Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 21
Schengen vekur deilur í Frakklandi
Pasqua styður
Schengen án hiks
CHARLES Pasqua, innanríkisráð-
herra Frakklands, og einn helsti
leiðtogi þeirra Frakka, sem hafa
efasemdir um Evrópuþróunina,
varði í gær opnun landamæra milli
sjö ESB-ríkja. „Ég tel Schengen-
samkomulagið vera skref fram á
við, ekki síst þegar kemur að beiðn-
um um pólitískt hæli... Það er
Frökkum mjög mikilvægt,“ sagði
Pasqua í viðtali.
Aðildarríki Schengen hafa tekið
upp sameiginlegar reglur varðandi
vegabréfsáritanir til að koma í veg
fyrir að menn geti sótt um hæli í
fleiri en einu ríki. Þá fer allt vega-
bréfseftirlit nú fram á ytri landa-
mærum ríkjanna en ekkert eftirlit
er á innri landamærum.
Samkomulagið hefur komið til
umræðu í kosningabaráttunni fyrir
frönsku forsetakosningarnar að
undanförnu. Jacques Chirac, sem
flest bendir til að muni sigra í kosn-
ingunum, sagðist í síðustu viku vilja
endursemja um Schengen og helsti
stuðningsmaður hans, Alain Juppé,
sem margir telja að verði næsti
forsætisráðherra, sagði jafnvel
koma til greina að Frakkar hættu
alfarið þátttöku í Schengen-sam-
komulaginu.
Frambjóðandinn Philippe de
Villiers, sem hefur Evrópuandstöðu
að helsta stefnumáli, hefur sakað
stjórnina um að opna landamæri
Frakklands á kæruleysislegan hátt.
Eigi Frakkar nú á hættu að ólögleg-
ir innflytjendur og eiturlyf flæði inn
í landið. Hægrimaðurinn Jean-
Marie Le Pen hefur sömuleiðis lýst
yfir andstöðu við Schengen-sam-
komulagið.
Ítalía veikasti hlekkurinn
Pasqua viðurkenndi að sam-
komulagið væri ekki fullkomið og
sagðist hafa mestar áhyggjur af
Italíu. „ítalir hafa undirritað sam-
komulagið en eru þfærir um að
framkvæma það. ítölsku landa-
mærin eru þau hættulegustu hvað
okkur varðar og við höldum áfram
uppi fullu eftirliti þar,“ sagði
Pasqua. Hann sagði Þjóðveija einn-
ig hafa áhyggjur af því að flótta-
menn frá Kosovo-héraði í fyrrver-
andi Júgósjavíu streymdu til Þýska-
lands frá Ítalíu í gegnum Austur-
ríki. „Þjóðveijar íhuguðu jafnvel
einu sinni að nýta sér neyðarrétt-
arákvæði samkomulagsins," sagði
Pasqua.
Franski innanríkisráðherrann
sagðist sannfærður um að nauðsyn-
legt væri að mynda sameiginlegt
evrópskt löggæslusvæði. „Málið
nýst ekki einvörðungu um landa-
mæravörslu. Evrópusambandið
verður að taka forystu varðandi
þróunarstarf. Ef við æskjum þess
að íbúar Afríku dvelji þar en komi
ekki hingað verðum við að aðstoða
þá,“ sagði Pasqua.
Reuter
Svínað á lögunum?
BREZK lögreglukona ræðir við mótmælanda gegn útflutningi
lifandi dýra til annarra Evrópusambandslanda fyrir utan bygg-
ingu hæstaréttar í London í gær. í sumum brezkum höfnum hef-
ur verið sett bann við skepnuútflutningi vegna ótta hafnaryfir-
valda við mótmæli dýravina. HæstíFéttur dæmdi slíkt bann í gær
ólöglegt og úr gildi fallið og vildu dýravinir mótmæla dómnum.
Japanir hlessa
á fisksölubanni
• JAPÖNSK stjórnvöld sögðust
í gær ætla að grípa til aðgerða
þegar í stað til að hægt yrði að
aflétta banni Evrópusambands-
ins við innflutningi á japönskum
sjávarafurðum. Japanskir emb-
ættismenn sögðust mjög hissa á
þessu banni og að þeir hefðu
ekki verið vacaðir við áður en
bannið skall á. Þá sögðu þeir
koma á óvart á að innflutnings-
bannið, sem nökstutt er með að
ESB hafi áhyggjur af hreinlæti í
japanskri fiskvinnslu, næði einnig
til fískvinnslustöðva, sem eftirlits-
menn ESB hefðu ekki heiinsótt.
Aðilar í japönskum sjávarútvegi
lýstu hins vegar yfir reiði sinni
og sögðu engin rök vera fyrir
aðgerðum af þessu tagi.
• KENNETH Clarke, fjármála-
ráðherra Bretlands, hefur lagst
gegn tillögum um að framlög til
Evrópubankans verði aukin.
Hann segir nauðsynlegt að end-
urskipuleggja starfsemi bankans
og draga úr kostnaði við rekstur
hans. Clarke bendir á að kostnað-
ur vegna 23 manna sljórnar
bankans nemi 12% af rekstrar-
kostnaði og leggur til að sá
kostnaður verði skorinn niður
um þriðjung.
• BRESKA símafyrirtækið Brit-
ish Telecom er í þann mund að
hefja samstarf við fyrirtæki í
Svíþjóð og Italíu, að sögn Wall
Street Journal. Telur fyrirtækið
að það eigi mikla möguleika á
evrópskum mörkuðum eftir að
frelsi í símamálum verður aukið
í ríkjum ESB árið 1998.
• JACQUES Santer, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, setti
á þriðjudag ráðstefnu um ESB-
fjárfestingar á Norður-írlandi.
Hvatti hann bresku ríkisstjórn-
ina til að styðja friðarþróunina
með því að auka framlög sín til
héraðsins.
Chirac bæt-
ir við sig
Paris. Reuter.
JACQUES Chirac, borgarstjóri Par-
ísar, hefur bætt nokkuð við fylgi sitt
fyrir forsetakosningarnar í Frakk-
landi, samkvæmt nýjum skoðana-
könnunum.
Kannanir undanfarna daga hafa
bent til þess að helstu andstæðingar
Chiracs, þeir Edouard Balladur for-
sætisráðherra og Lionel Jospin,
frambjóðandi sósíalista, væru að
sækja í sig veðrið.
Samkvæmt könnun IFOP nýtur
Chirac stuðnings 27% kjósenda,
Jospin 21% og Balladur 19%.
Onnur könnun fyrir París Match
sýndi Chirac með 26% fylgi, Jospin
með 21% og Balladur með 17,5%.
Þriðjungur kjósenda er hins vegar
enn óákveðinn.
------» ♦ ♦
Winnie fær
uppreisn
Pretoríu. Reuter.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, hefur ákveðið að afturkalla
brottrekstur eiginkonu sinnar,
Winnie Mandela, úr embætti aðstoð-
arráðherra til að komast hjá illvígum
deilum og réttarhöldum.. Henni var
vikið úr embætti í lok mars.
í yfirlýsingu frá forsetanum, sem
hefur verið í opinberri heimsókn til
ríkja við Persaflóa, segir m.a., að líta
beri á brottrekstur frú Mandela sem
ógildan. Hún sé því enn aðstoðarráð-
herra lista, menningar, vísinda og
tækni, og eftirmaður hennar víki.
Forsetinn mun taka afstöðu til
stöðu eiginkonu sinnar í stjóminni
þegar hann snýr heim frá Persaflóa
í dag. Þau eru skilin að borði og
sæng. Er hann vék henni taldi hann
rétt að því staðið. Nú hefur komið í
ljós að á því séu lagalegir annmarkar.
Reuter
Geimferja í Gorkí-garði
STARFSMENN Gorkí-garðsins í
Moskvu dytta að geimfeijunni
Búran sem komið hefur verið
fyrir í garðinum i miðborg
Moskvu þar sem hún verður al-
menningi til sýnis. Feijan flaug
aldrei vegna fjárskorts. I gær
minntust Rússar þess að þann dag
árið 1961 var Júrí Gagarín fyrst-
um manna skotið út í geiminn.
Glœsilegt
kynningartilboð
til Benidorm l.júní
frá kr. 49.730
Verð frá kr. 49.730
m.v. hjón með 2 böm 2-12 ára, 1. júní, 3 vikur.
Verð frá kr. 59.960
m.v. 2 í íbúð, Centuiy Vistamar.
Við höfum nú fengið viðbótargistingu á Century Vistamar, aðalgististaðnum okkar á
Benidorm, á kynningarverði og getum nú stolt boðið þér frábæran aðbúnað í fríinu á
Benidorm í sumar. Afar vel búið íbúðahótel með allri þjónustu, allar íbúðir með
sjónvarpi, síma, einu svefnherbergi, stofu, baði, eldhúsi og stórum svölum.
Góður garður, móttaka, veitingastaður og verslun.
Bókaðu strax og tryggðu þér
síðustu sœtin í júní.
hmifalið í verði: Flug, gisting.fararstjórn,
ferðir til ogfrá flttgvelli á Spáni, allir
skattar ogfoifallagjöld.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 624600.