Morgunblaðið - 13.12.1994, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNIINIGAR
t
Mófiursystir mín elskuteg,
FRÍÐA KNUDSEN,
Hellusundi 6,
Reykjavík,
lést í Vífilsstaðaspítala laugardaginn 10. desember.
Hólmfríður Ólafsdóttir.
t
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LIUA LÁRUSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 39,
Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 9. desember.
Jarðsett verður frá Akraneskirkju föstudaginn 16. desember
kl. 14.00.
Albert Ágústsson,
Helgi Lárus Guðlaugsson, Anna Þórðardóttir,
Þórey Guðlaugsdóttir, Magnús Óttarsson,
Inga Jóna Guðlaugsdóttir, Jón Einarsson,
Arnar Guðlaugsson, Eygló Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ELÍN S. TRAUSTADÓTTIR,
Suðurvangi 19a,
Hafnarfirði,
lést í Landspítalanum þann 11. desem-
ber.
Jarðsett verður frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 16. desember kl. 13.30.
Jón Trausti Harðarson, Fjóla Kristjánsdóttir
Jóhanna Harðardóttir, Birgir Þór Jósafatsson,
Dagbjartur Harðarson, Anna Bergsdóttir,
Guðlaugur Harðarson, Hafdís Bogadóttir,
Erlingur Harðarson, Elsa Sigurfinnsdóttir,
Björk Harðardóttir, Renos Demetriou
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANNES K. BJÖRNSSON
smiður
frá Hjalteyri,
ér lést þann 9. desember sl., verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 15. desember kl. 13.30.
Jarðsett verður að Möðruvöllum.
Björn Jóhannesson, Lilja Guðmundsdóttir,
Jón Jóhannesson, Ingibjörg M. Þórhallsdóttir,
Henning Jóhannesson, Guðrún Gísladóttir,
Ævar Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
áður Hátúni 4,
sem lést á Droplaugarstöðum 7. þessa mánaðar, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. desember kl. 13.30.
Blóm afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlega
láti Slysavarnafélag íslands njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigriður Jóhannesdóttir,
Bergsveinn Jóhannesson,
Þóra Jóhannesdóttir.
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR JÓNSSON
húsasmiður,
Digranesvegi 42,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 14. desem-
ber kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á SÍBS eða Samtök hjarta-
sjúklinga.
Þórhanna Guðmundsdóttir,
Ásdís H. Ólafsdóttir, Kim Leunbach,
Jóhann B. Ólafsson, Aðalheiður B. Kristinsdóttir
og barnabörn.
SÆVAR
GUÐMUNDSSON
+ Sævar Guð-
mundsson
fæddist á Hvamms-
tanga 4. apríl 1947.
Hann lést á heimili
sínu í Mosfellsbæ
4. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru Vigdís
Amundadóttir og
Guðmundur Ey-
steinsson, en hann
lést árið 1985.
Systkini Sævars
eru: Aðalsteinn,
Dagný, Gunnar,
Gréta og Asta. Sæv-
ar fluttist ungur ásamt fjöl-
skyldu sinni til Reykjavíkur, og
bjó þar þar til fyrir ári að hann
fluttist í Mosfellsbæ. Sævar
kvæntist árið 1992 eftirlifandi
eiginkonu sinni, Hrefnu Sigurð-
ardóttur. Hrefna á sex börn,
Róbert, Davíð, Lottu, írisi, Söru
og Daníel. Sævar starfaði
Iengst af sam bifreiðastjóri.
Sævar verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju i dag.
0KKUR langar að minnst Sæv-
ars, okkar elskulega bróður og son-
ar sem lést svo óvænt. Fyrstu sam-
eiginlegu minningarnar eru frá
Nesjum, móts við Rauðhóla, þar
sem við bjuggum, stór fjölskylda í
lítilli íbúð. Dálítil einangrun og
húsþrengsli hafa eflaust þjappað
fjölskyldunni saman, enda erum við
enn ákaflega samrýnd og þykir
gott að hittast á góðri stund. Sæv-
Blómastofa
Fnðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
-'Wj m l/l
Erfidrykkjur
<gPeA*C!'
ESJA
HÓTELESJA
Simi 689509
ar byijaði 12 ára gam-
all að vinna við skóg-
rækt í Heiðmörk. Þar
kynntist hann ýmsum
góðum vinum og var
margt brallað eins og
gengur og gerist á
þeim aldri. Hélst yin-
skapur þeirra vinnufé-
laganna alla tíð síðan.
Lengst af vann
Sævar sem bifreiðar-
stjóri, fyrst við vöru-
flutninga, en var síðar
með sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Hann
var mikill vinnuþjark-
ur og þáði ekki alltaf laun fyrir
störf sín. Vinnan var í hans augum
ekki bara vinna, heldur líka áhuga-
mál, og hann var auk þess afar
bóngóður maður.
Sævar bjó lengi á Skriðustekk
15 ásamt móður okkar. Milli þeirra
var ávailt mjög sterkt og sérstætt
samband. Má segja, að þau hafi
gætt hvors annars í orðsins fyllstu
merkingu.
Oft var glatt á hjalla á Skriðu-
stekknum þegar hópurinn kom þar
saman. Það var spilað, teflt og
sungið, og var Sævar gjarnan
fremstur í flokki með hvers kyns
grín. Hann hafði einstakt lag á að
koma fram á glettinn hátt þannig
að sjaldan sveið, þótt stundum
væru gletturnar gráar. Hann var
orðheppinn maður, svo sem eftir-
farandi saga lýsir: Eitt sinn er hann
vann hjá Kók kom hann inn í versl-
un þar sem hann hitti fyrir inn-
kaupastjórann. Sá spurði, hvort
hann væri með eitthvað af viti. Þá
svarar Sævar: „Já, já, vantar þig
eitthvað af því?“
Sævar kynntist Hrefnu konu
sinni árið 1989, og hófu þau sam-
búð 1991. Það var honum mjög
mikils virði að eignast fjölskyldu
og eigið heimili. Börnin veittu hon-
um mikla ánægju og lífsfyllingu,
enda var hann með afbrigðum
barngóður maður. Þau hjón byggðu
sér hús í Mosfellsbænum, sem þau
fluttu í rétt fyrir síðustu jól. Þau
lögðu mikla vinnu og umhyggju í
þetta hús.
Sævar gekk ekki heill til skógar,
en veikindi sín bar hann ekki á
torg. Það var þeirra vegna að hann
varð að hætta bifreiðaakstri fyrr á
þessu ári. Hann réðst í að opna
Smur- og dekkjaþjónustu Breið-
holts ásamt Ómari félaga sínum
nú í haust. Hann batt miklar vonir
við þetta fyrirtæki, og í það lagði
hann sína síðustu krafta.
Elsku Sævar, við söknum þín
sárt. Okkur þykir öllum svo vænt
um þig. Við vottum þér, Hrefna,
og börnunum þínum okkar dýpstu
samúð. Guð styrki ykkur í ykkar
miklu sorg.
Kveðja,
móðir og systkini.
í dag kveðjum við fósturföður og
vin okkar, Sævar Guðmundsson, í
hinsta sinn. Skyndilegt andlát hans
er hrikalegt áfall fyrir okkur systk-
inin og móður okkar Hrefnu Sigurð-
ardóttur, og það mun taka okkur
langan tíma áð jafna okkur á þessu
áfalli. Þrátt fyrir að við hefðum
ekki þekkt Sævar nema í fimm ár
hafði hann mikil áhrif á líf okkar
og vildi allt fyrir okkur gera.
Sævar var mjög sérstakur mað-
ur. Hann hafði mjög góða kímni-
gáfu og þrátt fyrir mikil veikindi
gat hann alltaf fundið spaugilegu
hliðina á hlutunum og komið öllum
til að brosa. Hann var mjög barn-
góður og hugsaði um okkur
systkinin eins og við værum hans
eigin börn. Sævar var góður hlust-
andi og við systkinin gátum alltaf
leitað til hans ef eitthvað bjátaði
á, því við gátum alltaf treyst á
hann.
Sævar var mikill vinnuþjarkur
og þrátt fyrir mikla vinnusemi gat
hann allaf fundið einhvern tíma'til
að fylgjast með íþróttaiðkun okkar
systkinanna eða hveiju öðru sem
við vorum að gera hverju sinni.
Sævar var mjög vinamargur og
hjálpsamur og vildi allt fyrir alla
gera. Hann var einstakur maður
og hans verður sárt saknað. Bless-
uð sé minning hans.
Elsku Sævar, við þökkum þér
samfylgdina og allar ánægjustund-
irnar sem þú veittir okkur. Guð
blessi þig og varðveiti.
Róbert Ericksson, Davíð
Aðalsteinsson, Carlotta Rut
Guðjónsdóttir, fris Dögg
Guðjónsdóttir, Kolbrún Sara
Guðjónsdóttir og Daníel
Arnar Guðjónsson.
Ótímabært fráfall, skyndilegur
dauði, vekur mann til umhugsunar
um lífið. Vinur okkar og mágur,
Sævar Guðmundsson, er látinn
langt um aldur fram. Margar og
skemmtilegar minningar koma upp
í hugann þegar horft er til baka,
enda hressileiki og létt lund aldrei
langt undan. Við minnumst sér-
staklega samverustundanna á
Skriðustekknum, þegar fjölskyld-
urnar komu saman, enda var Sæv-
ar sérlega barngóður og ætíð hrók-
ur alls fagnaðar. Með söknuð í
hjarta og góðar minningar kveðjum
við nú góðan dreng. Elsku Hrefna
mín, megi Guð styrkja þig og börn-
in á þessum erfiðu tímum.
Kveðja,
Ingólfur, Friðrik, Jan
og Ragnheiður.
Það er erfitt að skilja dauðann,
en sennilega fínnum við aldrei eins
mikið fyrir honum og þegar hann
hrifsar einhvem frá okkur sem við
elskum. Við látum hugann reika um
fortíðina og kvíðum fyrir framtíð-
inni vegna þess að elsku Sævar
frændi okkar verður ekki hluti af
henni.
Sævar var stóri frændi okkar
allra. Hann var frændinn sem mót-
aði svo margar skemmtilegar minn-
ingar í huga okkar og var alltaf
til staðar þegar á þurfti að halda.
Engum leiddist í návist hans enda
þekktur fyrir glaðværð og
skemmtileg uppátæki sem eru til
margar sögur af. Þess vegna eru
minningar okkar um hann góðar
og dýrmætar og þegar við hugsum
til baka hlaðast þær upp, fullar af
Islenskur efniviður
Islenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
ii
S. HELGASON HF
STEiNSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677