Morgunblaðið - 03.12.1994, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Almenningi boðið að skoða
Þjóðarbókhlöðu um helgina
LANDSBÓKASAFN íslands - Há-
skólabókasafn opnar dyr Þjóðar-
bókhlöðu í dag, laugardag, og á
morgun, sunnudag, og verður al-
menningi boðið að skoða safnið
og Þjóðarbókhlöðu.
Erland Kolding Nielsen, aðal-
bókavörður Konunglega bóka-
safnsins í Kaupmannahöfn, af-
henti við opnun safnsins á
fimmtudag gjöf frá Danmörku,
100 þúsund danskar krónur eða
1,1 milljón íslenskra króna.
Danska menntamálaráðuneytið
veitir upphæðina fyrir hönd Dan-
merkur.
Orðabækur og ljósritunarvél
Auk þessarar gjafar hefur
danska sendiráðið styrkt lands-
söfnun stúdenta í Háskóla íslands
til að auka bóka- og tölvusafn
hins nýja safns. Klaus Otto Kapp-
el, sendiherra, hefur þegar afhent
forkólfum átaksins fyrstu bindi
Stóru dönsku alfræðiorðabókar-
innar, en bókin er 20 bindi alls
sem verða afhent smám saman
um leið og þau koma út.
Konica-fyrirtækið i Þýskalandi
og Umfang hf., umboðsfyrirtæki
þess hérlendis, gáfu Þjóðarbók-
KLAUS Otto Kappel, sendiherra Danmerkur á íslandi, afhenti
Skúla Helgasyni, framkvæmdasfjóra þjóðarátaks stúdenta fyrir
Þjóðarbókhlöðu, fyrstu bindi Stóru dönsku alfræðiorðabókarinn-
ar við opnun Þjóðarbókhlöðu á fimmtudag.
hlöðu á þriðjudag Konica-ljósrit- 1,4 milljónir króna. Eckhard
unarvél af nýjustu og fullkomn- Granel, markaðssljóri Konica, af-
ustu gerð sem metin er á tæplega henti landsbókaverði vélina.
Unglingar dæmdir
fyrir rán og árásir
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fjóra 15-17 ára pilta
sem frömdu tvö rán í Reykjavík í
september sl. í 7-12 mánaða fang-
elsi fyrir ránin og ýmis önnur brot
framin fyrr á árinu. Tveir piltanna
höfðu m.a. ráðist á mann og stór-
slasað eftir að hann reyndi að
stöðva flótta þeirra og þriðja pilts-
ins frá innbrotsstað.
Við ákvörðun refsingar piltanna
var tekið tillit til ungs aldurs þeirra,
eins og lög kveða á um, og vegna
þess var refsing þeirra þriggja pilt-
anna, sem hlutu 7-10 mánaða fang-
elsi, skilorðsbundin. Sá fjórði á hins
vegar talsverðan sakaferil að baki
og hefur fengið skilorðsdóma fyrir
þjófnað og bílþjófnað. Hann hefur
tvisvar rofið skilorð, þar á meðal
skilorðsdóm frá í vor, og er 12
mánaða fangelsi hans því óskilorðs-
bundið.
Þrír piltanna voru dæmdir fyrir
að hafa í mars sl. vetur brotist inn
í söluturn í Vesturbergi og stolið
þaðan 24 sígarettupökkum. Á leið
frá innbrotsstaðnum kom að þeim
rúmlega þrítugur maður sem ætlaði
að stöðva piltana og láta þá bíða
lögreglu. Hann náði taki á einum
en hinir tveir réðust á hann með
höggum og spörkum og skilið vð
hann kinnbeinsbrotinn, rifbeins-
brotinn og með rifið nýra.
Þá voru þrír piltanna dæmdir
fyrir að hafa ráðist inn í söluturn
við Seljabraut í haust og réðist einn
þeirra að afgreiðslustúlku meðan
hinir leituðu verðmæta sem þeir
fundu ekki.
Nokkrum dögum síðar voru allir
giltamir á ferð í verslun Nóatúns í
Árbæ þar sem þeir ógnuðu af-
greiðslufólki til að opna peninga-
skáp og komust undan með um 40
þúsund krónur.
Játuðu að mestu
Piltarnir játuðu sakargiftir að
mestu en einn þeirra sem einnig
var dæmdur fyrir að hafa ráðist á
mann og handarbrotið neitaði þeirri
ákæm en var dæmdur sekur á
grandvelli framburða vitna.
Síðustu brot piltanna í þessum
málum voru framin í september og
gaf ríkissaksóknari út ákæra 8.
nóvember. Dómur liggur því fyrir
rúmum þremur vikum eftir útgáfu
ákæra.
Morgunblaðið/Svemr
JÓNAS Aðalsteinsson hrl. skoðar möguleika Lagasafns íslands
AG. Við hlið hans situr Aðalsteinn Magnússon, framkvæmda-
sfjóri Aðgengis hf., og lengst til vinstri er Axel Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Úrlausnar hf.
Tölvutækt lagasafn
LAGASAFN íslands er komið út á
tölvutæku formi og inniheldur það
öll lög.sem í gildi eru.
í gær var Jónasi Aðalsteinssyni
hæstaréttarlögmanni afhent form-
lega fyrsta eintakið af Lagasafni
íslands AG, sem svo er nefnt, en
Jónas hefur ásamt fleiri aðilum
verið með það til reynslu. Hefur
hann lýst yfir ánægju sinni með
það og telur það geta valdið mik-
illi byltingu í vinnubrögðum lög-
manna, að því er Segir í fréttatil-
kynningu frá Úrlausn hf., sem sér
um þjónustu og sölu á lagasafninu.
Avarp menntamálaráðherra í Langholtskirkju
Fjölmiðlafólk sýni af
sér siðgæði og ábyrgð
ÓLAFUR G. Einarsson mennta-
málaráðherra benti á, í ávarpi sem
hann flutti á fyrsta sunnudegi í
aðventu í Langholtskirkju, að á
sama hátt og þjóðfélaginu sé nauð-
synlegt að stjómmálamenn og emb-
ættismenn sýni af sér siðgæði og
ábyrgð sé brýnt að þeir sem við fjöl-
miðla starfa geri slíkt hið sama.
Hann telur að framtíðin muni leiða
í ljós að við stöndum nú á krossgöt-
um í siðbót þjóðfélagsins.
Fyrirgreiðslupólitík er
tímaskekkja
Ólafur gerir að umtalsefni í ávarpi
sínu umræðu þá sem undanfarið
hefur átt sér stað um stjómsýslu
hvers þjóðfélags. „Ber þar hæst
umræðu um pólitíska ábyrgð og
pólitískt siðgæði. Krafa dagsins er
að þeir sem um stjómvölinn halda
misnoti ekki völd sín og er það vel.“
Ólafur segir að nauðsynlegt sé
að láta af fyrirgreiðslupólitík, hún
sé tímaskekkja og hafí aldrei átt
rétt á sér þótt viðhorf til hennar
hafí löngum verið það að hún væri
dyggð þingmannsins og hluti af
ábyrgð hans við að gera vel við kjör-
dæmi sitt. „Þegar grannt er skoðað
getur fyrirgreiðslupólitík sett stjórn-
málamönnum stólinn fyrir dymar
með að vinna faglega og heiðarlega
að málum. Þannig getur hún bundið
stjórnmálamenn á klafa vindsælda-
kappphlaups um kjósendur."
Fjölmiðlar eru
viðbótarvaldsvið
Ólafur segir að á það hafí verið
bent að hin hefðbundna þrískipting
valds sé ófullnægjandi, fjölmiðlar
séu í raun viðbótarvaldsvið. „Und-
anfarið hefur fjölmiðlum verið tíð-
rætt um pólitískt siðgæði en fjöl-
miðlafólk má ekki falla í þá gryfju
að fara offari í slíkum málum. Því
ber eins og öðram að nálgast hlut-
ina á málefnalegan hátt. Pólitíska
siðbót verður að reka af heilindum.
Á sama hátt og hveiju þjóðfélagi
er það nauðsyn að stjórnmálamenn
og embættismenn þess sýni af sér
siðgæði og ábyrgð er brýnt að þeir
sem við fjölmiðlana starfa geri slíkt
hið sama. Annað er spilling. Þannig
er ljóst að ef takast á að siðbæta
þjóðfélag okkar er mikilvægt að
allir taki höndum saman. Það er trú
mín að framtíðin muni leiða í ljós
að við stöndum á krossgötum í þeim
efnum nú. Að framtíðin beri í skauti
sér stjómsýslu sem gerir ráðamönn-
um kleift að standa að faglegri
stefnumótun í ríkari mæli en nú er.“
að hann kæmi ekki með okkur heim
aftur.
Heimilismenn á Laugaskjóli fluttir af lögheimili sínu vegna verkfalls sjúkraliða
„Eins og flótti
ór brennandi húsi“
SKÖMMU eftir hádegi í gær vora
níu vistmenn á Laugaskjóli, sambýli
fyrir sjúklinga með Alzheimer og
aðra heilabilunarsjúkdóma, fluttir
þaðan og yfír á hjúkranarheimilið
Skjól sem rekur Laugaskjól. Fimm
sjúkraliðar, eða helmingur starfs-
fólks, hafa starfað á Laugaskjóli og
fengið undanþágur í verkfallinu.
Sambýlið hefur samt sem áður verið
rekið með lágmarks mannafla og
þótti sýnt að ástandið seinustu vikur
gæti ekki varáð lengur, að sögn
Aðalheiðar Vilhjálmsdóttur, hjúkran-
arfræðings og forstöðumánns á
Laugaskjóli.
Vaktir standi þannig að fáist ekki
undanþága sé enginn sjúkraliði á
vakt og gæti það ástand komið upp
að sambýlið væri mannlaust, sem
kemur „vitaskuld ekki til greina",
segir Aðalheiður.
Geysileg röskun
Þetta er í annað skiptið á stuttum
tíma sem heimilismenn á Lauga-
skjóli hafa neyðst til að flytja sig
um set, en í sumar var efnt til flutn-
inga vegna framkvæmda í sambýl-
inu. Þurftu heimilismenn að dveljast
á Skjóli í sex vikur, en flutningamir
flokkast undir færslu milli deilda.
Heimilismenn era á aldrinum 77-89
ára og allflestir hrjáðir af alvarlegum
elliglöpum vegna sjúkdóma sinna.
Aðalheiður segir þá þarfnast „heil-
mikillar umönnunar, bæði stjómunar
og tilsagnar. Þau era misjafnlega fær
um að koma sér á fætur en öll þarfn-
ast þau aðstoðar við dagleg þrif og
þvottamál." í fyrradag var endanleg
ákvörðun um flutningana tekin og
var rætt við aðstandendur heimilis-
manna í kjölfarið. „Við myndum ekki
flytja fólkið nema alveg tilneydd.
Þetta er algjört neyðarúrræði, sem
við gripum fyrst til þegar búið var
að útiloka allar leiðir aðrar, þannig
að okkur fellur mjög þungt að þurfa
að grípa til þessa ráðs,“ segir Aðal-
heiður.
Hún segir að flutningamir í sumar
hafi gengið betur en starfsfólk þorði
að vona, en þeir hafí þó valdið miklu
losi á högum heimilismanna, sérstak-
lega þar sem minni margra þeirra
sé óstöðugt. Rólegheit og regla séu
heimilisfólkinu afskaplega mikilvæg
og flutningar í nýtt umhverfi valdi
geysilegri röskun. „Heimilismenn era
misjafnlega í stakk búnir til að tak-
ast á við flutninga, en sammerkt
með þeim öllum er að hugurinn er
orðinn lasinn og gerir þeim erfítt
fyrir að vinna úr þessum breytingum.
Líkamlegt ástand þeirra er líka mis-
jafnt,“ segir Aðalheiður. „Við reyn-
um auðvitað að flytja eins mjúklega
og við mögulega getum og styðjumst
þá við reynsluna frá því í sumar.
Flutningarnir þá voru að vísu undir
öðram formerkjum, t.d. var tíminn
að heiman nákvæmlega afmarkaður,
þannig að allt var miklu léttara f
framkvæmd."
' Gæti brugðið
til beggja vona
Aðspurð um hvort hún telji að all-
ir einstaklingamir níu muni þola
flutningana, -vitnar Aðalheiður í
lækni sambýlisins þegar hann fékk
sömu spumingu á fundi með að-
standendum: „Eg þori hreinlega ekki
að leggja mat á það, það getur brugð-
ið til beggja vona. Flutningarnir
gætu raskað einhvetjum svo mikið
Þorri heimilismanna á lögheimili á
Laugaskjóli. Aðalheiður kveðst ekki
vera nægilega kunnug reglum á
þessu sviði til að geta svarað því
hvort flutningur fólks frá lögheimili
þeirra sé í blóra við reglur. „Hjúkrun-
arforstjóri Skjóls bar upp sömu
spurningu við landlækni fyrir fáein-
um dögum. Hann sagði að það væri
ekkert sem hægt væri að halda í
miðað við núverandi ástand, þetta
væri nánast eins og flótti úr brenn-
andi húsi,“ segir Aðalheiður.
Verkfall sjúkraliða hefur nú staðið
yfír frá 10. nóvember. Undanþágur
hafa einnig verið skornar niður á
Skjóli og er reksturinn þar einnig :
orðmn aðkrepptur, að sögn Aðalheið-
aT.
í Hafnarbúðum, sem er deild frá
Landakoti, var sjö rúmum af nítján
lokað fyrir um viku og sjúklingarnir :
fluttir upp á Landakot. Um aldraða !
langlegusjúklinga er að ræða og er
sjúklingunum sem eru eftir í Hafnar- !
búðum sinnt á efri hæð byggingar- \
innar, en lítil eða engin starfsemi á
neðri hæð hennar.