Morgunblaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 1
\
80 SÍÐUR B
285. TBL. 82. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vínill-
inn aftur
ítísku
GÖMLU hljómplöturnar eru
að komast aftur í tísku. í
fyrsta sinn í 13 ár er sala í
þeim farin að aukast í Banda-
ríkjunum og var aukningin
hvorki meiri né minni en 80%
á fyrra helmingi þessa árs
miðað við það síðasta.
Nýjustu plöturnar frá Nir-
vana, Neil Young, Johnny
Cash og Sonic Youth komu
öll út á vínil áður en geisla-
diskarnir komu á markað og
það sama er að verða uppi á
teningnum hjá unnendum
klassískrar tónlistar, einkum
óperuunnendum. Þeir halda
því fram, að röddin eða söng-
urinn sé sannari og eðlilegri
á mjúkum vínilnum en á hörð-
um og köldum dískinum.
Vinsæll hjá fagnrkerum
Engin hætta er þó á, að
vínillinn muni útrýma geisla-
diskinum en margir spá því,
að gamla hljómplatan verði
áfram vinsæl hjá fagurkerun-
um. Þá er hún einnig í uppá-
haldi hjá aðdáendaklúbbum
alls konar og flestir eru sam-
mála um, að listilega frágeng-
ið albúm í gamla stílnum sé
miklu merkilegri gripur en
plasthylkin utan um geisla-
diskana.
Reuter
Flóð í
Skotlandi
GÍFURLEGAR rigningar voru í
Vestur-Skotlandi um heigina og
varð fólk víða að flýja heimili sín
vegna vatnavaxta. Þessi brú yfir
Kelviná norður af Glasgow gaf
sig í flaumnum og lenti bíll með
þremur mönnum í ánni. Er hér
verið að bjarga einum þeirra en
hinna tveggja er saknað. Verst
er ástandið í Renfrewskíri þar
sem flytja varð fólk burt á bátum.
Þar var vatnselgurinn hálfur ann-
ar metri á dýpt. Veðurfræðingar
spá áframhaldandi úrkomu næstu
daga.
, Reuter
RAÐIST var gegn rússneska herliðinu þegar það fór um Ingúshetíu, nágrannaríki Tsjetsjníu. Hef-
ur sóknin til Grosní gengið hægt vegna þess, að Rússar leita vars fyrir myrkur af ótta við nætur-
árásir. Hér eru brunnar leifar rússnesks herbíls en sagt er, að 30 hafi verið eyðilagðir.
Harðir bardagar
Tsjetsjena og Rússa
Tsjetsjnískar sveitir í bænum
Dolínskoje, sem er 25 km norðvest-
ur af höfuðborginni, Grosní, hófu
eldflaugahríðina þegar rússneska
bryndrekasveitin nálgaðist og
mátti heyra miklar sprengingar í
fjarska. Komu rússneskar árásar-
þyrlur og orrustuflugvélar fljótlega
á vettvang og réðust með mikilli
skothríð á stöðvar Tsjetsjena.
Ókyrrð í nágrannaríkjum
Herför Rússa inn í Tsjetsjníu
hefur gengið miklu verr en að var
stefnt og í gær höfðu þeir ekki náð
til Grosní. I Íngúshetíu og Dagest-
an, sem eru byggð fólki náskyldu
Tsjetsjenum, tókst að tefja fyrir
framsókninni og í fyrrnefnda land-
inu var ráðist á rússnesku sveitirn-
ar með vélbyssuskothríð og kveikt
í mörgum bílum.
Viðræður Tsjetsjena og fulltrúa
Moskvustjórnarinnar í borginni
Vladíkavkaz virðast vera síðasta
tækifærið til að komast hjá blóðug-
um átökum en Rússar krefjast
þess, að Dzhokhar Dúdajev, leið-
togi Grosnístjórnarinnar, afturkalli
sjálfstæðisyfirlýsinguna frá 1991.
Haft var eftir honum í gær, að
Tsjetsjenar berðust fyrir lífi sínu
og frelsi gegn Rússum, sem hefðu
hafið stríð gegn þeim.
Ótti við nýtt Afganistanstríð
í Rússlandi óttast margir, að
upp komi nýtt Afganistanstríð í
Kákasuslöndum en þau eru byggð
mörgum þjóðum, sem hafa aldrei
unað yfírráðum Rússa. Á sunnu-
dag sagði Dúdajev, að ákvörðun
Borís Jeltsín, forseta Rússlands,
um að senda herlið til Tsjetsjniu
myndi hrinda af stað blóðugu stríði
um allt Kákasus. Um 5.000 manns
söfnuðust saman í Moskvu í gær
til að mótmæla hernaðinum og var
um að ræða fólk úr öllu hinu póli-
tíska litrófi í Rússlandi.
■ Múslimaþjóðir/24
Grosní, Dolínskoje, Moskvu. Reuter.
HERSVEITIR Tsjetsjníustjórnar réðust í gær gegn rússneskri bryndreka-
sveit með skriðdreka- og eldflaugaskothríð í fyrstu meiriháttarátökunum
eftir að stjórnin í Moskvu skipaði hernum að koma aftur á „stjórnar-
skrárbundinni stjórn“ í landinu. Svöruðu Rússar strax með loftárásum
á stöðvar Tsjetsjena. Skotið var einnig^ á rússneska hermenn þegar þeir
fóru um nágrannaríkið Íngúshetíu. Á sama tíma ræddust fulltrúar
Rússa og Tsjetsjena við um leiðir til að koma í veg fyrir stríð í landinu.
Stj órnarsamstarfið á Ítalíu
Uppgjör yfirvofandi
Róm. Reuter.
SPENNAN í ítölskum stjórnmálum
magnaðist enn í gær þegar Rob-
erto Maroni innanríkisráðherra
boðaði uppgjör í stjórninni og einn
af dómurum landsins sagði af sér
vegna deilu um rannsókn spilling-
armála.
„Menn geta séð fyrir sér aðra
stjórn, með annarri forystu og öðr-
um meirihluta," sagði Maroni, sem
er í Norðursambandinu og hefur
hingað til lagt mikla áherslu á að
halda stjórnarsamstarfinu áfram.
Dómarinn Arnaldo Valente, sem
úrskurðaði fyrir tveimur vikum að
ekki mætti rannsaka meinta mútu-
þægni skattrannsóknarmanna,
sagði af sér í gær og kvaðst hafa
orðið fórnarlamb ófrægingarher-
ferðar eftir úrskurðinn.
Afsögnin er talin áfall fyrir rann-
sóknardómara í Mílanó, sem hyggj-
ast yfirheyra Silvio Berlusconi for-
sætisráðherra í dag um meintar
mútugreiðslur hans til skattrann-
sóknarmannanna.
Jacques Delors
ekki í framboð
Hægri-
menn
öruggir
París. Reuter.
FRANSKIR sósíalistar eru farnir að
leita að nýjum frambjóðanda í for-
setakosningunum á næsta ári eftir
að Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, ákvað að gefa ekki kost á sér.
Eru fréttaskýrendur sammála um,
að hann hafi með ákvörðun sinni
tryggt sigur hægrimanna.
„Vertu blessaður Delors, skilaðu
kveðju til vinstrimanna, halló Ballad-
ur-Chirac“ var fyrirsögnin í dagblað-
inu Le Parísien og jafnt hægri- sem
vinstrimenn eru sammála um, að
annaðhvort Edouard Balladur for-
sætisráðherra eða Jacques Chirac,
borgarstjóri í París, verði næsti for-
seti Frakklands.
Gæti ekki staðið við stóru orðin
Delors sagði í viðtali við franska
sjónvarpsstöð á sunnudag, að hann
hefði ákveðið að gefa ekki kost á
sér vegna þess, að hann myndi ekki
geta staðið við nein kosningaloforð
yrði hann kjörinn forseti þar sem
hægrimenn hefðu meirihluta á þingi.
Franskir sósíalistar munu halda
flokksþing í janúar til að velja fram-
bjóðanda en líklegastir eru taldir Jack
Lang, fyrrverandi menningarmála-
ráðherra; Pierre Mauroy, fyrrverandi
forsætisráðherra, og Henri Emmanu-
elli, formaður Sósíalistaflokksins.
Óttast um Evrópuhugsjónina
Það skyggir helst á gleði hægri-
manna yfir ákvörðun Delors, að ótt-
ast er, að hún kyndi undir enn fleiri
framboðum á hægrivængnum, þar á
meðal manna, sem muni slá á strengi
þjóðernishyggju. Hjá Evrópusam-
bandinu, ESB, hefur ákvörðun Del-
ors einnig verið hörmuð og er ótt-
ast, að hugsjónir hans um meiri ein-
ingu ríkjanna verði fyrir borð bornar
í kosningabaráttunni.
■ Vonir vinstrimanna/36
Coilör
sýkn saka
Brasilíu. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR í Brazilíu sýknaði
í gær Fernando Collor, fyrrverandi
forseta landsins, af ákæru um spill-
ingu, tveimur árum eftir að hann
var neyddur til að segja af sér.
Fimm hæstaréttardómarar
greiddu atkvæði með sýknu Collors
en þrír á móti en auk þess voru ákær-
ur á hendur Paulo Cesar Farias, kosn-
ingastjóra Collors í forsetakosning-
unum 1989, felldar niður. Hann hafði
verið sakaður um að hafa skipulagt
og stjórnað misferlinu, sem snerist
um hundruð milljóna kr.
Helstu leiðtogar á brazilíska þing-
inu fordæmdu dóm hæstaréttar og
sögðu Ijóst, að útilokað væri að koma
lögum yfir spillinguna.