Morgunblaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ZBIGNIE'
IWSKI
FRUMSÝNING Á JÓLAMYNDINNI:
PRÍR LITIR: HVÍTUR
Allra síöustu sýningar
Aðalhlutverk: Harrison Ford
Sýnd kl. 11.15.
Allra síðustu sýningar
m&m' mmm
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýnd kl. 5 og 9.
SlÐASTA
SÝNINGARHELGI
Allra síðustu sýningar
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Skemmtileg ævintýramynd fyrir börn á öílum aldri.
Vonda galdranornin leggur álög á Valemon konung sem
verður að dúsa fanginn í líkama hvítabjörns. Fallega
prinsessan er sú eina sem getur leyst hann úr álögunum.
Sýnd kl. 5 og 7.
FORREST
GUHP
Jt
140 mín
2 FYRIR 1
Allra síðustu sýningar
Sýnd kl. 5.
atulega ógeðsleg hroll-
apgá skjön við huggu
a skóiann I danskri
RlR 1 'm
^....(.ujiurinn
Allra síðustu sýningar
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 9 og 11.
Háskólabíó
HASKOLABIO
SÍMI 22140
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS
Fjögur brúðkaup
og jarðarför
★★★ Ó.H.T. Rás 2
Jólamyndir
fj ölskyldunnar
Nýjar hljómplötur
Fyrir nokkrum árum sendi Pálmi
Gunnarsson frá sér jólaplötu sem hann
gerði með syni sínum kornungum. I vikunni
kom svo út önnur jólaplata, Jólamyndir,
þar sem Pálmi syngur með dóttur sinni,
en hann segir hana hafa sótt það fast
að komast á plast.
PÁLMI Gunnarsson hefur lengi
verið áberandi í íslensku tónlistar-
lífi og sungið inn á fleiri plötur en
hann hefur tölu á. Sólóplöturnar
eru þó öllu færri, en áhöld um hvort
kalla megi Jólamyndir sólóskífu,
frekar fjölskylduskífu, því
böm hans leggja honum
-lið og syngja í sumum lag-
anna.
Fjölskylduplata
Pálmi minnir á að hann
hafi gert jólaplötu fyrir
mörgum árum með syni
sínum og síðan hafi hann
eignast dóttur, reyndar
tvær, og sú í miðið, Ragn-
heiður, hafi beðið um að
fá að vera með á plötu
ef hann gerði aðra.
Reyndar syngi börnin
bæði á plötunni, þannig
að segja megi að þetta
sé fjölskylduplata. Strák-
urinn, Sigurður Helgi,
sem orðinn er tvítugur,
syngur eitt lag og Ragn-
heiður, sem er níu ára,
syngur eitt lag og með Pálma í
öðru, „en að öðru leyti er þetta
bara gamli viskíbarkinn", segir
Pálmi og hlær.
Þó tónlistin sé gefandi, er hún
líka ótryggur atvinnuvegur og
Pálmi segist ekki vilja ýta undir
það að börnin hans fari út í tónlist-
ina. „Það er þó sjálfsagt að styðja
þau eftir megni ef þau vilja það
sjálf,“ segir Pálmi og bætir við að
þó Sigurður Helgi hafi verið að
gutla við bassann og hafi mikinn
áhuga á tónlist, sé hann að læra
gullsmíði. „Þau eru vitanlega búin
að heyra frá mér hvernig tónlistar-
heimurinn er og vita alveg að
hverju þau ganga, ég er búinn að
ganga í gegnum þetta allt,“ segir
Pálmi og kímir.
Leitaði eftir íslenskum lögum
Pálmi segist hafa reynt að hafa
sem mesta breidd í lagavali á plöt-
unni, þar á meðal séu þrjú íslensk
lög eftir þá Magnús Kjartansson,
Eyjólf Kristjánsson og Jón Ólafs-
son. „Ég leitaði reyndar eftir því
við höfunda að þeir myndu semja
og fékk nokkur lög sem ég valdi
úr. Mér fannst skipta máli að hafa
íslensk lög á plötunni, því við eigum
fína höfunda, og svo fékk ég Krist-
ján Hreinsson, skáldið í Skerjafirð-
inum, til að sjá um íslensku text-
ana.“
Pálmi segist hafa tekið plötuna
upp að mestu í tveimur hljóðverum
og hann hafi fengið til liðs við sig
framúrskarandi tónlistarmenn til
að leika undir; Gunnlaugur Briem
leikur á trommur, Kjartan Valdi-
marsson á píanó, Þorsteinn Magn-
ússon á gítar, en sjálfur leikur Pálmi
á bassa. „Það var sérstaklega gam-
an að vinna með þessum mönnum,
og þó við höfum unnið eins og
skepnur, upp í átján tíma í einu,
var vinnan bráðskemmtileg, því
þessir strákar eru ekki bara frábær-
ir tónlistarmenn, heldur eru þeir svo
skemmtilegar persónur,“ segir
Pálmi og bætir við að sá góði andi
sem ríkti í hljóðverinu skili sér ræki-
lega á plötunni.
Ekki hrifinn af rokk- eða
diskójólum
„Ef ég ætti sjálfur að kaupa jóla-
plötu myndi ég kaupa plötu sem
væri með rólegu yfir-
bragði; sem ég get haft á
og notað til að ná fram
huggulegri stemmningu,
og svo finnst mér mikil-
vægt að það sé sungið um
mannlega þætti í textun-
um. Ég er ekki hrifinn af
rokk- eða diskójólum,“
segir Pálmi, „án þess að
ég hafi þó nokkra fordóma
fyrir slíku. Ég kann bara
að meta rólega stemmn-
ingu um jólin, þegar fólk
er að gleðjast með sínum
nánustu."
Pálmi segist ætla að
kynna plötuna á einfaldan
hátt því þó tíminn fram
að jólum sé oft tími mikils
hamagangs og láta, vilji
hann frekar reyna að
halda stemmningunni sem
er á plötunni og treysta á að fólk
þekki hann það vel að hann þurfi
ekki að kynna hana með látum. „Ég
er núna að ljúka við myndband, sem
ég legg mikla vinnu í, og svo vona
ég að plötunni verði jafn vel tekið
í útvarpi og síðustu jólaplötu sem
ég gerði. Ég ætla að standa og
falla með plötunni; legg hana í dóm
fólksins."
Morgunblaðið/Rúnar Þór
PÁLMI Gunnarsson segist kunna að meta
rólega stemmningu um jólin.
Bráðskemmtileg
trúartónlist
TONLIST
III j ó m p 1 a t a
MIRIAM
Miriam, söngur: Miriam Óskarsdótt-
ir. Hljóðfæraleikarar: Óskar Einars-
son pianó og hljómborð, Páll E. Páls-
son bassi, Jóhann Ásmundsson bassi,
Jóhann Hjörleifsson trommur og
slagverk, Gunnlaugur Briem tromm-
ur, Kristiim Svavarsson saxófónn,
Óskar Guðjónsson saxófónn, Sigurð-
ur Flosason saxófónn, Friðrik Karls-
son gítar, Karl Jóhannsson gítar,
Sigurður H. Ingimarsson gítar, Einar
St. Jónsson trompet, Veigar Mar-
geirsson trompet, Einar Jónsson bás-
úna, Stefán R. Hös-
kuldsson þvei-flauta,
Emil St. Friðfinnsson
franskt hom, Sigurður
Smári Gylfason túba.
Bakraddir: íris Guð-
mundsdóttir, Guðný
Einarsdóttir, Ester
Daníelsdóttir, Rannvá
Olsen, Sigurður H. Ingi-
marsson, Óskar Einars-
son, Hjalti Gunnlaugs-
son, Helga Bolladóttir,
ásamt kór. Útsetningar
og stjórn upptöku: Osk-
ar Einarsson. Upptökur
og hljóðblöndun: Tóm-
as Tómasson. Útgef-
andi: Hjálpræðisherinn,
53,12 mín., 1.999 kr.
SONGRODD Mir
iam nýtur sín vel
þessari tónlist.
í TILEFNI af 100 ára afmæli
Hjálpræðishersins á íslandi á þessu
ári hefur verið gefin út hljómplata,
þar sem Miriam Óskarsdóttir, kap-
teinn í Hjálpræðishernum, syngur
innlend og erlend lög á léttum
nótum með trúarlegum textum.
Að mati þess sem þetta skrifar
hefur tekist vel upp með val á lög-
um og útsetningar þeirra, en heið-
urinn af þeim á Óskar Einarsson,
sem jafnframt leikur á píanó og
önnur hljómborð á plötunni.
í tónlistinni má greina ýmsa
strauma úr léttari tegundum tón-
listar, en boðskapur textarma er
skýr: „Lofaðu skaparann sérhvern
dag“. Það er óvenjulegt að klæða
slíkan boðskap í búning djass- og
dægurlaga en mér virðist það
ganga fullkomlega upp í þessu til-
felli. Bæði er, að söngrödd Miriam
nýtur sín vel í þessari tónlist og
eins hitt, að útsetningar Óskars
eru greinilega unnar af tilfinningu
og skilningi á viðfangsefninu. Ekki
má heldur gleyma framlagi ann-
arra, tónlistarmanna sem þarna
koma við sögu, en í þeim hópi eru
valinkunnir spilarar svo sem fram
kemur í kynningu hér að framan.
Af einstökum lögum á plötunni
er vert að vekja sérstaka athygli
á lagi Óskars Einarssonar við texta
Guðna Einarssonar, í vinfengi við
Salómon, sem er eina frumsamda
lag plötunnar og sérlega vel úr
garði gert að mínu mati, bæði
hvað varðar uppbygg-
ingu og tengingu lags
og ljóðs. Páll E. Páls-
son sýnir þarna
skemmtileg tilþrif í
bassaleik og saxafón-
sóló Óskars Guðjóns-
sonar gleður einnig
eyrað í þessu lagi. Af
öðrum lögum, sem
höfðuðu sérstaklega til
undirritaðs, má nefna
I’ll not turn back og
Kvöldbæn, en hið síð-
arnefnda er afar fal-
legt lag og vel fiutt,
þar sem góður gítar-
hljómur Friðriks
Karlssonar og smekk-
leg meðferð Óskars
Einarssonar á.Hamm-
ond-orgeli njóta sín vel. Eins má
nefna skemmtilega reggí-útsetn-
ingu í laginu Helg lind og djassaða
sveifluútsetningu í anda Glenn
Miller í laginu Syngdu í dag, svo
nokkur lög séu nefnd.
Á þessari plötu er boðskap krist-
innar trúar komið á framfæri með
nýstárlegum hætti og hún undir-
strikar, að það er hægt að lof-
syngja Drottin með fjölbreyttari
hætti en í sálmum eingöngu. Tón-
listin er létt og þægileg og textarn-
ir vel við hæfi 'á fæðingarhátíð
Frelsarans, sem nú fer í hönd.
Þetta er plata sem léttir lund og
boðskapur hennar á erindi til allra.
Sveinn Guðjónsson