Morgunblaðið - 03.12.1994, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ
■ 56 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Stóra sviðið kl. 20.00:
• VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi
Á morgun, fáein sæti laus, - þri. 6/12, laus sæti, - fim. 8/12, örfá sæti laus,
næstsíðasta sýning, - lau. 10/12, uppselt, síðasta sýning.
• GA UKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wesserman
Fös. 13. janúar, laus sæti.
BGAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
f kvöld, 60. sýning, uppselt - fös. 6. jan., laus sæti. Ath. fáar sýningar eftir.
•SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
Á morgun kl. 13, (ath. sýningartima) - mið. 28/12 kl. 17 - sun. 8. jan. kl. 14.
Litla sviðið kl. 20.30:
• DÓTTIR LÚSÍFERS eftir William Luce
f kvöld, uppseit, aukasýn. fim. 8/12 kl. 20.30, síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
•SANNAR SÖGUR AF SÁLARLÍFI SYSTRA
eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar.
Á morgun, næstsiðasta sýning, - þri. 6/12, síðasta sýning.
GJAFAKORT í LEIKHÚS, SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Græna línan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta.
BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680
' LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT — Frumsýning í janúar.
• LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Sýn. lau. 3/12, fös. 30/12, lau. 7/1.
LITLA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÓSKiN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson.
Sýn. lau. 3/12, fös. 30/12, lau. 7/1.
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. fim. 29/12, sun. 8/1 kl. 16.
Gjafakortin okkar eru frábær jólagjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. kl. 13-20.
Miðapantanir í síma 680680 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
F R Ú E M I L í A|
1 L ,JJ K H U S 1
Seljavegi 2 - sími 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftir Anton Tsjekhov.
Sun. 4/12, fös. 9/12, lau. 10/12, sun.
11/12.
Sýningar hefjast kl. 20.
SfÐUSTU SÝNINGAR!
Miðasalan opin frá kl. 17-20 sýningar-
daga, sími 12233. Miðapantanir
á öðrum tímum í símsvara.
Leikbrúðuland
Jólasveinar
einn og átta
Sýning í dag ki. 15.00,
sunnud. 4. des. kl. 15.00.
Síðustu sýningar.
Miðasalan opnuð kl. 13.00.
Sími 622920.
Fríkirkjuvegi 11, Rvík.
Sýnt í íslensku óperunni.
Vegna gífurlegrar aðsóknar
bætum við aðeins
þessum sýningum við:
Lau. 3/12 kl. 24, örfá sæti laus.
Fim. 8/12 kl. 20, fös. 9/12 kl. 24,
lau. 10/12 kl. 24.
Bjóðum fyrirtækjum, skólum og
stærri hópum afslótt.
Ósóttar pantanir eru seldar
3 dögum fyrir sýningu.
Miðapantanir i símum 11475 og
11476. Ath. miðasalan opin virka daga
frá kl. 10-21 og um helgar frá
kl. 13-20. Ath. miðasala lokuð á
sunnudag.
Ath. Síöustu sýningar!
KatíiLcikhúslfj
I HLADVARPANUM
Vesturgötu 3 ____________
Eitfhvað ósagt —
i kvöld og
10. og 16. des.
Leikhús í tösku
- jólasýning f. börn
i dag kl. 14 og 16
10. og 17. des.
MiöaverS aðeins 500 kr.
Þó mun enginn
skuggi vera til
8. oq 15
8. og T5. des.______
Lítill leikhúspakki
Kvöldverður og leiksýning
aðeins 1400 kr. á mann.
Jólaglögg - Barinn
opinn eftir sýningu.
r
Kvöldsýningar hefjast kl. 21.00
FOLKI
NATASHA Richardson hefur
verið mikið í sviðsljósinu síðustu
misserin eftir að hún skildi við
eiginmann sinn og tók sarnan við
Liam Neeson, sem sló eftirminni-
lega í gegn í hlutverki Oskars
Schindler í „Schindler’s List“.
Þau hittust fyrst þegar þau
léku saman á Broadway í leikrit-
inu „Anna Christie" eftir Eugene
O’Neill, og ekki Ieið á löngu þar
til þau byrjuðu að vera saman.
Eftir að þau giftu sig í haust
hafa þau vakið mun meiri at-
hygli heldur en ýmis önnur fræg
hjón í kvikmyndaheiminum, og
verða til dæmis Kenneth Bra-
nagh og Emma Thompson,
Renny Herlin og Geena Davis,
Tom Cruise og Nicole Kidman
að láta sér lynda minni umfjöllun
og athygli fjölmiðlanna.
Aður en þau byrjuðu að vera
saman urðu þau Natasha og Liam
hins vegar að láta sér nægja
meiri virðingu en dálksentí-
metra, en saman eru þau hund-
elt af ljósmyndurum og sífellt á
milli tannanna á fólki sem lifir
og hrærist í skemmtanaiðnaðin-
um. Þau hjónakornin sjást nú á
næstunni saman í kvikmyndinni
„Nell“, en í henni leika þau geð-
lækna sem annast og rannsaka
unga konu sem alist hefur upp
meðal dýra í óbyggðum og aldrei
hefur komist í snertingu við aðr-
ar manneskjur, en með hlutverk
hennar fer Jodie Foster.
Hin 31 árs gamla Natasha
kemur úr mikilli leikaraætt í
Bretlandi en móðir hennar er
Vanessa Redgrave, dóttir Michel
Redgrave, og faðir hennar er
leikstjórinn Tony Richardson.
Natasha kom fyrst fram í kvik-
myndinni „The Devils“ sem Ken
Russell leikstýrði, en í henni fór
Vanessa móðir hennar með hlut-
verk bæklaðrar nunnu með brók-
arsótt. Eftir nám í leiklistarskóla
hreifst hún mest af myndum Judy
Garland, „Coal Miner’s Daug-
hter“, „The French Lieutenant’s
Woman" og „Julia“, en fyrir hlut-
verk sitt í þeirri mynd hlaut móð-
ir hennar OsakarsVerðlaun.
en Liam var orðaður við hlutverk
í myndinni. Þau hafi bæði haft
mikinn áhuga á þessum hlutverk-
um annað hvort saman eða þá
ella einungis annað þeirra.
„Við vissum að ef annað okkar
fengi ekki hlutverk í myndinni
myndi það ekki þýða að hitt
hætti við. Við vorum alls ekki
eins og einhver pakki sem í boði
var. Persónan sem ég leik er
haldin svo mikilli fullkomnunar-
áráttu að hún getur ekki opnað
sig og tekið áhættuna að verða
ófuiikomin að einhveiju leyti.
Þetta þekki ég vel, því ég hef
gengið í gegnum þetta sjálf og
þurft að yfirstíga þessar tilfinn-
ingar. Helsti munurinn á mér og
henni er sá að hún er ekki i
tengslum við tilfinningar sínar,
en ég er hins vegar í of miklum
tengslum við mínar tilfinningar.“
Meðal hlutverka sem Natasha
segir að hana hafi hungrað í að
leika eru hlutverk Debru Winger
í „The Sheltering Sky“, hlutverk
Meg Ryan í „Sleepless in Seattle"
og hlutverk Michelle Pfeiffer í
„The Age of Innocence". Hún
viðurkennir að hún hafi ekki allt-
af fengið þau hlutverk sem hún
hafi sóst eftir, og sömuleiðis hafi
hún hafnað hlutverkum sem hún
hafi seinna dauðséð eftir að hafa
gert. Sérstaklega hafi ein mynd
sem hún neitaði hlutverki í orðið
mjög vinsæl, en sögusagnir
herma að það hafi verið „How-
ard’s End“.
Natasha segir að þrátt fyrir
að hún sé í óðaönn að reyna að
skapa sér stjörnunafn hafi hún
mikinn hug á að eignast börn
með Liam. Hún þekki fjölda
dæmi um að leikurum hafi tekist
að lifa hamingjusömu fjölskyldu-
lífi, en það sé þó mun erfiðara
fyrir leikkonur en leikara því
þær verði að taka sér ársfrí frá
kvikmyndaleik vegna barneigna.
Engu að síður vilji hún að þau
hjónin eignist börn, en leggur
samt áherslu á að hún vilji ekki
að þau feti í fótspor foreldranna
og verði leikarar.
Natasha
villá
Nastasha Richard-
son er á góðri leið
með að verða ein
skærasta kvik-
myndastjarna
Hollywood.
ÞAÐ fer vel á með þeim
hjónakomunum Natöshu
Richardson og Liam Neeson.
Eftir að hún hóf kvikmynda-
leik kom Natasha aðallega fram
í myndum sjálfstæðra kvik-
myndagerðarmanna, allt frá
„Patty Hearst" til „The Hand-
maid’s Tale“, en það var snilldar-
leg frammistaða hennar í leikrit-
inu Ánna Christie sem varð til
þess að henni fóru að bjóðast
bitastæðari hlutverk, en Natasha
var tilnefnd til Tony-verðlaun-
anna fyrir hlutverk sitt í leikrit-
inu.
Hin mikla umfjöllun og frægð
sem þau hjónin hafa hlotið upp
á síðkastið hefur orðið til þess
að Natasha gerir nú meiri kröfur
til hlutverka sem henni bjóðast
og er hún jafnvel sögð eiga í
vændum að verða meðal skær-
ustu kvikmyndastjama Banda-
ríkjanna.
„ Að vera stjaraa skiptir mig
miklu máli því ég vil geta valið
úr þeim kvikmyndahandritum
sem einhverju máli skipta, en em
í raun sárafá jafnvel fyrir þær
fimm fremstu í faginu,“ sagði
hún nýlega í blaðaviðtali.
Aðspurð um hvort sambúðin
með Liam Neeson hefði orðið til
þess að hún fékk hlutverk geð-
læknisins í „Nell“ segir Natasha
svo alls ekki vera. Hún hafi lesið
rulluna og gefið kost á sér áður
Eitt blað
fyrir alla!
- kjarni málsins!