Morgunblaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjúkraliðar mættu til vinnu á 5 deildum
Ræða áfram
tilboð ríkisins
SJÚKRALIÐAR höfnuðu ekki tilboði samninganefndar ríkisins um gerðar-
dóm á samningafundi í gær. Samningsaðilar samþykktu á fundinum að
einbeita sér að því að ná samkomulagi um aðra þætti nýs kjarasamnings
en þá sem varða sjálfan launaliðinn. Talið er að það skýrist í dag hvort
einhver hreyfing kemst á samningaviðræður.
Á félagsfundi í Sjúkraliðafélaginu Sjúkraliðar mættu til starfa á
sl. föstudag kom fram mikil andstaða fimm deildum á Ríkisspítölum um
við tilboð ríkisins um gerðardóm og
kjarasamning til áramóta um 4%
launahækkun. Þrátt fyrir þetta hefur
samninganefnd sjúkraiiða ekki hafn-
að tilboðinu. Ríkissáttasemjari hefur
lagt hart að sjúkraliðum að gefa
samninganefndunum færi á að ræða
tilboðið frekar. Talið er víst að ef
sjúkraliðar hefðu hafnað tilboðinu
strax, eins og þeir voru reyndar bún-
ir að gefa í skyn að þeir myndu gera,
hefði deilan farið í harðari hnút en
nokkru sinni fyrr.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, sagði að
sjúkraliðar væru reiðubúnir til að
ræða um alla þætti nýs samnings
og láta sjálfan launaliðinn liggja
milli hluta að sinni. Hún sagði að
þrátt fyrir að ýmislegt hefði verið
rætt á samningafundum síðan verk-
fall hófst væru mál eins og mennta-
mál sjúkraliða, mál sjúkraiiða utan
höfuðborgarsvæðisins og röðun í
launaflokka enn ófrágengin.
helgina í samræmi við niðurstöðu
Félagsdóms í síðustu viku. Forystu-
menn Sjúkraliðafélagsins áttu fund
með forstjóra Ríkisspítalanna á
laugardag þar sem samkomulag
náðist um framkvæmd verkfallsins.
Sjúkraliðar mæta á
Borgarspítala
í gærkvöldi náðu sjúkraliðar einn-
ig samkomulagi við stjórnendur
Borgarspítala um framkvæmd verk-
fallsins og munu sjúkraliðar, sem
eiga að vinna samkvæmt umdeildum
undanþágulistum, mæta til vinnu í
dag. Ekki kemur því til málarekst-
urs í Félagsdómi milli Sjúkraliðafé-
lagsins og Borgarspítalans.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri á Landspítala,
sagði að heldur hefði dregið úr því
mikla álagi sem hefði verið á hjúkr-
unarfræðingum á deildunum fimm
eftir að sjúkraliðar komu til starfa.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
KRISTJANA Biraa Marthensdóttir og Veigar Þór Guðbjörnsson
ásamt dótturinni, sem fæddist í heimilisbílnum fyrir utan Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði, og Martheni Elvari, sem var viðstadd-
ur þegar litla systir fæddist.
ísfirskri stúlku lá ósköpin öll á í heiminn
Fæddist í fram-
sæti bifreiðar
Bryggjan
sökk
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
ísafirði. Morgunbiaðið.
KRISTJANA Birna Marthensdótt-
ir eignaðist sitt þriðja barn, 15
marka stúlku, í framsæti í fólks-
bíl fyrir utan dyrnar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á ísafirði klukkan
rúmlega þrjú aðfaranótt síðastlið-
ins föstudags.
Kristjana hefur unnið nætur-
vaktir í rækjuverksmiðju undan-
farið og hafði hugsað sér að fara
á vaktina klukkan tvö um nóttina.
Upp úr miðnætti fór hún að finna
fyrir verkjum, sem hún taldi varla
marktæka. Áður en hún fór á
vaktina þóttist hún vita að hverju
stefndi og vakti eiginmanninn.
Hún er kannski ekki beinlinis óvön
flýtinum, sjálfri lá henni svo mikið
á í heiminn, að afi hennar Sigur-
geir Halldórsson tók á móti þegar
hún fæddist, því Ijósmóðirin náði
ekki í tíma.
Veigar Þór Guðbjörnsson sagði
að þegar konan hefði vakið hann
og sagt honum að barnið væri að
koma var ekki um annað að ræða,
en vekja þriggja ára son þeirra
Marthen Elvar, enginn tími var
til að klæða hann svo honum var
vafið inn í teppi, en fara átti með
hann til ömmu sinnar og afa á
leiðinni á sjúkrahúsið. Kristjana
og Veigar búa inni í Holtahverfi,
um fimm kílómetra leið frá sjúkra-
húsinu. Veigar sagðist hafa keyrt
eins og druslan dró, en þau voru
varla komin hálfa leið þegar Krist-
jana sagði honum að reyna ekki
að koma barninu í fóstur, heldur
halda beint á spítalann.
Sá litli horfði á fæðinguna
Að venju er sjúkrahúsið læst
og þurfti Veigar að geravart við
sig um dyrasíma. Birna Ólafsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur svaraði og
sagðist koma niður. Veigari fannst
að hún teldi hann vera bara venju-
legan stressaðan verðandi faðir,
en öskraði samt á hana að bamið
væri að fæðast í bilnum fyrir ut-
an, því farið var að sjá í kollinn
á barninu meðan hin verðandi
móðir reyndi að hagræða sér í
þröngu framsæti bílsins og talaði
við Marthen litla sem stóð á milli
framsætanna og fylgdist með
þessum undrum. Um leið og hjúkr-
unarkonan birtist með sjúkrarúm
í anddyrinu fæddist stúlkubarn.
Veigar sagði að Birna hefði beðið
Guð að hjálpa sér þegar hún sá
hvers kyns var, en síðan hefði hún
fumlaust tekið við barninu, sogið
slím úr nefi og munni, lyft því upp
á fótunum og gefið því léttan rass-
skell.
Kristjana og Veigar sögðu að
Birna, sem er einungis 25 ára og
útskrifaðist sem hjúkrunarfræð-
ingur síðasta vor, hefði verið róleg
og eldklár og vitað nákvæmlega
hvernig takast átti á við þessar
sérstöku aðstæður.
• •
Onnur umræða um
fjárlög á Alþingi í dag
Meira fé
til Kvik-
mynda-
sjóðs
BREYTINGARTILLÖGUR meiri-
hluta fjárlaganefndar fyrir aðra
umræðu um fjárlagafrumvarpið,
sem verður á Alþingi í dag, þýða
377,9 millj. króna hærri útgjöld rík-
isins næsta ár.
Meðal tillagnanna er, að framlag
til Kvikmyndasjóðs hækki um 21,5
milljónir og verði 100 milljónir á
næsta ári eða nánast það sama og
á þessu ári. Þá komi aftur inn 14,5
milljóna framlagtil að styrkja bygg-
ingar íþróttafélaga úti á landi, en
það átti að falla brott samkvæmt
frumvarpinu. Einnig leggur meiri-
hluti nefndarinnar til að Fiskifélag
Islands fái 5 millj. til almenns
rekstrar, en það framlag átti að
falla brott skv. frumvarpinu.
Af nýjum liðum, sem meirihluti
fjárlaganefndar leggur til, má nefna
20 milljóna framlag til landkynn-
ingar í tengslum við HM í hand-
bolta. Fimm milljónum á að veita
til að stofna embætti viðskiptafull-
trúa í Moskvu en á móti lækkar
framlag til alþjóðlegs rannsóknar-
samstarfs um sömu upphæð.
Prófessor og prestar
Framlag til Háskóla íslands
hækkar um 9,6 milljónir, m.a.
vegna stöðu prófessors í eðlisfræði
þéttefnis. Framlag til Biskupsemb-
ættis hækkar um 8,6 milljónir, m.a.
vegna nýs embættis héraðsprests í
Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófasts-
dæmi og vegna prests í Reykjavík.
Þá hækkar framlag til Alþingis um
33 milljónir, þar af um 20 milljónir
vegna fasteigna.
--- ♦ ♦ ♦-------
Brotnaði og fór
úr liði við fall
ROSKINN maður meiddist talsvert
þegar hann féll á hálkubletti í vest-
urbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan
3 í gær.
Maðurinn var að sögn lögreglu
bæði beinbrotinn og genginn úr liði
eftir fallið.
Hann var fluttur til aðhlynningar
á slysadeild Borgarspítalans.
LÍÚ felldi kjarasamning sem gerður hafði verið við sjómenn
AKRABORGIN gat ekki tekið
bíla með í eina ferð sina i gær
þar sem flotbryggja skipsins í
Reykjavíkurhöfn hafði sokkið til
botns eftir að gat kom að loftt-
anki hennar.
Viðgerð hófst strax og þegar
skipið kom til síðasta skipti til
borgarinnar um sexleytið síðdeg-
is í gær héldu tveir 45 tonna kran-
ar bryggjunni uppi meðan skipið
stóð við í höfn, svo að unntyrði
að aka bílum frá borði og í land.
Aftan á Akraborginni er uggi
sem á að lyfta undir flotbrúna
þegar skipið leggst að en að sögn
Júlíusar Guðnasonar, yfirstýri-
manns Akraborgar, virðist ugg-
inn hafa rekist í flottank brúar-
innar og gert gat á hann þegar
skipið lagðist að í fyrstu ferð til
Reykjavíkur í morgun. Eftir að
skipið fór frá Reykjavík í hádeg-
inu uppgötvaðist hvað gerst hafði
þegar bryggjan sökk til botns.
Áð sögn Júlíusar Guðnasonar
var vonast til að viðgerðum á
flottönkunum yrði lokið i nótt og
að ástand bryggjunnar yrði kom-
ið í eðlilegt horf þegar ferðir
hefjast í dag.
Flest sj ómannafélög á Aust-
urlandi felldu samninginn
LANDSSAMBAND íslenskra útvegsmanna og 11
sjómannafélög felldu kjarasamning sem LÍU og
Sjómannasamband íslands undirrituð í september
síðastliðnum, en það var fyrsti kjarasamningur
þessara aðila sem gerður hafði verið um árabil.
Samningurinn sem fól í sér framlengingu á
eldri samningi, auk viðauka um sérkjör við ýmsar
veiðar, átti að gilda út næsta ár. Álls höfðu 18
sjómannafélög samþykkt samninginn og 8 félög
áttu eftir að greiða atkvæði um hann. Mest var
andstaðan við samninginn á Austurlandi en þar
felldu öll félög sjómanna samninginn að undan-
skildum félögunum á Vopnafirði og Reyðarfirði.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði í
samtali við Morgunblaðið að LÍÚ hefði fellt samn-
inginn þegar ljóst hefðiverið hve mörg félög sjó-
manna hefðu fellt hann. Kristján sagði að í viss-
um tilfellum hefðu sjómenn haft samninginn að
gamanmáli og þannig hefðu t.d. aðeins fimm
sjómenn greitt atkvæði um hann á Höfn í Horna-
firði og allir fellt hann.
Átján félög höfðu sam-
þykkt, 11 felltogátta
höfðu ekki greitt atkvæði
„Meðan verið er að ieitast við að gera einn
samning sem eigi að gilda fyrir sjómenn á svæði
Sjómannasambandsins þá gengur þetta ekki eft-
ir svona,“ sagði hann.
Líst illa á framhaldið
Aðspurður sagði Kristján að sér litist illa á
framhald málsins en hann óttaðist hins vegar
alls ekki að til verkfalls sjómanna kæmi. Þarna
væri ekki eingöngu um að ræða mál sem snerti
Sjómannasambandið eitt, því LÍÚ hefði ítrekað
reynt að fá Farmanna- og fiskimannasambandið
og Vélstjórafélagið að þessum samningi, en það
hefði ekki tekist.
„Við erum með hlutaskipti þar sem eitt verður
yfir alla að ganga í skipshöfninni og okkur tekst
ekki að ná þeim að einu samningaborði. Þetta
eru aðilar sem fóru í allsheijarverkfall í fyrravet-
ur, þannig að okkur finnst að þetta sé málefni
sem sjómannasamtökin þurfi að endurskoða með
hhðsjón af því hvernig þetta hefur tekist hjá
þeim,“ sagði hann.
Ákvörðun á fimmtudag
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasam-
bandsms, sagði að sér væri ekki kunnugt um
hvers vegna svo mikil andstaða hefði verið við
samninginn á Austurlandi, en það yrði kannað
á næstu dögum. Hann sagði að sambandsstjórn-
arfundur Sjómannasambandsins yrði haldinn
næstkomandi fímmtudag og þar yrði tekin
ákvörðun um hvert framhald málsins verður.
„Fi amhaldið verður auðvitað að gera nýjan
kjarasamning en á fundinum á fimmtudaginn
verður ákveðið með hvaða hætti verður staðið
að því,“ sagði Sævar.