komast að
með hvaða hætti Rauði krossinn
geti sem best stutt við sem
flesta hópa þeirra sem minnst
mega sín. Hér heima blasi við
ýmis vandamál, m.a. vaxandi
ofbeldi og vaxandi einangrun í
þjóðfélaginu.
■ Því miður fer þörfin/8
ákveðið svigrúm til skattlagningar.
Meðal sveitarstjórnarmanna og
kennara eru skiptar skoðanir um
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laganna. Málið hefur verið í undir-
búningi í langan tima og þrjár nefnd-
ir hafa haft ýmsa þætti málsins til
umfjöllunar. Viðkvæmustu þættir
þess eru færsla tekna frá ríkinu til
sveitarfélaganna og kjaramál kenn-
ara.
Nefnd, sem menntamálaráðherra
skipaði til að íjalla um lífeyrisrétt-
indi kennara, hefur lokið störfum
fyrir fimm mánuðum, en starf nefnd-
arinnar er grundvöllur að gerð nýs
kjarasamnings milli kennara og
sveitarfélaganna. Eiríkur Jónsson
lagði áherslu á að frá þessum samn-
ingi verði gengið hið fyrsta og áður
en ný grunnskólalög verða sam-
þykkt. Það verði ekki fyrr en eftir
gerð slíks samnings sem liggi fyrir
hver endanlegur kostnaður sveitar-
félaganna af rekstri grunnskólans
verði.
■ Málefni grunnskólans/4
Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna um útboð húsnæðisbréfa
Skylt að ávaxta sjóðina á
sem hagkvæmastan hátt
ÞORGEIR Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, segir að stjórnendum lífeyris-
sjóðanna beri skylda til að ávaxta fjármuni sjóð-
anna á hverjum tíma með sem hagkvæmustum
hætti. Á meðan hagkvæmari kjör á sams konar
skuldabréfum bjóðist á fjármagnsmarkaði en sú
5% ávöxtun sem yfirlýst sé að húsnæðisbréfin
verði seld við muni þau ekki seljast. í útboði
húsnæðisbréfa í fyrradag seldust engin bréf og
er það í fjórða skipti frá því í júnímánuði að
engin bréf seljast.
„Menn verða að horfa á aðstæður á verðbréfa-
markaði á þeim degi sem útboðið fer fram. Ef
þær eru skoðaðar kemur í ljós að þá lágu inni
sölutilboð af hálfu Seðlabanka íslands í þessa
sömu flokka húsnæðisbréfa þar sem ávöxtunar-
krafan er 5,10%,“ sagði-Þorgeir.
Húsbréf með 5,33% ávöxtun
Hann sagði að auk þessa þyrfti að taka tillit
til þess að húsnæðisbréfin væru mjög lík húsbréf-
unum að allri gerð og þau hefðu fengist með
5,33% ávöxtun á þriðjudaginn.
„Eins og þetta ber með sér er ekki með neinu
móti réttlætanlegt að kaupa i raun og veru sams
konar bréf á sama tíma með 5% vöxtum," sagði
Þorgeir Eyjólfsson. „Við megum ekki ráðstafa
peningum með þeim hætti að kaupa ekki það
sem gefur best af sér þegar um hliðstæða vöru
er að ræða.“
Hann benti á að þegar húsnæðisbréf hefðu
selst síðast í júnímánuði hefði ávöxtunarkrafan
á húsbréfunum verið 5,08%. Aðspurður hvort
lífeyrissjóðirnir væru að missa áhugann á að
reyna að gera tilboð í húsnæðisbréfin, en aðeins
bárust tilboð að upphæð 131 milljón í bréf í
útboðinu á mánudaginn, sagði Þorgeir. að það
væri yfirlýst stefna að hafna öllum tilboðum sem
væru hærri en 5% og sjálfsagt hugsuðu margir
sem svo að tilgangslaust væri að gera tilboð
þegar fyrir lægi að því yrði ekki tekið. Þetta
myndi hins vegar breytast ef vextir á markaðn-
um lækkuðu og ávöxtunarkrafa húsnæðisbréfa
yrði sambærileg við ávöxtunarkröfu á öðrum
bréfum á markaðnum.
Skipasmíðar
ánýí
Garðabæ
SKIPAVIÐGERÐIR eru aftur
hafnar í Garðabæ en þær lögð-
ust niður í nokkur ár í kjölfar
gjaldþrots Stálvíkur. Vélsmiðjan
Normi hf., sem keypti eignir
þrotabús Stálvíkur, tók í gær
Þröst RE upp í slipp og inn í hús
þar sem skipið verður lengt, sett
í það nýtt spil og ljósavél og
gerðar ýmsar aðrar endurbætur.
Að sögn Sævars Svavarssonar,
framkvæmdastjóra Norma, voru
allar framkvæmdir við smíði
stórrar dráttarbrautar fyrirtæk-
isins stöðvaðar þegar fréttist af
því að ríkið styrkti kaup á fyrir-
hugaðri flotkví til Akureyrar og
starfsmenn Norma hefðu þá
ákveðið að snúa sér að því að
koma gamla slippnum í gagnið.