Morgunblaðið - 21.12.1994, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
h
Kreppa sósíalista í Frakklandi
Mauroy fer ekki í
forsetaframboð
París. Reuter.
PIERRE Mauroy, sem var for-
sætisráðherra Frakklands á árun-
um 1981-1984, lýsti því yfir í gær
að hann myndi ekki gefa kost á
sér sem frambjóðandi sósíalista í
forsetakosningunum á næsta ári.
Mauroy, sem er 67 ára gamall og
forseti heimssamtaka sósíalista,
sagðist hafa í hyggju að verja
meiri tíma í starfi sínu sem borgar-
stjóri Lille.
„Eftir að hafa gegnt embætti
forsætisráðherra gæti ég sagt sem
svo, „já, af hveiju býð ég mig ekki
fram til forseta“. Ég hef hins veg-
ar skuldbundið mig borginni Lille
og ætla að bjóða mig þar fram á
ný,“ sagði Mauroy.
Mikil upplausn ríkir á vinstri
væng franskra stjómmála vegna
spillingarmála og kosningaósigra.
Vonuðust vinstrimenn lengi vel
eftir því að Jacques Delors, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, myndi
gefa kost á sér. Hann lýsti því
hins vegar yfir fyrr í mánuðinum
að hann færi ekki í framboð.
í síðustu viku greindi svo Michel
Rocard, annar fyrrum forsætisráð-
herra, að hann gæfí ekki kost á
sér og Bernard Tapie, sem lýst
hafði yfir áhuga á framboði, var
lýstur gjaldþrota og getur þar með
ekki boðið sig fram í kosrtingum í
fímm ár.
Aðeins Lang
á möguleika
Samkvæmt skoðanakönnunum
er Jack Lang, fyrrum menningar-
málaráðherra, eini stjómmálamað-
urinn á vinstri vængnum, sem á
möguleika á að verða einn þeirra
tveggja frambjóðanda, sem kemst
áfram í síðari umferð kosninganna.
Tuttugu formenn svæðissamtaka
Sósíalistaflokksins hafa aftur á
móti ritað Henri Emmanuelli
flokksformanni bréf þar sem þeir
segja Lang óheppilegan frambjóð-
anda. Lang missti þingsæti sitt í
fyrra þar sem hann notaði meira
fé í kosningabaráttu sína en heim-
ilt var. Sögðu formennirnir hann
því ekki líklegan til að afmá spill-
ingarímyndina af flokknum.
Bemard Kouchner, sem gegndi
embætti heilbrigðis- og mannrétt-
indamálaráðherra í stjómartíð sós-
íalista, en er þó ekki flokksbundinn
sósíalisti, gaf í skyn um helgina
að hann íhugaði framboð.
Intel býð-
ur nýjan
örgjörva
Santa Clara. Reuter.
INTEL-fyrirtækjð tilkynnti í
gær, að það myndi skipta um
pentíum örgjörva í öllum þeim
tölvum sem kaupendur ósk-
uðu.
Baðst fyrirtækið afsökunar
á fyrri ákvörðun um að bjóða
ekki upp á skipti.
Ætlaðist Intel til að neyt-
endur sýndu fram á galla ör-
gjörvans, að því uppfylltu
myndi það bjóða upp á nýjan
örgjörva.
Af hálfu Intel var því þó enn
haldið fram, að áhyggjur
manna út af örgjörvanum
væru óþarflega miklar. Mögu-
leiki á villum væru hverfandi,
gætu hugsanlega einungis
komið fyrir við mjög flókna
gagnavinnslu.
Bretar og Spánverjar efna til viðræðna um nýlenduna Gíbraltar
íbúar óttast yfir
ráð Spánverja
London.Reuter.TheDailyTelegraph.
BRESKI utanríkisráðherrann,
Douglas Hurd, átti í gær og á
mánudag fund með spænskum
starfsbróður sínum, Javier Solana,
um Gíbraltar. Reyndi Hurd að
sannfæra stjórnvöld í nýlendunni
um að breska ríkisstjómin myndi
ekki snúa baki við íbúum hennar.
Spánveijar fengju ekki yfírráð yfir
Gíbraltar gegn vilja íbúanna.
Getgátur hafa verið um að á
fundinum hafí utanríkisráðherr-
amir ætlað að semja um yfirráð
yfír Gíbraltar en þeir hafa ekki
staðfest það. Gíbraltar er lítill
skagi á Suður-Spáni sem hefur
verið nýlenda Breta frá árinu 1830
en Spánverjar gera kröfu til hans.
Töfum mótmælt
Spænsk yfirvöld hafa lýst yfir
miklum áhyggjum sínum vegna
eiturlyíja- og tóbakssmygls um
Gíbraltar. Hefur eftirlit við landa-
mærin að Spáni verið hert mjög
vegna þessa og geysilangar biðrað-
ir, gangandi fólks og bifreiða
myndast þar á degi hveijum.
Þetta hefur vakið mikla reiði
Gíbraltarbúa enda hafa tafirnar
orðið til þess að draga mjög úr
viðskiptum. Haft hefur verið á orði
að eina leiðin til að komast til og
frá Gíbraltar sé með flugi. Bretar
hafa mótmælt töfunum við landa-
mærin en jafnframt sagt að þeir
vilji ekki eiga í útistöðum við Spán-
veija vegna málsins.
Joe Bossano, landstjóri á Gíbr-
altar, er ævareiður vegna aðgerða
Spánveija. Segir hann bresku
stjómina hafa meiri áhyggjur af
samskiptunum við Spánveija en
skyldum sínum við íbúa Gíbraltar
og sakar Breta um að hafa sent
menn til að rannsaka meinta fjár-
málaspillingu á Gíbraltar, til þess
að rýra traust stjórnar sinnar.
KÖNNUN á óbeinum reykingum sýnir að fólk andar að sér 100
sinnum meiri mengun af öðrum orsökum, til dæmis bensínguf-
um, sem innihalda krabbameinsvaldandi efni.
Reuter
LÖGREGLUMENN frá Spáni og Gíbraltar, í forgrunni, virða fyrir sér geysilangar biðraðir við landmæri landanna tveggja. Spánverj-
ar hafa hert ipjög eftirlit vegna eiturlyfja- og tóbakssmygls, sem þeir segja yfirvöld á Gíbraltar ekki taka nógu hart á.
Segja óbeinar reyk-
ingar hættulausar
London. The Daily Telegraph.
FYRSTA meiriháttar rannsóknin
á óbeinum reykingum sýnir, að
þær svara í versta falli aðeins til
einnar sigarettu á viku. Þá segir,
að heilsutjón af þeirra völdum
sé ekkert en heilbrigðisráðuneyt-
ið í Bretlandi hefur hingað til
áætlað, að þar í landi deyi 300
manns árlega af sjúkdómum, sem
þeim tengist.
Það voru vísindamenn við
Hazle ton Europe, óháða rann-
sóknastöð í Harrogate á Norður-
Englandi, sem unnu að rannsókn-
inni en hún fór þannig fram, að
fengnir voru 255 bindindismenn
á tóbak til að bera um háls sér
tæki, sem safnaði loftsýnum. í
Ijós kom meðal annars, að fólkið
andaði að sér 100 sinnum meiri
mengun af öðrum orsökum, til
dæmis bensíngufum, sem inni-
halda krabbameinsvaldandi efni.
Steve Woodward, frammá-
maður í breskum samtökum, sem
beijast gegn reykingum, gefur
hins vegar lítið fyrir rannsókn-
ina. Segir hann, að til að kanna
áhrif óbeinna reykinga sé best
að efnagreina munnvatn, þvag
og blóð. „Ég var í veislu nýlega
þar sem sex af átta gestum
reyktu. Þeir reyktu fyrir mat, á
milli rétta og að matnum loknum.
Hefði ég gengist undir mælingu,
hefði ég verið úrskurðaður reyk-
ingamaður.11
Fyrir efnaframleiðendur
Könnunin var gerð fyrir rann-
sóknastofnun á vegum banda-
rískra efnaframleiðenda, sem
stundum hefur fengið framlög
frá tóbaksiðnaðinum, en ýmsir
fræðimenn, til dæmis breski eit-
urefnafræðingurinn Simon Wo-
olf, hafa lokið á hana lofsorði.
Segir hann hana sýna, að mjög
ólíklegt sé, að óbeinar reykingar
geti valdið krabbameini.
Niðurstöður könnunarinnar
voru þær, að flestir þátttakend-
anna hefðu aðeins „reykt“, sem
svaraði til fimm sígarettna á ári,
og versta dæmið var 50 sigarett-
ur á ári.
Hvíta húsið
Skotið á
vopnað-
an mann
Washington. Reuter.
LÖGREGLUMENN skutu á
mann, sem var vopnaður hnífi,
og særðu hann við Hvíta húsið
í Washington í gær.
Embættismenn sögðu að at-
burðurinn tengdist ekki Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna,
sem var á skrifstofu sinni og
ekki í neinni hættu. Carl Mey-
ers, talsmaður öryggisvarða
forsetans, ’sagði að lögreglu-
menn hefðu skotið á manninn
eftir að hann hefði ógnað þeim
og neitað að afhenda hnífínn.
Atburðurinn átti sér stað á
gangstétt við Pennsylvaníu-
breiðstrætið norðan við Hvíta
húsið. Maðurinn særðist á
bringu og hægri fæti og var
fluttur á sjúkrahús. Hann er
33 ára gamall og sagður heim-
ilislaus.