Morgunblaðið - 13.12.1994, Síða 60

Morgunblaðið - 13.12.1994, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ J OLA ★PORTIIK -stærsti jólamarkaður ársins! í Jólaportinu bjóöa um 100 seljendur flölbreytt úrval af vöru s.s. fatnaö, leikföng, gjafavöru, verkfærí, sælgæti, geisladiska, skartgripi, búsáhöld, jólamat, íslenskt og erient handverk og falleg jólatré úr Normansþyni á frábæru veröi. NOKKUR DÆMI: Vandaðir skíöagallarí stæröum frá S til XXL. Verö aðeins kr. 4.900,-. Sölubás F18. Fjölbreytt úrval leikfanga á mjög góðu verði. Eldhús á kr. 1.299,- Dótakallinn í sölubás F20. Láttu setja mynd af þér á könnu, bol eða barmmerki. Verð frá kr. 1.500,-. Sölubás A21. Fallegjólaföt á 1-7 ára drengi. Buxur, vesti, skyrta og bindi eða slaufa á aðeins kr. 3.500,- Sölubás B4. Allir nyjustu geisladiskarnir a kr. 1799,-. Einnig gott úrval af sígildri mússik. 11 Verslunin Mifa í sölubás E. sJSBflfÍ Gómsæt jólasíld á góðu verði. Silvur, Gull, Sól og Krydd á kr. 400,- og Marineruð á kr. 300,- Pólarsíld í sölubás D17. Dregnir eru út skemmtiiegir vinningar í Jólaleiknum alla þriðjudaga og fimmtudaga í beinni útsendingu á Bylgjunni. íslenskir og erlendir tónlistarmenn skapa skemmtilega jólastemmningu alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 18-19. íslensku jólasveinamir kíkja við um leið og þeir koma í bæinn. A Þorláksmessu koma síðan Gryla og Leppalúði og allir jólasveinarnir í heimsókn með stórum hópi af tónlistarmönnum og dönsurum. JóZaportiö er opið alla virka daga kl. 14-19 í húsi Kolaportsins. - kjarni málsins! I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Gefum hjúkrunarfólki 2-3% af laununum okkar MIG langar til að tjá mig um mál sjúkraliða. Eg er gift lækni, sem er sérfræðingur, og þiggur laun frá ríkissjóði. Læknir nær ekki þessum áfanga nema með mikilli vinnu og oft á tíðum álagi á fjöl- skyldu. Ávöxturinn er oft góður. Fyrst og fremst þekkingin, að geta gert betur, og síðan betri laun. Þessi skrif mín eru beiðni til maka umræddra sérfræðinga um að stinga upp á að laun maka okkar verði lækkuð um 2-3% ef þörf krefur til að hækka laun hjúkrunarfólks. Kannski erum við af- lögufær. Maki Þrjár ánægðar VIÐ erum hérna þijár stúlkur sem viljum lýsa ánægju okkar með við- skiptin sem við höfum haft við Skuggamyndir við Laugaveg. Höfum við allar farið í myndatöku áður en aldrei orðið fullkomlega ánægðar með myndimar. En Helga Bragasyni í Skuggamyndum tekst að laða fram allt það besta í manni. Er hann bæði skemmtilegur í framkomu og fagmaður á sínu sviði. Við vomm allar frekar stressaðar þegar byija átti að mynda, en það hvarf fljótlega vegna léttrar framkomu hans og al- mennilegheita. Með þessu bréfi viljum við mæla eindregið með honum og hikum ekki við að lofa ykkur, sem til hans farið, að þið munið eiga ánægjuleg viðskipti við hann. Einnig viljum við koma á framfæri okkar innileg- ustu þökkum til Helga fyr- ir mjög góð vinnubrögð. Christine, Guðrún og Anna. Þakkir til Hemma Gunn MIG LANGAR að þakka Hemma Gunn fyrir góðan þátt sl. miðvikudagskvöld. Það var alveg frábært að sjá hvað hann náði góðu sambandi við þorskahefta fólkið sem var gestir hjá honum. Ágústa Tapað/fundið Kerruvagn tapaðist KERRUVAGNINN sem myndin er af hvarf frá Veghúsum 31 mánudags- kvöldið 5. desember sl. Vagninn er mjög skraut- legur með fjólubláu, gulu, bláu og svörtu rákóttu mynstri sem virðist vera málað á með grófum pensli. Grindin sjálf er svört. Ef einhvert getur gefið upplýsingar um vagninn er hann vinsam- lega beðinn að láta vita í síma 876904 eða tilkynna það til lögreglunnar. Farsi SKAK Hannes lék síðast 28. - Kg8-f7? sem gaf kost á glæsilegum vinningsleik. „Eg ócuj&L þer ai drekka. ekkö suona, miki8.u 10-21 LdAIS6i-A-SS /Ct’OCTMpLT 01993 Farcue Cartoons/Oiititbuted by Ur»vBf»al Prwa Syndtea» Umsjón Margeir I’étursson ÞESSI staða kom upp á heigarskákmótinu á Suður- eyri við Súgandafjörð í vor. James Burden (2.205), vamarliðsmaður á Kefla- víkurflugvelli, hafði hvítt og átti leik, en Hannes Klifar Stefánsson (2.560), stór- meistari var með svart. sjá stöðumynd James Burden lék 29. Hd6? og framhaldið varð 29. - Dxd4, 30. Hxd4 - exd4, 31. Ba5 - Ke8 og upp kom jafnte- flislegt endatafl. Hannes reyndi að vinna það, teygði sig of langt og tapaði. Hvítur gat hins veg- ar þvingað fram vinning í stöðunni með 29. Rxbð!! því göffluð og hrókurinn á a6 að auki. Það er sýnt að eftir 29. Rxb5! ræður svartur engan veginn við hótanir 30. Rc7 og 30. Rd6+. Umhugsunartíminn á helgarmótum sem Tíma- ritið Skák gengst fyrir er aðeins hálftími, það skýrir þessa gagnkvæmu yfirsjón. Víkverji skrifar... SÍÐUSTU tvo sunnudaga hefur ríkissjónvarpið sýnt þætti um stjórnendur hljómsveita, sem voru einstaklega fræðandi og skemmtilegir. Hinir miklu hljóm- sveitarstjórar þessarar aldar hafa allir verið í senn miklir hæfileika- menn á sviði tónlistar - sumir þeirra snillingar - og sterkir per- sónuleikar, sem hafa markað þær hljómsveitir, sem þeir hafa byggt upp og stjórnað og raunar allt umhverfi sitt með afgerandi hætti. Einn af viðmælendum þátta- gerðarmannanna komst þannig að orði um einn stjórnandann, að hann hefði músíkina í sér. Þetta er rétt. Víkverji minnist þess að hafa fyrir nokkrum árum séð eina af óperum Wagners í Scala-óper- unni í Mílanó undir stjórn Ricardo Mutis. Sá stjórnandi hafði músík- ina í sér. Og setti svo sterkan svip á sýninguna, að það var nán- ast ómögulegt að horfa á annað en stjórnandann. I miklum hljómsveitarstjóra sameinast snilligáfa, sterkur per- sónuleiki og mikið vald. Þegar þetta þrennt fer saman fer ekki hjá því, að áheyrendur verði hug- fangnir, svo að vægt sé til orða tekið. AÐ ER nokkuð til í því, sem Jóhanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi sl. föstudag, að rekja mætti skuldasöfnun heimilanna til ársins 1980, þegar þurfti að end- urfjármagna húsnæðið í landinu eftir að verðtrygging var tekin upp. Frá þeim tima hafa verið teknar nokkrar ákvarðanir, sem skipt hafa sköpum. f fyrsta lagi var verðtrygging tekin upp og tók bæði fólk og stjórnendur fyrir- tækja mörg ár að skilja og skynja hvað í henni fólst. í öðru lagi voru allir vextir frádráttarbærir, hveiju nafni sem nefndust á þeim tíma, en smátt og smátt var dregið úr því og eru þau hlunnindi húsbyggj- enda ekki nema svipur hjá sjón miðað við það, sem áður var. í þriðja lagi voru vextir gefnir frjáls- ir um miðjan áratuginn og allt að fimmfölduðust í kjölfar þess. í fjórða lagi var vísitölutenging launa afnumin vorið 1983 en vísi- tölutenging lánaskuldbindinga hélzt hins vegar óbreytt. Þegar áhrif þess alls eru lögð saman þarf engum að koma á óvart, þótt syrt hafi í álinn hjá mörgum. Þess vegna er það rétt hjá Jóhönnu Sigurðardóttur að rót umtalaðs vanda heimilanna má rekja einn og hálfan áratug aftur í tímann. SÚ ÁKVÖRÐUN verðbréfa- fýrirtækjanna að hvetja fólk til þess að kaupa hlutabréf fyrir áramót og nýta sér þar með skattafslátt vegna þeirra kaupa, með því að bjóða upp á raðgreiðsl- ur á greiðslukortum, er mjög um- deild. Það er hægt að halda því fram með nokkrum rökum, að með þessu sé verið að misnota kerfið. Til hvers var þessi skattafslátt- ur tekinn upp? Hann var tekinn upp til þess að hvetja fólk til að leggja sparifé sitt í atvinnulífið og ávaxta það þar. Á sama tíma og skuldir heimilanna eru hins vegar eitt helzta umræðuefni stjórn- málamanna og verkalýðsleiðtoga beita verðbréfafyrirtækin sér fyrir því að auka þessa skuldsetningu með gylliboðum af þessu tagi. Þau hafa ekki fyrir því sjálf að upplýsa fólk um það hvað skattaf- slátturinn skerðist mikið vegna kostnaðar við þessar lántökur. Þau hafa heldur ekki fyrir því að benda fólki á, að hlutabréfin geta lækkað í verði á þeim tíma, sem raðgreiðsl- urnar standa yfir, þannig að verð- mætin, sem fólk fær í hendur geta minnkað á sama tíma og skuldirn- ar aukast vegna vaxtakostnaðar. Geta fjármálafyrirtæki verið þekkt fyrir svona vinnubrögð?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.