Morgunblaðið - 23.03.1995, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1995 55
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
JÓNAS P. Erlingsson var
eini spilarinn sem vann §óra
spaða í spili dagsins, sem
kom upp í silfurstigasveita-
keppni til styrktar yngri spil-
urum helgina 11.-12. mars.
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 93
¥ D10742 ♦ G * ÁK652
Vestur Austur
♦ D2 ♦ K75
¥ KG86 1 ¥ Á53
♦ K7 111111 ♦ D10984
* D10743 ♦ G8
Suður ♦ ÁG10864 ¥ 9 ♦ Á6532 ♦ 9
Jónas og Sverrir Ár-
mannsson sögðu þannig á
spil NS:
Vestur Norður Austur Suður
- Pass 1 spaði
Pass 2 hjðrtu Pass . 2 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Útspil: laufþristur.
Þeir tíu sagnhafar sem töp- uðu geiminu fóru þannig að: Þeir hentu hjarta niður í lauf- hámann og spiluðu tígli á ás- inn. og þar með var spilið tapað. Þeir stungu tígul, hjarta heim og spiluðu enn tígli. En nú trompaði vestur með drottningu og spilaði spaða í þessari stöðu:
Norður ♦ 9 ¥ D1074 ♦ - ♦ 65
Vestur Austur
♦ 2 ♦ K75
¥ KG8 llllll V53
♦ - llllll * DI0
* D107 * -
Suður
♦ ÁG1086
¥ -
♦ 65
♦ -
Austur lét auðvitað lítinn
spaða og fékk um síðir tvo
slagi á tígul og einn á spaða-
kóng.
Jónas fann rétta millileik-
inn í öðrum slag: Hann tromp-
aði hjarta áður en hann fór í
tígulinn. Spilaði svo eins og
hinir. En nú var sá munur á
stöðunni að hann gat notað
innkomuna á spaðaníu til að
stytta sig enn í trompi og var
þá jafnlangur austri. Síðan
spilaði hann tígli og fékk tvo
síðustu slagina á ÁG í spaða.
Fékk sem sagt, sex slagi á
tromp heima.
LEIÐRÉTT
Rangtföðurnafn
í frétt Morgunblaðsins á
bls. • 2 í fyrradag um mál
byssumannsins á Eskifirði
misritaðist föðurnafn
sýslumannsins , sem heitir
Inger L. Jónsdóttir.
Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum
Rangt búðarnafn
I frétt Morgunbiaðsins sl.
laugardag var greint frá
eldi er kom upp í geymsl-
uskúr í bakhúsi á Lauga-
veginum við verslunin
Stepp skóverslun. Búðin
var sögð heita Steppskór
og er beðist velvirðingar á
því.
Skútuhönnuður
í frétt í blaðinu í gær, mið-
vikudag, þar sem sagt var
frá skútusmíði á ísafirði
var rangt farið með starfs-
titil Sigurðar Ólafs Jóns-
sonar. Hann er vélfræðing-
ur og skútuhönnuður.
I DAG
Arnað heilla
90
mars,
ÁRA afmæli. í gær,
miðvikudaginn _ 22.
varð níræð, Ásta
Þórðardóttir frá Flat-
eyri, Bollagötu 2, Reykja-
vík. Hún býður ættingjum
og vinum upp á kaffi í sam-
komusal í Árskógum 6,
Reykjavík, frá kl. 15-17
laugardaginn 25. mars.
Beðist er velvirðingar á mis-
tökum sem urðu við vinnslu
þessa texta í blaðinu í gær.
daginn 23. mars, Ingibjörg
Jónsdóttir, Breiðvangi 12,
Hafnarfirði. Eiginmaður
hennar er Sigurbjörn
Helgason. Hún tekur á
móti gestum í veitingahús-
inu Skútunni, Hólshrauni
3, Hafnarfirði, eftir kl. 20
föstudagskvöldið 24. mars.
Hlutavelta
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
1.107 krónur. Þær heita Tinna, Hanna og Arna.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveitu nýlega til
styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
1.800 krónur. Þær heita Ragnheiður, Arna, Tinna
og Helena en hana vantar á myndina.
Með morgunkaffinu
ÞIÐ þjónin viljið greinilega
hafa allt á hreinu. Þú kaup-
ir p-pilluna og hann notar
alltaf smokkinn.
Skrifstofuhúsnæði fil leigu
300m2skrifstofuhúsnæði á 3. hæð á Suðurlandsbraut 4.
Einnig 200m2 lagerhúsnæði með stórum og
aðgengilegum lagerhurðum getur fylgt með ef vilí.
Upplýsingar í síma |
603883
á skrifstofutíma
STJÖRNUSPÁ
HRUTUR
Afmælisbarn dagsins: Þú
kannt vel að meta lífsins
gæði og leggur hart að þér
til að ná þeim.
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Vandamál sem upp kemur í
vinnunni reynist auðleyst.
En heima fyrir bíða óleyst
verkefni sem þú þarft að
sinna í frístundum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur tilhneigingu til að
eyða of miklu í óþarfa vam-
ing og þarft að vinna að því
að koma bókhaldinu í lag.
Tvíburar
(21. maí - 20.júní)
Þú átt erfitt með að einbeita
þér í dag, og þar sem engin
áríðandi mál þarfnast af-
greiðslu ættir þú að hvíla þig
heima.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ástvinur hefur óvæntar og
ánægjulegar fréttir að færa
í dag, og fjölskyldan fagnar
þeim saman. Láttu vinnuna
bíða.____________________
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Tómstundaiðja getur leitt
þig inn á nýja starfsbraut
eftir að þú aflar þér tilskyldr-
ar þekkingar. Ástvinur veitir
þér stuðning.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Láttu þér ekki leiðast í dag
því mörg spennandi við-
fangsefni bíða þín. Taktu til
hendi og afgreiddu þau í
réttri röð.
Vog ~
(23. sept. - 22. október)
Þú hlakkar mjög til komandi
helgar því þá bíður þín
spennandi samkvæmi. En
gættu þess að slá ekki slöku
við í vinnunni.
Sþorddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Reyndu að koma samskipt-
um við þína nánustu í betra
horf. Þú hefur vanrækt þá
sem sízt skyldi og þarft að
ráða bót þar á.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þótt þér líki ekki framkoma
starfsfélaga er óþarfi að láta
það bitna á öðrum. Úr rætist
ef þið ræðið málin í bróðemi.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þú hefur tiihneigingu til
óþarfa hlédrægni sem getur
spillt góðu sambandi við þína
nánustu og leitt til einangr-
unar þinnar.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Nákominn ættingi á við
vanda að stríða og þú vilt
rétta honum hjálparhönd.
En mundu að aðstoð og af-
skiptasemi er tvennt ólíkt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Láttu þér ekki gremjast ef
starfsfélagi leitar til þín eftir
aðstoð. Það sýnir aðeins að
hann metur álit þitt mikils.
Stj'ómuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
Snyrtivöruverslunin
Bylgjan,
KÓPAVOGI
Kynning á
Clarins-vörum
í dag
og á morgun
frákl. /2-/7.
— Gjöf fylgir kauþum -
Þangamp
allar leiðip
boðiö á fimd
ídag
ídagkl! 17.30 mun
Guðmundur Hallvarösson
ræða um atvinnu og lífeyrissjóds-:
mál og málefni aldraöra.
Fundurinn verður í
kosningamiðstöðiimi
við Lækjartorg,
Hafnarstræti 20,2. hæð.
BETRA
ÍSLAND
KOSNINGAFUNDIR I REYKJA VÍK