Morgunblaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 43
AÐSEIMDAR GREINAR
„Vakna þú sem sefur, rís
upp frá dauðum og þá
mun Drottinn lýsa þér“
ER ISLENSKA
þjóðin á leið inn í bjart-
ari og betri framtíð,
eða erum við á vegin-
um, sem leiðir þjóðina
inn í myrkur og á end-
anum eilífa glötun?
Hver getur svarað slík-
um spurningum og um
leið boðið lausn sem
virkar? Við eigum að-
gang að dýrmætustu
bók sem rituð hefur
verið, en það er Heilög
Ritning Guðs, Biblían.
Hún er dýrmæt, því að
í henni er að finna orð
hins eina og sanna
Guðs sem flestir ís-
lendingar hafa játast
skírn pg fermingu,
Örn Leó
Guðmundsson
gegn um
eða u.þ.b.
92,5%.! henni er að finna sannleik-
ann um það hver Guð er, kærleika
hans miskunn og umhyggju. Þar
sjáum við að það er eðli Guðs að
hjálpa og mæta hverskyns þörf
barna sinna, en við þurfum að fara
hans leið samkvæmt Ritningunni
og þá uppgötvum við líka þvílíkan
stórkostlegan föður við eigum.
Við getum meðtekið gegn um
Heilaga Ritningu það sem Guð vill
segja við okkur og í henni skynjum
við hjarta Guðs og vilja í öllum
málum, sem snúa að lífinu í heildj
og er þar ekkert undanskilið. I
Biblíunni er „Sannleikurinn" ritað-
ur og skilgreindur, og skýr munur
gerður á réttu og röngu. Sá sem
brýtur lög Guðs syndgar og afleið-
ing syndar er aðskilnaður frá Guði,
en þar getur maðurinn engu um
breytt, því allir hafa syndgað og
skortir Guðs dýrð. En með því að
svo elskaði Guð heiminn, að hann
gaf son sinn eingetinn, til að hver
sem á hann trúir, glatist ekki, held-
ur hafi eilíft líf, þá
hefur Guð, gegnum
Jesú, opnað leiðina til
sín og til eilífs lífs.
Biblían segir okkur
að allir menn þurfi á
hjálpræðinu að halda
og það sé meðtekið
með því að:
1) Gera iðrun og
trúa fagnaðarerind-
inu, með því að gera
sér grein fyrir að þeir
eru syndarar og þurfa
á hjálpræðinu að
halda. 2) Játa Jesúm
Krist sem Drottinn og
trúa því í hjarta sínu
að Guð hafi reist hann
upp frá dauðum á þriðja degi. 3)
Snúa baki við hinu gamla lífi og
lífsstíl og hafa Guðsorð að leið-
arljósi. Heilög ritning segir: „í því
birt.ist kærleikur Guðs meðal vor
að Guð hefur sent einkason sinn í
heiminn til þess að við skyldum
lifa fyrir hann.“
Gengur íslenska þjóðin á Guðs-
vegi á leið inn í bjarta og betri
framtíð eða er hún á vegi sem ligg-
ur til glötunar? Margir lifa eins og
enginn Guð sé til né heldur dómur
á hinum efsta degi. Hver er sá
raunveruleiki sem við búum við í
dag? Við búum við pólitíska spill-
ingu og réttarfarslega hnignun,
þar sem réttur sakbornings virðist
vera borinn meira fyrir brjósti en
fómarlambs, þegnar þessa lands
eru ekki lengur öruggir á götum
úti, hvorki í borg eða bæ, vegna
stöðugt aukins ofbeldis, rána og
nauðgana og öryggisgæslu virðist
mikið ábótavant. Fjölmiðlar spúa
úr sér eitri, í formi stöðugt grófari
ofbeldis og kláms og öfugugga-
háttar. Með tilkomu kapalsjón-
Það er ekki mitt að
dæma menn eða mál-
—
efni, segir Orn Leó
Guðmundsson, sem
hvetur fólk til að kynna
sér boðskap Biblíunnar.
varps, tölvuneta og vídeóiðnaðar-
ins, geta menn horft upp á raun-
veruleg morð og limlestingar á
börnum og fullorðnum. Og klámið
sem fólk getur nálgast, gengur
langt út fyrir það sem kallast heil-
brigt kynlíf, þar sem m.a. börn og
dýr eru í aðalhlutverki. Allt of
mikið af því efni sem Ríkissjón-
varpið og Stöð 2 bjóða börnunum
uppá, gengur út á ofbeldi í einni
eða annarri mynd og er gjörsam-
lega óboðlegt bömum. Enn fara
fram fóstureyðingar, sem margir
telja að eigi ekki rétt á sér.
Hvað gera stjórnvöld og Þjóð-
kirkjan? Mikil afkristnum hefur átt
sér stað, jafnvel innan þjóðkirkj-
unnar m.a. með tilkomu kvenna-
guðfræði, nýguðfræði, spíritisma
og burtskýringu á Biblíunni. Við
verðum líka vör við þessa afkristn-
un á öldum ljósvakans, en í staðinn
bjóða menn nýöldina velkomna
með sínum hindúisma/jóga, spírit-
isma, norna'- og álfatrú, „stjömu-
speki“, lófalestri og heilun. Og
nýöldin hefur þegar haldið innreið
með kenningar sínar inn í mennta-
kerfið erlendis, þar byrja þeir á
barna- og dagheimilum og fara
síðan áfram inn í skólana. Hvað
er að gerast á íslandi í þessum
efnum, og hvað gera stjórnvöld og
Þjóðkirkjan?
í ljósi sögunnar og liðinna at-
burða, innan ríkisstjómarinnar,
hlýtur það að teljast réttmæt
krafa, að sett verði lög og starfs-
reglur, sem ná til stjórnkerfisins í
heild, þ.e. til allra stjórnmálaflokka
og þings, sem og bæjarstjórna; lög
sem loka fyrir spillingu og mis-
notkun á valdi og fjármunum. Og
kjör og önnur hlunnindi ráða-
manna og annarra sérréttindahópa
innan ríkis og bæja séu í samræmi
við kjör almennings.
Að lokum langar mig að koma
inn á tillögur frá „samkynhneigð-
um“ um rétt til að búa í sambúð,
þ.e. með þeim réttindum sem því
fylgir, og kröfur um ættleiðingu
barna og að fræðsluefni/námsefni
um þeirra málefni verði innleitt í
alla skóla, til að m.a. eyða öllum
„fordómum". Þegar fólk ætlar að
mynda sér skoðun á þessum tillög-
um, við hvað á það að miða? Sum-
ir vilja fylgja þróuninni, sem ég
hef komið lítillega inn á hér á
undan, þar sem engar hömlur eru
og allir gera það sem þeir vilja og
þeim sjálfum finnst rétt. En hver
er ávöxturinn? Er hann góður og
fallegur? Leiðir hann af sér lífsstíl
sem allir gætu sagt að sé heilbrigð-
ur og geri nútíma samfélög að
betri samfélögum að búa f? Ef
menn vilja miða sínar skoðanir út
frá því sem Guðs orð segir, þá
kemur það skýrt fram að Biblían
kallar lífsstíl þennan kynvillu og
fordæmir hann á greinilegan hátt.
En er samt ekki að hafna mann-
eskjunni heldur lífsstílnum sem
slíkum. En er þá Guð fordómafull-
ur?
Ef það sem Biblían skilgreinir
sem kynvillu er Guði á móti skapi,
er þá rétt að samþykkja með lögum
að þeir geti ættleidd börn? Hver
ætlar að standa vörð um börnin
og þeirra rétt? Hver er réttur
foreldra og þeirra barna til að taka
ekki við þeirri fræðslu sem reyna
á að koma að í skólum landsins?
Margir sem hafa verið samkyn-
hneigðir hafa lýst því yfir, að þeir
vissu, að lífsstíll þeirra væri rang-
ur, ekki út frá þeim skilaboðum
sem þjóðfélagið gaf þeim, heldur
í hjarta sínu. Og þetta fólk upp-
lifði sig óhamingjusamt og fjötrað.
Fjöldi „samkynhneigðra“ er-
„Haltu í hendina á mér - snertu mig“
Rósa Þóra Jenný
Jónsdóttir Gunnarsdóttir
GJ ÖRGÆ SLUDEILD
Landspítalans á um þessar
mundir 20 ára afmæli. Ef
til vill hefur þú, lesandi
góður, átt þín spor þangað
inn, hvort heldur í hlutverki
sjúklingsins eða aðstand-
andans. Undanfarin ár hafa
miklar breytingar orðið á
starfsemi deildarinnar og
hefur hlutfall mikið veikra
sjúklinga aukist. Framfarir
í læknavísindum og flókinn
tæknibúnaður gera stærri
og flóknari skurðaðgerðir
mögulegar. Fyrir um
20-30 árum þótti mikið
viðhaft að hafa vökva renn-
andi í æð. í dag eru framf-
arirnar orðnar þvílíkar að til eru
allskyns lyf sem t.d. hjálpa hjart-
anu að dæla og ef þau hrökkva
ekki til er alltaf möguleiki að
leggja pumpu inn í ósæð líkamans
til að gefa hjartanu stuðning.
Hefði okkur íslendingum dottið í
hug fyrir aldarfjórðungi síðan að
við kæmum til með að eiga og
nota tæki eins og hjarta- og
lungnavél? Með hjálp tækninnar
er oft hægt að gera kraftaverk
og stundum finnst manni að sjúkl-
ingurinn hverfi nánast í tækja-
kostinn. Mikilvægi þess að bjarga
lífi er sjaldnast umdeilanlegt, en
á þeim stundum sem sjúklingurinn
er veikastur getur umhverfi hans
fremur líkst vélasal en sjúkra-
stofu. Aðstandendur geta því átt
í erfiðleikum með að nálgast og
snerta sjúklinginn af ótta við að
setja eitthvað úr skorðum. Þó er
snerting kannski einu mögulegu
samskiptin þeirra á milli. Af hverju
er snerting svona mikilvæg og
hvaða hlutverki getur hún gegnt
í hátækniþjónustu?
Snerting er notuð milli foreldra
og barna, elskenda og vina, til að
flytja boð um ást, umhyggju og
hluttekningu. í öllum menningar-
samfélögum er snerting sönnun
ástúðar og vinskapar. Það að forð-
ast snertingu við aðra einstaklinga
getur gefið til kynna fráhvarf frá
ástúð eða félagslega höfnun.
Skortur á snertingu getur hindrað
og dregið úr þroska einstaklings-
ins á ýmsum sviðum, s.s. hvað
varðar þroska talmáls, vitsmuna
og sjálfsvitundar. Rannsóknir á
áhrifum snertingar hafa
sýnt að sumar tegundir
snertingar, t.d. rólegar
strokur á bak og það að
halda í hendi, geta fram-
kallað slökunarviðbrögð.
Líkaminn er mjög misnæm-
ur fyrir snertingu og sem
dæmi þá eru hendur og
andlit næmust. Sumir ein-
staklingar hafa meiri þörf
fyrir snertingu en aðrir og
má þar fyrst og fremst
nefna mikið veika sjúkl-
inga. Snerting eykur já-
kvæð viðbrögð þeirra. Einn-
ig leiðir hún til bættrar lík-
amsímyndar sjúklinga, en
líkamsímyndin er oft skert
fjölda tækja. Af þessu má sjá
hversu mikilvægan sess snerting
skipar í samskiptum okkar dag-
lega lífs, hvort heldur við erum
heilbrigð eða sjúk.
I hjúkrun er snerting óhjá-
kvæmilegur hluti af hjúkrunar-
meðferð hvort sem verið er að
veita aðhlynningu, gefa lyf eða
halda í hendi sjúklings. Heilbrigð-
isstarfsfólk getur nýtt sér snert-
ingu, t.d. í formi nudds, til að
auka vellíðan sjúklinga. Hvað er
betra en góðar strokur á þreytt
bak eftir langvarandi legu? Nudd
er gefandi snerting og góð leið til
að nálgast veikt fólk ekki síður
en heilbrigt. Það sýnir umhyggju
og veitir líkamlega slökun auk
Snerting skipar mikil-
vægan sess í daglegum
samskiptum fólks, segja
Rósa Jósdóttir og
Þóra Jenný Gunnars-
dóttír, hvort heldur við
erum heilbrigð eða sjúk.
þess að vera andlega róandi.
Á hátæknideild eins og gjör-
gæsludeild Landspítalans er mikil-
vægt að draga úr skaðlegum um-
hverfisáreitum eins og hægt er.
Einungis nauðsynleg tæki eru höfð
í kringum sjúkling og reynt er að
hagræða þeim þannig að aðstand-
andinn eigi auðvelt með að nálg-
ast sjúklinginn.
Lengd heimsóknarinnar skiptir
ekki öllu máli, en þegar þú, að-
standandi góður, ert hjá sjúklingn-
um, sýndu honum nærveru þína
með því að snerta hann, taka utan
um hann, tala til hans.
Svæfillinn minn og sængin mín
sé önnur mjúka höndin þín
en aðra breið þú ofan á mig
er mér þá værðin rósamlig
(Höf. ókunnur.)
HOfundar eru hjúkrunar-
frædingar og starfa á
gjörgæsludeild Landspítalans.
lendis hefur fengið lausn og hjálp
þegar hann snéri sér til Drottins
af heilu hjarta og hefur síðan snú-
ið algjörlega frá sínum fyrri lífsstíl.
Það er vitað að Petofilar, þ.e. —
þeir sem leggjast með litlum böm-
um, hafa stofnað félagssamtök
erlendis og krefjast þess að vera
samþykktir og lífsstíll viðurkennd-
ur, á þeim forsendum m.a. að svo
framarlega sem börnin og þeir séu
sammála, þá sé verknaðurinn í
lagi. Hvernig ætla stjórnvöld og
kirkjan að bregðast við þeirri þróun
sem blasir við okkur?
Það er ekki mitt að dæma menn
eða málefni og það er ekki tilgang-
urinn með grein þessari. Heldur
sá að benda á Jesú Krist sem út-
hellti blóði sínu á krossi fyrir 2.000
árum fyrir syndir mínar og þínar,
til að við skyldum lifa réttlætinu.
Hann reis upp á hinum þriðja degi
og Hann lifir í dag. Hann er lausn-
in fyrir þig og mig, í Honum er
að finna það líf sem Guð skapaði
og ætlaði okkur að lifa.
Líf í kærleika til hvers annars
og til Guðs, líf sem er í „harmón-
íu“ við Föðurinn og sköpunina og
við okkur sjálf. Þar sem við uppfyll-
um þarfir hvers annars, hugsum
vel um og tölum vel um hvert ann-
að og hjálpum hvert öðru.
Þegar við tökum við hjálpræðinu
í Jesú Kristi þá gerist stórkostlegt
kraftaverk, eða eins og Ritningin
segir: Ef einhver er í Kristi, er
hann skapaður á ný, hið gamla
varð að engu, sjá, nýtt er orðið til.“
Höfundur starfar að sölu- og
markaðsmálum.
>iiuiiiiiy»unuim
i byltingarkennd
tækninýjung
Meö hallandi körfu sem
snýst meöan á steikingunni
stendur:
• jafnari og fljótari steiking
• notar aðeins 1,2 Itr. af olíu
í stað 3ja Itr. (öðrum.
• mun stýttri steikingartími
■ 50% olíu- og orkusparnaður
steikingu stendur. Fitu- og
lyktareyöandi siur tryggja
fullkomið hreinlaeti. Sumar
gerðir með glugga svo fylgjast
megi með steikingunni, sjálf-
hreinsandi húöun og tæm-
ingarslöngu til að auðvelda
olfuskipti.
Hitaval 140-190°C. 20 mín.
tímarofi með hljóðmerki.
1
DeLonghi
FALLEGUR, FLJÓTUR OG
FYRIRFERÐARLITILL
I
Verð aðeins frá 11.690,-
til 13.990,- (sjá mynd)
TILVALIN JÓLAGJÖF
TIL SÆLKERA
/FOnix
HÁTÚNI4A SÍMI (91)24420