Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 1
120 SÍÐUR B/C/D
87. TBL. 83. ARG.
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Yasser Arafat grípur til aðgerða gegn ðfgasamtökum á Gaza
Hundruð félaga í Ham-
as og Jihad handtekin
Jerúsalem. Reuter.
MIKIL spenna ríkti á Gazasvæðinu í gær milli Frelsissamtaka Pal-
estínumanna (PLO) og samtaka íslamskra öfgamanna en af beggja
hálfu var því mótmælt að borgarastyrjöld væri yfírvofandi. Diab
Al-Louh, háttsettur leiðtogi PLO, sagði að um 300 liðsmenn Ham-
as og Jihad hefðu verið teknir fastir í fyrrinótt og gærmorgun.
Utanríkisráðherra Bretlands í Póllandi
Öruggt um aðild
að ESB og NATO
Varsjá. Reuter.
DOUGLAS Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, fullvissaði stjórnvöld í
Póllandi um það í gær, að ekkert
myndi koma í veg fyrir aðild landsins
að Evrópusambandinu, ESB, og Atl-
antshafsbandalaginu, NATO. Lech
Walesa, forseti Póllands, fagnaði því
og sagði, að það tækifæri, sem nú
byðist til að sameina Evrópu, mætti
ekki fara forgörðum.
Hurd sagði. eftir fund með Wlad-
yslaw Bartoszewski, utanríkisráð-
herra Póllands, að enginn vafi léki á
um, að Pólverjar fengju aðild að ESB
og NATO þótt ekki væri hægt að
tiltaka ártalið nákvæmlega.
Walesa kvaðst vona, að Vestur-
Evrópuríkin létu það tækifæri, sem
nú byðist til að sameina Evrópu alla,
ekki fram hjá sér fara en hann hefur
gagnrýnt Vesturlönd fyrir að tvístíga
frammi fyrir hótunum Rússa.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, er
sagður hafa ákveðið að láta til
skarar skríða gegn samtökunum
í kjölfar sjálfsmorðstilræðis ísl-
amskra öfgamanna sem kostaði
sjö Israela og bandaríska konu líf-
ið sl. sunnudag.
Umfangsmiklar
aðgerðir
Oeinkennisklæddir lögreglu-
menn knúðu dyra á heimilum fylg-
ismanna öfgasamtakanna í að-
gerðunum, sem eru þær umfangs-
mestu frá því PLO tók við yfirráð-
um á Gaza í fyrravor. Pjöldi liðs-
manna samtakanna reyndist þó
ekki dveljast heima hjá sér af ótta
við handtökur, að því talið er.
Arafat hefur verið undir miklum
þrýstingi frá bæði ísraelskum
stjórnvöldum og bandarískum um
að afvopna öfgamenn.
Gaf hann út tilskipun um að
allir sem ættu vopn skyldu mæta
í gær á tilteknum stöðum til þess
að láta skrá þau. ísraelska útvarp-
ið sagði í gær, að á hádegi hefði
enginn gefið sig fram með vopn
sín.
Skila ekki vopnum
Bandarísk stjómvöld fögnuðu
ákvörðun Arafats og hvöttu hann
til þess að slaka ekki á tilraunum
til þess að uppræta samtök öfga-
manna.
Fulltrúar Jihad gagnrýndu til-
skipanir og stefnu Arafats og
sögðust ekki myndu skila vopnum
nema orðið yrði við kröfum þeirra
um að 4.000 manna byggð gyð-
inga á Gaza verði lögð niður.
Leiðtogar Hamas skelltu skuld-
inni á handtökunum á Yitzhak
Rabin forsætisráðherra ísraels og
sögðu að hann ætti eftir að súpa
seyðið af þeim.
I gær tilkynnti ísraelska stjórn-
in, að Palestínumönnum yrði ekki
leyft að yfirgefa Vesturbakkann
og Gaza meðan á páskahátíðinni
stendur frá því síðdegis í dag og
fram á sunnudaginn 16. apríl.
Grálúðu-
deila
óleyst enn
Brussel, Madrid. Reuter.
FRESTURINN, sem Kanadastjóm
hafði gefið Evrópusambandinu,
ESB, til að leiða til lykta grálúðu-
deiluna, rann út í gær án þess að
samningar næðust. Spánverjar ætla
að senda þriðja varðskipið á miðin
við Nýfundnaland en ESB vonast
til, að viðræðum verði haldið áfram.
Sendiherrar ESB-ríkjanna krefj-
ast þess meðal annars, að væntan-
legir samningar um grálúðuveiðam-
ar taki til allra, sem hagsmuna eiga
að gæta á miðunum undan austur-
strönd Kanada, og vilja auk þess,
að eigendum spænska togarans
Estai, sem Kanadamenn færðu til
hafnar, verði bættur skaðinn, þ.e.
að sektargreiðslunni verði skilað.
Þriðja varðskipið
Á fundi sínum í gær tóku sendi-
herrarnir enga afstöðu til skiptingar
grálúðukvótans en Spánverjar krefj-
ast helmingsins eða 13.500 tonna.
Spænska vamarmálaráðuneytið til-
kynnti i gær, að þriðja varðskipið
yrði sent á grálúðumiðin á föstudag.
Ekki er vitað hvernig Kanada-
stjóm muni nú bregðast við en
ýmsir sendiherrar ESB-ríkjanna
segjast vona, að hún fari sér hægt
meðan reynt sé að fá Spánveija til
að slaka á kröfum sínum.