Morgunblaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Kveikt á jólatré bæjarins á Selfossi
F^öldi dans-
aði meðjóla-
sveinunum
Selfossi - Fjöldi fólks, Selfossbú-
ar og nærsveitafólk, fylgdist með
þegar kveikt var á jólatré á
Tryggvatorgi á Selfossi á laugar-
dag. Forseti bæjarstjórnar, Sig-
ríður Jensdóttir, flutti ávarp og
leikin voru jólalög. Jólasveinaru-
ir komu í bæinn og dönsuðu í
kringum jólatréð ásamt viðstödd-
um. Þessi viðburður á sér 18 ára
sögu. Öll árin hefur verið örtröð
í miðbæ Selfoss og í verslunum
því nærsveitafólk nýtir jafnan
ferðina og verslar til jólanna um
leið og börnunum er skemmt.
Afbrýðisöm eiginkona-
sýnd á Raufarhöfn
Raufarhöfn - Leikfélag Raufar-
hafnar hefur að undanförnu sýnt
„farsann" Afbrýðisama eiginkonu
eftir Gay Paxton og Edward Hoile
í þýðingu Sverris Haraldssonar.
Verkið er sýnt fjórum sinnum,
aðsókn hefur verið góð og undir-
tektir sömuleiðis.
Afbrýðisöm eiginkona er 21.
verkefni leikfélagsins. Það hefur
verið sett upp hjá leikfélögum víða
um land á undanförnum árum og,
að því er fram kemur í leikskrá,
hafa áhorfendur skemmt sér kon-
unglega.
Guðfinna Margrét Óskarsdóttir
leikstýrir. Leikendur eru: Jónas
Friðrik Guðnason, Sóley B. Sturlu-
dóttir, Kristján Ónundarson,
Snorri Kristjánsson, Berglind M.
Tómasdóttir, Sigurveig Björns-
dóttir, B. Hjördís Ragnarsdóttir
og Páll Þormar.
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
FRA sýningu Leikfélags Raufarhafnar á
Afbrýðisömu eiginkonunni.
Islenskt
jólaskraut
-játakk
SENN líður að jólum og er undir-
búningur hátíðarinnar víða kom-
inn í fullan gang og margir eru
farnir að skreyta. Að venju eru
búðarhillur og borð troðin af er-
lendum kúlum og glingri, en það
hefur engin áhrif á Hálfdán
Björnsson og Bergljótu Benedikts-
dóttur á Hjarðarbóli í Aðaldal sem
nota heimafengið skraut. Á dög-
unum voru þau að tína eini og
lyng í hrauninu, en eftir var að
fella jólatréð sem í ár verður hvít-
skreytt birki með ljósum og til-
heyrandi.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Lífleg togaraáhöfn á Egilsstöðum
Slegist í
Egilsstöðum - Áhöfn togarans
Óttars Birtings lenti í innbyrðis
slagsmálum í flugstöðinni á Egils-
stöðum í gærmorgun og þurfti
lögreglan að skakka leikinn.
Áhöfnin ætlaði með Flugleiðavél
til Reykjavíkur kl. 10 í gærmorg-
un, en fimm sjómannanna voru
fjarlægðir og komust þeir ekki
með vélinni.
Óttar Birting kom til Fáskrúðs-
fjarðar í fyrrinótt eftir um 50
daga túr í Smugunni, og að sögn
lögreglunnar á Egilsstöðum hóf-
ust einhvetjar ryskingar milii sjó-
flugstöð
mannanna í rútu á leið til Egils-
staða í gærmorgun. Slagsmál
brutust svo út þegar komið var
í flugstöðina, en að sögn lögregl-
unnar hlaut enginn sjómannanna
alvarlega áverka.
Einum úr áhöfninni var haldið
á lögreglustöðinni fram eftir degi
á meðan hann var að róast og
jafna sig eftir átökin, en ljórir
fóru með flugvél íslandsflugs eft-
ir hádegið. Smávægilegar tafir
urðu á áætlun Flugleiðavélarinn-
ar af völdum uppákomunnar.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Egilsstöðum - Ökumaður dráttar-
vélar með tengivagni missti stjórn
á vélinni þegar hann ók niður brekk-
una í Fénaðarklöpp á Egilsstöðum.
Mikil ísing hafði safnast á götur
innanbæjar og fór ökumaður vélar-
innar því um fáfarnari götur bæjar-
ins á leiðinni að leggja ull inn í
kaupfélagið. Brekkan er brött og
lét vélin ekki að stjórn, valt á hlið-
ina og vagninn líka. Ökumaður
slapp ómeiddur frá óhappinu en
eitthvert tjón varð á vélinni.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
MIKIL ísing á götum varð til þess að þessi
dráttarvél valt á hliðina.
Dráttarvél valt í hálku
Nú kaupa allir
/MÍXflC
486DX2-66 tölvur!
Aöeln s Irr. 119.900 fullbúln!
486
DX2-66
(297)
SX-25
Hlutfallsleg afköst
MITAC 486DX2-66 borð- eða tumtölva (Uppfæranleg í Pentium), 4MB
minni, 256KB flýtiminni, 214MB diskur, 3.5" drif, S3 VL-bus skjáhraðall
(24M Winmarks!), 14" örgjörvastýrður lággeisla litaskjár, lykiaborð, MS-
DOS 6.22, Windows 3.II og mús - Aðeins kr. 119.900 staðgreitt!
Wm
Slcipholti SOc
Sími 620222