Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þetta er nú ekkert til að sýna hr. Tobin. Það kemst ekki svo mikið sem skítur úr svifi í gegn-
um möskvana sem við notum á íslandsmiðum . . .
Ragnar Arnalds á lengstan feril í bingmennsku að baki
Meðalaldur þingmanna
á kjördegi 45,68 ár
Aldurs- og 0
kynskipting 0 Meðalaldur
þingmannanna 0 þingmanna erámilli
0 45 og 46 árí
4/ ^ 0
0 ^ Ný á þingi 0
0 Q Áður kjörin ö 0
0 ö 0
0 w 0
0 ö 0
öf oio a
. a oq öq a a ^
a oq öq a a a
ÖQ a OQ OQ OQO a
Of ÖQ ÖQ ÖQ ÖQ OQ a
30-35 ára 36-40 ára 41-45 ára 46-50 ára 51-55ára 56-60 ára 60ára +
MEÐALALDUR þingmanna á
komandi löggjafarþingi íslendinga
er 45,68 ár ef miðað er við kjör-
dag. Elstur þingmanna er Egill
Jónssop (D), 64 ára. Flokksbróðir
hans Ólafur G. Einarsson er 62
ára og Kristín Halldórsdóttir (V)
er elst þingkvenna, 55 ára. Yngsti
þingmaðurinn að þessu sinni er
Lúðvík Bergvinsson (A), sem verð-
ur 31 árs í lok mánaðar, og yngst
þingkvenna er Siv Friðleifsdóttir
(B), 32 ára.
Lengstan feril í þingmennsku á
að baki Ragnar Arnalds (G). Hann
var fyrst kjörinn á þing árið 1963-
1967 og aftur 1971 og hefur því
setið í um 28 ár. Meðalaldur þing-
manna á 118. löggjafarþingi var
47,6 ár á kjördegi 1991, en hæst-
ur var meðalaldur þeirra í kosning-
um árið 1911, 51,4 ár.
Konum fjölgar
Sextán konur hlutu kosningu
sem aðalmenn á þingi í kosningun-
um nú og eru því einni fleiri en
áður. Karlmenn á þingi verða 47
en voru flestir kjörnir 59, bæði
1963 og 1967. Konur fengu kjör-
gengi árið 1915 og sat ein kona
á þingi að jafnaði frá 1923-1937.
Árið 1946 var ein kona kjörin á
þing og tvær árið 1949. Árin 1963
og 1967 voru þrjár konur kjörnar
til þingsetu og svo hélst til 1983,
að þær urðu níu. Árið 1987 náðu
13 konur kjöri og 15 árið 1991,
sem fyrr er getið.
Préstur ensku biskupakirkjunnar
Kannar þörf fyr-
ir prestsþjón-
ustu hérlendis
Séra Steven Mason
MIKIL umræða hef-
ur átt sér stað á
undanförnum
árum innan ensku biskupa-
kirkjunnar og mótmæl-
endakirknanna á Norður-
löndum og í Eystrasalts-
ríkjunum um aukið sam-
starf. Á síðasta ári var
undirritað samkomulag
kennt við borgina Porvoo
í Finnlandi, þar sem kirkju-
deildirnar viðurkenna hver
aðra. Er það fyrsta skrefið
í átt að nánari samvinnu
kirkna í norðanverðri Evr-
ópu. í kjölfar þessa sam-
komulags, svo og komu
erkibiskupsins af Kantara-
borg og biskupsins
Grimsby til íslands, var
ákveðið að senda prest frá
ensku biskupakirkjunni
hingað til lands til að
kanna hversu mikil þörf væri fyr-
ir prestþjónustu meðal fólks sem
búsett er hérlendis en tilheyrir
ensku biskupakirkjunni. Séra Ste-
ven Mason kom hingað til lands
í þessum erindagjörðum fyrir
réttri viku og mun messa fyrsta
sinni á páskadag kl. 14 í Dóm-
kirkjunni, auk þess sem hann
þjónar til altaris í messu kl. 8
sama morgun, þar sem séra Ólaf-
ur Skúlason predikar.
/ hverju íelst starf þitt hér?
— Ég verð hér aðeins í þrjá mán-
uði og á þeim tíma er ætlunin að
ég kanni hversu margir tilheyri
ensku biskupakirkjunni eða öðrum
af því kirkjusamfélagi. Einnig
hvaða óskir eru um messuhald
fyrir enskumælandi, fyrir sálu-
sorgun og aðra prestsþjónustu
hér. Ætlunin er ekki að hér verði
að jafnaði prestur frá Bretlandi,
heldur að kanna hvernig lúterska
kirkjan geti þjónustað þetta fólk,
t.d. með reglulegum messum á
ensku. Ég er rétt að hefja störf
svo að ég get enn sem komið er
litla grein gert mér fyrir þessu.
Hvaða prestsþjónusta hefur staðið
þeim sem tilheyra ensku biskupa-
kirkjunni til boða hér á iandi hing-
að til?
— Boðið hefur verið upp á mán-
aðarlegar guðsþjónust'Ur fyrir þá
sem eru enskumælandi. Prestar
varnarliðsins þjónusta þetta fólk
og tilheyra ýmsum kirkjum, t.d.
meþódista- og baptistakirkjunni.
Þeir Bretar sem ég hef hitt hér
og gifst hafa inn í íslenskar fjöl-
skyldur, hafa lagað sig að fjöl-
skyldusiðum og sækja kirkjulegar
athafnir í lúterskum kirkjum.
Hver er meginmunurinn á
ensku biskupakirkjunni og lút-
ersku kirkjunni?
— Það er erfitt að segja. Ef til
vill má líkja ensku
biskupakirkjunni við
einhverskonar stak-
stein á milli lútersku
kirkjunnar og þeirrar
kaþólsku. Þar með er
þó ekki sagt að hún sé einungis
blanda eða millistig þeirra. Þeir
sem starfa innan hennar eru eins
misjafnir og þeir eru margir. Fjöi-
margir eru hlynntir lútersku kirkj-
unni en aðrir eru kaþólskari en
páfjnn.
Ég get nefnt sem dæmi um
afstöðu kirkjunnar í ýmsum mál-
um, að það er undir hveijum og
einum biskupi komið, hvort hann
leyfir giftingu fráskilinna. Prestar
mega giftast og konum var nýlega
leyft að taka prestvígslu, sem
► Steven Mason er fæddur
árið 1965 í Lincolnskíri, nærri
Peterborough. Átján ára hóf
hann nám við St. Daniels-
háskólann í Wales, þar sem
hann lagði stund á guðfræði og
hagfræði í þrjú ár. Mason starf-
aði í tvö ár í Lundúnum með
heimilislausu fólki og föngum á
skilorði. Að því búnu lagði hann
stund á guðfræði við Cuddes-
don í Oxford í þrjú ár. Hann
tók prestsvígslu árið 1992 og
er aðstoðarprestur í Grimsby.
Mason hefur starfað með
kirkjufélögum á Filippseyjum
og leysti af prest biskupakirkj-
unnar hjá Evrópuráðinu í
Strasbourg síðasta sumar.
Hann fékk þriggja mánaða leyfi
frá störfum til Islandsfarar en
ætlun hans hér er að kanna
hversu mikil þörf er fyrir
prestsþjónustu við þá sem til-
heyra ensku biskupakirkjunni
og öðrum tengdum kirkjufélög-
um en eru búsettir á íslandi.
Mason er ókvæntur en á unn-
ustu.
mikill minnihluti presta er andvíg-
ur. Þess eru nær engin dæmi að
fóllc gangi til skrifta. Hvað mess-
una sjálfa varðar, er helsti munur-
inn sá að fleiri taka jafnan þátt í
helgiþjónustunni en presturinn
einn og svo skilst mér að hér séu
ekki tekin samskot eins og tíðkast
hjá okkur. Annars sýnist mér lít-
ill munur á lútersku kirkjunni og
ensku biskupakirkjunni.
Rétt er að taka það fram að
fjölmörg önnur kirkjufélög tengj-
ast ensku biskupakirkjunni og
kallast einu nafni anglíkanar.
Leiðtogi þeirra er erkibiskupinn
af Kantaraborg. Ég hef m.a. starf-
að hjá slíkum kirkjufélögum á
Filippseyjum.
Hvað með sjálfan þig,
ert þú af prestum kom-
inn?
— Nei, foreldrar
mínir eru ekki kirkju-
rækið fólk. Mig draymdi hins veg-
ar um að verða prestur frá þrettán
ára aldri, án þess að ég geti út-
skýrt af hverju. Þegar ég lagði
stund á hagfræði með guðfræðin-
áminu gældi ég við tilhugsunina
um að verða verðbréfasali en svo
náði trúin yfirhöndinni á ný. Hag-
fræðinám mitt hefur gert það að
verkum að ég sé kirkjuna fyrir
vikið öðrum augum, átta mig lík-
lega fremur á því hvað telst hag-
kvæmt og hvað óhagkvæmt. Eg
er afskaplega jarðbundinn maður.
Langaði til að
verða verð-
bréfasali