Morgunblaðið - 03.11.1994, Side 9
MORGUNBLÁÐIÐ
FIMMTUDÁGUR 3. NÓVEMBER 1994 9
FRÉTTIR
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna
Næstum fjórðungur
kvenna styður Jóhönnu
SUNDURGREINING á niðurstöð-
um könnunar á fylgi stjórnmála-
flokkanna, sem Félagsvisindastofn-
un gerði fyrir Morgunblaðið i síð-
ustu viku, sýnir að fylgi flokka
meðal karla og kvenna er mjög
misjafnt. Þannig styðja 23% kvenna
væntanlegt framboð Jóhönnu Sig-
urðardóttur, en um 17% karla. Al-
þýðuflokkurinn hefur hins vegar
8,1% fylgi hjá körlum en ekki nema
2,9% hjá konum. Stuðningur við
Jóhönnu er minnstur í yngsta ald-
urshópnum, en Framsóknarflokkur-
inn nýtur stuðnings fjórðungs þess
hóps, sem er meira en i öðrum ald-
ursflokkum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
stuðning 39,3% karla og 27,3%
kvenna. Alþýðubandalagið er eini
flokkurinn, sem hefur nokkuð jafn-
an stuðning hjá báðum kynjum, eða
á milli 13 og 14%. Kvennalistinn
hefur 17,9% fylgi meðal kvenna en
2,1% hjá körlum. 20% karla styðja
Framsóknarflokkinn en 13,5%
kvenna.
Sjálfstæðisflokkur sterkastur
hjá elzta og yngsta fólkinu
Ef litið er á skiptingu svarenda
í könnuninni eftir aldri, kemur fram
að Jóhanna Sigurðardóttir á hlut-
fallslega minnstan stuðning í
yngsta aldurshópnum, 18-24 ára,
eða 12,6%. Kvennalistinn hefur
mjög lítinn stuðning í þeim aldurs-
hópi, 1,2%. Sjálfstæðisflokkurinn
er sterkastur hjá elzta fólkinu með
|42% stuðning og því yngsta, þar
þem 38% segjast styðja flokkinn,
en hefur hins vegar ekki nema
Í24,9% stuðning þeirra, sem eru á
aldrinum 35-44 ára. Alþýðubanda-
jagið hefur nokkuð jafnan stuðning
í öllum aldursflokkum nema þeim
elzta, 60-75 ára, þar sem 7,6%
’styðja flokkinn.
Framsóknarflokkurinn er sterk-
astur í yngsta aldurshópnum með
25,3% stuðning, en í öðrum hópum
er stuðningur við hann 14 til 17,5%.
Fylgi Alþýðuflokksins er mest um
8% hjá yngsta aldurshópnum og
fólki á aldrinum 35-44 ára, og
minnst hjá þeim sem eru 45-59
ára, 2,8%.
Fylgi flokkanna var einnig greint
eftir starfstéttum. Fátt kemur á
óvart í þessari sundurgreiningu.
Framsóknarflokkurinn hefur hefð-
Alþýðuflokkur 8,0
Framsóknarflokkur 25,3
Sj álfstæðisflokkur 38,0
Alþýðubandalag 15,0
Kvennalisti 1,2
Jóhanna Sigurðard. 12,6
Aðrir flokkar 0,0
Alls Fjöldi 100% 137
bundinn stuðning meðal bænda, og
Sjálfstæðisflokkurinn hefur 50%
fylgi hjá sérfræðingum og atvinnu-
rekendum. Kvennalisti hefur lang-
mest fylgi hjá skrifstofu- og þjón-
ustufólki, eða 25%. Fylgi Jóhönnu
Sigurðardóttur er mest meðal
verka- og afgreiðslufólks eða
24,5%, en meðal bænda og sjó-
manna 10,7% og sérfræðinga og
atvinnurekenda (12,8%).
5,3 8,2 2,8 5,4
15,9 14,3 17,5 15,3
32,0 24,9 35,7 42,4
13,9 15,0 15,4 7,6
11,9 13,5 5,6 11,9
19,8 22,5 23,1 17,4
1,3 1,5 0,0 0,0
100% 200 100% 177 100% 179 100% 118
Alþýðufl. Framsóknarfl. Sjálfslæðisfl. Alþýðubandal. Kvennalisti JóhannaS.
Tafla 2
Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú?
Þeirsem taka afstöðu, flokkað eftir aldri
18-24 25-34 35-44 45-59 60-75
ára ára ára ára ára
Stakir jakkar
Vesti
Síðbuxur mikið úrval
100% ull
100% bómull
Riflaflauel
Ull/Polyester
Stretchefni
Plls margar lengdir
Peysur
Frá v=ulwiline
úlpur með ekta skinni
Frakkar með lausu ullarfóðri
úlpukápur með hettu
Frá Geissler
Kápur ull/kasmír
Dragtir 100% uil
stakirjakkar
Uéumv
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi
Opið daglega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Frá GARDEUR
Stretchbuxur í úrvali úr ull og polyester
Stærðir 36-48 með og ón teygju undir il
Bómullorbolur fylgir með
Eiðistorgi 13, 2. hæð,
yfir almenningstorginu
S. 23970. Opið laugard. kl. 11—16.
mMTEL
MISSELON einangrun..
á öll rör og tanka!
V.
- líka frystilögnum.
Reykjavík HafnarfirSi
Hentar öllum lögnum
Engin rakadrægni.
Níðsterkt yfirborð.
Stenst ströngustu
staðla.
y
'ELTOR
<lí
Vinnuvernd
í verki
...ÞIN VEGNA!
Skeifan 3h - Sfmi 81 26 70 - FAX 68 04 70